Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 58
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019 Marta María mm@mbl.is „Við höfum alltaf verið miklir jóla- strákar við bræðurnir. Okkur finnst gaman að gefa og fá pakka. Ekki síst Sigurjóni. Jólin eru fjölskyldutími. Þá hittir maður þetta lið sem maður er með alla daga. Ég veit ekki hvað Sigurjón borðar á jólunum en það er örugglega eitthvað gott. Ætli það sé ekki spaghetti bolognese, einhver svona jólaútgáfa. En eins og ég segi, þá skiptir þetta Sigurjón meira máli en mig. Hann er ekki vinmargur, það er að segja hann á marga kunningja en fáa raunverulega vini. Hann hefur alltaf verið upptekinn af því hvað hann fái mörg jólakort og hringir í mig í hvert sinn sem kort kemur inn um lúguna. Honum þykir vænt um þetta. Hann öfundaði mig mikið þegar ég var borgarstjóri hvað ég fengi mikið af kortum þannig að ég gaf honum ein jólin kortið sem ég fékk frá Ólafi Ragnari Grímssyni. Það fannst hon- um vænt um og talar um enn þann dag í dag,“ segir Jón Gnarr, að- spurður hvort hann sé mikið jóla- barn. Næsta þriðjudagskvöld verður Tvíhöfði með viðburð í Háskólabíói. Þegar Jón er spurður hvers vegna í ósköpunum þriðjudagskvöld segir hann ástæðuna einfalda: „Þriðjudagur er náttúrlega glat- aðasti dagur vikunnar og yfirleitt lít- ið við að vera. Okkur langaði til að bæta úr því og bjóða fólki upp á smá tilbreytingu á þessum degi, eitthvað til að hlakka til. Við flytjum nátt- úrlega lagið okkar Þriðjudagskvöld sem allir þekkja úr Fóstbræðrum. Og eins og Sigurjón segir svo oft sjálfur: „Elsku besti Jón minn, ég vildi óska þess að það væru jól alla daga!“ Það má eiginlega segja að þetta sé tilraun til að þjófstarta jól- unum,“ segir hann. Þegar Jón er spurður út í samstarf höfði er bara eðlileg afleiðing þess þegar við hittumst fyrst. Við erum bara nákvæmlega eins og þegar við hittumst á kaffihúsi. Auðvitað verð ég stundum þreyttur á honum en hann þreytist aldrei á mér og er allt- af jafn spenntur að fá að hitta mig og á það til að hringja jafnvel í mig til að minna mig á að við séum að fara að hittast,“ segir hann og þegar Jón er spurður að því hvort þeir rífist aldrei segir hann að það gerist sjaldan. „Það slettist sjaldan upp á vin- skapinn. Þegar það hefur gerst þá hefur það nær alltaf verið Sigurjóni að kenna en hann er líka fljótur til að viðurkenna það og biðjast afsökunar. Ef það er einlægt þá er ég líka fljótur að fyrirgefa. Ég er ekki langrækinn. Ég er nákvæmur og geri þá kröfu til samstarfsfólks míns að það sé heið- arlegt við mig og fari ekki á bak við mig. Það veit Sigurjón manna best.“ Það er smá Búðardalur í honum „Sigurjón er ástríðufullur maður og hefur djúpa sannfæringu enda Ís- firðingur og Reykhyltingur með ann- an fótinn í Kópavogi. Það má segja að persóna hans spanni allt Suðvest- urlandið. Það er smá Búðardalur í honum. Sigurjón er með eindæmum minnugur og fylgist vel með þjóð- félagsmálum og því sem efst er á baugi, eins og algengt er með fólk af landsbyggðinni. Mér finnst alltaf fyndið að heyra hvernig flókin sam- félagsmál verða einföld í augum sveitamannsins og hann kemur alltaf með einhvern vinkil sem einfaldar og skýrir allt. Hann roðflettir málin og kemst að kjarnanum. Það er honum bara í blóð borið. Kannski kemur það frá því þegar hann vann við að roð- fletta ýsu í Ýsuhúsinu á Ísafirði á seinni hluta síðustu aldar. En hann á það líka til að roðfletta menn og mál- efni þannig að svíður undan, ekkert ólíkt því þegar hann, ungur drengur í Reykholti, sveið sér kjamma til að hafa með sem skólanesti. Og eins og algengt er með íslenskt alþýðufólk þá hefur hann andstyggð á yfirlæti, tilgerð og öllu skrumi,“ segir Jón. Þegar hann er spurður um aðventu- kvöldið segir hann að ýmislegt muni koma á óvart. „Við munum flytja flest af okkar þekktu og vinsælu lögum sem heyrst hafa í Tvíhöfða og Fóst- bræðrum. Okkur til aðstoðar verður Vox Populi-kór Grafarvogskirkju til að gera þetta eins hátíðlegt og fal- legt og mögulegt er. Lögin verða flutt í útsetningum sem aldrei hafa heyrst áður. Við félagarnir munum spjalla saman og við gesti og segja nokkra brandara sem ættu að koma öllum í jólaskapið, flytja leikþætti og fara með almenn gamanmál. Jólasveinninn mun kíkja í heim- sókn og heilsa upp á gesti, sér- staklega ef það verða þarna börn, og taka við sérstakri viðurkenningu. Það verður hátíðarræða frá for- manni Félags hlustenda Tvíhöfða. Heiðursgestur kvöldsins er eng- inn annar en Magnús Þór Jónsson, Megas. Hann er mikill aðdáandi Tvíhöfða og ætlar að syngja með okkur sitt uppáhaldslag. Hvað það verður veit nú enginn (nema við) og vandi er um slíkt að spá. En eitt er víst að alltaf verður ótrúlega gaman þá,“ segir Jón og lofar flugeldasýn- ingu. Það er mikið að gera á heimili Jóns og eiginkonu hans, Jógu Gnarr, í desember. Besti hausverk- urinn er þó hvað hann eigi að gefa henni í jólagjöf. „Við erum bæði í fullri vinnu. Ég er að skrifa og svo er ég með Kvöld- vökur í Borgarleikhúsinu og Tví- höfðakvöldið. Þannig að það er í mörg horn að líta. Því miður er lítið hægt að treysta á mig í skipulags- málum þannig að þetta lendir af full- um þunga á Jógu. Minn stærsti höf- uðverkur er að finna gjöf fyrir hana. Ég gaf henni hlýja lopasokka í haust. Ég gerði þau mistök að þvo þá svo á 60 gráðum þannig að þeir eyðilögðust. Mér fannst þetta mjög leiðinlegt þannig að ég fór og keypti annað par. Fyrir einhver mistök setti ég það líka á 60. Kannski kem ég henni reglulega á óvart og gef henni þriðja parið?“ Jólin 2019 eru fyrstu jólin sem Jón er vegan en hann hætti að borða kjöt í byrjun ársins og léttist um heil ósköp. „Þetta eru fyrstu jólin þar sem ég er vegan. Ég er mikið búinn að velta því fyrir mér hvað ég ætla að borða. Mér líst best á wellington með gæðavörunum frá Beyond Meat. Mér finnst gaman að elda og prófa mig áfram í þessu vegandæmi öllu og sérstaklega að sýna fólki fram á að þetta er ekki neinn viðbjóður eins og margir vilja halda. Ég er mikill sveitamaður í mér enda kominn af fábrotnu sveitafólki þótt ég hafi að mestu leyti alist upp í stórborginni. Ég vil bara verða saddur af því sem ég ét. Svo nota ég mikið sterkar sós- ur eins og Habanero og þær yf- irgnæfa mestallt bragð hvor sem er.“ Er eitthvað sem þig dreymir um í jólagjöf? „Mín jólagjöf er að eiga fjölskyld- una mína og sjá þau öll glöð og ánægð. Mín mesta gleði er að stríða börnunum mínum og nú fæ ég nýtt tækifæri í barnabörnunum. Ég gaf syni mínum einu sinni skóflu úr BYKO í jólagjöf, sem ég lét merkja honum, svo hann gæti hjálpað mér í garðinum. Það fannst mér gaman.“ Auðvitað verð ég stundum þreyttur á honum en hann þreytist aldrei á mér Jón Gnarr gaf Sigurjóni jólakortið frá Ólafi Ragnari Grímssyni þegar hann var borgarstjóri. Sá síðarnefndi er ennþá með brjóstið fullt af þakklæti fyrir kortið. Þetta með jólakortið rammar inn þeirra vinskap en þriðjudaginn 10. desember ætla Tvíhöfðabræður að trylla lýðinn með mikilli flugeldasýningu í Háskólabíói. Jón segir að þriðjudagur hafi orðið fyrir valinu því um sé að ræða leiðinlegasta dag vikunnar. þeirra Sigurjóns og hvort þeir verði aldrei þreyttir hvor á öðrum játar hann alveg að það gerist. „Við Sigurjón höfum bara alltaf haft mikla ánægju hvor af öðrum og ég veit að vinátta okkar skiptir Sig- urjón sérstaklega miklu máli. Tví-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.