Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 74

Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 74
74 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019 Selkórinn heldur jólatónleika sína í Seltjarnarneskirkju á sunnudag kl. 16. Á efnisskránni verða jólalög frá miðöldum og þekkt jólalög frá síð- ari tímum. Með kórnum spilar málmblásturskvartett úr Sinfóníu- hljómsveit áhugamanna, Steinar Matthías Kristinsson og Kjartan Örn Styrkársson á trompet, Torfi Þór Gunnarsson á horn og Valgeir Geirsson á básúnu. Kórfélagarnir Inga Erlingsdóttir sópran, Hulda Hákonardóttir alt, Sigurður J. Grétarsson tenór og Skúli Þór Magnússon bassi syngja einsöng með kórnum í laginu „In the bleak midwinter“. Oliver Kentish stjórnar Selkórn- um og Ísak Jónsson er píanóleikari kórsins. Kórinn býður tónleikagest- um upp á kaffi og konfekt að tón- leikum loknum í safnaðarheimilinu. Miða má nálgast hjá kórfélögum og við inngang. Miðaverð er 2.500 kr. Í jólaskapi Selkórinn ásamt stjórnanda sínum, Oliver Kentish. Jólatónleikar Selkórsins  Jólalög frá miðöldum og þekkt jóla- lög síðari tíma í Seltjarnarneskirkju Ljóð bókarinnar Kærastinn er rjóðurfjalla um ástina sjálfa, andstæðurhennar sem þykjast vera ást ogólíkar birtingarmyndir hvors tveggja. Höfundur vekur lesandann til um- hugsunar um ást og ástleysi, nánd og fjar- lægð og það sem ástin skilur eftir þegar hún er horfin á braut. Þetta framkvæmir höfund- ur með átakanlegum ljóðum sem eru jafn- framt full af örlítið dökkum húmor, eins og í ljóðinu „Kærasti nr. 4“: hann gefur mér rauðan kjól af fyrrverandi og áframsendir á hana emailsamskipti okkar við ákveðum að byrja að búa saman ég segi honum frá manni sem hrinti mér niður tröppur á skemmtistað hann segist líka þurfa að heyra hans hlið á málinu við ákveðum að kaupa. Viðfangsefnið er gríðar- stórt en Kristín nær að gera því skil í sjötíu og þriggja blaðsíðna ljóðabók og vegna þeirrar þéttu og yfirgripsmiklu sögu sem ljóðin segja fær lesandinn jafnvel frekar á tilfinning- una að hann sé að lesa skáldsögu en ljóð. Ljóð- mælandi stiklar vissulega á stóru og kafar mismikið á dýpið með hverjum kærasta fyrir sig en það kemur ekki að sök. Sumir kærast- anna eru einfaldlega mikilvægari en aðrir, í bókinni sem og í raunheimi. Bókinni er skipt upp í sex hluta af annars samhangandi ljóðum. Þetta skipulag fær les- andann til að átta sig betur á umfangi og samhengi ljóðanna en tengsl þeirra eru mikil. Þráðurinn sem tengir ljóðin saman gerir það að verkum að lesandinn verður helst að lesa bókina í einni lotu til þess að ná sem best ut- an um efnið og húmorinn. Það er vart hægt að minnast á Kærastinn er rjóður án þess að taka fyrir kápu og titil bókarinnar. Hallgrímur Helgason rithöfund- ur hefur nú þegar úrskurðað að hér sé bæði um kápu og titil ársins að ræða. Þar verður undirrituð að vera sammála. Kápan og titill- inn sem umlykja ljóðin bæta miklu við þau, gefa ljóðunum aukna dýpt og skvettu af húm- or. Morgunblaðið/Hari Lotulestur „Þráðurinn sem tengir ljóðin saman gerir það að verkum að lesandinn verður helst að lesa bókina í einni lotu til þess að ná sem best utan um efnið og húmorinn,“ segir m.a. í dómi. Ljóð Kærastinn er rjóður bbbbb Eftir Kristínu Eiríksdóttur. Forlagið, 2019. Kilja, 73 bls. RAGNHILDUR ÞRASTARDÓTTIR BÆKUR Rjóðir kærastar, ást og ástleysi Ég get staðist allt nema freistingar,sagði Oscar Wilde um árið ogkjarnaði þannig heimspeki svomargra okkar. Fögur orð eru ódýr, en það er oft erfiðara þegar kemur að því að færa fórnir, hvort sem þær felast í að leggja sænsku snusi eða einkabílnum. Áhugamenn um loftslagið vilja ólmir bjarga jörðinni frá glötun, nema ef ske kynni að ráðast þyrfti í einhverjar aðgerðir í því skyni. Loftslagsváin er tekin fyrir í Fjallaverksmiðju Íslands, nýútkominni ung- lingabók Kristínar Helgu Gunnarsdóttur. Nokkur ungmenni stofna með sér einhvers konar kommúnu undir jökli og einsetja sér að koma að- eins betur fram við plán- etuna en við hin. Úr verður hin mjög svo óljósa fjallaverksmiðja, sem er þó alls engin verksmiðja heldur ein- ungis hugmynd, áróðurs- verksmiðja eða bara lífs- stíll, eins og skírlífi eða ketó. Hugmyndin berst á ævintýralegan hátt um heiminn, þökk sé vinsældum forsprakk- ans Emmu. Hún er nefnilega áhrifavaldur á Instagram, með hundruð þúsunda fylgjenda sem hlýða daglega á dómsdagserindið um hvernig auðvaldið er á hraðri leið með að stefna jörðinni og þar með mannskepnunni í glötun. Engin ný sannindi þar. En þegar hugmynd laðar að sér fylgismenn unnvörp- um er auðvaldið ekki lengi að renna á lykt- ina og sjá þar gróðavon, og þá er spurning hvort menn standa við stóru orðin. Bókin líður helst fyrir það hve óskil- greind hugmyndin um fjallaverksmiðjuna er. Það er erfitt að sjá fyrir sér að nokkur hafi áhuga á að kaupa slíka hugmynd, hvað þá helstu stórlaxar íslensks viðskiptalífs. Við erum ekki að selja neitt. Söluvaran er loft, bendir ein sögupersónan á, en það kemur þó ekki í veg fyrir að maður álíti við- komandi algjöran svikara fyrir að vilja þekkjast boð kaupsýslumannsins, slíkur er sannfæringarkraftur söguhetjunnar. Áhersl- an á loftslagsvána tekur sinn toll og önnur framvinda sögunnar fellur eilítið í skugg- ann. Eins og unglingabók sæmir eru sögu- hetjur skotnar hver í annarri og ná ýmist saman eða ekki, án þess að áhugasamur les- andinn fái botn í þau mál. Hvað gerði Jökull í partíinu um vorið sem varð til þess að eitra samband þeirra Eiríku? Ekki spyrja mig! Það eru orðin einhver ár síðan ég las síð- ast þartilgerða unglingabók, en í minning- unni voru umfjöllunarefnin oft léttvægari, og er það til marks um aukinn áhuga á loftslagsmálum hve áreynslulaust gera má slíkt stórmál, sem er í grunninn pólitískt, að umfjöllunarefni unglingabókar. Kristínu tekst að skapa skrautlegar persónur með ólíkan bakgrunn svo úr verður áhugaverð saga sem talar vel inn í samtímann, stund- um dálítið klisjukennd, en ætti að höfða vel til markhópsins. Fínasta skemmtun! Morgunblaðið/Hari Kristín Helga „… áhugaverð saga sem talar vel inn í samtímann,“ skrifar gagnrýnandi. Allt nema aðgerðir Unglingabók Fjallaverksmiðja Íslands bbbbn Eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur. Mál og menning 2019. Innb., 278 bls. ALEXANDER GUNNAR KRISTJÁNSSON BÆKUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.