Morgunblaðið - 10.12.2019, Side 28

Morgunblaðið - 10.12.2019, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2019 GÓÐIR FUNDIR OGENNBETRI FUNDARHLÉ Upplýsingar og pantanir í síma 483 4700 | booking@hotelork.is | www.hotelork.is Á Hótel Örk er allt sem þarf fyrir vel heppnaða fundi, sýningar, námskeið og minni ráðstefnur. Hótelið býr yfir fundarsölum af mörgum stærðum búnum nýjustu tækni, fyrsta flokks veitingastað og fjölbreyttri afþreyingu fyrir skemmtilegri fundarhlé. Superior herbergi 157 HERBERGI 7 FUNDARSALIR VEITINGASTAÐUR SUNDLAUGOG HEITIR POTTAR Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Ragnheiður Elín Árnadóttir, verk- efnisstjóri Evrópsku kvikmynda- verðlaunanna (EFA) í Reykjavík ár- ið 2020, var ein margra Íslendinga sem sóttu verðlaunahátíðina í Berlín á laugardaginn var, til að fylgjast með framkvæmd þeirra. Ragnheið- ur hefur verið önnum kafin frá því hún var ráðin um mitt sumar, eins og kom fram í spjalli hennar við blaðamann á hóteli í Berlín nokkr- um klukkustundum fyrir afhend- ingu verðlaunanna. Ragnheiður starfar ein á Íslandi við undirbúning hátíðarinnar og þegar hún er spurð hvort ekki muni fleiri Íslendingar bætast við svarar hún því til að áætlun geri ráð fyrir að tveir starfsmenn verði ráðnir inn á næsta ári, líklega um mitt ár. „Ég er að vinna þetta mjög mikið með starfsmönnum í Berlín þannig að fyrirkomulagið núna er á þann veg að ég er eini starfsmaðurinn á Ís- landi og svo er sex manna stjórn sem hittist hálfsmánaðarlega. Í henni eru fulltrúar frá ríki og borg og Meet in Reykjavík. Ég vinn í mjög nánu samstarfi við stjórnina, sem er mjög aktíf. Þetta er sam- starfsverkefni ríkis og borgar og því eru menntamálaráðuneytið og Reykjavíkurborg í forsvari fyrir þetta og þurfa að gæta þess að allir hafi jafna aðkomu,“ segir Ragnheið- ur. Allt í öllu – Hvaða tvö störf eru þetta sem verða auglýst á næsta ári? „Það er annars vegar starf þess sem hefur umsjón með pródúksjón- inni, svo ég sletti nú aðeins, og hitt starfið er svipað og ég er að gera svo hægt sé að skipta með sér verk- um. Við eigum eftir að sjá hvar vantar upp á þekkingu og hvar þarf fleiri hendur,“ svarar Ragnheiður. – Þú ert verkefnisstjóri EFA 2020, geturðu sagt mér betur frá því í hverju starfið felst? „Það felst í því að vera allt í öllu núna í undirbúningnum. Ég byrjaði í júlí og af því þetta er svo umfangs- mikið eru ákveðnir póstar sem þarf að tryggja, t.a.m. að leita samstarfs- og styrktaraðila. Þar má nefna sam- starfssamninginn sem við vorum að undirrita við Icelandair. Það er frá- bært að fá fyrirtækið í samstarf við okkur því lykillinn að því að hægt sé að halda hátíðina er að við séum með samgöngurnar í lagi. Svo eru það þættir eins og að tryggja hótel og samgöngur innanlands og meðal annars útvega bíla fyrir hina til- nefndu en Skoda sér um það hér í Berlín,“ segir Ragnheiður. Þá þurfi að finna staði fyrir viðburði aðra en verðlaunahátíðina sjálfa, þar á með- al opnunarhóf verðlaunahátíð- arinnar. Meira en helgi í desember „Síðan er það hátíðin sjálf, sem er auðvitað stærsti viðburðurinn. Við höfum hins vegar einsett okkur að tryggja að nýta okkur hátíðina með víðtækari hætti en að þetta snúist einungis um eina helgi í desember. Verkefnið er kostað að hluta af skattfé og bæði ráðherra og borgar- stjóri hafa markað þá skýru stefnu að nýta þennan opna glugga og það kastljós sem hátíðin færir á Ísland og íslenska kvikmyndagerð og reyna að halda honum opnum allt árið, halda upp á evrópska kvikmyndaárið 2020 á Íslandi. Menntamálaráðherra hefur lagt mikla áherslu á kvikmyndalæsi í skólum á öllum skólastigum og EFA er sjálft með ýmislegt sem tengist því, meðal annars Young Audience Award, verkefni þar sem krakkar á grunnskólaaldri horfa á kvikmyndir og velja þá sem þeim þykir best. Síðan eru það há- skólaverðlaunin. 24 háskólar í Evr- ópu, Háskóli Íslands þeirra á meðal, koma saman viku fyrir hátíðina í Hamborg og kjósa um bestu kvik- myndina. Þar er verið að tengja þetta inn í skólana. Einnig má nefna allar borgar- hátíðirnar í Reykjavík, hvort sem það er Vetrarhátíð, Bókmennta- hátíð, Menningarnótt, Hönnunar- mars, Iceland Airwaves eða kvik- myndahátíðir eins og RIFF og Stockfish, við höfum áhuga á að vera í formlegu samstarfi við þessar hátíðir um að tengja þær við okkar hátíð. Á Airwaves gætum við til dæmis verið með fyrirlestra í ráð- stefnuhluta þeirra sem leggja áherslu á kvikmyndatónlist,“ nefnir Ragnheiður. „Hjá okkur tengist þetta inn í allt, meðal annars ferðaþjónustuna, og við viljum fá alla til samstarfs. Það hefur verið ótrúlega fróðlegt fyrir mig að sjá hversu mikill áhugi er hjá öllum. Allir vilja vera með og við tökum öllum hugmyndum opn- um örmum, ætlum að reyna að sía okkur inn í sem flest. RÚV er sam- starfsaðili og ætlar að reyna að vera með áherslu á evrópskar kvikmynd- ir í sinni dagskrá, svipað og gert hefur verið með Bíóást,“ segir Ragnheiður og að Icelandair muni líka leggja áherslu á evrópska kvik- myndagerð í sínu dagskrárkerfi. Mikill áhugi á Íslandi Ragnheiður segir að gert sé ráð fyrir að 6 - 800 manns komi að utan á hátíðina og segist hún telja lík- legra að um 800 komi. Þegar litið sé til ráðstefna sem færist milli landa og þeirra sem haldnar hafi verið á Íslandi sé jafnan metþátttaka og ástæðan mikill áhugi á Íslandi. „Það vita allir hér í Berlín að verðlaunin verða veitt á Íslandi á næsta ári og allir segjast ætla að koma,“ segir Ragnheiður. Allra veðra er von á Íslandi á þessum árstíma en Ragnheiður seg- ist ekki hafa neinar áhyggjur af því. Fólk búist við hinu óvænta á Íslandi og veðrið sé hluti af því. „Við ætlum bara að gera þetta á okkar hátt og gera þetta ógleymanlegt.“ Erilsamt og krefjandi Ragnheiður segir verkefnin dembast yfir sig í hinu nýja starfi. „Þetta er erilsamara að því leyti og meira krefjandi en ég átti von á en ótrúlega spennandi. Það er svo gaman að geta verið með svona marga bolta á lofti í einu og passa upp á að halda þeim þar. Eins og faðir minn, sem var flugumferð- arstjóri, sagði alltaf: Þú lendir bara einni vél í einu. Maður þarf að halda fókus.“ – Ef við komumst skammlaust frá þessari hátíð hljótum við að geta haldið Eurovision, ekki satt? „Þetta er mjög góð spurning því þetta verkefni er ákveðinn próf- steinn á að halda viðburð af þessari stærðargráðu. Hvernig kemur Harpa út, hvernig sinnum við öllum þessum útsendingum? Þetta er flók- in framkvæmd. Ég hef verið að fylgjast með hvernig sviðið er byggt og hvernig öllu er stillt upp, hvernig allt er hannað og er voða fegin að ég þarf ekki að sjá um það,“ segir Ragnheiður kímin. Íslendingar eigi afbragðsfólk og fulltrúar frá Hörpu og RÚV voru staddir í Berlín nú í ár og í Sevilla í fyrra til að fylgjast með undirbúningi og útsendingu verðlaunahátíðarinnar. „Við eigum mjög hæft fólk sem kann á þetta umhverfi þannig að ég hef engar áhyggjur af því að við náum ekki að gera þetta með glæsi- brag. Harpa er auðvitað stórkost- lega falleg bygging og miklu stærri salur en þessi sem við erum í hér í Berlín; hann tekur tæplega 900 í sæti en við erum að tala um tólf til fjórtán hundruð í Eldborg. Hátíðin okkar verður fjölmennari og ekki minni að umfangi heldur þvert á móti.“ Íslendingar langt komnir Ragnheiður segir að íslenskur bragur verði á hátíðinni á næsta ári, líkt og þegar hún hefur verið haldin annars staðar en í Berlín, til dæmis í Sevilla í fyrra þar sem spænsk menning var í hávegum höfð með tilheyrandi flamenkósöng og -dansi. Þá er hátíðin líka mikið og gott tækifæri fyrir gestgjafa að kynna sig og sína kvikmyndagerð og menningu. Ísland er fyrir löngu komið á kortið hvað það varðar og segir Ragnheiður valið á Reykjavík og Ís- landi sem hátíðarstað sýna hversu langt Íslendingar séu komnir í kvik- myndagerð. „Og þegar maður skoð- ar þessi verðlaun og tilnefningar til þeirra höfum við mjög oft átt þar fulltrúa,“ segir Ragnheiður en í ár var Ingvar E. Sigurðsson meðal til- nefndra í flokki leikara. EFA-verðlaunin eru afar mikil- væg fyrir evrópska kvikmyndagerð, þau eru uppskeruhátíð evrópskra kvikmyndagerðarmanna, eins og Ragnheiður bendir á. Hún segir evrópskar kvikmyndir ekki fylgja meginstraumnum í eins miklum mæli og þær bandarísku. „Evr- ópskar myndir eru listrænni og meiri pólitík í þeim þannig að þessi hátíð er dálítið pólitísk og hefur tek- ið á alls konar málum, meðal annars beitt sér fyrir lausn úkraínsks fanga í Rússlandi. Hún tekur afstöðu, sem mér finnst skemmtilegt,“ segir Ragnheiður að lokum. Gleði Sif Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri menningarmála hjá Reykjavíkurborg, Ragnheiður Elín Árnadóttir, verkefnisstjóri EFA í Reykjavík 2020, Hera Hilmarsdóttir leikkona og Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar, í lokahófi Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í Berlín á laugardaginn var. „Þú lendir bara einni vél í einu“  „Ég hef engar áhyggjur af því að við náum ekki að gera þetta með glæsibrag,“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, verkefnisstjóri Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í Reykjavík árið 2020 Ljósmynd/EFA/EPA Glæsileg Hjónin Edda Arnljótsdóttir og Ingvar E. Sigurðsson á rauða dreglinum fyrir hátíðina í Berlín. Ingvar var meðal tilnefndra leikara.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.