Morgunblaðið - 10.12.2019, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2019
Gefðu slökun í jólagjöf
Líkamslögun
25%afslátturaf gjafakortum
Gjafakortin fást í
likamslogun.is/vefverslun
Nýbýlavegur 8 (Portið) 200 Kópavogur | sími 777 6000 | likamslogun.is
„ÞAÐ ER ALLT FULLBÓKAÐ Í NÆSTU
VIKU. NÆRÐU AÐ TÓRA ÞAR TIL Í
ÞARNÆSTU VIKU?”
„ÞESSI HEITIR „NEKTARINNAR NOTIД.
ÉG HELD AÐ BÖRNIN ÆTTU EKKI AÐ
HORFA Á ÞESSA.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að lifa á bjartsýninni.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
FRÁBÆR
AFMÆLISDAGUR
OPNAÐU
PABBI! ÞETTA
ER SONUR
ÞINN!
HVER ER ÞAR?
VINUR EÐA
VARMENNI?
ÉG SAGÐI ÞETTA ER
SONUR ÞINN!
HVOR?
JÓN
ÚTFARARSTOFA
JÓNS JÓNSSONAR
Árskógssandi. Sigurður er giftur
Ragnheiði Ýri og börn þeirra eru
Stefán Matthías Sigurðsson, Agnes
Anna Sigurðardóttir og Elísa Vigdís
Sigurðardóttir; 3) Ester Líf Ólafs-
dóttir, f. 28.9. 1995, vinnur við mark-
aðs- og kynningarmál Kalda og bú-
sett á Árskógssandi; 4) Svavar Óli
Ólafsson, f. 12.8. 1997, starfsmaður
Kalda og búsettur á Akureyri. Svav-
ar er í sambúð með Mari; 5) Ólafur
Örn Ólafsson, f. 4.8. 2009, grunn-
skólanemi og búsettur á Árskógs-
sandi.
Systkini Agnesar eru Konráð Þór
Sigurðsson, f. 18.8. 1959, útgerðar-
maður og búsettur á Ólafsfirði;
Ólafur Sigurðsson, f. 12.8. 1961, út-
gerðarmaður og búsettur á Árskógs-
sandi; Pétur Sigurðsson, f. 17.7.
1962, útgerðarmaður og búsettur á
Árskógssandi; Svavar Örn Sigurðs-
son, f. 25.2. 1966, útgerðarmaður og
búsettur á Árskógssandi; Soffía
Margrét Sigurðardóttir, f. 11.4.
1968, atvinnurekandi og búsett á
Akureyri.
Foreldrar Agnesar eru hjónin
Sigurður Tryggvi Konráðsson, f.
15.9. 1938, fyrrverandi sjómaður, og
Ingibjörg Þórlaug Þorsteinsdóttir, f.
31.1. 1941, húsmóðir og fyrrverandi
skrifstofustjóri. Þau eru búsett á
Árskógssandi.
Agnes Anna
Sigurðardóttir
Anna Sigríður Sigurgeirsdóttir
húsfreyja á Brattavöllum
Sigurður Flóvent Sigurðsson
bóndi og sjómaður á Brattavöllum
Soffía Júnía Sigurðardóttir
húsfreyja á Brattavöllum
Sigurður Tryggvi Konráðsson
sjómaður á Árskógssandi
Konráð Sigurðsson
útgerðarmaður á Brattavöllum
á Árskógsströnd
Margrét Sigurlína Sigurðardóttir
húsfreyja á Hjalteyri
Sigurður Jón Sigurðsson
bóndi á Hjalteyri
Guðmundur Þorsteinsson
útgerðarmaður í Grindavík
Gunnlaugur
Sigurðsson
útgerðarmaður
á Brattavöllum
Anton Gunnlaugsson
skipstjóri og
útgerðarmaður á
Dalvík
Gunnlaugur
Antonsson
stýrimaður á Dalvík
Eyþór Ingi
Gunnlaugsson
söngvari
Anna Soffía
Sigurðardóttir
húsfreyja á Selá
á Árskógsströnd
Sigrún Friðriksdóttir
fi skiðnaðarkona á Dalvík
Ásdís Ósk Valsdóttir
fasteignasali og frkvstj.
Húsaskjóls
Ingimar Friðriksson
framkvstj. á AkureyriÓmar Ingimarsson meðeigandi The
Drunk Rabbit og Gumma Ben bars
Elvar Ingimarsson meðeigandi
Bryggjunnar brugghúss
Þóra Jónsdóttir
húsfreyja í Grindavík
Daníel Daníelsson
bóndi í Grindavík
Margrét Daníelsdóttir
húsfreyja í Grindavík
Þorsteinn ÓIafsson
sjómaður í Grindavík
Þórlaug Guðmundsdóttir
ljósmóðir á Þórkötlustöðum
Ólafur Þorleifsson
bóndi og sjómaður á Þórkötlustöðum í Grindavík
Úr frændgarði Agnesar Önnu Sigurðardóttur
Ingibjörg Þórlaug Þorsteinsdóttir
húsmóðir og skrifstofustjóri á
Árskógssandi
Mikið var um veðurvísur áLeirnum um helgina og byrj-
aði á laugardag kl. 7.48 með þess-
um pistli Jóns Gissurarsonar: „Svo-
lítill snjór er nú á jörð eftir norðan
hríðargarg sem var hér í fyrrinótt
og frost er hér nú í morgunsárið
um það bil 11 gráður.
Óláns tíðin ekki hlý
á sér fáa kosti.
Hér er napurt úti í
ellefu gráðu frosti.
Engin ástæða er þó til að vera
með kveinstafi vegna tíðarinnar
þar sem hún hefur verið með ein-
dæmum góð það sem af er vetri, en
þetta er fyrsti snjórinn sem fellur ef
frá er talinn örlítill grámi í rót.“
Upp úr klukkan níu orti Björn
Ingólfsson:
Vetur ekki mæðir mig,
margt sem gleður.
Frostið hér er fjögur stig
og fallegt veður.
Tæpum hálftíma síðar orti Gústi
Mar:
Hér er vetrarveður gott
og vinda lítill rosti.
Mörgum þykir þetta flott
í þrettán gráðu frosti.
Og litlu síðar bættist Davíð
Hjálmar í Davíðshaga í hópinn: „Ég
ætlaði að semja veðurvísu eins og
hinir en átti bara efni í hálfa. Læt
samt slag standa“:
Á mæli hér er minna frost
en mælirinn er vitlaus.
Enginn skyldi skera ost
með skurðhníf sem er bitlaus.
Upp úr hádeginu lét Jón Arn-
ljótsson í sér heyra:
Bragi var með bitlaust tól
að brytja niður ost.
Ég vildi að það væri sól
þá væri minna frost.
Og skömmu síðar Gústi Mar:
Frost er hérna um foldar ból
fólki veldur kvíða.
Annars staðar alltaf sól
og eldar brenna víða.
Síðan kom Ólafur Stefánsson:
Veðrið ýmsa vaka lætur
þótt varla breyti nokkru þeir.
Hjá öðrum reynist svefninn sætur.
Svo er um marga hér á Leir.
Ingólfur Ómar átti síðsta orðið:
Kvíða ei í brjósti ber
þó bráðum fari að hríða.
Sunnan heiða ennþá er
ágæt veðurblíða.
Heiðrekur Guðmundsson orti:
Þegar vindur þyrlar snjá
þagna og blindast álar.
Það er yndi að eiga þá
auðar lindir sálar.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Veðurvísur og feigs vök