Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.11.2019, Blaðsíða 2
Við hverju má búast á sunnudaginn?
Þá fáum við loksins að vita hvað ástin er. Við munum fyllast af
ást og kærleika á öllum hliðum ástarinnar þegar kvöldið er
búið.
Er ástin nauðsynlegur aflvaki í þróun okkar
eða huggulegur skyndibiti?
Ég hugsa að hvort tveggja eigi við því ástin er djúp og fer
með okkur á mikið dýpi þar sem við uppgötvum sjálf okkur
og afhjúpumst alltaf svolítið í ástinni, hver við erum með
kostum og göllum. Ástin snýst svolítið um að elska þessa kosti
og galla. Þegar maður elskar einhvern þá elskar maður líka
gallana og það er kannski bara ástin sem getur afhjúpað svona
náin sambönd. Um leið og við förum að elska verða gallarnir oft
eitthvað annað en gallar heldur bara hluti af manneskjunni. En
ég held líka að ástin sé svona huggulegur skyndibiti. Hún er
náttúrlega til að fjölga mannkyninu og skoða okkur á djúpan hátt
en hún er líka eitthvert fiðrildi í magunum, léttlyndi og angan.
Er hægt að mæla ást?
Það er spurning hvaða mælikvarða maður notar á það. Kannski hitamæli
eða hamar? Barthosz ætlar að tala um það hvort hægt sé að mæla ást svo
ég bíð bara spennt eftir fyrirlestrinum hans.
Hvernig kviknaði hugmyndin að viðburðinum?
Ég var úti í Póllandi því það var búið að þýða Ufsaklett, verðlaunabókina
mína, á pólsku. Ég hitti Barthosz á hótelinu og við fórum að tala saman og
hann sagði mér að hann væri að freista þess að lækna fólk með list og tónlist.
Hann var að fara að halda fyrirlestur í Þýskalandi og stakk svo upp á því í
okkar samtali að koma til Íslands.
Hvað er á döfinni hjá þér?
Ég er að fara í frí til Aþenu og bjóða fjölskyldunni í mat. Kannski gef ég út
bók um jólin.
ELÍSABET JÖKULSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Ástin er
afhjúpandi
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.11. 2019
Börkur Gunnarsson, kvikmyndaleikstjóri, rithöfundur, majór og Sturlung-unörd með meiru, spjaldaði mig á samfélagsmiðlum í vikunni fyrir aðkunna ekki mína Sturlungu nægilega vel. Tilefnið var það að ég skrifaði
frétt hér í blaðið fyrir réttri viku um bandarísku stuttmyndina Slayer: The Re-
pentless Killogy og hélt því þar fram að meira blóð hefði ekki runnið frá Örlygs-
staðabardaga árið 1238. Ég sá myndina í Bíó Paradís og þar gengu blóðslett-
urnar upp um alla veggi. Þarna hljóp ég á mig enda féllu mun fleiri í
Haugsnesbardaga átta árum síðar, 1246, yfir hundrað manns, og er það mann-
skæðasti bardagi sem háður hefur verið á Íslandi, svo sem Börkur bendir rétti-
lega á. Örlygsstaðabardagi var hins
vegar sá fjölmennasti sem fram hefur
farið hér um slóðir (mögulega ruglaði
það mig eitthvað í ríminu) en þar féll þó
„aðeins“ á sjötta tug manna. Þetta eiga
allir menn að vita. Fyrir vikið get ég
ekki annað en tekið undir skammir
Barkar og vonbrigði í minn garð. Ég á
mér engar málsbætur.
Þetta er sérstaklega vandræðalegt í
ljósi þess að ég kem úr fjölskyldu sem
ber Sturlunga á höndum sér og í mínum
nánasta frændgarði eru menn sem heita
Snorri Sturluson, Þórður Sturluson og
Sturla Sighvatsson, svo dæmi séu tekin. Afi minn, Snæbjörn Sigurðsson, bóndi á
Grund í Eyjafirði, var raunar á sinni tíð einn helsti sérfræðingur þjóðarinnar í
Sturlungu, las hana aftur á bak og áfram og undir það síðasta á hvolfi, og brögð að
því að fræðimenn við Háskóla Íslands leituðu til hans með álitamál í sögunni.
Eins og Börkur og önnur Sturlungunörd muna þá bjó Sighvatur Sturluson
einmitt á Grund í Eyjafirði en hann féll sunnan við gerðið á Örlygsstöðum, þar
sem Kolbeinn ungi og menn hans unnu á honum. Kolbeinn var sem kunnugt er
bróðursonur eiginkonu Sighvats, Halldóru Tumadóttur. Það var einmitt sonur
Sighvats, Þórður kakali, sem fór fyrir Sturlungum í Haugsnesbardaga. Er
mjög áberandi að ég er að reyna að klóra hér í bakkann?
Ekki veit ég hvort menn lesa Morgunblaðið og eftir atvikum Fésbókina með
morgunkaffinu þarna fyrir handan en hafi afi minn haft veður af þessu vand-
ræðalega máli hefur hann án efa tekið nokkrar byltur í gröf sinni í kirkjugarð-
inum á Grund. Það veldur mér vanlíðan og hugarangri. Fyrirgefðu, afi minn!
Þetta mun ekki koma fyrir aftur!
Fyrirgefðu,
afi minn!
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’Þetta eiga allir mennað vita. Fyrir vikiðget ég ekki annað en tekiðundir skammir Barkar og
vonbrigði í minn garð. Ég
á mér engar málsbætur.
Gunnar Gunnlaugsson
Ég les mjög mikið en það er engin
bók sem er í sérstöku uppáhaldi.
SPURNING
DAGSINS
Hver er
uppáhalds-
bókin þín?
Anna Steinunn
Ég á enga uppáhaldsbók. Ég var að
klára Ströndina endalausu eftir Jenny
Colgan. Yfir henni er ævintýrabragur
og mér þótti hún mjög skemmtileg.
Sigurður Jónasson
Ég hef voða gaman af bókunum eftir
Arnald og Yrsu. Það er svosem eng-
in sérstök af þeim í uppáhaldi.
Valgerður Guðmundsdóttir
Ég las mikið áður en les ekki mikið
þessa dagana vegna veikinda. Bæk-
urnar eftir Guðrúnu frá Lundi eru með-
al þeirra sem voru í miklu uppáhaldi.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Eggert Jóhannesson
Morgunblaðið/Eggert
Í dag, 17. nóv-
ember, klukkan 20
verður viðburður-
inn „Ást og líf-
fræði“ haldinn í
Tjarnarbíói. Þar
kynnir prófessor
Bartosz Kara-
szewski fólki ástina
í félagi við skáld og
tónlistarmenn. El-
ísabet Jökulsdóttir
stýrir viðburðinum.
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur