Morgunblaðið - 10.12.2019, Side 26

Morgunblaðið - 10.12.2019, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2019 England West Ham – Arsenal ................................ 1:3 Staðan: Liverpool 16 15 1 0 40:14 46 Leicester 16 12 2 2 39:10 38 Manch.City 16 10 2 4 44:19 32 Chelsea 16 9 2 5 31:24 29 Manch.Utd 16 6 6 4 25:19 24 Wolves 16 5 9 2 23:19 24 Tottenham 16 6 5 5 30:23 23 Sheffield Utd 16 5 7 4 19:16 22 Arsenal 16 5 7 4 24:24 22 Crystal Palace 16 6 4 6 14:18 22 Newcastle 16 6 4 6 17:23 22 Brighton 16 5 4 7 20:24 19 Burnley 16 5 3 8 21:29 18 Everton 16 5 2 9 19:28 17 Bournemouth 16 4 4 8 18:24 16 West Ham 16 4 4 8 18:28 16 Aston Villa 16 4 3 9 23:28 15 Southampton 16 4 3 9 18:35 15 Norwich 16 3 2 11 17:34 11 Watford 16 1 6 9 9:30 9 KNATTSPYRNA HANDKNATTLEIKUR 1. deild karla, Grill 66-deildin: Origo-höll: Valur U – Stjarnan U........ 19.40 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: TM-höllin: Stjarnan U – FH ............... 19.45 KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild kvenna: Mustad-höll: Grindavík-b – Fjölnir ......... 20 Í KVÖLD! HANDBOLTI Olísdeild karla Valur – FH ............................................ 29:28 Staðan: Haukar 13 10 3 0 361:324 23 Afturelding 13 9 2 2 364:337 20 Valur 13 8 1 4 349:303 17 Selfoss 13 8 1 4 400:394 17 FH 13 7 2 4 375:355 16 ÍR 13 7 2 4 393:365 16 ÍBV 13 6 2 5 358:343 14 Stjarnan 13 2 5 6 338:356 9 KA 13 4 1 8 351:373 9 Fram 13 3 2 8 314:343 8 Fjölnir 13 2 1 10 338:394 5 HK 13 1 0 12 324:378 2 Danmörk Skanderborg – Kolding...................... 35:29  Ólafur Gústafsson og Árni Bragi Eyj- ólfsson skoruðu ekki fyrir Kolding. Holstebro – Ribe-Esbjerg................... 27:27  Gunnar Steinn Jónsson skoraði 7 mörk fyrir Ribe-Esbjerg og Rúnar Kárason 5. Daníel Þór Ingason komst ekki á blað.  Efstu lið: Aalborg 27, Holstebro 20, Skjern 19, Ribe-Esbjerg 18. Svíþjóð Malmö – Kristianstad.......................... 18:22  Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði 5 mörk fyrir Kristianstad og Teitur Örn Ein- arsson 4. Guif – Alingsås..................................... 24:39  Aron Dagur Pálsson skoraði 1 mark fyr- ir Alingsås.  Efstu lið: Alingsås 30, Malmö 27, Ystad IF 22, Kristianstad 22, Skövde 21. HM kvenna í Japan Milliriðill 1: Þýskaland – Serbía............................... 28:29 Danmörk – Holland.............................. 27:24 Noregur – Suður-Kórea ...................... 36:25  Þórir Hergeirsson þjálfar Noreg.  Noregur 6, Þýskaland 5, Holland 4, Serb- ía 4, Danmörk 3, Suður-Kórea 2. Keppni um sæti 13-24: Frakkland – Ungverjaland.................. 26:21 Argentína – Angóla .............................. 27:30 Slóvenía – Kongó .................................. 29:27 Brasilía – Senegal................................. 22:18 Kúba – Kasakstan ....................... (víti) 33:31 Ástralía – Kína...................................... 15:33 NBA-deildin Brooklyn – Denver ........................... 105:102 Charlotte – Atlanta .......................... 107:122 Miami – Chicago ...................... (frl.) 110:105 Philadelphia – Toronto..................... 110:104 Washington – LA Clippers.............. 119:135 Dallas – Sacramento ........................ 106:110 Portland – Oklahoma City................. 96:108 LA Lakers – Minnesota................... 142:125  Staðan í Austurdeild: Milwaukee 20/3, Boston 16/5, Miami 17/6, Philadelphia 17/7, Toronto 15/7, Indiana 15/8, Brooklyn 13/10, Orlando 11/11, Detroit 9/14, Charlotte 9/16, Chicago 8/16, Washington 7/15, Atlanta 6/ 17, Cleveland 5/17, New York 4/19.  Staðan í Vesturdeild: LA Lakers 21/3, LA Clippers 17/7, Dallas 16/7, Houston 15/7, Denver 14/7, Utah 13/10, Oklahoma City 10/12, Phoenix 10/12, Minnesota 10/12, Sacramento 9/13, San Antonio 9/14, Port- land 9/15, Memphis 6/16, New Orleans 6/17, Golden State 5/19. KÖRFUBOLTI HM KVENNA Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins í handknattleik, var gagnrýndur í fjölmiðlum heima fyrir eftir sigur liðsins á Dönum á heimsmeistaramótinu í Japan á sunnudaginn fyrir að tala niður möguleika síns liðs á mótinu. Þórir hefur verið hógvær í við- tölum, fyrir mótið og eftir að það hófst og aðeins gefið út að aðal- atriðið sé að fá öruggt sæti í und- ankeppni Ólympíuleikanna. Nor- egur hefur unnið til fjölda verðlauna á stórmótum og liðið virðist eiga góða möguleika á að leika um verðlaunasæti á mótinu í ár. Hræðsla og metnaðarleysi Meðal gagnrýnenda er Ole Ere- vik, fyrrverandi markvörður karla- landsliðs Noregs, sem sagði við VG að það bæri merki um hræðslu og metnaðarleysi hjá Þóri að vera ekki tilbúinn að lýsa því yfir að norska liðið ætlaði sér verðlauna- sæti. Liðið væri mun betra en svo að það ætti að sætta sig við sjö- unda til áttunda sæti. „Það eru hans orð. Við sem stöndum í baráttunni vitum hve hörð keppnin er og hvernig okkar lið er. Fyrsta takmark var að kom- ast í undankeppni ÓL. En Ole Ere- vik má hafa sína skoðun, hann fær borgað fyrir það,“ sagði Þórir við VG. Norska liðið sýndi síðan sínar bestu hliðar í gær þegar það vann auðveldan sigur á Suður-Kóreu, 36:25, í næstsíðustu umferð millirið- ilsins og er í efsta sæti hans fyrir lokaumferðina á morgun. Áðurnefndu markmiði Þóris hef- ur því verið náð en sæti í undan- úrslitum er þó ekki í höfn. Norð- menn þurfa jafntefli gegn Þjóðverjum í uppgjöri tveggja efstu liða riðilsins til að gulltryggja sér efsta sætið og keppnisrétt í undan- úrslitum. Þar skiptir líka talsverðu máli að vinna riðilinn og forðast að mæta hinu öfluga liði Rússa í und- anúrslitunum en Rússar eru afar sigurstranglegir í hinum milliriðl- inum þar sem þeir eru í toppbar- áttu við Spán og Svartfjallaland. Tapi Norðmenn fyrir Þjóðverjum komast þeir ekki í undanúrslit ef Holland vinnur Suður-Kóreu. Þjóðverjar mjög sannfærandi „Nú erum við öruggir með sæti í undankeppni Ólympíuleikanna. En við eigum eftir að mæta sterku þýsku liði sem er miklu betra en það var fyrir ári og hefur verið mjög sannfærandi. Við verðum því að spila mjög vel á móti þeim,“ sagði Þórir við TV3 eftir leikinn gegn Suður-Kóreu. Önnur úrslit gærdagsins féllu með Norðmönnum því Þjóðverjar töpuðu nokkuð óvænt fyrir Serb- um, 28:29, og Danir tóku sig til og unnu góðan sigur á Hollendingum, 27:24. Í dag skýrast málin í hinum milliriðlinum þegar fjórða umferðin er leikin þar. Rússland mætir Svartfjallalandi, Japan mætir Spáni og Svíþjóð mætir Rúmeníu. Rúss- land er með 6 stig, Spánn 5, Svart- fjallaland 4, Svíþjóð 3 en Japan og Rúmenía eru á stiga.  Þórir með sitt lið á topp riðilsins AFP Kumamoto Þórir Hergeirsson og nokkrar norsku landsliðskvennanna fylgjast með af varamannabekknum í leiknum við Suður-Kóreu í gær. Svöruðu gagnrýni með stórsigri Ingvar Þór Jónsson, landsliðsfyr- irliði í íshokkíi, heldur áfram að bæta magnað leikjamet sitt síðar í þessari viku. Ingvar hefur leikið alla 103 landsleiki Íslands í karla- flokki frá árinu 1999 og er í liði Ís- lands sem er farið til Rúmeníu til keppni í undanriðli fyrir vetrar- ólympíuleikana 2022. Ísland mætir þar Kirgistan á fimmtudag, Ísrael á föstudag og Rúmeníu á sunnudag en sigurvegari riðilsins kemst á næsta stig undankeppninnar í febr- úar. Rætt er við Ingvar um mótið og leikjafjöldann á mbl.is/sport. Ingvar bætir metið í Rúmeníu Ljósmynd/Stefán Örn Sigurðsson Rúmenía Ingvar Þór Jónsson og fé- lagar leika fyrsta leik á fimmtudag. María Finnbogadóttir tryggði sér á sunnudaginn A-landsliðssæti í alpa- greinum með árangri sem hún náði á alþjóðlegu svigmóti í Austurríki. María, sem hefur verið í B- landsliðshópnum, keppti þá annan daginn í röð á alþjóðlegu móti í Austurríki og hafnaði í 18. sæti. Hún náði í 54,66 FIS-stig. Þar með verður hún með 49,94 FIS-stig á næsta lista Alþjóðaskíðasambandsins, bætir sig um tíu stig og kemst undir lágmark- ið fyrir A-landsliðssæti sem er 55 FIS-stig. María var með 59,10 stig fyrir mótin í Austurríki. Vann sig upp í A-landsliðið Ljósmynd/SKÍ Skíði María Finnbogadóttir stóð sig vel í Austurríki um helgina. LYFJAMÁL Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Í hvaða íþróttaviðburðum á heims- vísu geta Rússar verið á meðal þátt- takenda og í hverjum er þátttaka þeirra algjörlega útilokuð? Þetta er spurningin sem nú er reynt að fá endanleg svör við í kjölfarið á úr- skurði WADA, Alþjóðlegu lyfja- nefndarinnar, sem setti Rússland í gær í fjögurra ára bann við þátttöku í öllum meiriháttar íþrótta- viðburðum. Ennfremur mega Rúss- ar hvorki halda slíka viðburði né sækja um þá næstu fjögur árin. Sumt er enn óljóst þar sem rúss- neskt íþróttafólk sem getur sannað sakleysi sitt gagnvart rússneska lyfjahneykslinu má keppa undir hlutlausum fána, samkvæmt úr- skurðinum. Á þann hátt gat því stór hópur Rússa verið með á vetraról- ympíuleikunum í Suður-Kóreu árið 2018 þó að fyrra bann WADA frá árinu 2016 hefði þá verið í gildi. Meðal þess sem bíður end- anlegrar staðfestingar er hvort Rússar fái að taka þátt í und- ankeppni heimsmeistaramóts karla í knattspyrnu í Katar árið 2022 og í lokakeppninni, vinni liðið sér þátt- tökurétt þar. Talsmaður FIFA, Alþjóðaknatt- spyrnusambandsins, staðfesti í gær að haft hefði verið samband við WADA til að reyna að fá botn í mál- ið. Fyrstu upplýsingar frá WADA gefa til kynna að Rússar gætu leikið undir eigin nafni og fána í und- ankeppninni en sem hlutlaus þjóð án fána í lokakeppninni árið 2022. Bannið hefur ekki áhrif á íþrótta- viðburði innan Evrópu, eins og loka- keppni EM í fótbolta og handbolta í karla- og kvennaflokkum sem fara fram á árunum 2020 og 2021. Þau mót falla ekki undir skilgreiningu WADA á „stórum íþróttavið- burðum“. Ljóst er að þrátt fyrir úrskurð WADA er ekki full sátt um hann og margir telja að ganga hefði átt lengra. Varaformaður WADA, Linda Helleland, sagði við frétta- menn í gær að bannið væri ekki nægilega afgerandi. „Ég hefði vilja sjá refsingar sem ekki er hægt að þynna út. Við skuldum heiðarlegu íþróttafólki það að viðurlögin séu eins ströng og mögulegt er,“ sagði Helleland. Fór af stað 2015 Rússneska lyfjamálið hófst árið 2015 þegar WADA birti skýrslu um útbreidda spillingu sem jafngilti rík- isrekinni lyfjagjöf í rússneskum frjálsíþróttum. Önnur skýrsla sem birt var í júlí 2016 var á þá leið að Rússar hefðu verið með skipulagða lyfjagjöf sem næði yfir mikinn meirihluta ólymp- ískra keppnisgreina og þjóðin var sett í fjögurra ára keppnisbann. WADA aflétti banninu árið 2018 eftir að Rússar samþykktu að af- henda öll gögn frá árunum 2012 til 2015. Rússar skiluðu þeim árið 2019 en þegar í ljós kom að jákvæð sýni úr lyfjaprófum frá árinu 2017 var ekki að finna í þeim gögnum var rann- sókn hafin á ný. Þetta leiddi til þeirr- ar refsingar sem kynnt var í gær. Alþjóðafrjálsíþróttasambandið hefur gengið harðar fram en WADA og útilokað Rússa frá árinu 2015, m.a. frá tveimur síðustu heimsmeist- aramótum. Nafn- og fánalausir á HM?  Rússland í fjögurra ára keppnisbann á meiriháttar íþróttaviðburðum  Mega keppa á Evrópumótum og fótboltalandsliðin gætu farið sem hlutlaus á HM AFP Lausanne Forráðamenn WADA kynna fréttamönnum niðurstöður sínar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.