Morgunblaðið - 10.12.2019, Side 17

Morgunblaðið - 10.12.2019, Side 17
Árið 2012 birti ég grein um stöðuna á íbúðamarkaði og þró- un hans fram undan. Benti ég á að þá væri búinn sá umframlager af íbúðum sem hafði orðið til á þenslutím- anum á árunum 2005- 2007 og að nú þyrfti að byggja rúmlega 2.000 íbúðir á ári næstu árin á landinu til að mæta nýrri íbúðaþörf. Síðan hafa verið byggðar að með- altali 1.400 nýjar íbúðir á ári. Því hefur myndast skortur upp á 5.000 til 6.000 íbúðir á þessum tíma. Ítrekað hefur verið bent á þessa óheillaþróun frá 2012 til dagsins í dag sem m.a. má lesa í greinum mínum og annarra og má einnig sjá í tölum sem aðrir hafa birt, nú síð- ast Íbúðalánasjóður. Á sama tíma hefur íbúum lands- ins fjölgað um 11,7% eða um 2,0% á ári og eru nú 356.991 samkvæmt tölum Hagtölu Íslands. Íbúðum fjölgaði á sama tíma um 6,7% eða 1,1% á ári. Nú eru 2,54 að meðaltali um hverja íbúð á landinu en voru 2,43 árið 2012. Þetta styður einnig áður nefnda niðurstöðu um íbúða- þörfina nú. Við skulum ekki halda að Íslend- ingar sætti sig við það að búa við versnandi aðstæður til lengdar, allra síst við batnandi hag fólks að jafnaði á landinu eins og verið hef- ur. Þó að nýbúar geri það í bili, sem skýrir trúlega nýjustu tölu yfir fjölda íbúa á íbúð, þá verða þeir líka Íslendingar með sömu kröfur og aðrir Íslendingar. Við skulum ekki bara vona það, við gerum líka kröfu um það í jafnréttisþjóð- félagi. Íbúðaþörfin á land- inu er því nú 5.000 til 6.000 íbúðir og síðan bætist við þörf fyrir 2.000 til 2.300 íbúðir á hverju ári næstu árin. Hver verður íbúða- þörfin á næstunni? Að það eru fleiri sem búa nú að meðaltali í hverri íbúð en áður er viðsnúningur á áratuga (eða ár- hundraða) þróun hér á landi. Þetta er meiri breyting en tölurnar segja til um fljótt á litið og ber að taka al- varlega. Benda má t.d. á að ef fjölg- un íbúa frá árinu 2012 er deilt niður á fjölgun íbúða þá er niðurstaðan 4,21 íbúi á íbúð, sem er nánast helmingi fleiri en var árið 2012 fyrir alla íbúa deilt á allar íbúðir lands- ins. Þetta hefur verið að gerast á mesta velmegunartímabili á land- inu. Eru Íslendingar orðnir nægju- samari en áður varðandi húsnæði, er íbúðarhúsnæði orðið of dýrt í landinu eða eru ástæðurnar ein- hverjar aðrar fyrir því að fleiri búa nú að meðaltali í hverri íbúð? Oft er bent á að launavísitala og íbúðaverð fylgist oftast að og þann- ig var það hér á landi fram að árinu 2017. Þá hækkaði íbúðaverð 12-15% Brýn nauðsyn á endur- skipulagningu á byggingar- framkvæmdum á landinu Eftir Sigurð Ingólfsson Sigurður Ingólfsson » Íbúðaþörfin á land- inu er nú 5.000 til 6.000 íbúðir og síðan bætist við þörf fyrir 2.000 til 2.300 íbúðir á hverju ári næstu árin. umfram hækkun launa á höfuðborg- arsvæðinu og hefur þessi munur haldist síðan. Þetta háa íbúðaverð er vafalaust ein af ástæðum þess að ekki var meira byggt. Stór þáttur í háu lóða- verði hefur verið lítið framboð af lóðum á svæðinu og há lóðagjöld, sem eru afleiðing af útboði á tak- mörkuðum fjölda lóða. Einnig vegna kostnaðarsamra fram- kvæmda við þéttingu byggðar. Þetta hefur komið í veg fyrir getu fólks til að kaupa íbúðir, sem það annars hefði getað keypt. Afleiðingin ef þessu er að fleiri Íslendingar hafa flutt frá landinu heldur en þeir sem koma til lands- ins. Þeir eldri flytja burtu til spara sér í húsnæðiskostnaði og uppihaldi og þeir ungu m.a. vegna þess að þeir hafa ekki möguleika á að kaupa sér húsnæði hér á landi vegna íbúðaverðsins og þess skipulags- leysis sem er á íbúðarbyggingum á landinu, sem er sérkapítuli og ekki fjallað um hér. Sumir reyna að flýja til „nágrannasveitafélaganna“, þar er hægt að fá ódýrar lóðir. Hætt er við að það sé skammgóð lausn til lengri og skemmri tíma litið og mæti hvorki kostnaði né umhverf- iskröfum. Komum því skikki á þessi mál og það sem allra fyrst, með heildar- skipulagi og upplýsingagjöf fyrir landið allt og eðlilegt lóðaframboð. Verð á íbúðum mun þá lækka að raungildi um 10-15%, fleiri munu eignast þak yfir höfuðið, færri vel menntaðir Íslendingar munu flýja land og gjaldþrotum byggingarfyr- irtækja mun fækka. Jafnvel munu nýbúarnir okkar fara að blanda sér í íbúðakaupin. Síðari hlutinn verður um hver eigi að byggja og fyrir hverja. Höfundur er framkvæmdastjóri. UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2019 Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Gott við exemi • Betri og sterkari fætur SKÚTUVOGI 1C | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 550 8500 | WWW.VV.IS Verð3.290,- Ø 16 MM Verð3.490,- Ø 19 MM BASE er kjörið fyrir heimilið. Fullkomið jafnvægi notagildis og hönnunar. Fegurð og gæðimætast í BASE frá d line BASE Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.