Morgunblaðið - 25.11.2019, Side 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2019
Skeifan 3 • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is • rafver@rafver.is
(*á meðan birgðir endast)
FC 5
Skúringarvél
K5 Öflug
háþrýstidæla
FRÁ
26.099
TILBOÐ
56.516
TILBOÐ
KB 5
Rafmagnssópur
með batterí
FRÁ
10.950
TILBOÐ
RC 3
Ryksugu-
vélmenni
90.872
TILBOÐ
SC 2 Gufutæki
sem þrífur án
hreinsiefna
23.659
Hvít
TILBOÐ
WV 2
Gluggaskafa
FRÁ
9.340
TILBOÐ
Allt að70% afsláttur af*
GULUR FÖSTUDAGUR
22.-29. nóvember
Danmörk
SönderjyskE – Lyngby............................. 2:2
Eggert Gunnþór Jónsson lék allan leik-
inn fyrir SönerjyskE meðan Ísak Óli Ólafs-
son vermdi varamannabekkinn.
Frederik Schram vermdi varamanna-
bekk Lyngby allan leikinn.
AGF – Bröndby ......................................... 2:1
Jón Dagur Þorsteinsson fór af leikvelli á
82. mín. Hann lagði upp mark.
Hjörtur Hermannsson lék fyrstu 82 mín.,
fyrir Bröndby.
B-deild:
Roskilde – Vejle......................................... 0:4
Kjartan Henry Finnbogason lék allan
leikinn fyrir Vejle og skoraði 1 mark.
Vendsyssel – Viborg................................. 1:0
Ingvar Jónsson stóð í marki Viborg allan
leikinn.
Noregur
Viking – Rosenborg.................................. 2:2
Samúel Kári Friðjónsson lék allan leikinn
fyrir Viking. Axel ÓskarAndrésson er frá
keppni vegna meiðsla.
Ranheim – Lilleström............................... 2:1
Arnór Smárason kom inn á sem varamað-
ur hjá Lilleström á 76. mín.
Búlgaría
Levski Sofia – Tsarsko Selo .................... 2:0
Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn
fyrir Levski Sofia.
Pólland
Jagiellonia – Arka Gdynia....................... 2:0
Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn fyrir
Jagiellonia og skoraði annað markið.
Grikkland
PAOK – Larissa......................................... 1:0
Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn fyr-
ir PAOK.
Ögmundur Kristinsson stóð að vanda í
marki Larissa.
Úkraína
Kolos Kovalivka – Desna ......................... 2:0
Árni Vilhjálmsson skoraði 1 mark og var
tekinn af velli í uppbótartíma hjá Kovalivka.
Hvíta-Rússland
BATE Borisov – Dinamo Minsk.............. 3:0
Willum Þór Willumsson kom inn á sem
varamaður á 82. mín., í liði BATE.
Ungverjaland
Újpest – Diösgyöri .................................... 0:2
Aron Bjarnason kom inn sem varamaður
Ujpest á 62. mín.
Ítalía
B-deild:
Spezia – Frosinone.................................... 2:0
Sveinn Aron Guðjohnsen lék allan leikinn
fyrir Spezia og skoraði fyrra markið.
Tyrkland
B-deild:
Akhisarspor – Altay Izmir........................2:1
Theódór Elmar Bjarnason lék allan leik-
inn fyrir Akhisarspor.
KNATTSPYRNA
KRAFTLYFTINGAR
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Það má segja allt hafi gengið upp
hjá mér þar sem ég bætti minn fyrri
árangur í öllum greinum,“ sagði ný-
krýndur bronsverðlaunahafi í +120
kílóflokki á heimsmeistaramótinu
kraftlyftingum, Júlían J.K. Jóhanns-
son,þegar Morgunblaðið náði tali af
honum í Dúbaí í gær hvar hann
keppti á laugardag með svo glæsi-
legum árangri. Ekki aðeins vann
hann til bronsverðlauna á mótinu
heldur bætti hann einnig eigið
heimsmet í réttstöðulyftu um hálft
kíló, lyfti 405,5kg.
„Maður nær sjaldan að púsla sam-
an öllum greinum á einu móti, nær
öllum greinum góðum en það er
galdurinn við þessa íþrótt meðal
annars þegar maður keppir í þremur
greinum. Greinarnar eru ólíkar og
mikil keyrsla á mótinu. Þess vegna
má lítið út af bera.
Fór fram úr vonum
Júlían lyfti samtals 1.148 kg en
fyrir mótið átti hann best 1.115 kg
sem eru ekki litlar framfarir. Hann
bætti sinn fyrri árangur í hnébeygju
um 2,5 kg, lyfti 412,5 kg, og síðan
lyfti Júlían 330 kg í bekkpressu sem
er 15 kg meira en hann hefur áður
gert í keppni. Árangurinn í bekk-
pressunni er ekki síst athyglisverður
í ljósi þess að Júlían tognaði á
brjótsvöðva í sumar við undirbún-
ingsæfingar fyrir heimsmeist-
aramótið. Af þeim sökum fór árang-
urinn í Dúbaí langt fram úr hans
björtustu vonum.
„Bætingin var kærkomin vegna
þess að það hefur gengið á ýmsu hjá
mér í bekkpressunni í gegnum tíð-
ina. Ég hélt líka að eftir meiðslin í
sumar væru engar líkur á að ég
myndi bæta mig í þessari grein.
Kærastan mín hefur hinsvegar verið
annarrar skoðunar og hélt því fast
að mér að árið í ár væri það sem ég
myndi bæta mig í bekkpressu. Og
það kom svo sannarlega hjá henni,“
sagði Júlían glaður í bragði og skal
engan undra.
Óð í heimsmetið
Fyrir lokagreinina, réttstöðulyftu,
var Bandaríkjamaðurinn Josep Cap-
pelino 22 kg á undan Júlían í sam-
anlagðri keppni. Cappelino lyfti 340
kg í fyrstu tilraun en Júlían 370. „Ég
var ákveðinn í að bæta heimsmetið
og um leið staðráðinn í að vinna
bronsið. Þess vegna var ég ekkert að
tvínóna heldur vatt mér í að gera at-
lögu að heimsmetinu strax í annarri
umferð í stað þess að bíða fram í
þriðju og síðustu lyftu því ég vissi
ekki hversu mikla orku ég hefði eft-
ir. Ég lagði allt í sölurnar í annarri
lyftu og það gekk allt upp, 405,5 kg.
Þar með var forskot mitt á Cappel-
ino orðið það mikið að hann átti ekki
möguleika á að skjóta mér ref fyrir
rass,“ sagði Júlían.
Júlían hafnaði í fjórða sæti í +120
kg flokki á HM í fyrra en var síðan
færður upp í þriðja sæti og fékk
bronsverðlaunapeninginn sendan í
pósti eftir að bronsverðlaunahafinn
féll á lyfjaprófi. „Ég var ákveðinn í
að taka við bronsinu á staðnum á
þessu móti. Það var eitt af mark-
miðum mínum. Hin voru að vinna
Bandaríkjamanninn Cappelino og
bæta heimsmetið. Þar af leiðandi má
segja að ég hafi náð öllum mínum
markmiðum á mótinu. Það er sætt
að hitta á að allt gangi upp á heims-
meistaramóti,“ sagði Júlían Jóhann
Karl Jóhannsson, bronsverðlauna-
hafi í +120 kg flokki á heimsmeist-
aramótinu í kraftlyftingum.
Bandaríkjamaðurinn Blaine Sum-
ner varð heimsmeistari í +120 kg
flokki. Hann lyfti samtals 1.275,5 kg.
Rússinn Andrei Konovalov hlaut
silfurverðlaun. Samanlagt lyfti hann
1.227,5 kg.
Sætt þegar
allt gengur
upp á HM
Bætti eigið heimsmet og vann brons
Ljósmynd/Kraftlyftingasamband Íslands
Hraustir Júlían J.K. Jóhannsson t.v. og Auðunn Jónsson aðstoðarmaður.
Júlían með verðlaunapeninga sína um hálsinn eftir keppnina í Dúbaí.
Spretthlauparinn Guðbjörg Jóna
Bjarnadóttir og sleggjukastarinn
Hilmar Örn Jónsson voru valin
frjálsíþróttafólk ársins 2019 á
uppskeruhátíð frjálsíþróttafólks
sem fram fór á laugardagskvöld.
Guðbjörg Jóna átti frábært ár
þar sem hún bætti Íslandsmet
kvenna í bæði 100 og 200 metra
spretthlaupi og jafnaði Íslandsmet
Tiönu Óskar Whitworth í 60 metra
hlaupi. Hilmar Örn bætti m.a. Ís-
landsmetið í sleggjukasti og varð
þriðji á bandaríska háskólameist-
aramótinu. iben@mbl.is
Guðbjörg og
Hilmar þau bestu
Morgunblaðið/Eggert
Fótfrá Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir
setti Íslandsmet í sumar.
Kjartan Henry Finnbogason er
áfram markahæsti leikmaður
dönsku B-deildarinnar í knatt-
spyrnu en hann skoraði síðasta
markið í 4:0-stórsigri Vejle á Rosk-
ilde á útivelli um helgina.
Kjartan Henry var í byrjunarliði
Vejle og spilað allan leikinn en sam-
herjar hans komu liðinu í þriggja
marka forystu á fyrsta hálftíma
leiksins. Hann rak svo smiðshöggið
á stórsigurinn með því að skora
fjórða markið á 89. mínútu en þetta
var hans 12. mark á tímabilinu.
Vejle situr enn í efsta sæti.
Kjartan skoraði
í Hróarskeldu
AFP
Skorar Kjartan Henry Finnbogason
hefur verið iðinn við kolann.
Ekkert lát er á sigurgöngu Íslandsmeistara Vals í Dom-
inos-deildinni í körfuknattleik kvenna. Í gær vann Valur
lið Grindavíkur, 77:70, í Origo-höllinni við Hlíðarenda.
Valur hefur þar með unnið átta fyrstu leiki sína í deild-
inni. Grindavíkurliðið hefur hinsvegar ekki náð sér á
strik og er enn án sigurs.
Þrátt fyrir að mikill munur sé stöðu liðanna í deildinni
var Valur aldrei með yfirburði í leiknum í gær þótt
frumkvæðið væri höndum heimaliðsins. Kiana Johnson
átti stórleik í liði Vals, skoraði 24 stig, tók 11 fráköst og
gaf tíu stoðsendingar en Dagbjörg Samúelsdóttir og
Hallveig Jónsdóttir skoruðu báðar 16 stig fyrir heima-
konur. Í liði Grindavíkur var Hrund Skúladóttir stigahæst með 19 stig en
næst var Bríet Sif Hinriksdóttir með 18.
Lið Keflavíkur gerði sér lítið fyrir og vann KR í Blue-höllinni í Keflavík,
68:60. KR er þar með fjórum stigum á eftir Val og aðeins tveimur stigum
fyrir ofan Keflavík sem sækir hart að KR-liðinu. Daniela Wallen Morilli var
stigahæst með 28 stig fyrir Keflavík en hún tók líka tíu fráköst. Danielle
Victoria Rodriguez var burðarás KR-liðsins eins og svo oft áður, skoraði 26
stig og tók 13 fráköst en leikurinn var lengst af í járnum. iben@mbl.is
Ekkert lát á sigurgöngunni
Kiana
Johnson