Morgunblaðið - 05.12.2019, Side 36
36 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
ÞÍN ÚTIVIST
ÞÍN ÁNÆGJA
FANNAR | Vetrar ParkaKr. 37.990.-
Gengur vel að selja alþjóðlegar kræsingar
Matvöruverslanaflóra höfuðborgarsvæðisins er orðin æði fjölbreytt, þökk sé sérhæfðum búðum sem bjóða upp á alls
kyns hráefni frá fjarlægustu heimshornum og sælkeravöru sem matgæðingar geta ekki staðist. Blaðamaður ræddi við
eigendur tveggja slíkra verslana í aðdraganda líflegrar jólavertíðar.
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Liðin eru tvö ár frá því þeir Ar-
naud-Pierre Forutané og Didier
Fitan opnuðu sælkeraverslunina
Hyalin á Hverfisgötu. Þeir hjónin
lögðu strax í byrjun mikinn metnað
í að færa íslenskum neytendum það
allra besta frá frönskum framleið-
endum, og í hillum búðarinnar má
finna einstakt úrval matvöru frá
litlum framleiðendum hér og þar
um Frakkland. „Við gerðum okkur
alveg grein fyrir því að það væri
áhættusamt að opna svona búð á
Íslandi: búð sem væri ekki „frönsk
verslun fyrir Íslendinga“ heldur
einfaldlega sælkeraverslun af ná-
kvæmlega þeim toga sem fólk get-
ur vænst að finna í dæmigerðri
franskri borg,“ segir Arnaud-
Pierre. „Án þess að þurfa að eyða
miklu í auglýsingakaup og mark-
aðsstarf kvisaðist það smám saman
út að ný verslun hefði verið opnuð í
miðbænum og viðskiptavinunum
fjölgaði jafnt og þétt. Þeir sem svo
komu til okkar á annað borð voru
fljótlega orðnir fastagestir enda
fólk fljótt að átta sig á hve mikils
virði það er þegar hægt er að stóla
á gæðin og uppruna vörunnar.“
Stórmarkaðirnir gætu ekki
keppt við svona rekstur
Það er einmitt sérhæfingin og
hátt þjónustustig sem Arnaud-
Pierre segir að veiti Hyalin sam-
keppnisforskot. Stórmarkaðirnir
gætu freistað þess að bjóða upp á
sömu eða sambærilegar vörur, en
eðli franskra sælkeraverslana sé
þannig að það er ekki hægt að end-
urskapa sömu upplifun og vöruúr-
val í verslun þar sem fólk þræðir
langa ganga og raðar ofan í körfu:
„Þeir framleiðendur sem við störf-
um með velja það af ásetningi að
eiga ekki í viðskiptum við risastóru
keðjurnar, þó ekki væri nema
vegna þess að umfang framleiðsl-
unnar þýðir að aðeins er hægt að
anna takmarkaðri eftirspurn. Við
getum verslað beint við þessa aðila,
og þekkjum með nafni fólkið á bak
við allar vörurnar í búðinni, en ef
íslenskur stórmarkaður ætlaði að
selja það sama myndi þurfa að fá
vörurnar í gegnum millilið og út-
koman yrði miklu hærra verð en
okkur tekst að bjóða.“
Arnaud-Pierre upplýsir að við-
skitpavinirnir geri sjaldan stór-
innkaup í Hyalin en heimsæki
verslunina þeim mun oftar. „Það
sem þau finna hér finna þau ekki
annars staðar, og það sem flestir
eru að leita að er eitthvað eitt eða
tvennt sem er viðbót við reglubund-
in matarinnkaup heimilisins – eitt-
hvað ljúffengt sem gerir heim-
ilislífið ánægjulegra.“
Undarlegar ostareglur
Þegar hann er spurður hvað
helst vanti í búðina er Arnaud-
Pierre búinn að svara áður en
spurningin er kláruð: vín og osta.
Honum þykir undarlegt að það
skuli vera dýrt að flytja inn franska
osta og jafnvel ómögulegt að flytja
inn suma þeirra og þannig eru
strangar takmarkanir á innflutningi
osta sem framleiddir hafa verið úr
ógerilsneyddri mjólk. „Sagt er að
þetta sé gert í öryggisskyni, en þó
er eftirlit með gæðum matvöru
óvíða jafn vandað í Frakklandi, og
þetta er matvara sem er flutt út og
seld um alla Evrópu án nokkurra
vandkvæða,“ segir hann og bætir
við að það væri líka gaman að flytja
inn franska hráskinku. „En þá rek-
um við okkur á aðra hindrun; að
starfsemi þeirra framleiðenda sem
við verslum við er svo smá í sniðum
að það svarar ekki kostnaði að ráð-
ast í allar þær mælingar, og útbúa
öll þau vottorð sem aðeins Ísland
biður um.“
Þá langar Arnaud-Pierre ekki að
opna vínbúð, eða byrja að selja
sterkt vín, en honum þætti af-
skaplega gott að fá að bjóða þó
ekki væri nema fjórar víntegundir
sem væru, eins og allt annað hjá
Hyalín, sérvaldar af mikilli kost-
gæfni.
Búð eins og fólk
myndi finna í
Frakklandi
Morgunblaðið/Eggert
Metnaður Arnaud-Pierre til þónustu reiðubúinn. Honum þætti gaman að geta flutt inn franska eðalosta og selt vín.
Freistingar Lukkulegir íslenskir
sælkerar venja komur sínar í Hyalin