Morgunblaðið - 10.12.2019, Qupperneq 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2019
GÓÐIR
FUNDIR
OGENNBETRI
FUNDARHLÉ
Upplýsingar og pantanir í síma 483 4700 | booking@hotelork.is | www.hotelork.is
Á Hótel Örk er allt sem þarf fyrir vel heppnaða fundi, sýningar,
námskeið og minni ráðstefnur. Hótelið býr yfir fundarsölum af
mörgum stærðum búnum nýjustu tækni, fyrsta flokks veitingastað
og fjölbreyttri afþreyingu fyrir skemmtilegri fundarhlé.
Superior herbergi
157
HERBERGI
7
FUNDARSALIR
VEITINGASTAÐUR
SUNDLAUGOG
HEITIR POTTAR
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Ragnheiður Elín Árnadóttir, verk-
efnisstjóri Evrópsku kvikmynda-
verðlaunanna (EFA) í Reykjavík ár-
ið 2020, var ein margra Íslendinga
sem sóttu verðlaunahátíðina í Berlín
á laugardaginn var, til að fylgjast
með framkvæmd þeirra. Ragnheið-
ur hefur verið önnum kafin frá því
hún var ráðin um mitt sumar, eins
og kom fram í spjalli hennar við
blaðamann á hóteli í Berlín nokkr-
um klukkustundum fyrir afhend-
ingu verðlaunanna.
Ragnheiður starfar ein á Íslandi
við undirbúning hátíðarinnar og
þegar hún er spurð hvort ekki muni
fleiri Íslendingar bætast við svarar
hún því til að áætlun geri ráð fyrir
að tveir starfsmenn verði ráðnir inn
á næsta ári, líklega um mitt ár. „Ég
er að vinna þetta mjög mikið með
starfsmönnum í Berlín þannig að
fyrirkomulagið núna er á þann veg
að ég er eini starfsmaðurinn á Ís-
landi og svo er sex manna stjórn
sem hittist hálfsmánaðarlega. Í
henni eru fulltrúar frá ríki og borg
og Meet in Reykjavík. Ég vinn í
mjög nánu samstarfi við stjórnina,
sem er mjög aktíf. Þetta er sam-
starfsverkefni ríkis og borgar og því
eru menntamálaráðuneytið og
Reykjavíkurborg í forsvari fyrir
þetta og þurfa að gæta þess að allir
hafi jafna aðkomu,“ segir Ragnheið-
ur.
Allt í öllu
– Hvaða tvö störf eru þetta sem
verða auglýst á næsta ári?
„Það er annars vegar starf þess
sem hefur umsjón með pródúksjón-
inni, svo ég sletti nú aðeins, og hitt
starfið er svipað og ég er að gera
svo hægt sé að skipta með sér verk-
um. Við eigum eftir að sjá hvar
vantar upp á þekkingu og hvar þarf
fleiri hendur,“ svarar Ragnheiður.
– Þú ert verkefnisstjóri EFA
2020, geturðu sagt mér betur frá
því í hverju starfið felst?
„Það felst í því að vera allt í öllu
núna í undirbúningnum. Ég byrjaði
í júlí og af því þetta er svo umfangs-
mikið eru ákveðnir póstar sem þarf
að tryggja, t.a.m. að leita samstarfs-
og styrktaraðila. Þar má nefna sam-
starfssamninginn sem við vorum að
undirrita við Icelandair. Það er frá-
bært að fá fyrirtækið í samstarf við
okkur því lykillinn að því að hægt sé
að halda hátíðina er að við séum
með samgöngurnar í lagi. Svo eru
það þættir eins og að tryggja hótel
og samgöngur innanlands og meðal
annars útvega bíla fyrir hina til-
nefndu en Skoda sér um það hér í
Berlín,“ segir Ragnheiður. Þá þurfi
að finna staði fyrir viðburði aðra en
verðlaunahátíðina sjálfa, þar á með-
al opnunarhóf verðlaunahátíð-
arinnar.
Meira en helgi í desember
„Síðan er það hátíðin sjálf, sem er
auðvitað stærsti viðburðurinn. Við
höfum hins vegar einsett okkur að
tryggja að nýta okkur hátíðina með
víðtækari hætti en að þetta snúist
einungis um eina helgi í desember.
Verkefnið er kostað að hluta af
skattfé og bæði ráðherra og borgar-
stjóri hafa markað þá skýru stefnu
að nýta þennan opna glugga og það
kastljós sem hátíðin færir á Ísland
og íslenska kvikmyndagerð og
reyna að halda honum opnum allt
árið, halda upp á evrópska
kvikmyndaárið 2020 á Íslandi.
Menntamálaráðherra hefur lagt
mikla áherslu á kvikmyndalæsi í
skólum á öllum skólastigum og
EFA er sjálft með ýmislegt sem
tengist því, meðal annars Young
Audience Award, verkefni þar sem
krakkar á grunnskólaaldri horfa á
kvikmyndir og velja þá sem þeim
þykir best. Síðan eru það há-
skólaverðlaunin. 24 háskólar í Evr-
ópu, Háskóli Íslands þeirra á meðal,
koma saman viku fyrir hátíðina í
Hamborg og kjósa um bestu kvik-
myndina. Þar er verið að tengja
þetta inn í skólana.
Einnig má nefna allar borgar-
hátíðirnar í Reykjavík, hvort sem
það er Vetrarhátíð, Bókmennta-
hátíð, Menningarnótt, Hönnunar-
mars, Iceland Airwaves eða kvik-
myndahátíðir eins og RIFF og
Stockfish, við höfum áhuga á að
vera í formlegu samstarfi við þessar
hátíðir um að tengja þær við okkar
hátíð. Á Airwaves gætum við til
dæmis verið með fyrirlestra í ráð-
stefnuhluta þeirra sem leggja
áherslu á kvikmyndatónlist,“ nefnir
Ragnheiður.
„Hjá okkur tengist þetta inn í
allt, meðal annars ferðaþjónustuna,
og við viljum fá alla til samstarfs.
Það hefur verið ótrúlega fróðlegt
fyrir mig að sjá hversu mikill áhugi
er hjá öllum. Allir vilja vera með og
við tökum öllum hugmyndum opn-
um örmum, ætlum að reyna að sía
okkur inn í sem flest. RÚV er sam-
starfsaðili og ætlar að reyna að vera
með áherslu á evrópskar kvikmynd-
ir í sinni dagskrá, svipað og gert
hefur verið með Bíóást,“ segir
Ragnheiður og að Icelandair muni
líka leggja áherslu á evrópska kvik-
myndagerð í sínu dagskrárkerfi.
Mikill áhugi á Íslandi
Ragnheiður segir að gert sé ráð
fyrir að 6 - 800 manns komi að utan
á hátíðina og segist hún telja lík-
legra að um 800 komi. Þegar litið sé
til ráðstefna sem færist milli landa
og þeirra sem haldnar hafi verið á
Íslandi sé jafnan metþátttaka og
ástæðan mikill áhugi á Íslandi. „Það
vita allir hér í Berlín að verðlaunin
verða veitt á Íslandi á næsta ári og
allir segjast ætla að koma,“ segir
Ragnheiður.
Allra veðra er von á Íslandi á
þessum árstíma en Ragnheiður seg-
ist ekki hafa neinar áhyggjur af því.
Fólk búist við hinu óvænta á Íslandi
og veðrið sé hluti af því. „Við ætlum
bara að gera þetta á okkar hátt og
gera þetta ógleymanlegt.“
Erilsamt og krefjandi
Ragnheiður segir verkefnin
dembast yfir sig í hinu nýja starfi.
„Þetta er erilsamara að því leyti og
meira krefjandi en ég átti von á en
ótrúlega spennandi. Það er svo
gaman að geta verið með svona
marga bolta á lofti í einu og passa
upp á að halda þeim þar. Eins og
faðir minn, sem var flugumferð-
arstjóri, sagði alltaf: Þú lendir bara
einni vél í einu. Maður þarf að halda
fókus.“
– Ef við komumst skammlaust frá
þessari hátíð hljótum við að geta
haldið Eurovision, ekki satt?
„Þetta er mjög góð spurning því
þetta verkefni er ákveðinn próf-
steinn á að halda viðburð af þessari
stærðargráðu. Hvernig kemur
Harpa út, hvernig sinnum við öllum
þessum útsendingum? Þetta er flók-
in framkvæmd. Ég hef verið að
fylgjast með hvernig sviðið er byggt
og hvernig öllu er stillt upp, hvernig
allt er hannað og er voða fegin að
ég þarf ekki að sjá um það,“ segir
Ragnheiður kímin. Íslendingar eigi
afbragðsfólk og fulltrúar frá Hörpu
og RÚV voru staddir í Berlín nú í
ár og í Sevilla í fyrra til að fylgjast
með undirbúningi og útsendingu
verðlaunahátíðarinnar.
„Við eigum mjög hæft fólk sem
kann á þetta umhverfi þannig að ég
hef engar áhyggjur af því að við
náum ekki að gera þetta með glæsi-
brag. Harpa er auðvitað stórkost-
lega falleg bygging og miklu stærri
salur en þessi sem við erum í hér í
Berlín; hann tekur tæplega 900 í
sæti en við erum að tala um tólf til
fjórtán hundruð í Eldborg. Hátíðin
okkar verður fjölmennari og ekki
minni að umfangi heldur þvert á
móti.“
Íslendingar langt komnir
Ragnheiður segir að íslenskur
bragur verði á hátíðinni á næsta ári,
líkt og þegar hún hefur verið haldin
annars staðar en í Berlín, til dæmis
í Sevilla í fyrra þar sem spænsk
menning var í hávegum höfð með
tilheyrandi flamenkósöng og -dansi.
Þá er hátíðin líka mikið og gott
tækifæri fyrir gestgjafa að kynna
sig og sína kvikmyndagerð og
menningu.
Ísland er fyrir löngu komið á
kortið hvað það varðar og segir
Ragnheiður valið á Reykjavík og Ís-
landi sem hátíðarstað sýna hversu
langt Íslendingar séu komnir í kvik-
myndagerð. „Og þegar maður skoð-
ar þessi verðlaun og tilnefningar til
þeirra höfum við mjög oft átt þar
fulltrúa,“ segir Ragnheiður en í ár
var Ingvar E. Sigurðsson meðal til-
nefndra í flokki leikara.
EFA-verðlaunin eru afar mikil-
væg fyrir evrópska kvikmyndagerð,
þau eru uppskeruhátíð evrópskra
kvikmyndagerðarmanna, eins og
Ragnheiður bendir á. Hún segir
evrópskar kvikmyndir ekki fylgja
meginstraumnum í eins miklum
mæli og þær bandarísku. „Evr-
ópskar myndir eru listrænni og
meiri pólitík í þeim þannig að þessi
hátíð er dálítið pólitísk og hefur tek-
ið á alls konar málum, meðal annars
beitt sér fyrir lausn úkraínsks fanga
í Rússlandi. Hún tekur afstöðu, sem
mér finnst skemmtilegt,“ segir
Ragnheiður að lokum.
Gleði Sif Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri menningarmála hjá Reykjavíkurborg, Ragnheiður Elín Árnadóttir,
verkefnisstjóri EFA í Reykjavík 2020, Hera Hilmarsdóttir leikkona og Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður
Kvikmyndamiðstöðvar, í lokahófi Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í Berlín á laugardaginn var.
„Þú lendir bara einni vél í einu“
„Ég hef engar áhyggjur af því að við náum ekki að gera þetta með glæsibrag,“ segir Ragnheiður
Elín Árnadóttir, verkefnisstjóri Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í Reykjavík árið 2020
Ljósmynd/EFA/EPA
Glæsileg Hjónin Edda Arnljótsdóttir og Ingvar E. Sigurðsson á rauða
dreglinum fyrir hátíðina í Berlín. Ingvar var meðal tilnefndra leikara.