Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.11.2019, Qupperneq 8
VETTVANGUR
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.11. 2019
Mér finnst oft pínu óþægilegt þegarfólk hrósar mér fyrir eitthvaðsem ég hef gert. Verð vandræða-
legur og reyni að skipta um umræðuefni.
Það er ekki að mér finnist ekki gaman að
annað fólk sé ánægt með mig (og í guðanna
bænum, ekki hætta að hrósa mér), meira
svona eins og ég fari hjá mér og viti ekki
hvernig ég að vera í framan á meðan ég
hlusta á einhvern dásama mig. Sem er út af
fyrir sig merkilegt því ég held að ég sé
frekar duglegur að hrósa öðrum.
Klapp á bakið getur verið vísbending um
að maður sé á réttri leið. En ég velti því
fyrir mér hvers vegna ég tek oft meira
mark á gagnrýni en hrósi og hvers vegna
illskeytt gagnrýni getur setið lengur í mér
en fallegt og einlægt hrós.
Ég hélt lengi vel að þetta væri bara ég.
En svo las ég grein eftir prófessor í sál-
fræði, Art Markman, sem heldur úti vinsæl-
um útvarpsþætti á NPR í Bandaríkjunum.
Hann lýsir nefnilega þessari sömu tilfinn-
ingu.
Flestir sem tjáðu sig um þáttinn hans
voru mjög ánægðir, en aftur og aftur fann
hann hvernig hann festist við neikvæðu um-
mælin. Hvernig þau náðu til hans, sátu eftir
og eyddu allri gleði sem, að því er honum
fannst, vel heppnaður þáttur hafði gefið
honum.
Hann útskýrir þetta með frumþörf
mannsins og náttúrulegum viðbrögðum sem
eiga að hjálpa manninum að vara sig á
mögulegri ógn. Það hefur sennilega ein-
hvern tímann þótt góður kostur að óttast
ýmis óargadýr í frumstæðri náttúru en það
væri ágætt að illskeytt ummæli á Facebook
vektu ekki sömu viðbrögð.
Auðvitað þýðir ekkert að vera bara með
já-fólk í kringum sig og gagnrýni getur ver-
ið bráðnauðsynleg. Kannski er maður að
gera einhverja bölvaða vitleysu og hefur
gott af því að einhver láti mann vita af því.
En Markman bendir á að fólk þurfi þrisvar
sinnum meiri skammt af jákvæðni en nei-
kvæðni til að hún komist í gegn.
Hann bendir á nokkrar leiðir til að takast
á við þessa neikvæðni. Ein leiðin er að
skrifa niður svör við neikvæðum at-
hugasemdum. Það hljómar undarlega en
gefur þér vissu um að þú getir svarað og
þannig megi rjúfa vítahring neikvæðninnar.
Önnur leið er að finna hluti sem þú getur
verið stoltur af og hrósa sjálfum þér fyrir
að klára þá. Búa til litla sigra sem segja þér
að þú getur,
þrátt fyrir allt,
gert eitthvað al-
mennilega.
Svo er nátt-
úrlega núvit-
und. Draga sig
út úr amstrinu í
smástund og
beina allri
orkunni að einhverju í umhverfinu. Það ró-
ar hugann og kemur í veg fyrir að hann
festist í endurteknum neikvæðum hugs-
unum.
Þetta hljómar allt frekar flókið og tíma-
frekt. En það er að sjálfsögðu til önnur leið,
sem höfðar sennilega meira til okkar sem
kjósum einfaldleikann í lífinu. Hættið bara
að lesa hvað aðrir hafa að segja um ykkur.
Netið er ekki alltaf fullt af kærleika. Nei-
kvæða fólkið hefur ekkert endilega rétt fyr-
ir sér og jafnvel þótt svo sé þá þarftu ekk-
ert að lesa það. Og ef þú hættir því má líka
gera ráð fyrir að þú komir meiru í verk.
Það var ekkert.
’En ég velti því fyrir mérhvers vegna ég tek oft meiramark á gagnrýni en hrósi oghvers vegna illskeytt gagnrýni
getur setið lengur í mér en fallegt
og einlægt hrós.
Á meðan ég man
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Gleymum neikvæðni
Elsku Aron. Þú ert
fæddur á þeim guðs
blessaða degi 22. apríl
árið 1989 og þegar mað-
ur leggur þessar fögru töl-
ur saman kemur út talan þín, átta,
sem er jafnframt tala eilífðarinnar,
lífsins og dauðans í einni heild. Að
hafa töluna 22 í afmælisdeginum
gefur þér sérstakan andlegan mátt
og næmi og í fótbolta er það afskap-
lega mikilvægt að
sjá aðeins lengra en
nef manns nær og
treysta á innsæið.
Það hefur þú svo
sannarlega gert frá
því þú opnaðir aug-
un fyrir þrjátíu ár-
um. Þú fórst áfram mikinn hluta æv-
innar án þess jafnvel að hugsa
næsta skref gaumgæfilega; hjúp-
aður hugrekki áttunnar og andlegu
orkunni sem tengist afmælisdegi
þínum.
Fyrir um það bil þremur árum
var mjög mikið álag á öllum þáttum
lífsins hjá þér og sjálfstraustið bogn-
aði rétt aðeins. Því þú hefur sjálfs-
traust á við bambusinn; það bara
bognar, en brotnar aldrei. Þú ert bú-
inn að vera að raða þér svo flott
saman undanfarið og útkoman verð-
ur fullkomin. Þú færð meiri styrk-
leika en þú hefur áður fundið fyrir
og flýgur hærra en þú bjóst við. Eða
kannski býstu bara alveg við því, því
velgengni er í eðli þínu. Þetta ár
hefur verið afskaplega hratt og
merkilegt og þú hefur séð alveg
svart á hvítu hverjir það eru sem
efla kraftinn þinn. Fundið bæði til
auðmýktar og orku sem aldrei fyrr.
Þú ert búinn að taka nýjar og
sterkar ákvarðanir sem eiga eftir að
gefa þér gott brautargengi í fram-
tíðinni og einhvers staðar á þessari
leið og sérstaklega í kringum maí-
mánuð á næsta ári opnast fyrir þér
ný vídd eða þér verður boðið eitt-
hvað spennandi og skemmtilegt sem
mun bæði efla þig og fjölskyldu
þína. Sterk orka verður yfir þér og
þinni heittelskuðu
og börnunum ykkar,
því allt er að eflast
til betri vegar og
kærleikurinn og ást-
in hjálpa þér og ykk-
ur að taka þessar
góðu ákvarðanir
sem eru öllum í hag. Það er nefni-
lega varla hægt gera spá um líf þitt
fram í tímann án þess að skoða fjöl-
skyldu þína sömuleiðis, gullið mitt,
því fjölskyldan er tréð og afkom-
endur ykkar eru laufblöðin.
Ég hef þá sýn að þú munir jafna
þig alveg á þeim meiðslum sem eru
að hrjá þig um þessar mundir því
það hefurðu gert áður og það er
bara í lífsorkunni þinni að skapa ný
og ný kraftaverk. 2021 verður krefj-
andi ár og athyglisverðir hlutir
verða tengdir þér og þú munt spila
svo sterkt úr þeim spilum sem þér
verða rétt að þjóðin mun standa á
öndinni.
Skilaboð mín til þín fyrir næstu
daga og mánuði eru því þessi: Með
einni hugsun fer allt af stað og að
hika er sama og tapa.
Stjörnumerki: Naut
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
ARON EINAR GUNNARSSON
KNATTSPYRNUMAÐUR
22.4. 1989
Sterk orka
verður yfir þér
’Þú færð meiristyrkleika en þúhefur áður fundiðfyrir og flýgur hærra
en þú bjóst við.
ALLT Í VEISLUNA
Opnunartími verslunar
Mánudagur - Föstudagur ...................11-18
Laugardagur ......................................11-16
Vefverslun opin allan sólarhringinn!
Smiðjuvegi 9 • 200 Kópavogur • s. 567 9911 • www.alltikoku.is
SKOÐA
ÐU
ÚRVALI
Ð Á
ALLTIKO
KU.IS