Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 71
Martin Scorsese þarf vartað kynna fyrir lesend-um, enda einn þekktastikvikmyndahöfundur sögunnar. Scorsese húkkar sér far með Netflix-vagninum í sinni nýjustu kvikmynd, The Irishman, sem hefur verið sýnd í takmarkaðan tíma í kvik- myndahúsum áður en hún rataði inn á streymisveituna. The Irishman byggist á sönnum at- burðum og segir frá hinum írskætt- aða Frank Sheeran, sem er leikinn af Robert De Niro. Frank er vörubíl- stjóri sem leiðist út í glæpi þegar hann áttar sig á að hann getur hagn- ast á því að selja farminn undir borð- ið. Þegar hann er gómaður nýtur hann aðstoðar stéttarfélags vörubíl- stjóra, sem kallast „teamsters“ á enskunni, og þeir koma honum undan fangelsisdómi fyrir þjófnaðinn sem hann hefur augljóslega framið. Í kjöl- far þessa kemst Frank sífellt nær innsta kjarna stéttarfélagsins, hann rís til hæstu metorða og verður meðal annars hægri hönd verkalýðsleiðtog- ans Jimmys Hoffa (Al Pacino), sem var afar þekktur í bandarísku sam- félagi. Áhorfendur utan Bandaríkjanna þurfa að hafa svolítið fyrir því að setja sig inn í aðstæður, því stéttarfélagsfyrirkomulagið þar vestra er ólíkt því sem gengur og ger- ist annars staðar í heiminum. Nú er ég enginn sérfræðingur í þessum málum en mun þó gera tilraun til að gera stuttlega grein fyrir þessu. Í kreppunni miklu urðu til tengingar milli stéttarfélaga og skipulagðrar glæpastarfsemi, sem undu síðar upp á sig. Stundum sáu stéttarfélögin um lífeyri félagsmanna og önnuðust að ávaxta þá peninga og í sumum til- fellum, t.d. hjá „teamsterunum“, voru þessir peningar ávaxtaðir með ólög- legum hætti, með því að veita skúrk- um og mafíumeðlimum lán, mönnum sem gátu ekki fengið lán í banka. Þannig varð til óheilbrigð menning þar sem skipulögð glæpastafsemi varð að mikilvægum stólpa í sam- félaginu sem teygði anga sína út í stjórnmál, spilling grasseraði og mörkin milli verkalýðsstarfsemi og mafíustarfsemi svo gott sem máðust út. Líkt og Scorseses er von og vísa er söguþráður myndarinnar þéttur og margslunginn og persónurnar marg- ar. Takturinn í The Irishman er hæg- ari en í mörgum fyrri myndum hans, það er ekki sami slagkraftur í henni. Maður fær á tilfinninguna að þetta sé algjörlega viljandi, hér er mikil með- vitund um hverfulleika lífsins og ljóst að sjónarhorn Scorseses er sjónar- horn manns sem er kominn af létt- asta skeiðinu. Myndin er líka óhemju- löng; slagar upp í fjóra klukkutíma með hléi. Þeim sem finnst bíómiðar dýrir nú til dags geta þarna huggað sig við að fá mikið fyrir peninginn, þú færð ígildi tveggja bíómynda á verði einnar. Þótt hún sé löng er hún ekk- ert endilega langdregin, manni leiðist svo sem ekkert en þessi ógurlega lengd er samt alls ekki nauðsynleg. Síðustu 40 mínúturnar, þar sem við fylgjumst með efri árum Franks, bæta til dæmis engu við söguna og eru algjörlega óþarfar. Myndin er mikil leikaraveisla, þarna er valinn (karl)maður í hverju rúmi og allir sýna þeir glæsilega takta. Al Pacino stendur upp úr sem Jimmy Hoffa og vafalaust mun hann raka inn verðlaunum fyrir frammi- stöðuna. Hér vinnur Scorsese, eins og svo oft áður, með einhverjum bestu leikurum sinnar kynslóðar, sem er gott og blessað, fyrir utan það að þeir eru ekki á réttum aldri fyrir hlut- verkin. Al Pacino er 79 ára gamall. Hann leikur mann sem er á milli fimmtugs og sextugs. Robert De Niro er 76 ára og leikur mann sem er á milli fertugs og fimmtugs. Vissu- lega flakkar De Niro í aldri, við fylgj- um persónunni gegnum helming ævi hennar, en lengst af á persónan að vera rúmlega 50 ára og það er alls ekki sannfærandi. Hvorki De Niro né Pacino líta illa út, raunar eru þeir glæsilegir báðir tveir, en þeir líta út fyrir að vera um áttrætt, ekki fimm- tugt. Það sést á liðagigtinni í hönd- unum, á slútandi herðunum, þrátt fyrir að reynt sé að galdra nokkur ár í burtu með einhverjum strekkingum. Auðvitað er þetta ekkert lykilatriði en þetta er samt ofurlítið kjánalegt því þetta dregur úr sannleiksgildi myndarinnar. Þetta eru engir aldurs- fordómar, þetta er bara svolítið eins og þegar 27 ára gamlir leikarar eiga að vera menntaskólanemar. Persónur með tvo X-litninga eru, að hætti Scorseses, bæði fáar og ómerkilegar. Það er raunar eins og þetta hafi versnað hjá karlinum í seinni tíð, það voru nú nokkrar flottar konur í gömlu myndunum, í Good- fellas og Cape Fear til dæmis. Síð- asta stóra mynd Scorseses, The Wolf of Wall Street, var skemmtileg mynd en hún var líka mikið karlrembusvín- arí, sem getur tæplega dulist bak við að vera ádeila á meðan það er engin þrívíð kvenpersóna í myndinni. Peggy, dóttir Franks, er áhugaverð- asta kvenpersónan í The Irishman en hún fær nánast engar línur og þjónar eiginlega einungis táknræku hlut- verki sem samviska Franks, sem er mikil vannýting. The Irishman er fínasta mynd, þótt hún teljist ekki til bestu verka Scorseses. Aðdáendur verða samt lík- lega ekki sviknir. Hér er boðið upp á flest sem góð Scorsese-ræma þarf að innihalda; löng og tilkomumikil steadicam-skot, stjörnufans og svöl samtöl. Rosknir glæponar Bíó Paradís/Netflix The Irishman bbbnn Leikstjórn: Martin Scorsese. Handrit: Steven Zaillian og Charles Brandt. Kvik- myndataka: Rodrigo Prieto. Klipping: Thelma Schoonmaker. Aðalhlutverk: Robert De Niro, Al Pacino, Joe Pesci, Harvey Keitel og Anna Paquin. 210 mín. Bandaríkin, 2019. BRYNJA HJÁLMSDÓTTIR KVIKMYNDIR Glæpamenn Joe Pesci og Robert De Niro stinga saman nefjum í The Irishman. Hér hafa brellu- meistarar gert hina rosknu leik- ara unglegri með tölvubrellum. MENNING 71 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019 ICQC 2020-2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambíó.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.