Morgunblaðið - 10.12.2019, Side 1
Upplýsingar er fengnar
á vef Veðurstofu
Íslands kl. 22:40 í gær
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
„Stöndum okkar plikt“
Ofsaveðri spáð á Ströndum og
Norðurlandi vestra og snjóflóða-
hætta er á Mið-Norðurlandi
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Við stöndum okkar plikt,“ segir Ár-
mann Gunnarsson á Siglufirði,
slökkviliðsstjóri Fjallabyggðar. Sig-
fús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri
Skagafjarðar, segir: „Við höfum ekki
fengið svona viðvörun áður, en ég
vona að við séum í stakk búnir til að
takast á við þetta.“ Báðir ræða um
óveðrið sem spáð er í dag.
Versta veðrinu er spáð á spásvæð-
inu Strandir og Norðurland vestra,
ofsaveðri sem kallar á rauða viðvörun
frá klukkan 17 í dag og fram yfir mið-
nætti. Er þetta í fyrsta skipti sem
Veðurstofan gefur út viðvörun á
hæsta stigi síðan byrjað var að gefa
út litamerktar veðurviðvaranir fyrir
tveimur árum. Í allan dag og fram að
hádegi á morgun verður norðan stór-
hríð, þótt ekki sé hæsta viðvörun í
gildi nema hluta tímans. Auk óveð-
ursins lýsti Veðurstofan yfir óvissu-
ástandi vegna snjóflóðahættu á Mið-
Norðurlandi.
Engir skólar eða leikskólar verða
starfandi í Skagafirði í dag og íþrótta-
mannvirki eru lokuð. Sama á við
mörg önnur sveitarfélög. Búist er við
mikilli ofankomu og að vegir lokist
þannig að fólk verði innilokað. Íbúum
er ráðlagt að halda kyrru fyrir.
Börnin verði sótt í skóla
Ríkislögreglustjóri og allir lög-
reglustjórar landsins lýstu yfir
óvissustigi almannavarna á landinu, í
takti við veðurspá. Búist er við víð-
tækum truflunum á samgöngum um
allt land í dag og í fyrramálið. Vegum
að höfuðborgarsvæðinu verður lokað
í varúðarskyni og það sama á við um
vegi víða um land. Millilandaflug og
innanlandsflug fellur niður síðdegis.
Skóla- og frístundastarf í Reykja-
vík mun raskast frá hádegi í dag. Í til-
kynningu frá Reykjavíkurborg er
fólki ráðlagt að vera ekki á ferli eftir
klukkan 15. Foreldrar og forráða-
menn barna eru beðnir um að sækja
börn sín strax að skóladegi loknum.
Svipaðar tilkynningar hafa verið
gefnar út hjá fleiri sveitarfélögum á
höfuðborgarsvæðinu.
MVíðtækar truflanir »4
Lýst yfir óvissustigi almanna-
varna og skólum og íþróttamann-
virkjum lokað víða um land
Vegum verður almennt lokað
og röskun verður á flugi sem
og almenningssamgöngum
Aðstoð Tveir snjóbílar
voru í gærkvöldi sendir úr
Reykjavík norður í land.
Þ R I Ð J U D A G U R 1 0. D E S E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 290. tölublað 107. árgangur
14 dagartil jóla
Jólasveinalitabókin er á
jolamjolk.is
VÍNKAUP Á
NETINU INNAN-
LANDS LEYFÐ?
GJAFAKORT
FÆRÐ Í
SMÁFORRIT
UNDIRBÝR
ALÞJÓÐLEGA
VERÐLAUNAHÁTÍÐ
NÝSKÖPUN 12 RAGNHEIÐUR ELÍN 28ÁFENGISLÖGGJÖFIN 14
Minnst fimm létust og átta ferða-
manna var saknað eftir sprengigos í
eldfjallaeynni Whakaari eða Hvítey
við Norðurey Nýja-Sjálands í gær.
Hvítey hefur verið vinsæll áfanga-
staður ferðamanna. Hópur þeirra
var inni í gígnum þegar eldgosið
hófst í gær. Eldfjallið gaus síðast
2016.
„Þetta er bara lítið gos,“ sagði
Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur
og prófessor emeritus, um eldgosið í
Hvítey. Hann sagði að eldfjallið væri
gamalt og hefði lengi verið virkt. Af
hvítum gosmekkinum mætti ráða að
kvikan hefði komist í snertingu við
sjó. Einnig kom upp mikil aska.
Gosið minnti Pál á mannskætt
sprengigos sem varð 2014 í Ontake,
vinsælum ferðamannastað í Japan.
Þar fórust 57 manns og sex til við-
bótar var saknað.
„Við eigum okkar útgáfu af
þessu sem er Hekla og ferða-
mennskan þar,“ sagði Páll. Hekla
er talin geta gosið með skömmum
fyrirvara. Páll benti á að oftast
væri ferðafólk á göngu í hlíðum
Heklu og setti sig með því í hættu.
Auk þess væri mikil umferð flug-
véla yfir þetta frægasta eldfjall Ís-
lands. Páll taldi að af íslenskum eld-
fjöllum kæmist Hekla einna næst
því að líkjast Hvítey. »13
AFP
Nýja-Sjáland Nokkrir tugir ferðamanna voru í Hvítey þegar skyndilega
varð þar sprengigos í gær. Að minnsta kosti fimm þeirra létust í gosinu.
Viss líkindi með Heklu og Hvítey
Fimm létust og átta saknað eftir eld-
gos við Norðurey Nýja-Sjálands