Morgunblaðið - 10.12.2019, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2019
FRÍKIRKJAN Í REYKJAVÍK
Helgihald á aðventu og jólum
11. des. mið. kl. 20:00 Aðventukvöld, fjölbreytt og glæsilegt tónlistarkvöld.
Rithöfundurinn Andri Snær Magnason er aðalræðumaður kvöldsins og les úr bók sinni
Um tímann og vatnið.
Fram koma: Tríóið Fjarkar, Sönghópurinn við Tjörnina, Hljómsveitin Mantra ásamt
Gunnari Gunnarssyni og barnakór Fríkirkjunnar undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur.
Sr. Hjörtur Magni leiðir stundina.
15. des. sun. kl. 14:00 Jólatrésskemmtun Fríkirkjunnar í Reykjavík.
Stundin hefst með samveru í kirkjunni. Síðan verður haldið upp í safnaðarheimili þar sem
verður sungið og dansað í kringum jólatréð með jólasveininum.
Kaffi og meðlæti fyrir alla.
22. des. sun. kl. 14:00 Heilunarguðsþjónusta á vegum Sálarrannsóknarfélags Íslands, Fríkirkjunnar og
Kærleikssetursins.
24. des. þri. kl. 18:00 Aftansöngur á aðfangadagskvöldi.
Þóra Einarsdóttir sópran syngur einsöng.
Sönghópurinn við Tjörnina ásamt strengjakvartett kirkjunnar syngur jólin inn og leiðir
safnaðarsöng undir stjórn Gunnars Gunnarssonar.
Sr. Hjörtur Magni leiðir stundina.
25. des. mið. kl. 14:00 Hátíðarguðsþjónusta á jóladag. Ljósanna hátíð fagnað
með rísandi sól.
Egill Ólafsson söngvari syngur og spjallar um tónlistarval sitt.
Sr. Hjörtur Magni, Sönghópurinn við Tjörnina ásamt
Gunnari Gunnarssyni.
31. des. þri. kl. 16:00 Aftansöngur á gamlársdag.
Hljómsveitin Eva ásamt Sönghópnum við Tjörnina leiða
safnaðarsöng ásamt Gunnari Gunnarssyni.
Sr. Hjörtur Magni leiðir stundina.
„Í þessari rannsókn er því haldið
opnu að um sé að ræða hryðjuverk,
líkt og í öðrum rannsóknum sem
snúa að skotárásum. Þetta veitir
okkur færi á að nýta rannsóknar-
aðferðir sem geta hjálpað okkur að
bera kennsl á og koma í veg fyrir
aðra hugsanlega ógn með skjótum
hætti,“ sagði Rachel Rojas, rannsak-
andi hjá bandarísku alríkislögregl-
unni (FBI) við hóp fréttamanna.
Vísar hún í máli sínu til þess þegar
karlmaður með ríkisfang í Sádi-
Arabíu hóf skotárás á bandaríska
herstöð í Pensacola á Flórída. Þrír
liðsmenn bandaríska sjóhersins
týndu lífi í árásinni; Joshua Kaleb
Watson (23 ára), Mohammed Sameh
Haitham (19 ára) og Cameron Scott
Walters (21 árs). Hinir látnu eru
sagðir hafa bjargað lífi annarra með
því að veitast að árásarmanninum er
sá hóf skothríð. Lögregla drap síðar
ódæðismanninn.
Við árásina notaðist maðurinn við
skammbyssu sem hann keypti lög-
lega. Félagar hans, sem einnig voru
á herstöðinni, hafa verið yfirheyrðir.
Ekkert þykir benda til á þessari
stundu að þeir séu viðriðnir árásina
en talið er að einhverjir þeirra hafi
náð skotárásinni á myndband.
AFP
Heiðursvörður Hópur hermanna ber kistu Camerons Scott Walters (21 árs).
Hann er einn þriggja sem féllu þegar ódæðismaður hóf skotárás á herstöð.
Árásin er rannsökuð
sem hryðjuverk
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Á þessari stundu teljum við víst að
um 100 manns hafi verið á eða við
eyjuna þegar gosið hófst, sumra
þeirra er enn saknað,“ sagði Jacinda
Ardern, forsætisráðherra Nýja--
Sjálands, á blaðamannafundi sem
haldinn var um miðjan dag í gær.
Tilefni fundarins er skyndilegt
eldgos á White Island, vinsælli eld-
gosaeyju meðal ferðalanga undan
ströndum Nýja-Sjálands. Gos hófst
þar laust eftir klukkan 14 að stað-
artíma í gær. Hópur ferðamanna var
á eyjunni þegar hamfarirnar hófust,
margir þeirra farþegar af skemmti-
ferðaskipinu Ovation of the Seas.
Tuttugu og þrír höfðu í gær náðst í
land, af þeim eru minnst fimm látnir.
Margir eru sagðir slasaðir, sumir
með alvarlega brunaáverka. Í gær
voru yfir 20 sagðir ófundnir og er
óttast mjög um afdrif þeirra. Fólkið
sem um ræðir er af ólíku þjóðerni,
Nýsjálendingar og ferðamenn ann-
ars staðar frá.
„Við vitum af einstaklingum frá
Nýja-Sjálandi og erlendis frá sem
var statt á eyjunni. Ég veit að ástvin-
ir þessa fólks hafa miklar áhyggjur
og eru óttaslegnir. En ég vil þó full-
vissa fólk um að lögreglan reynir nú
allt hvað hún getur,“ sagði Ardern
enn fremur, en erlendir fréttamiðlar
greindu frá því í gær að björgunar-
menn ættu afar erfitt með að nálgast
eyjuna sökum mikils öskufalls. Vís-
indamenn segja gosstrókinn hafa
náð rúmlega 3,5 kílómetra hæð og
fór gjóskufall yfir stórt svæði.
Leita lífs með drónum í dag
Ljóst má vera að gosið kom öllum
sem á eyjunni voru í opna skjöldu. Á
myndbandsupptökum sem birst hafa
á samfélagsmiðlum og í fréttum má
sjá hóp ferðafólks flýja eyjuna í báti.
Í fjarska sést gríðarstór gosmökk-
urinn og annar hópur fólks sem þá
beið enn björgunar í eyjunni.
Í tilkynningu sem lögreglan í
Nýja-Sjálandi sendi frá sér kom
meðal annars fram að engin merki
Eldsumbrot á ferðamannaeyju
Mikill fjöldi fólks var staddur á og við White Island þegar eldgos hófst þar skyndilega Minnst fimm
voru í gær látnir eftir hamfarirnar og óttast um fjölda annarra Herskip verður sent að eyjunni í dag
AFP
Hamfarir Eldstöðin á White Island, virkasta eldstöð Nýja-Sjálands, gaus skyndilega þegar hópur fólks var á
eyjunni. Gosmökkurinn náði rúmlega 3,5 kílómetra hæð, samkvæmt mælingum vísindamanna þar í landi.
Eldgos hófst fyrirvaralaust
9. desember
Crater lake
Crater Bay
Shark Bay
Wilson Bay
Eldgos á Nýja-Sjálandi
WELLINGTON
NORÐUR-
EYJA
SUÐUR-
EYJA
300 km
White Island
(Whakaari)
500 m
Ódagsett gervihnattamynd, maps4news.comHeimild: gns.cri.nz
Fjölsóttur ferðamannastaður
Talið er að margir hafi verið við
eða á eyjunni þegar gosið hófst
Um 10 þúsund manns fara
til eyjarinnar árlega
Virkasta eldfjall á Nýja-Sjálandi
en um 70% þess eru neðansjávar
Hefur gosið oft undanfarna
hálfa öld, síðast árið 2016
væru um líf á eyjunni. Kom þetta í
ljós eftir að þyrlum og flugvélum
hafði verið flogið yfir svæðið.
„Lögreglan telur víst að búið sé að
bjarga öllum sem enn eru á lífi,“ seg-
ir í umræddri tilkynningu, en í gær
var unnið að því að fá nákvæma tölu
yfir fjölda þeirra sem týndu lífi í
hamförunum á White Island. Er
stefnt að því að senda herskip upp að
eyjunni í dag þaðan sem drónum
verður flogið yfir eyjuna til að leita
að hugsanlegum eftirlifendum.
Fyrsti mannskaði frá 1914
Virkasta eldstöð Nýja-Sjálands er
að finna á White Island. Telja
vísindamenn 70% eldstöðvarinnar
vera neðansjávar. Eyjan hefur verið
í einkaeigu frá árinu 1953 og koma
þangað árlega yfir 10 þúsund ferða-
langar, en stærsta aðdráttaraflið er
sjálf eldstöðin. Að sögn fréttaveitu
Reuters gaus eldstöðin seinast árið
2016 en mannskaði sökum eldsum-
brota hefur ekki átt sér stað á eyj-
unni síðan 1914. Það ár létust 12
námuverkamenn á eyjunni.
Scott Morrison, forsætisráð-
herra Ástralíu, segir landa sína í
hópi þeirra sem staddir voru á
White Island þegar gosið hófst.
„Við höfum nú þegar getað
borið kennsl á hóp Ástrala sem
liggja nú á sjúkrahúsi,“ sagði
Morrison í tilkynningu sem send
var fjölmiðlum, en samkvæmt
henni voru minnst 24 ein-
staklingar með ríkisfang í Ástr-
alíu staddir á hamfarasvæðinu.
„Við vonumst til að vita meira
í fyrramálið. Við verðum þó að
búa okkur undir erfiðar fréttir á
komandi dögum.“
Búa sig undir
erfiðar fréttir
ÁSTRALÍA