Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég titraði vissulega aðeins í hnján-um frammi fyrir henni, en Elísabetgekk á milli okkar gestanna ogspjallaði. Þetta var lokað sam-
kvæmi fyrir örfáa útvalda og mjög persónulegt
boð, við vorum ekki nema tólf eða fimmtán
gestir, sérlega notalegt og enginn mátti taka
myndir. Elísabet vildi bara spjalla við fólk,
ekki sem drottning heldur sem manneskja,“
segir Guðrún Kristjánsdóttir sem fyrir rétt
tæpum 30 árum fékk boðskort frá hertoganum
af Edinborg í samkvæmi í breska sendiráðinu
samkvæmt skipan sjálfrar Elísabetar II Eng-
landsdrottningar. Þá var Guðrún kornung
blaðakona á Alþýðublaðinu en hún dró fram
boðskortið á dögunum í framhaldi af því að ný
þáttaröð fór af stað í Krúnuþáttunum, The
Crown, sem fjalla um ævi Elísabetar en Guð-
rún er mikill aðdáandi þáttanna.
„Elísabet var hér í opinberri þriggja daga
heimsókn en ég hafði á tilfinningunni að hún
hefði fyrst og fremst verið að skoða íslenska
hestinn, enda er hún mikil hestakona. Ég vann
þetta sumar undir ritstjórn Ingólfs Margeirs-
sonar heitins, sem var sannur rojalisti, enda
lærði hann í Bretlandi. Ingólfi fannst að ég, 26
ára stelpan, ætti að fara í hið konunglega boð
því hann hafði sent mig til að fylgja drottning-
unni eftir í heimsókninni og skrifa um það í
blaðið. Elísabet hafði ákveðið með stuttum
fyrirvara að bjóða örfáum blaðmönnum í
sendiráðið og ég þurfti að fá lánað sítt pils, því
það voru fyrirmæli um klæðaburð. Ég veit
núna hvers vegna ég var svona spennt fyrir að
hitta Elísabetu og hvers vegna Ingó valdi mig
til að fara í boðið, það er af því ég er mikill fem-
ínisti. Elísabet er sannarlega feminísti, enda
ekki annað hægt, hún er umvafin körlum sem
vilja stjórna henni, hvort sem það eru forsætis-
ráðherrar eða aðrir. Auðvitað var þetta æðis-
legt tækifæri fyrir mig unga konuna, sem á
þessum tíma var í stjórnmálafræðinámi að
stúdera lýðræði, einræði, konungdæmi og
fleira.“
Fannst ég vera að hitta ömmu mína
Guðrún segir að Elísabet hafi í boðinu
gert sér far um að spjalla við þau öll og hún
hafi myndað augnsamband við hverja einustu
manneskju.
„Hún fór alveg inn í „comfort-sónið“ og
spurði mig út í vinnuna mína. Hún var nýkom-
in frá Árnastofnun og var að velta fyrir sér
hvernig Alþýðublaðið myndi líta út þegar það
næði aldri íslensku handritanna. Ég svaraði að
sennilega yrði það orðið gult, rétt eins og
handritin, sem var orðaleikur hjá mér með vís-
an í „gulu“ pressuna, og henni fannst það mjög
fyndið. Gula pressan var sterk á þessum tíma
og gekk nærri konungsfjölskyldunni,“ segir
Guðrún og bætir við að sumir segi að Elísabet
sé hörð til augnanna, en henni fannst það alls
ekki.
„Mér fannst ég vera að hitta ömmu mína,
hún var algerlega slök og afar alþýðleg. Hún
var ekki formleg heldur hlý og mjög áhuga-
söm. Hún hleypti fólki óhikað inn fyrir, var
skörp til augnanna og mikil kímni í henni og
hlýja. Ég hef komist að því að hún er í raun
yfirjógi, hún hefur alla tíð kunnað þetta sem
við erum að tileinka okkur, hvílir vel í sjálfri
sér og núinu, yfirveguð og í jafnvægi. Mér
fannst hún mjög merkileg þarna fyrir 30 árum
en hún er sannarlega ennþá merkilegri í dag
þessi lágvaxna kona með stóra persónuleik-
ann. Hún er sterk og flott kona sem hefur tek-
ist á við ótrúlega hluti á ævinni.“
Ég held hún sé blíðari en af er látið
Guðrún segist hafa séð Elísabetu í nýju
ljósi við að hitta hana.
„Ég fékk áhuga á henni eftir þetta og hef
fylgst með henni allar götur síðan. Ég held að
sú mynd sem við sjáum af henni í Crown-þátt-
unum sé nokkuð nærri sannleikanum; hún er
almennileg um leið og hún er grjóthörð en líka
breysk. Ég held hún sé blíðari en af er látið,
hún þarf að standa sína plikt í þjóðhöfðingja-
hlutverkinu og hún er af þeirri kynslóð sem
formlegheitin skiptu meira máli en þau gera í
dag. Hún hefur þó á margan hátt verið nútíma-
leg, hún hefur til dæmis stutt hinsegin fólk í
Bretlandi,“ segir Guðrún, sem er ekki rojalisti
en þó ekki fylgjandi því að láta leggja emb-
ættið niður. „Ég veit alveg að meðlimir kon-
ungsfjölskyldunnar eru sirkusdýr og lífið sem
þau lifa er vissulega áhugavert, en líka erfitt.
Ég hef horft með áfergju á Crown-þættina,
þeir eru guðdómlega fallegir, uppfræðandi og
skemmtilegir enda mikið í lagt. Mér finnst
vera Crown-æði í gangi, þættirnir hafa vakið
áhuga ungu kynslóðarinnar á kóngafólkinu
breska af því að þeir fjalla um mannlegt fólk.“
007 var hér í Systrasamlaginu
Guðrún segir að James Bond, njósnari
hennar hátignar, hafi óvænt komið í heimsókn
í haust í Systrasamlagið, heilsubúð sem hún
rekur ásamt systur sinni.
„Pierce Brosnan var staddur á Íslandi við
tökur á kvikmynd og þau hjónin, hann og
Keely Shaye Smith, óskuðu eftir því að borða
hjá okkur. Þau lifa heilbrigðum lífsstíl og
spjölluðu heilmikið við okkur og sátu hér lengi.
Tvær níu ára stelpur sem voru hér hrópuðu
upp yfir sig þegar þau sáu hann: Mamma mía!
Þær réðu ekkert við sig og honum fannst stór-
kostlegt að ekki sæju allir hann sem James
Bond, svo hann leyfði þeim að taka mynd af
sér með honum. Hann endaði á að standa upp
og syngja fyrir þær Mamma mía-lagið. Þetta
var mjög fallegt og óvænt uppákoma. Hann
var alþýðlegur og yndislegur og kjaftaði við
mig eins og hver annar. 007 var hér.“
Hitti Elísabetu og James Bond
Með tæplega þrjátíu ára milli-
bili hitti Guðrún Kristjánsdóttir
Elísabetu Englandsdrottningu
og njósnara hennar hátignar
James Bond, eða þann sem
hefur leikið hann. Og hann
söng fyrir hana Mamma mía.
Morgunblaðið/Eggert
Guðrún Með konunglega boðskortið frá hertoganum af Edinborg sem bauð henni til kvæmis.
Morgunblaðið/RAX
Sterkar Elísabet og Vigdís forseti árið 1990 á
Íslandi þegar Guðrún hitti drottninguna.
Eitt af því sem er gaman á aðvent-
unni er að líta inn á hina ólíkustu
jólamarkaði. Einn af þeim er sá sem
Ásgarður handverkstæði býður upp á
fyrir hver jól en Ásgarður er vernd-
aður vinnustaður þar sem starfa
þroskaskertir einstaklingar við fram-
leiðslu á leikföngum, listmunum og
húsbúnaði. Jólamarkaðurinn verður í
húsnæði Ásgarðs á Álafossvegi 14
og 22 í Mosfellsbæ nk. laugardag 7.
desember frá kl. 12- 17. Allar
leikfangalínur Ásgarðs verða til sýnis
og sölu, einnig verður kaffi, heitt
súkkulaði og kökur til sölu gegn
vægu gjaldi. Góðir gestir ætla að
koma í heimsókn og taka nokkur lög.
Nú er lag að styrkja gott málefni og
skreppa í Ásgarð, kaupa jólagjafir og
drekka heitt ekta súkkulaði með
rjóma og hlusta á tónlist. Allir eru
hjartanlega velkomnir.
Árlegur jólamarkaður Ásgarðs næstkomandi laugardag
Listamenn Ásgarðs selja leik-
fangalínur og bjóða í heitt kakó
Skemmtilegt Tréblómin sem listamenn Ásgarðs hafa búið til eru falleg.
ÞRJÁRÓMISSANDI
DAG Í SENN eftir KARL SIGURBJÖRNSSON
Hugleiðingar fyrir hvern dag ársins
skalhol t su tga fan . is | k i rk juhusid . is
KIRKJUHÚSIÐ — SKÁLHOLTSÚTGÁFAN | SÍMI: 528-4200
BÓKIN UM
FYRIRGEFNINGUNA
eftir DESMOND TUTU
HVAÐ ER BIBLÍAN? eftir ROB BELL
Hollt ognærandi veganesti
„Ein af bestu
bókumársins!”
Því skyldumvið láta svonagamla
bók skipta okkur einhverjumáli?