Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019
Þegar við flest sjáum aðeinsþað sem er matreitt, er hugg-
unarríkt að einhverjum megi
treysta til að benda á hina hlið-
ina. Oft er það Gunnar Rögn-
valdsson:
Ég veltist um afhlátri í hvert
skipti sem hin
alóþjóðlega reglu-
strika OECD lemst
niður í lönd og
hræðir svo marga
upp úr skónum, að
þeir þora ekki ann-
að en að ganga berfættir það sem
eftir er leiðarinnar með sjálfa sig
á öskuhaugana. Þetta al-óþjóðlega
rugluverk sem PISA kallast, er
hugsað upp til að auka svo við
veldi alþjóðaismans að engin
hætta sé á að neinn þar á bæ
missi vinnuna.
Í tæplega 30 ár, eða frá því aðþátttaka þeirra í þessari
óþjóðlegu PISA-firru hófst, horfði
ég á Dani engjast sundur og sam-
an vegna þessarar PISA-tuggu
um lélega lestrar- og reiknings-
hæfni. Tuggu sem veitir skömm
og sjálfsfyrirlitningu óheftan að-
gang að innstu koppum í forða-
búrum þjóðarsála. Enda er það
tilgangurinn með þessu; að berja
þjóðir ofan í sama mótið.
Þessi skrípaleikur er stundaðurtil að berja þjóðir til og láta
þær passa ofan í eina skóinn í
heiminum sem enginn passar í:
INTER-NATIONALISM, þ.e. al-
óþjóðlega embættismannaveldið.
En svo gerðist eitthvað í Dan-
mörku sem leiddi til þess að Dan-
ir hættu að falla á prófinu. Það
sem gerðist var það að þeir lærðu
að taka þetta próf. Ekkert annað
gerðist. Þetta geta menn líka gert
hér heima og þar með hætt að
naga úr sér þjóðarsálina, geng-
isfella allt íslenskt og sjálfa sig
líka.“
Gunnar
Rögnvaldsson
Skór Öskubusku
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Persónuvernd hefur úrskurðað að
miðlun vinnuveitanda á símtalaskrá
úr vinnusíma fyrrverandi starfs-
manns til fyrrverandi eiginkonu
mannsins hafi ekki samrýmst ákvæð-
um persónuverndarlaga. Enn fremur
taldi Persónuvernd að meðferð fyrir-
tækisins á tölvupósthólfi mannsins
eftir starfslok hans hafi ekki verið í
samræmi við reglur um rafræna
vöktun og meðferð persónuupplýs-
inga. Þetta kemur fram í nýjum úr-
skurði Persónuverndar.
Í úrskurðinum er einnig gagnrýnt
að manninum, sem kvartaði til Per-
sónuverndar vegna málsins, hefði
hvorki verið gefinn kostur á að eyða
né taka afrit af einkatölvupósti, né að
vera viðstaddur skoðun tölvupóst-
hólfsins. Þá hafi tölvupósthólfi
mannsins ekki verið lokað innan til-
skilins tíma.
Fram kemur að eftir að maðurinn
lét af störfum hjá fyrirtækinu hafi
fyrrverandi eiginkonu hans borist
ábyrgðarbréf sem var opnað á skrif-
stofu lögmanns og reyndist innihalda
73 blaðsíður af símtalaskrám vegna
símanúmers, sem var vinnusími
mannsins á meðan hann starfaði hjá
fyrirtækinu. Einnig hafi fyrirsvars-
maður fyrirtækisins, sem nú er gjald-
þrota, framsent til mannsins fjölda
tölvupósta úr vinnutölvupósthólfi
hans. Manninum hafi ekki verið gerð
grein fyrir að fyrirsvarsmaðurinn
hygðist skoða tölvupóst hans eða gef-
ist kostur á að vera viðstaddur. Í
skýringum fyrirtækisins kom fram að
manninum hafi verið tilkynnt að gögn
yrðu send á heimili hans en þar sem
hann var ekki skráður þar skv. já.is
hafi bréfið verið stílað á konu hans til
að tryggja að bréfið bærist honum.
Miðlun símtalaskrár talin brot
Meðferð á tölvupósthólfi eftir starfslok manns braut í bága við reglur
Mannabreytingar hafa verið gerðar í nefndum Alþingis og var tilkynnt um
þær í gær. Koma þær í kjölfar þess að Andrés Ingi Jónsson skráði sig úr
þingflokki Vinstri grænna í lok nóvember. Þau sem leysa munu Andrés
Inga af eru Steinunn Þóra Árnadóttir, sem sæti tekur sem aðalmaður í alls-
herjar- og menntamálanefnd, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir verður vara-
maður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og Rósa Björk Brynjólfsdóttir
verður varamaður í velferðarnefnd. Þá mun Ólafur Þór Gunnarsson taka
sæti sem varamaður í Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA og EES.
Þá sagði Jón Steindór Valdimarsson sæti sínu lausu sem aðalmaður í
stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og mun Andrés Ingi taka sæti aðalmanns í
þeirri nefnd Alþingis.
Breytingar í nefndum vegna Andrésar Inga
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Stjórn Stangaveiðifélags Reykja-
víkur (SVFR) hefur ákveðið að
framvegis verði einungs heimilt að
veiða á flugu í Elliðaánum og öllum
fiski verði sleppt. Er þetta gert til
að reyna að stækka hrygningar-
stofninn í ánni sem hefur verið í
lægð í nærri þrjá áratugi.
Stjórn SVFR kynnti breytingar
á veiðifyrirkomulagi Elliðaánna og
ástæður þeirra með bréfi til fé-
lagsmanna í gær.
Að ráði vísindamanna
Þar kemur fram að vísindamenn
sem rannsakað hafa laxastofninn í
Elliðaánum hvetji til þess að gripið
verði til aðgerða til að vernda
stofninn. Hrygningarstofn ánna
hefur farið minnkandi og yfirleitt
verið undir meðaltali alveg frá
árinu 1990. Stofninn hefur að
þeirra mati verið of lítill að hausti
til að unnt hafi verið að byggja
hann upp og snúa óheillaþróuninni
við. Vísindamennirnir sjái engin
teikn á lofti um breytingar nema
gripið verði til aðgerða.
Ekki er fullljóst hver ástæðan er
fyrir þróuninni en í bréfi stjórnar
SVFR er talið að þar spili líklega
margir þættir saman. Ýmis atriði
eru nefnd sem flest snúa að áhrif-
um byggðar og umferðar við ána
og virkjana. Þá er nefnt að kýla-
veikin sem kom upp um miðjan 10.
áratuginn kunni að hafa haft var-
anleg áhrif. Loks eru umhverfis-
skilyrði í ánni og sjónum nefnd sem
hugsanlegar ástæður fyrir hnign-
um laxastofnsins. „Þá verður ekki
litið fram hjá því að veiðihlutfallið í
ánum hefur farið hækkandi og mik-
ill meirihluti veiddra laxa hefur
verið drepinn. Slíkt skiptir meira
máli [eftir því] sem stofninn er
minni. Hlutfall slepptra laxa í Ell-
iðaánum hefur auk þess verið
lægra en gerist í flestum laxveiði-
ám á síðustu árum,“ skrifar stjórn-
in.
Maðkur ekki leyfður
Stjórnin telur að SVFR geti ekki
setið hjá þegar hætta steðjar að
hinum einstaka laxastofni Elliða-
ánna. Tekið er fram að það sé mikil
ákvörðun að breyta aldagamalli
veiðihefð og ákvörðun um breyt-
ingar hafi því verið tekin að vel
ígrunduðu máli.
Niðurstaðan varð sú að frá og
með næsta sumri verður einungis
heimilt að veiða á flugu í Elliða-
ánum og öllum fiski skal sleppt.
Hingað til hafa veiðimenn mátt
veiða með maðki alla leið upp að
Árbæjarstíflu en þar fyrir ofan hef-
ur verið hreint fluguveiðisvæði.
Kvótinn hefur verið tveir laxar á
stöng á hverri vakt og menn mátt
taka fiskinn með sér í soðið.
Aðeins veitt á flugu og
öllum laxi verður sleppt
Breyttar veiðireglur vegna hnignunar laxastofns Elliðaánna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vetur Elliðaárnar eru ein af perlum
Reykjavíkur og gott útivistarsvæði.
SMÁRATORGI KRINGLAN GLERÁRTORGI LINDESIGN.IS
Íslensk
jólalína