Morgunblaðið - 05.12.2019, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019
Hvatningarverðlaun Öryrkjabanda-
lagsins voru afhent á þriðjudaginn.
Að þessu sinni hlutu verðlaunin:
Sólveig Ásgrímsdóttir, fyrir bókina
Ferðalag í flughálku sem er fyrsta
bókin á íslensku sem fjallar um
ADHD og unglinga, Réttinda-
Ronja fyrir að setja upp heimasíðu
og gagnabanka þar sem hægt er að
nálgast nákvæmar og réttar upp-
lýsingar um réttindi fatlaðra nem-
enda, Stundin fréttamiðill, fyrir
vandaða umfjöllun um málefni ör-
yrkja, sjúklinga og ellilífeyrisþega,
og Einhverfusamtökin fyrir
heimildarmyndina Að sjá hið ósýni-
lega.
Sama dag veittu Landssamtökin
Þroskahjálp viðurkenningu sína,
Múrbrjótinn, á alþjóðadegi fatlaðs
fólks. Verðlaunin hlutu Tabú – fem-
ínísk fötlunarhreyfing vegna fram-
lags í þágu mannréttinda fatlaðs
fólks og jafnra tækifæra fyrir jafn-
ingjastuðning fatlaðra mæðra við
Freyju Haraldsdóttur í máli henn-
ar gegn Barnaverndarstofu, Ásrún
Magnúsdóttir, Gunnur Martins-
dóttir Schlüter og Olga Sonja
Thorarensen vegna framlags í þágu
mannréttinda fatlaðs fólks og
jafnra tækifæra fyrir verkið „Feg-
urð í mannlegri sambúð“ sem flutt
var á Reykjavík Dance Festival og
loks Einhverfusamtökin vegna
framlags í þágu mannréttinda fatl-
aðs fólks og jafnra tækifæra fyrir
heimildarmyndina „Að sjá hið
ósýnilega“.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Viðurkenning Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti hvatningarverðlaun Öryrkjabandalagsins.
Viðurkenningar vegna
framlags til fatlaðra
Afhentu hvatningaverðlaun ÖBÍ og Múrbrjótinn
Múrbrjóturinn Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra afhenti
þremur aðilum viðurkenningar Þorskahjálpar á alþjóðadegi fatlaðra.
Ljósmynd/Þroskahjálp
Fjármála- og
efnahags-
ráðherra hefur
skipað Guðrúnu
Ögmundsdóttur í
embætti skrif-
stofustjóra á
skrifstofu rekstr-
ar og innri þjón-
ustu í fjármála-
og efnahagsráðu-
neytinu til fimm
ára. Guðrún hefur starfað í fjármála-
og efnahagsráðuneytinu frá árinu
2011. Síðastliðið ár hefur hún verið
settur skrifstofustjóri á skrifstofu
rekstrar og innri þjónustu. Guðrún
var áður ráðgjafi hjá Capacent, fjár-
festatengill hjá Landic Property hf.,
og sérfræðingur hjá Kaupþingi
banka hf. Þar áður starfaði hún sem
hagfræðingur á efnahagsskrifstofu
fjármálaráðuneytisins frá 2002 til
2005.
Guðrún er hagfræðingur frá Há-
skóla Íslands og með meistaragráðu
í fjármálum frá Cass Business
School í London.
Alls bárust 25 umsóknir um stöð-
una sem var auglýst 28. ágúst síðast-
liðinn.
Guðrún
skipuð skrif-
stofustjóri
Guðrún
Ögmundsdóttir
Nú finnur
þú það sem
þú leitar að
á FINNA.is
Skoðið laxdal.is
GÆÐA VÖRUR
GÓÐ VERÐ
PELSJ
AKKI
19.900,
-
Skipholti 29b • S. 551 4422
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Kjólar // Túnikur
Str. 36-46
Kjóll
tveir litir
7.990 kr.
Túnika
8.990 kr.
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Flott föt, fyrir flottar konur