Morgunblaðið - 25.11.2019, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2019
Viljayfirlýsing var undirrituð um
helgina um aðkomu stjórnvalda að
húsnæðisuppbyggingu í Hörgár-
sveit. Ásmundur Einar Daðason,
félags- og barnamálaráðherra, og
Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri í
Hörgársveit, undirrituðu yfirlýs-
ingu en fyrsti þáttur verkefnisins
felur í sér breytingu á húsnæði á
Laugalandi á Þelamörk, sem áður
var heimavist fyrir Þelamerk-
urskóla, í hagkvæmt íbúðar-
húsnæði. Gert er ráð fyrir að
þannig megi fjölga leiguíbúðum
um allt að níu í sveitarfélaginu.
Samkvæmt frétt velferðarráðu-
neytisins á að fjölga leiguíbúðum í
sveitarfélaginu en mikill skortur
hafi verið á húsnæði í Hörgársveit
um lengri tíma meðal annars
vegna nálægðar við Akureyrarbæ,
þar sem mikill vöxtur hefur verið
undanfarin ár.
„Það er spennandi kostur að
nýta húsnæði sem fyrir er í sveit-
arfélaginu til þess að fjölga íbúð-
um í stað þess að láta það standa
óhreyft og byggja nýtt,“ er haft
eftir Ásmundi Einari eftir und-
irritunina. Íbúðalánasjóður veitir
þriggja milljóna króna þróun-
arstyrk vegna útfærslu verkefn-
isins.
Heimavist
verði íbúð-
arhúsnæði
Fjölga leiguíbúð-
um í Hörgársveit
Ljósmynd/félagsmálaráðuneytið
Þelamörk Samkomulagið um hús-
næðisuppbygginguna innsiglað.
Ljósaganga UN Women verður
gengin í dag, á alþjóðlegum bar-
áttudegi Sameinuðu þjóðanna
gegn kynbundnu ofbeldi. Markar
hún upphaf 16 daga átaks þess
efnis, sem UN Women á Íslandi og
fjöldi annarra félagasamtaka eru í
forsvari fyrir.
Gangan hefst klukkan 17 við
Arnarhól og verður gengið að
Bríetartorgi á horni Amtmanns-
stígs og Þingholtsstrætis.
Yfirskrift göngunnar í ár er
Kynbundið ofbeldi á vinnustöðum
og mun Drífa Snædal, forseti Al-
þýðusambandsins, leiða gönguna.
Kerti veða seld á staðnum, málefn-
inu til stuðning, og kosta 500
krónur.
Mikilvægt að yfirlýsingum
fylgi aðgerðir
Í tilkynningu frá UN Women
segir að í kjölfar MeToo-
hreyfingarinnar hafi ýmis fyrir-
tæki og stofnanir tekið af skarið
og lýst því yfir að kynbundið of-
beldi verði ekki liðið innan veggja
fyrirtækisins. Gríðarlega mikil-
vægt sé að vel unnin aðgerðaáætl-
un fylgi slíkum yfirlýsingum, svo
ekki standi orðin tóm. Stjórnendur
fyrirtækja verði að tryggja að „al-
gjört umburðarleysi gagnvart kyn-
bundnu ofbeldi og áreitni verði að
vinnustaðamenningu sem allt
starfsfólk tileinkar sér“. Í því fel-
ist meðal annars að úrvinnsla
mála sé miðuð að þolanda, auk
þess sem tryggja þurfi öruggar
tilkynningaleiðir starfsfólks sem
verði fyrir áreitni.
Gengið gegn kynbundnu ofbeldi
Ljósmynd/Birta Rán
Ljósaganga Gengið verður frá Arnarhóli um Þingholtin.
16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi hefst í dag
Karlmanni um tvítugt hefur verið
gert að sæta áframhaldandi gæslu-
varðhaldi til 20. desember vegna al-
varlegrar líkamsárásar á 17 ára
gamla stúlku. Árásin átti sér stað í
miðborg Reykjavíkur aðfaranótt
laugardagsins 19. október.
Héraðsdómur Reykjavíkur stað-
festi á föstudaginn kröfu lög-
reglustjóra um áframhaldandi varð-
hald. Lögmaður mannsins sagði í
samtali við vef Fréttablaðsins að
niðurstöðunni yrði áfrýjað til Lands-
réttar.
Árásin var mjög harkaleg og gróf
og fram hefur komið í fréttum að
málið hafi jafnvel verið rannsakað
sem tilraun til manndráps.
Varðhald
framlengt
til 20. des.