Morgunblaðið - 25.11.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 25.11.2019, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Evrópusam-bandiðglímir við og hefur lengi glímt við margvíslegan vanda. Þar er ekki síst um að ræða fjárhagslegan vanda aðildar- ríkja sambandsins sem í kjölfar skuldakreppunnar fyrir rúmum áratug hafa þurft að þola afleið- ingar þess að hafa tekið upp evruna. Fyrir sum hafa afleið- ingarnar verið skelfilegar með fjárhagslegum erfiðleikum sem ekki sér fyrir endann á, svo sem í Grikklandi. Fyrir önnur hafa afleiðingarnar verið minni, en þó umtalsverðar, líkt og í Þýskalandi. Viðbrögðin innan Evrópu- sambandsins, meðal embættis- manna þess og annarra heittrú- aðra, hafa verið á einn veg. Vandinn, eða í það minnsta sú staðreynd að ekki hafi tekist að ráða við hann, er rakinn til þess að Evrópusambandið hafi ekki nægilega öflug fjárhagsleg tæki til að grípa inn í efnahagslífið í aðildarríkjunum og rífa þau upp úr öldudalnum. Þessi kenning er jafn vafasöm og hún er hættuleg, meðal annars vegna þess að hún felur í sér að krafan um aukinn samruna ríkja Evr- ópusambandsins verður hávær- ari. Vandinn er ekki sá að Evr- ópusambandið hafi ekki fullnýtt þau tæki sem það hefur haft á sviði peningamála. Seðlabanki evrunnar hefur keyrt vexti nið- ur fyrir eðlileg mörk og gengið mjög langt að öðru leyti einnig til að halda hjólum fjármálalífs- ins gangandi. Mario Draghi, sem lét af störfum sem seðla- bankastjóri evrunnar fyrir hálfu ári, sagði á sínum tíma að bank- inn væri reiðubúinn að gera hvað sem væri til að verja evr- una, og bætti því við að enginn skyldi efast um að það yrði nóg. En allar þessar aðgerðir, jafn óheftar og þær voru, dugðu ekki til svo að enn er unnið að frekari aðgerðum. Þar sem talið er að seðlabanki evrunnar hafi gengið alveg fram að hengifluginu og komist því ekki lengra með þeim tækjum sem honum standa til ráðstöfunar, þá er horft til ríkisfjármálanna. Þegar að þeim kemur reka menn sig á að ríkisfjármálin á evrusvæðinu eru ekki sameig- inleg. Þrátt fyrir að samruninn hafi farið sífellt vaxandi og að Evrópusambandið hafi afskipti af ríkisfjármálum aðildarríkj- anna halda þau engu að síður enn í nokkurt sjálfstæði að þessu leyti. Þessu telja ráða- menn sambandsins að verði að breyta með því að færa enn auk- in völd til Brussel og draga enn frekar úr sjálfstæði og fullveldi aðildarríkjanna. Draghi viðurkenndi til dæmis þegar hann kvaddi seðlabank- ann að tæki hans hefðu ekki dugað og dró þá ályktun að þörf væri á nýjum tækj- um í baráttunni við veikan efnahag evrusvæðisins. Sú lausn að hætta við evruna er aldrei rædd. „Augljóst er að nú er tími meiri Evrópu, ekki minni,“ sagði Draghi, og ruglaði vísvitandi saman Evrópu og Evrópusambandinu eins og ráðamenn þess gera jafnan. Hann sagði að sameiginleg rík- isfjármál væru nauðsynleg til að fyrir hendi væri miðstýrt fjár- hagslegt vopnabúr til að tryggja efnahagslegan stöðugleika. Þessi umræða hefur haldið áfram innan Evrópusambands- ins og á sér ýmsar hliðar en meginatriðið er að vilji þeirra sem ráða för er að auka samrun- ann. Þetta kemur meðal annars fram í umræðu sem tengist út- göngu Breta úr Evrópusam- bandinu, Brexit, sem enn eru líkur á að verði þrátt fyrir að Evrópusambandið hafi unnið af öllum mætti gegn útgöngunni og þar með gegn vilja almenn- ings í Bretlandi. Eitt af því sem Evrópusam- bandið stendur frammi fyrir við útgönguna er að ráðstöfunarfé þess minnkar, sem að öðru jöfnu hefði þýtt að umsvifin minnkuðu og ef til vill sömuleiðis bolmagn þess til að ganga hraðar og lengra í samrunaátt. Þetta er nokkuð sem embættismenn í Brussel og aðrir ákafamenn Evrópusambandsins mega ekki hugsa til. Þess vegna er nú róið að því öllum árum að hækka hlutfallið sem aðildarríkin greiða til Evrópusambandsins. Hlutfallið er nú 1,03% af lands- framleiðslu ríkjanna en hækk- unin þarf að vera upp í 1,11% til að sambandið missi ekki spón úr aski sínum við útgönguna. Þetta er mikil hlutfallsleg hækkun, en fyrir sum ríki er hún margföld, því að mörg ríkjanna taka meira til sín en þau greiða til sam- bandsins. Þau sem halda því í raun uppi þurfa því að taka á sig verulega auknar byrðar til að halda úti óbreyttum rekstri. Þannig hefur verið reiknað út að framlag Þýskalands myndi tvö- faldast og Hollands aukast um 75%. Önnur ríki sem tækju á sig verulega auknar byrðar eru Austurríki, Danmörk og Sví- þjóð, sem sýnir vel í hverju Ís- land kynni að lenda hefði rík- isstjórn Samfylkingar og VG tekist að keyra landið inn í Evr- ópusambandið fyrir nokkrum árum. Innan Evrópusambandsins er nú tekist á um þetta og hversu langt það eigi enn að ganga inn á verksvið aðildarríkjanna. Nið- urstaðan í hvorugu liggur fyrir en viðvörunarljósin lýsa skærar en nokkru sinni og má furðu sæta að enn heyrist raddir hér á landi sem kalla eftir aðild Ís- lands að sambandinu eða óþarfri eftirgjöf þegar kemur að innleiðingu reglna þess. Evrópusambandið sér aðeins eina leið út úr þeim vanda sem við er að etja} Vaxandi vandi N ú nýlega lauk á Alþingi 2. um- ræðu fjárlaga fyrir árið 2020. Umræðan var á margan hátt dýpri en verið hefur und- anfarin ár og þingflokkar höfðu tækifæri til þess að gera betur grein fyrir breytingartillögum sínum en oft áður. Niðurstaða umræðunnar var þó hefð- bundin. Allar tillögur stjórnarandstöðunnar voru felldar af sitjandi meirihluta. Aðgerðir ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur voru hefðbundnar. Þeir sem minnst hafa og minnst eiga munu bera skarðastan hlut og þyngstar byrðar og þurfa því enn um sinn að bíða eftir réttlæti. Breytingatillögur stjórnarandstöðu á hverjum tíma eru mis- vel fram settar. Í ár voru tillögur nokkurra stjórnarandstöðuflokka í stórum slumptöl- um sem voru að mestu ófjármagnaðar. Sem sagt hefðbundin yfirboð. Tillögur Miðflokksins voru raunsæislegar, þrauthugsaðar og fjármagnaðar að fullu. Mig langar að gera hér örstutta grein fyrir því helsta sem Miðflokkurinn lagði til en stjórnarmeiri- hlutinn felldi. Miðflokkurinn lagði til að breytingartillögur hans yrðu einkum fjármagnaðar með tvennum hætti. Í fyrsta lagi með hagræðingarkröfu á rekstur ráðu- neyta sem endurspeglar þá stefnu flokksins að hafa hemil á bákninu. Í öðru lagi með sölu á „holu“ eða nýbyggingu Landsbanka Íslands við höfn- ina sem einnig er byggð á þeim hinum sama vilja flokksins auk þess að leggja áherslu á ráðdeild í rekstri fyrirtækja í eigu almennings. En hvað vildi svo Miðflokkurinn gera við þá fjármuni sem þarna eru undir? Í aðal- atriðum má skipta útgjaldatillögunum í fernt. 1. Að stuðla að öflugri atvinnu- rekstri með raunverulegri lækkun trygg- ingagjalds. 2. Að efla stöðu aldraðra og ör- yrkja með því að atvinnutekjur rýri ekki lífeyrisgreiðslur ásamt því að efla rekstur hjúkrunarheimila. 3. Að efla löggæslu og tollgæslu og þar með öryggi á landamær- um til að freista þess að stemma stigu við stórauknum fíkniefnainnflutningi. 4. Að efla geðsvið Landspítalans einkum vegna þeirrar ógnar sem steðjar að ungu fólki með geðræn- an vanda oft af völdum fíknar. Þrátt fyrir að allar til- lögurnar hafi verið felldar af stjórnarmeirihlutanum munu einhverjar þeirra verða endurfluttar við 3. um- ræðu innan skamms til þess að gefa mönnum tæki- færi til að sjá að sér og sýna í verki hvort yfirlýst stefna ríkisstjórnarinnar um eflingu Alþingis er meira en orðin tóm. thorsteinns@althingi.is Þorsteinn Sæmundsson Pistill Fjárlög 2020 – Tillögur Miðflokksins Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Framleiðsla landsmannajókst um allt land á ár-unum 2012 til 2017 en þómest á ferðamannaslóð- um. Umsvifin eru mismikil í ein- stökum landhlutum. Þetta má lesa út úr nýrri skýrslu dr. Sigurðar Jóhannessonar hjá Hagfræðistofn- un Háskóla Íslands sem unnin var í samvinnu við þróunarsvið Byggðastofnunar. Þessar úttektir hafa verið unnar með reglulegum hætti á umliðnum árum en nú er tekið fyrir eitt mesta hagvaxt- arskeið landsmanna á síðari tím- um, árin 2012-2017. Í seinustu úttekt sem birt var fyrir ári kom í ljós að mesti hag- vöxturinn frá hruni þá var á Suð- urlandi en nú hafa Suðurnesin tek- ið forystuna. Þar munar mest um 16% hagvöxt á árinu 2017. Á Suðurnesjum jókst framleiðsla að meðaltali um rúm 10% á ári frá 2012 til 2017 á meðan framleiðsla yfir landið allt jókst að meðaltali um tæp 5% á þessum árum. Suður- land kemur næst með 5,9% hag- vöxt og framleiðsla jókst um 5% á ári að jafnaði á höfuðborgarsvæð- inu. Sé litið á uppsafnaðan vöxt yfir þetta sex ára tímabil þá var hann 64% á Suðurnesjum, 33% á Suðurlandi og 28% á höfuðborgar- svæðinu. „Suðurnes standa langt upp úr, en þar jókst framleiðsla að meðaltali um rúm 10% á ári frá 2012 til 2017. Meginskýringin á hröðum hagvexti þar er straumur ferðamanna hingað til lands, en á árunum 2012 til 2017 fjölgaði út- lendingum sem fóru um Keflavík- urflugvöll úr tæplega 650 þús- undum í 2,2 milljónir. Þjónusta við ferðamenn er orðin mikilvægur at- vinnuvegur á Suðurlandi, en þar var hagvöxtur að meðaltali tæp 6% á ári frá 2012 til 2017. Gistinóttum erlendra ferðamanna á Suðurlandi fjölgaði um 260% á þessum árum. Þær voru um 1.650 þúsund árið 2017,“ segir í skýrslunni. Ef litið er á þróunina í öðrum landshlutum má sjá að allgóður hagvöxtur var líka á þessum árum á Norðurlandi eystra eða tæp 4% að jafnaði á ári. Hann var hins vegar undir þremur prósentum í öðrum landshlutum sem njóta síð- ur góðs af fjölgun ferðamanna, þ.e. tæp þrjú prósent að jafnaði á ári á Vestfjörðum og Vesturlandi, 2,4% á Norðurlandi vestra og minnstur á Austurlandi eða 1,1%. Lítinn hagvöxt á Vestfjörðum, Norður- landi vestra og Austurlandi má meðal annars skýra með því að er- lendir ferðamenn leita ekki mikið þangað. Árið 2017 voru aðeins 4% gistinátta útlendinga á Austur- landi, 2% á Vestfjörðum og 2% á Norðurlandi vestra. „Lítinn hag- vöxt á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Austurlandi má meðal annars skýra með því að erlendir ferðamenn leita ekki mikið þangað. Árið 2017 voru aðeins 4% gisti- nátta útlendinga á Austurlandi, 2% á Vestfjörðum og 2% á Norður- landi vestra,“ segir í skýrslunni. Ekki kemur á óvart þegar litið er á hvaða atvinnugreinar bera hagvöxtinn uppi að þær tengjast að hluta til ferðaþjónustu. „Upp- gangur ferðaþjónustu á Íslandi er einstakur. Á árunum 2012 til 2017 jukust beinar tekjur Íslendinga af þjónustu við ferðamenn úr 4,2% af landsframleiðslu í 8,6%, og er það miklu meiri breyting en í nokkru öðru iðnríki, samkvæmt yfirliti Efnahags- og þróunarstofnunar- innar, OECD. Hlutdeild ferðaþjón- ustu í landsframleiðslu er í lok tímabilsins ekki fjarri því sem ger- ist í þekktustu ferðamannalöndum. Hún er rúmlega 11% á Spáni (2016), 12½% í Portúgal (2016), en tæp 7% í Grikklandi (2017).“ Morgunblaðið/Eggert Leifsstöð 10 prósenta hagvöxtur á Suðurnesjum á ári er fyrst og fremst til- kominn vegna stórfjölgunar ferðamanna um Keflavíkurflugvöll. Suðurnesin taka toppsætið í hagvexti Flutningar og vöxtur » Tölur um fólksflutninga sýna að flestir fluttu til Suður- nesja frá 2012-2017, 12% að- fluttra af íbúafjölda á því svæði komu frá útlöndum og 4% frá öðrum landshlutum. » Þegar reiknuð er fram- leiðsla á mann kemur í ljós að hún var mest á Austurlandi, höfuðborgarsvæðinu og á Vesturlandi 2017, en minnst framleiddi hver maður á Vest- fjörðum og á Norðurlandi vestra. » Vöxtur framleiðslunnar á Suðurnesjum er sagður liggja m.a. í því að þangað flutti í miklum mæli fólk á aldrinum 25-40 ára, sem ekki hefur með sér börn. » Hlutfall veitinga- og hótelrekstrar var lægst eða 2½% af framleiðslu á Vest- fjörðum, en hæst tæp 10% á Suðurlandi á árinu 2017. » Á höfuðborgarsvæðinu framleiddi hver maður að með- altali 3,6 milljónir kr. árið 2017 og á Norðurlandi eystra er meðalframleiðsla á mann 2,8 milljónir kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.