Morgunblaðið - 05.12.2019, Síða 12
Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019
Byltur eru algengt vandamál hjá eldra fólki oggeta þær í sumum tilfellum haft alvarlegar af-leiðingar í för með sér. Áætlað er að um þriðj-ungur fólks 65 ára og eldra detti að minnsta
kosti einu sinni á ári og að um helmingur þeirra sem eru
85 ára og eldri detti einu sinni á ári eða oftar. Um 10%
bylta fylgja áverkar og um helmingur þeirra áverka eru
brot sem geta haft mikil áhrif á lífsgæði þess sem dett-
ur.
Óttinn við að falla getur haft keðjuverkandi áhrif, fólk
hreyfir sig minna af ótta við að detta sem getur leitt til
skertrar hreyfigetu og að hætta á byltum eykst. Margir
þættir geta valdið byltum meðal eldra fólks, má þá
nefna samverkandi þætti á milli sjúkdóma og lyfja,
hækkandi aldur, jafnvægisleysi, lélegt næringarástand,
vitræna skerðingu, versnandi heyrn og sjón. Mikilvægt
er að skoða undirliggjandi orsakir með heimilislækni og/
eða hjúkrunarfræðingi á heilsugæslustöðvum sem geta
svo vísað til iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara og annars fagfólks
eftir þörfum.
Góð ráð til að lágmarka byltur
Reglubundin hreyfing gerir það að verkum að það
hægist á öldrunarbreytingum sem verða í líkamanum
með hækkandi aldri. Því er mikilvægt að eldra fólk við-
haldi hreyfifærni sinni með reglubundinni hreyfingu
sem inniheldur einnig jafnvægis- og styrktaræfingar.
Ástundun jafnvægis- og styrktaræfinga er talin vera
mikilvæg til að minnka líkur á falli. Eldra fólk ætti að
stunda miðlungserfiða hreyfingu í 30 mínútur daglega
hið minnsta sem skipta má í nokkur styttri tímabil yfir
daginn, t.d. 10-15 mínútur í senn.
Góður og viðeigandi fótabúnaður skiptir miklu máli,
til dæmis góðir stamir skór, inniskór með hælbandi og
mannbroddar í hálku (muna að það er hægt að fá
brodda á stafinn).
Forðast skal að hafa slysagildrur á gólfinu, t.d. laus-
ar mottur og snúrur sem liggja á gólfi.
Hafa skal lýsingu innanhúss í góðu lagi til að draga
úr líkum á að fólk reki sig í og detti. Ef fólk fer fram úr
á nóttunni getur verið gott að hafa næturlýsingu.
Göngugrindur, griptangir, handföng við baðkar og
salerni eru dæmi um hjálpartæki sem auka öryggi í
heimahúsum í mörgum tilfellum.
Mikilvægt er að hafa hluti í lagi, til dæmis sjónvarp
og brauðrist og gera strax við það sem bilar því bilaðir
hlutir geta auðveldlega breyst í slysagildru.
Lýsi og D-vítamín
Ekki er úr vegi að minnast á mikilvægi þess að taka
D- vítamín eða lýsi því sýnt hefur verið fram á að inn-
taka þess getur dregið úr brotum. Ráðlagur dag-
skammtur af D-vítamíni er 15-20 míkrógrömm. Jafn-
framt er mælt með að konur taki um 800 mg af kalki
daglega eftir breytingaskeið.
Eldra fólk sem hefur dottið eða upplifir sig í fallhættu
ætti að leita á næstu heilsugæslustöð til að fá mat á
byltuhættu og ráðgjöf til að fyrirbyggja byltur. Þannig
er hægt að auka öryggi og lífsgæði eldra fólks.
Sem betur fer er margt hægt að gera til að fyr-
irbyggja byltur og með viðeigandi ráðstöfun fækka bylt-
um verulega í samfélaginu. Með því að huga að öryggis-
málum heimila mætti koma í veg fyrir mörg þessara
slysa. Mikilvægt er að eldra fólk og aðstandendur þess
þekki áhættuþætti bylta og þekki leiðir til að draga úr
þeim. Við bendum fólki á Heilsuveru.is en þar má sjá
góðar leiðbeiningar tengdar slysavörnum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússson
Ganga Reglubundin hreyfing gerir það að verkum að það hægist á öldrunarbreytingum sem verða í líkamanum.
Bylturnar og eldra fólkið
Heilsuráð
Anna
Ólafsdóttir
hjúkrunarfræðingur Eva Kristín
Hreinsdóttir
hjúkrunarfræðingur
Höfundar starfa á Heilsugæslunni Hlíðum í Reykjavík.
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Grýla og Leppalúði koma árlega með látum í Þjóð-
minjasafnið stuttu áður en jólasveinarnir, synir
þeirra, koma af fjöllum hver á fætur öðrum og
heimsækja safnið til að hitta börn. Þó Grýla og
Leppalúði séu ekkert sérlega frýnileg, þá er alltaf
jafn spennandi að fá að sjá þau og heyra. Næst-
komandi sunnudag, 8. des., gefst tækifæri því þá
ætla þau að mæta í Þjóðminjasafnið kl. 14 og
sprella fyrir gesti með sínum einstaka hætti. Leik-
arinn Guðjón Davíð Karlsson, betur þekktur sem
Gói, ætlar að skemmta krökkunum með sögum og
söng áður en Grýla og Leppalúði mæta.
Aðgöngumiði í safnið gildir en frítt er fyrir öll
börn sem eru 17 ára og yngri.
Árlegt innlit þeirra heiðurshjóna í Þjóðminjasafnið næstkomandi sunnudag
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ullandi sprelligosi Grýla og Leppalúði eru ekkert sérstaklega
hrein og fín og láta öllum illum látum þar sem þau koma við.
Grýla og Leppalúði
kíkja í heimsókn
ásamt Góa og sprella
Hið fjölþjóðlega Café Lingua blæs til jólasamsöngs í dag fimmtu-
dag 5. des. í Veröld – húsi Vigdísar, Brynjólfsgötu 1, Reykjavík.
Múltíkúltíkórinn, undir stjórn Margrétar Pálsdóttur, syngur og fær
gesti til að syngja með sér jólalög á ýmsum tungumálum. Gestir
fá textablöð í hendur og er boðið að syngja með á arabísku,
dönsku, ensku, frönsku, íslensku, króatísku, lúganda, norsku,
portúgölsku, pólsku, serbnesku, slóvakísku, spænsku, sænsku,
tagalog, þýsku og jafnvel fleiri málum. Ársæll Másson leikur með
á gítar. Derya Ozdilek í Kaffi Veröld verður með heitt kakó á boð-
stólum. Dagskráin hefst kl. 17.30 og er ókeypis inn fyrir alla.
Gestir geta sungið með jólalögum á ýmsum tungumálum á tónleikum Múltíkúltíkórsins
Heimsins jól sungin inn
Múltíkúltíkór Litríkur og fjölbreyttur hópur.
Bókin sem bókmenntaelítan
hafnaði árið 1994 á meira erindi
en nokkru sinni á MeToo-tímum.
„Ævisaga Sigurðar Ingjaldssonar frá Balaskarði
í Laxárdal er án efa einhver fjörmesta og
skemmtilegasta sjálfsævisaga, sem íslenzkur
alþýðumaður hefur skrifað.“
Sjómannablaðið Víkingur 1947
Ekki raunasaga og ekki grátsaga.
Þetta er sannsaga – lífssaga.
Bókmenntaverðlaun Tómasar
Guðmundssonar 2019. Heillandi
og hófstillt verk þar sem hugsanir
um æsku og elli vega salt.
Í þessari bók eru rifjaðar upp sögur
af íslenskum kindum að fornu og
nýju, afrekum þeirra, uppátækjum
og viðureignum við óblíða náttúru
og kappsfulla smala.