Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 76
76 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019 laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is Sjóðheit steypujárnssending Lodge járnpanna, 26 cm Verð 9.500 kr. Morgunblaðið/Hari Undirliggjandi spenna „Ég skrifa oftast um eitthvað sem ég skil ekki alveg,“ segir Dóri DNA um sína fyrstu skáldsögu, Kokkál. Aðalpersónan fékk ungur hjartasár sem Dóri segir engan hafa viljað stoppa upp í. Árni Matthíasson arnim@mbl.is Skáldsagan Kokkáll eftir Dóra DNA hefst þar sem Örn og Hrafn- hildur eru stödd í skemmtiferð í Chicago. Sú skemmtiferð er óðum að breytast í martröð, fyrir Örn í það minnsta, þótt helvítið sem hann lendir í sé notalegt og mar- tröðin kósí. Örn er aðalpersóna bókarinnar, fórnarlamb framvindunnar og eins og Dóri lýsir honum: „Hann er með sár í hjartanu sem hann fékk ungur og það kom enginn til hans sem vildi stoppa upp í þetta gat. Einn af þráðum bókarinnar er að hann kann ekki að elska, getur hvorki þegið né gefið ást nema þá sem kemur úr bíómyndum eða eitthvað svoleiðis.“ – Það er ein persóna í bókinni sem elskar Örn skilyrðislaust, en þótt hann sé að leita að ást notar hann viðkomandi til að láta sér líða betur og það er alltaf á hans for- sendum. „Það er til að undirstrika þetta gat í honum, hann er svo rosalega þurfandi og þarf svo mikið á ást að halda að hann tekur hana þegar hann loksins finnur hana og þá al- gerlega á sínum forsendum.“ – Þetta er sorgarsaga, en þó bráðfyndin, grátbrosleg. „Þetta er saga um nútímaangist, en ég skrifa þó ekki þannig að ég setjist niður til að tækla einhverjar tilteknar tilfinningar eða aðstæður. Ég skrifa oftast um eitthvað sem ég skil ekki alveg, reyni ekki að lýsa því sem ég þekki í þaula held- ur er ég frekar að labba í gegnum frumskóg hluta sem ég skil ekki og lýsi því sem ég sé, ef ég má vera svo skáldlegur.“ – Meðal þess sem þú ert að lýsa er íslenskt nútímasamfélag, aug- lýsingabransinn og dekur við bófa- hiphop. „Eiríkur Örn Norðdahl skrifaði mjög fallega um bókina á blogginu sínu um daginn en kallaði hana líka rasíska. Það er líka einn af þeim þráðum sem ég nennti ekki að tala um sjálfur en er nokkuð meðvitaður um; ósýnilega brúin á milli óra og fordóma. Ég var með buxurmar á hælun- um í Mosó sem unglingur, tilbað fátækrahverfi Bandaríkjanna, en vissi ekkert um svarta menningu eða hvað það er að vera svartur. Ég hafði samt mjög skýra hug- mynd um hvað það væri og það var að vera úr hoodinu á hlýrabol með klút og skjóta einhvern. Ég veit ekki hvort ég vil ljóstra því upp í viðtali, en bókin hefst á fullorðins- órum um svarta og henni lýkur á barnæskuórum um svarta.“ Hægfara lestarslys – Í síðustu ljóðabók var spenna undirliggjandi og mér finnst ég finna hana í þessari bók. „Ekki spurning, kannski eins og Þorgeir Tryggvason nefndi „þessi óbærilegi léttleiki tilverunnar“. Það er í henni hægfara lestarslys, einhver taktur sem ég fíla mjög vel en ég varð að horfa á ógeðslega margt í bókinni. Líka á fólk sem ég þekki ekki en er af minni kynslóð, ógeðslega sætt og alltaf í útlönd- um, en ég veit ekkert um líf þess. Kannski sér maður stelpurnar meira, en á tíundu hverri mynd birtist einhver draugalegur kær- asti eins og hann sé aukaleikari í lífi þeirra. Það er fólkið sem ég var að ímynda mér og það plús harm- urinn sem ég er svo upptekinn af verður einhvern veginn að þessu hægfara lestarslysi.“ „Þetta er saga um nútímaangist“  Dóri DNA segir skáldsöguna Kokkál hefjast og enda á órum Myndlistarmaðurinn Sigurður Guð- jónsson verður fulltrúi Íslands á næsta Feneyjatvíæringi, sem hefst í maí árið 2021. Sigurður, sem er fæddur árið 1975, er þekktur fyrir áhrifamikil myndbandsverk þar sem mynd, hljóð og rými mynda órofa heild. Hann sýndi fyrst um aldamótin síðustu í listamanna- reknum rýmum í Reykjavík og hef- ur nú, auk þess að taka þátt í ýms- um samsýningum, sett upp yfir tuttugu einkasýningar víða um lönd. Þá hlaut hann Íslensku myndlistarverðlaunin árið 2018 fyrir verkið Innljós sem sett var upp í kapellu og líkhúsi St. Jósefs- spítala í Hafnarfirði. Hans nýjasta verk ber titilinn Enigma, er unnið í samstarfi við tónskáldið Önnu Þorvaldsdóttur og er meðal annars sýnt samhliða tón- verki hennar í Kennedy Center í Washington, Adler Planeterium í Chicago og Carnegie Hall í New York. Val á fulltrúa Íslendinga á næsta Feneyjatvíæring var í höndum fag- ráðs Kynningarmiðstöðvar ís- lenskrar myndlistar. Það skipa Helga Björg Kjerúlf, framkvæmda- stjóri KÍM; Ásdís Spanó myndlist- armaður og Ágústa Kristófersdótt- ir, forstöðumaður Hafnarborgar. Í rökstuðningi fagráðs segir: „Með vali Sigurðar teflir Ísland fram listamanni sem unnið hefur að áhrifamiklum innsetningum á óvenjulegum sýningarsvæðum og byggt upp afar sterka röð sýninga sem vakið hafa verðskuldaða at- hygli í heimi samtímalistarinnar.“ Sigurður Guðjónsson næsti fulltrúi Íslands í Feneyjum Morgunblaðið/Ófeigur Listamaðurinn Myndbandsverk Sigurðar vekja mikla athygli. Allir fjórir listamennirnir sem til- nefndir höfðu verið til hinna virtu Turner-verðlauna, sem veitt eru ár- lega í Bretlandi fyrir samtíma- myndlist, voru lýstir sigurvegarar keppninnar. Þau Lawrence Abu Hamdan, Helen Cammock, Oscar Murillo og Tai Shani höfðu verið tilnefnd og undanfarið hefur staðið yfir sýning á verkum þeirra í Tate-safninu í Margate. Þegar verðlaunin voru af- hent þar í fyrrakvöld og ritstjóri Vogue, sem falið hafði verið að til- kynna hver hreppti verðlaunin, opnaði umslagið, þá stóð þar að listamennirnir hefðu ákveðið að stofna samstarfshóp sem myndi hljóta verðlaunin. Skipta þeir því með sér verðlaunafénu, 40 þúsund pundum. Í ávarpi listamannanna, sem fögnuðu ákvörðuninni í faðmlögum á sviðinu, útskýrðu þeir að við upp- setningu sýningarinnar hefði hug- myndin kviknað, að ala ekki á sundrungu í þeirra hópi, nóg væri af slíku í samtímanum, og báðu þau dómarana því að virða á táknrænan hátt samstöðuna og margbreyti- leikann sem fælist innan hennar, rétt eins og í samfélaginu sjálfu. Skjáskot/Frá útsendingu BBC frá afhendingunni Samstaða Listamennirnir fjórir fagna vali dómnefndar Turner-verðlaunanna. Allir tilnefndir hrepptu verðlaunin Sakramentið, skáldsaga Ólafs Jó- hanns Ólafssonar, kom út í Banda- ríkjunum í vikunni og hefur útgáf- an hlotið mikið umtal og sagan góða dóma. Hin ástralska Hannah Kent, höfundur bókarinnar sem nefnist Náðarstund á íslensku, ritar langa og lofsamlega umsögn sem birtist í The New York Times. Á vef Amazon.com er mælt með Sakramentinu sem einni af tíu bestu bókum sem komi út í mán- uninum vestra; í USA Today er bókin nefnd sem ein af fimm bestu bókunum sem komu út í vikunni og svipað er uppi á teningnum í The New York Times, þar sem bókin er sögð ein af níu bókum sem lesendur blaðsins megi ekki missa af nú í desember. Þá fékk sagan afar góða dóma í fagritum útgáfubransans vestra, Kirkus Review og Publishers Weekly. Sakramentið vekur athygli vestanhafs Morgunblaðið/Eggert Ólafur Jóhann Gagnrýnendur í Bandaríkj- unum lofa skáldsöguna Sakramentið. Hin dáða ítalska mezzósópran- söngkona Cecilia Bartoli hefur samið um að taka við stjórnar- taumum óperu- hússins í Monte Carlo árið 2023. Bartoli, sem er 53 ára gömul, verður fyrsta konan til að gegna þeirri stöðu. Í yfirlýsingu segir Bartoli stöð- una vera draum sem sé að rætast. Hún kveðst í stafinu ætla að ganga í sjóð reynslunnar en jafnframt koma með ýmiskonar nýjungar. Þrátt fyrir að taka við stjórn óp- eruhússins mun Bartoli halda áfram að ferðast um heiminn og koma fram í óperum og á tón- leikum, en hún er afar eftirsótt út um heimsbyggðina, enda ein þekkt- asta óperusöngkona síðustu ára- tuga. Bartoli tekur við óperunni í Monte Carlo Cecilia Bartoli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.