Morgunblaðið - 25.11.2019, Síða 10

Morgunblaðið - 25.11.2019, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2019 Jólaleyndarmál Matarkjallarans Tryggðu þér borð á www.matarkjallarinn.is Aðalstræti 2 | s. 558 0000 25.-30. nóvember Af yfir 1000 vörum 90% Afslátt ur Allt að Af fartölvum Allt að50.000Afsláttur Reykjavík • Mörkin 3 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Íslensk vatnsorka hefur hafið um- hverfismat á Hagavatnsvirkjun sunnan undir Langjökli. Dregið hef- ur verið úr áformum þannig að í fyrst áfanga verði aðeins farið í virkjun með 9,9 MW afl. Það minnk- ar niðurdrátt í Hagavatni og er um- hverfisvænni virkjanakostur en sú 18 MW virkjun sem sett var í bið- flokk í Rammaáætlun 3. Áformin eru sem fyrr ekki aðeins að afla orku heldur ekki síður að stækka Hagavatn til að draga úr jarðvegs- eyðingu. Lengi hefur verið áhugi á að virkja við Hagavatn. Landeigendur og sveitarstjórn Bláskógabyggðar hafa verið því fylgjandi vegna já- kvæðra áhrifa virkjunar á gróður og Landgræðslan studdi þessar að- gerðir á sínum tíma. Stækkun í aðalskipulagi Svo háttar til að eftir hlaup úr Hagavatni á árinu 1939 minnkaði vatnið úr um 23 í 4 ferkílómetra. Síðan hefur verið mikið fok úr gamla vatnsbotninum, meðal annars yfir byggðina. Gert er ráð fyrir stækkun vatnsins og virkjun í gild- andi aðalskipulagi Bláskógabyggð- ar. Þar kemur meðal annars fram að endurheimt Hagavatns er for- senda þess að hægt er að ráðast í frekari landgræðsluaðgerðir sunnan vatnsins. Orkuveita Reykjavíkur fékk rannsóknarleyfi til undirbúnings virkjunar á árinu 2007 og Íslensk vatnsorka tók síðar við verkefninu og vinnur nú að því í nafni Haga- vatnsvirkjunar ehf. Upphaflega voru hugmyndir um stórvirkjun á þessum stað en undirbúningurinn síðan í þann farveg að stefna að byggingu 35 megavatta virkjunar. Íslensk vatnsorka tónaði áformin niður í 18 MW og dró með því veru- lega úr sveiflum á vatnsyfirborði. Verkefnisstjórn 2. áfanga Ramma- áætlunar flokkaði kostinn í biðflokk og verkefnisstjórn 3. áfanga breytti því ekki. Ekki tókst að hnika því þrátt fyrir tilraunir áhugafólks um málið. Tillögur þriðja áfanga hafa ekki verið lögfestar. Rök verkefn- isstjórnarinnar voru einkum þau að óvissa var talin ríkja um áhrif virkj- unarinnar á jarðvegsfok og ferða- mennsku. Verkefnisstjórnin fékk mjög misvísandi einkunnir frá fag- hópum sínum. Hagavatn var ekki talið verðmætt hjá sumum enda líf- ríki þess og umhverfis talið fá- breytt. Svæðið fékk hins vegar hæstu mögulegu verðmætaeinkunn- ir fyrir víðerni og jarðgrunn. Verk- efnisstjórn taldi rétt að bíða með ákvörðun um ráðstöfun svæðisins. 18 MW áformin miðuðust við þrjár 6 MW vélar og yrði ein þeirra aðeins í notkun hluta úr árinu. Nú hefur Íslensk vatnsorka kynnt nýja útfærslu, sem fyrsta áfanga þessara áforma. Þar yrðu tvær tæplega 5 MW vélar sem væru keyrðar allt ár- ið. Afl virkjunarinnar yrði 9,9 MW. Virkjanakostir undir 10 MW falla ekki undir Rammaáætlun og ekki þarf skilyrðislaust að gera umhverf- ismat vegna þeirra. Eigi að síður hefur fyrirtækið hafið umhverfis- matsferli með því að kynnt hefur verið matsáætlun vegna mats á um- hverfisáhrifum virkjunarinnar. Eiríkur Bragason, framkvæmda- stjóri Íslenskrar vatnsorku, segir að fyrirtækið hafi í samvinnu við land- eigendur og Bláskógabyggð hafið þetta ferli. Þessi áfangi snúist að- allega um endurheimt Hagavatns. Hann segir að unnið sé að því að meta hvaða áhrif nýting þessa virkj- anakosts hafi á svifryk og sandfok. Virðist áhrifin vera jákvæð. Fram kemur í matsáætluninni að í þessari atrennu sé gert ráð fyrir að aðeins verði virkjað til að nýta tiltæka orku. Endanleg aflsetning ráðist af hagkvæmniathugun á síð- ari stigum og mati á umhverfisáhrif- um. Áform um minni Hagavatnsvirkjun  Ný tilhögun virkjunar sett í umhverfismat  Tilgangurinn einnig að að draga úr jarðvegseyðingu Fyrirhuguð Hagavatnsvirkjun og lega Hagavatns Eystri Hagafellsjökull Vestari Hagafellsjökull Hagafell Hagavatn 4-5 km2 23 km2 Hæsta staða Bláa línan sýnir stærð Hagavatns fyrir hlaupið úr vatninu árið 1939. Áætlað er að Hagavatn verði 23 km2 í hæstu stöðu og 17 km2 í lægstu stöðu. 17 km2 Læmið Núverandi stærð Hagavatns Stærð Hagavatns fyrir 1939, um 12,5 km2 Tilhögun virkjunarinnar er sú að Farið sem er útfall Hagavatns verður virkjað og hækkað vatns- borð vatnsins notað sem miðl- un. Byggð verður stífla ofan við Farið og einnig í gömlu útrás- inni ofan við Leynifoss. Áform- að er að reisa stöðvarhús undir Brekknafjöllum, á vesturbakka gamla farvegarins. Gert er ráð fyrir að tenging virkjunarinnar við raforkukerfið verði með jarðstreng sem tengdur verður dreifikerfi RARIK niðri í byggð. Farið verði virkjað TILHÖGUN VIRKJUNAR Atvinna Starfsmenn hverfastöðva borgarinnar hafa haft í nægu að snúast síðustu vikur við að koma upp jólaskreyt- ingum. Undirbúningur hófst í september en 10 kíló- metrar af jólaseríum, 19 jólaklukkur og hátt í 30 jólatré hafa verið sett upp og lýsa nú upp borgarlandið. Ekki veitir af í svartasta skammdeginu. Morgunblaðið/Eggert Jólin koma

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.