Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 56
56 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019
Fyrstu minning-
ar mínar um ömmu
Þóreyju eru úr
Skipasundinu þar
sem ég var tíður gestur og bjó
um tíma hjá ömmu og afa. Ég
man eftir dekurhelgunum þar
sem amma var með nýbakaðar
kleinur, farið var út í Rangá til
að kaupa sælgæti og svo var
horft á kúrekamyndir í svart-
hvíta sjónvarpinu þeirra. Þetta
voru miklar gæðastundir og
minningar sem eru mér afar
kærar. Það á einnig við um lax-
veiðiferðirnar sem ég fór í með
þeim á hverju sumri í Hrúta-
fjörðinn. Þar sem ég var alltaf
bílveik bjuggu þau afi um mig í
aftursætinu á gamla Land Rov-
ernum, auðvitað fyrir tíma ör-
yggisbeltanna og þarna lá ég
eins og prinsessa og fann varla
fyrir ferðalaginu. Ég gleymi því
aldrei þegar ég veiddi fyrsta
laxinn með þeim en miðað við
þeirra viðbrögð þá var eins og
um væri að ræða fyrsta laxinn
sem veiddur væri í heiminum,
svo mikið var látið með þetta –
mér til mikillar gleði.
Amma var með ótrúlegt jafn-
aðargeð og minnist ég þess
ekki að hafa nokkru sinni séð
hana skipta skapi, hún fékk þó
yfirleitt sitt fram, með sínum
hætti. Hún var ofurkona síns
tíma, var byrjuð að vinna og
hjálpa til á símstöðinni hjá
Þórey Hrefna
Proppé
✝ Þórey HrefnaProppé fæddist
17. október 1925.
Hún lést 22. nóv-
ember 2019.
Útför Þóreyjar
fór fram 2. desem-
ber 2019.
mömmu sinni áður
en hún varð ung-
lingur. Hún var
fyrirmyndarhús-
móðir, heimilið var
alltaf opið fyrir vini
og ættingja, en
samt vann hún full-
an vinnudag í fyrir-
tæki þeirra afa,
Stálsmiðju Magn-
úsar Proppé.
Hlý og um-
hyggjusöm eru orð sem koma
upp í hugann, amma Þórey var
alltaf fyrst að hringja ef eitt-
hvað amaði að og einnig til þess
að fagna ef einhverjum áfanga
var náð. Hún hugsaði vel um
fólkið sitt, faðmur hennar var
stór og styrkur mikill. Ég var
hjá henni í nokkra daga eftir að
afi dó fyrir tæpum tuttugu ár-
um, þau voru náin og falleg
hjón, við vissum að missirinn
var mikill fyrir hana og sorgin
sár. En aldrei hef ég séð mann-
eskju syrgja jafn fallega, ein-
lægt, en af svo miklum styrk og
svo einbeitt á að lífið skyldi
halda áfram en að minningu
hans væri haldið á lofti.
Enda átti amma mörg góð ár
eftir það, hún ferðaðist tölu-
vert, var virk í félagslífi og
sinnti vinum og fjölskyldu. Eft-
irminnileg er ferð okkar
mæðgna, mín, mömmu og
ömmu, til London þegar amma
varð 85 ára. Það mátti ekki
merkja að þarna væri háöldruð
kona á ferð enda gekk hún
borgina þvera og endilanga og
naut í botn. Ég vona innilega að
ég muni bera aldurinn jafn vel
og elsku nafna mín, stálminni
fram á síðasta dag og það var
ekki fyrr en núna allra síðustu
tvö árin sem líkamleg heilsa var
aðeins farin að gefa sig. Það tók
á hana en ég veit að hún var
þakklát fyrir það líf sem hún
lifði, fyrir fólkið sitt, fyrir að fá
að lifa í 94 ár og búa heima hjá
sér fram á síðasta dag.
Ég tók ömmu og afa afsíðis
þegar ég var 6 ára og næsta
barnabarn í röðinni var nýfætt,
Gunni bróðir minn, og ég vildi
tryggja stöðu mína sem fyrsta
barnabarnið. Þá lofuðu þau
amma og afi mér því að ég yrði
alltaf númer eitt. Nú lofa ég
þér, elsku amma mín, að þú
verður alltaf númer eitt í mínu
hjarta um ókomna tíð.
Þín
Þórey.
Fyrir rúmri viku fékk ég þær
fregnir að móðursystir mín
Þórey Hrefna Proppé, alltaf
kölluð Gógó, væri fallin frá. Á
þessum tímamótum reikar hug-
urinn til baka og minningarnar
streyma að.
Ég var 7 ára gamall og send-
ur til Reykjavíkur í kirtlatöku.
Mér var komið fyrir hjá Gógó
og Magga manni hennar. Í
þessari ferð verða til mínar
fyrstu minningar um þessi ynd-
islegu hjón. Frænka mín sá um
að koma mér undir læknishend-
ur og undirbúa mig sem best
undir það sem fram undan var.
Ég man að þegar ég vaknaði
eftir aðgerð var ég nokkuð
aumur, gat varla komið upp
nokkru orði. En þarna við rúm-
stokkinn sat þessi yndislega
kona og talaði við mig af mikilli
uppörvun.
Nokkru seinna verður akfær
vegur yfir Dynjandisheiði og
fóru þá Gógó og Maggi og fjöl-
skylda að koma vestur í Dýra-
fjörð í sumarfríum sínum. Ég
man að tilhlökkun okkar krakk-
anna á Nesi var alltaf mikil
þegar von var á þessu sóma-
fólki.
Á unglingsárum mínum var
orðið tímabært að fara suður í
tannviðgerðir. Gógó taldi sjálf-
sagt að hún skipulegði þetta
ferli og var ég hjá þeim hjónum
í nokkrar vikur seinnipart sum-
ars. Hafði hún áhyggjur af að
unglingnum að vestan leiddist
meðan á dvölinni stóð og ýtti
honum til að rækta samband
við jafnaldra sem fluttur var
suður fyrir nokkru. Einnig fór
ég með þeim nokkrar sunnu-
dagsferðir austur fyrir fjall, þar
sem m.a. útsýni til Vestmanna-
eyja heillaði piltinn að vestan.
Á ferðum mínum fyrr á árum
milli landshluta kom ég iðulega
við í Skipasundinu hjá frænku,
þáði hjá henni góðgerðir og
jafnvel gisti ef þannig stóð á
ferðum. Það var gaman að
spjalla við Gógó og komst ég
fljótt að því að hún var fjár-
sjóður af fróðleik um gamla
tíma og sérlega ættfróð.
Þau hjón Gógó og Maggi og
foreldrar mínir stunduðu um
árabil laxveiðar norður á
Ströndum. Ég kom því miður
aldrei til þeirra þangað, en við
hjónin ásamt yngsta barni okk-
ar heimsóttum þau í sumarbú-
staði sem þau leigðu sér gjarn-
an vikutíma á sumrin.
Sérstaklega er okkur minn-
isstæð ferð að Hellnum á Snæ-
fellsnesi, þar sem við gistum
hjá þeim og skoðuðum helstu
náttúruundur svæðisins undir
þeirra leiðsögn.
Ég ætlaði alltaf að vera bú-
inn að spjalla meira við frænku
um gamla tíma, en það verður
að bíða um sinn.
Þegar ég hugsa til baka er
mér efst í huga þakklæti fyrir
hjálpsemi og væntumþykju
þessa yndislega fólks í minn
garð. Við Gerður sendum börn-
um þeirra, Elínborgu og Ing-
ólfi, og öðrum aðstandendum
okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Ólafur Bjarnason.
Við tökum allt
sem sjálfsagðan
hlut, við gerum
kröfur um að allir
séu til staðar, alltaf. Aldrei er
reiknað með að sá sem heldur
öllum saman í fjölskyldunni
hverfi skyndilega og skilji eftir
sig sára sorg sem markar djúp-
an söknuð í huga þeirra sem
eftir lifa. Í dag kveð ég elsku-
lega móður mína sem hefur ein-
mitt verið sú sem hefur haldið
öllu saman á sinn hátt sem ein-
hvern veginn hefur virkað.
Glaðlegt bros hennar og fas hef-
ur heillað okkur öll og stutt var
í grín og glens ef svo bar undir,
börnin mín og Gurru áttu mörg
Helga Jóna
Guðjónsdóttir
✝ Helga JónaGuðjónsdóttir
fæddist 27. apríl
1933. Hún lést 17.
nóvember 2019.
Útför Helgu fór
fram 3. desember
2019.
falleg orð um
ömmu sína, ömmu
sem veitti þeim
margar ánægju-
stundir með sinni
einstöku gleði.
„Undir bláhimni“
söng hún oft með
sinni fallegu rödd
og tilfinningu og á
sinn töfrandi hátt
gerði hún allt að
sínu, heillaði við-
stadda í hamingju sinni sem
smitaði út frá sér og gerði allt
gott. Mamma fæddist á Hesti í
Önundarfirði, fjórða elst í
stórum systkinahópi. Hún skilur
eftir sig 24 barnabarnabörn sem
hún fylgdi eftir fram á síðasta
dag. Við systkinin vorum svo
lánsöm að hugur hennar var
alltaf hjá okkur öllum og var
henni annt um líðan allra þótt
oft gengi hún ekki heil til skóg-
ar sjálf. Hún var einstaklega
ljúf og góð kona. Gurra, börnin
mín, makar þeirra og barnabörn
okkar minnast hennar með
hlýju og söknuði.
Í dag er dagurinn, endanleg
kveðja. Elsku mamma, ég sakna
þín, sakna þess að geta ekki
lengur átt með þér spjall, því
miður voru þær stundir ekki of
margar undir það síðasta en ég
veit að þú kunnir að meta
hverja stund sem þú áttir með
mér, það sá ég í augum þínum
og væntumþykju.
Í dag treysti ég því að þú
sért hjá pabba og sért í faðmi
hans, umvafin þeirri hlýju sem
þú átt skilið og hann veitti þér í
lifanda lífi.
Blessuð sé minning þín elsku
mamma.
Þinn sonur,
Þorsteinn Pálmarsson.
Systur.
Með skömmu millibili hafa
tvær systur mömmu lokið lífs-
göngu sinni. Fyrst Svava og nú
Helga. Það er sosum allt í lífinu
hverfult en þegar maður áttar
sig á endanleika þessa alls renn-
ur upp fyrir manni kannski ein-
mitt mikilvægi þess sem ein-
kenndi þær báðar alla tíð; að
vera samferðafólkinu trúr og
raungóður. Enda eigum við
systkinin aðeins ljúfar minning-
ar sem tengjast bernskuárunum
í félagsskap þeirra systra.
Báðar voru þær oft gestkom-
endur á okkar heimili og það
fylgdi þeim umvefjandi hlý nær-
vera og auðvitað oft trylltur
hláturinn. Helga var gleðigjafi
og með svo sterka útgeislun og
smitandi hlátur að engum var
stætt á að vera með óyndi þegar
hún mætti. Hún hreif alla með
sér og lagði alltaf eitthvað gott
til manns. Svava átti einstakt
samband við mömmu og var
umhugað um hagi hennar. Líkt
og í hlutverki verndarengils.
Þegar þær systur tóku hús á
okkur, hvort sem var í Heið-
argerði eða Giljalandi, sköpuðu
þær einstaklega skemmtilegt og
hlýlegt andrúmsloft með kímn-
inni. Einlægur var áhuginn á
því sem við systkinin vorum að
bauka og allt vildu þær vita
milli himins og jarðar því tengt.
Frá því við systkinin vorum lítil
og fram á fullorðinsár var
tryggðin söm og taugin sterk
þrátt fyrir stopulli endurfundi í
seinni tíð. Það var alltaf dásam-
legt að sjá samband þeirra
systra og mömmu.
Öll systkini mömmu, tólf að
tölu, fæddust á Hesti í Önund-
arfirði, því býli sem við afkom-
endur höfum nú tekið við. Nú
stendur upp á okkur að varð-
veita þær gersemar sem fóstr-
uðu þennan stóra systkinahóp.
Bærinn er ljóslifandi minning
um horfna tíma en pabbi hefur
verið ötull við að halda til haga
myndum og sögum sem skreyta
alla veggi hússins.
Í þessu húsi andanna má m.a.
sjá á myndum nokkrar ungar
vestfirskar blómarósir í hey-
skap á hásumardegi. Þar eru
systurnar frá Hesti komnar
með bros á vör og blik í auga
eins og þær fóru síðar gegnum
lífið.
Oft hef ég hugsað til þess
tíma, æskuheimilis mömmu,
hvernig þau þraukuðu öll við
þröngan kost en öll systkinin
verið svo vel af guði gerð að
láta ekki fortíðardrauga né
skort á nauðsynjum í æsku
íþyngja sér. Þvert á móti mætt
lífinu með reisn, æðruleysi og
léttleika.
Genið frá Hesti virðist sum-
staðar vera nokkuð áberandi ef
ekki ríkjandi í kvenlegg nokk-
urra ónefndra í okkar ætt. Það
leynir sér ekki og er auðvitað
gleðilegt.
Ég minnist systranna, Svövu
og Helgu, með innilegu þakk-
læti fyrir einstaka vináttu, dýr-
mætar stundir og samfylgd.
Magnús Guðmundsson
(Maggi frændi).
Smáauglýsingar
Hljóðfæri
!
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bókhald
NP Þjónusta
Sé um liðveislu við
bókhaldslausnir o.þ.h.
Hafið samband í síma
831-8682.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt
Laugavegi 178, 105 Reykjavík
sími 551 3366. Opið virka daga
kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14
Misty
Vinsælu Smoothease
buxurnar okkar eru
komnar aftur.
Ein stærð sem gengur fyrir
stærðir S-XL. Saumlausar,
teyjanlegar og einstaklega
mjúkar.
Verð 2.450,- stk
Tilvalið í jólapakkann
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur
fyrir veturinn og
tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
ÁSKRIFTASÍMI
569 1100
Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar ástkærrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ELÍNAR PÁLMADÓTTUR
frá Snóksdal.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á
3. hæð suður á hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi.
Elvira Viktorsdóttir Guðmundur St. Sigmundsson
Kristín Viktorsdóttir Sveinbjörn Guðjónsson
Lýður Pálmi Viktorsson Sigríður Jóna Eggertsdóttir
Elín Berglind Viktorsdóttir Unnar Smári Ingimundarson
ömmu- og langömmubörn