Morgunblaðið - 21.12.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 21.12.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2019 Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími 7.30-16.30 Sími 557 8866 pantanir@kjotsmidjan.is Komdu við eða sérpantaðu - Fyrir jólaboðin - Hangikjöt, hamborgarhryggur, nautakjöt og villibráð Gæða kjötvörur Sá ágæti hagfræðingur MiltonFriedman sagðist aldrei hafa rekist á slæmar tillögur um skatta- lækkanir og um skattalækkanir hafði hann meðal annars þetta að segja: „Ég styð lækkun skatta við hvaða kringum- stæður sem er og af hvaða ástæðu sem er, hvenær sem mögu- legt er.“    Þetta var skilj-anlegt þegar þetta var sagt fyrir allmörgum árum og á enn betur við nú, ekki síst hér á landi þar sem skattar eru háir og lagðir á nánast allt sem hreyfist – og líka það sem hætt er að hreyfast.    Allar afsakanir til að lækka ekkiskatta, og stundum til að hækka þá, hafa verið dregnar fram, en al- gengast er að heyra stjórnmálamenn og hagfræðinga fullyrða að efnahags- ástandið sé of gott til að lækka skatta, eða að það sé of slæmt til að lækka skatta.    Þetta síðarnefnda er líklega ennvinsælla og hefur reynst hættu- legra, ekki síst þegar vinstristjórnin alræmda fékk skattheimtuvaldið á ár- unum 2009-2013.    Þess vegna var ánægjulegt að sjá íágætu viðtali Viðskiptamoggans við seðlabankastjóra í vikunni að hann sagði að tími til að lækka skatta væri í niðursveiflu.    Nú er niðursveifla og útlit fyrir aðhún vari enn í einhver misseri, vonandi þó ekki mjög mörg. Og ríkið getur lagt sitt af mörkum til að stytta hana með myndarlegri lækkun skatta. Það er ekki eftir neinu að bíða. Milton Friedman Alltaf gott að lækka skatta STAKSTEINAR Ásgeir Jónsson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ „Við fáum alltaf bara takmarkað bóluefni á hverju hausti og við erum yfirleitt að klára það um þetta leyti, svona rétt fyrir áramótin. Svo þetta er ekkert óeðlilegt,“ segir Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höf- uðborgarsvæðisins, í samtali við Morgunblaðið. Á vefsíðu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins var sagt frá því í vikunni að influensubóluefni væri búið á stórum hluta heilsugæslustöðvanna. „Við erum bara að klára restarnar,“ bætir hún við. Spurð frekar um framhaldið svarar Ragnheiður: „Svo er það bara næsta flensa næsta haust. Það kem- ur einn faraldur á hverjum vetri.“ Aðspurð segist Ragnheiður telja að flestir þeir sem Heilsugæslan vill sérstaklega ná til, t.d. 60 ára og eldri og þeir sem eru með langvinna sjúkdóma, hafi þegar komið í bólusetningu. „Þannig að við ætt- um að vera vel varin,“ segir hún. Í vikunni var enn til bóluefni á heilsugæslustöðv- unum Efra-Breiðholti, Glæsibæ, Hamraborg og Hvammi. Þeir sem vilja fá bólusetningu geta haft samband við heilsugæslustöð þar sem bóluefni er til. teitur@mbl.is „Ættum að vera vel varin“  Inflúensubóluefni búið á stórum hluta stöðvanna Morgunblaðið/Hari Bólusetning „Svo bara næsta flensa næsta haust,“ sagði framkvæmdastjóri hjúkrunar. Verkefnið „Guðlaug – heit laug í grjótvörn við Langasand á Akra- nesi“ er handhafi Umhverfis- verðlauna Ferðamálstofu árið 2019. Verkið var unnið á árunum 2017-2018 og samanstendur af útsýnispalli, heitri laug og síðan grynnri laug sem nýtur vatns úr yfirfalli efri laugarinnar. Mann- virkið er hið fyrsta sinnar teg- undar hér á landi. Guðlaug var formlega opnuð 8. desember 2018. Síðan þá hafa um 30 þúsund gestir heimsótt laugina. Hönnunin var unnin af Basalt arkitektum og Mannviti verk- fræðistofu. Að framkvæmdinni komu m.a. Ístak, Vélaleiga Hall- dórs Sig., Rafþjónusta Sigurdórs, Pípulagningaþjónustan og Tré- smiðjan Akur. Akraneskaupstaður sótti um í Framkvæmdasjóð ferðamanna- staða árið 2017 og fékk 30 milljóna króna styrk til að hefjast handa við verkefnið. Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu hafa verið veitt ár- lega frá árinu 1995. Guðlaug handhafi umhverfisverðlauna Ljósmynd/Ferðamálastofa Akranes Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, tók við verðlaun- unum frá Skarphéðni Berg Steinarssyni ferðamálastjóra í vikunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.