Morgunblaðið - 21.12.2019, Blaðsíða 30
30 UMRÆÐAN Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2019
Mikil sala!
Góður sölutími framundan.
Óskum eftir öllum tegundum
eigna á skrá.
Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is
www.gimli.is
Halla Unnur Helgadóttir
Viðskiptafræðingur / löggiltur fasteignasali
s 659 4044 / halla@gimli.is
AKUREYRARKIRKJA |
Helgistund í kapellu Akureyrarkirkju kl. 11.
Prestur er Svavar Alfreð Jónsson. Organisti er
Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.
AKURINN kristið samfélag | Samkoma kl.
14. Biblíufræðsla, söngur og bæn.
ÁRBÆJARKIRKJA | 22. desember, helgi-
stund í aðdraganda jóla, sr. Þór Hauksson flyt-
ur hugleiðingu. Organisti er Kristina K. Szklen-
ár.
ÁRBÆJARSAFN safnkirkjan | Aðventuguðs-
þjónusta kl. 14. Sigrún Steingrímsdóttir org-
anisti leiðir almennan safnaðarsöng. Félagar
úr Valskórnum flytja jólalög. Jón Guðmunds-
son leikur á flautu. Prestur er Kristinn Ágúst
Friðfinnsson.
ÁSKIRKJA | Helgistund í Áskirkju með lestr-
um og jólasöngvum kl. 11.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Alþjóðlegi söfnuður-
inn í Breiðholtskirkju. Guðsþjónusta og barna-
starf kl. 14. Prestur sr. Toshiki Toma. Stein-
unn Þorbergsdóttir, djákni, sér um barnastarf
á sama tíma.
BÚSTAÐAKIRKJA | Jólasöngvar fjölskyld-
unnar kl. 11. Stund fyrir alla fjölskylduna þar
sem andi jólanna ræður og jólalögin sungin.
Umsjón Daníel Ágúst, Sóley Adda, Jónas Þórir
og Pálmi.
DÓMKIRKJA Krists konungs, Landakoti |
Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30
á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau.
kl. 18 er vigilmessa.
Þorláksmessa. Messa á íslensku kl. 8 og 18.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Kristján
Valur Ingólfsson vígslubiskup prédikar, séra
Sveinn Valgeirsson þjónar. Dómkórinn syngur
undir stjórn Kára Þormar dómorganista.
FELLA- og Hólakirkja | Jólasöngvar við
kertaljós kl. 11. Jólahelgistund á aðventu,
sungin verða jólalög. Kórinn flytur jólasálma
og söngva. Sr. Jón Ómar Gunnarsson leiðir
stundina.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Heilunarguðþjón-
usta 22. desember kl. 14 í samstarfi Fríkirkj-
unnar í Reykjavík, Kærleiksseturs og Sálar-
rannsóknafélags Íslands. Um predikun sér
Hjörtun Magni Jóhannsson. Um tónlist sér
Gunnar Gunnarsson.
Söngur: Sönghópurinn við Tjörnina. Hópurinn
syngur Gloriuna undir í hugleiðslunni. Kær-
leiksheilun annast starfandi heilarar hjá félög-
unum og einnig nemar úr hópum félaganna.
Friðbjörg Óskarsdóttir heilari og fræðslumiðill
leiðir kirkjugesti í hugleiðslu.
GRAFARVOGSKIRKJA | Jólastund og jóla-
ball kl. 11. Helgistund, göngum í kringum
jólatré og jólasveinar koma í heimsókn. Nem-
endur úr Tónskóla Hörpunnar leika á hljóðfæri.
GRAFARVOGUR – kirkjuselið í Spöng |
Óskasálmar jólanna kl. 13. Séra Guðrún Karls
Helgudóttir þjónar. Organisti er Hilmar Örn Agn-
arsson og Björg Þórhallsdóttir og Svavar Knút-
ur leiða söng. Nemendur úr Tónlistarskóla
Grafarvogs leika á hljóðfæri.
GRENSÁSKIRKJA | Engin messa í dag en
bent á Jólasöngva fjölskyldunnar í Bústaða-
kirkju kl. 11.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Sunnudagur
22. desember. Opin kirkja kl. 11-12.30. Kyrrð
og kertaljós, ritningarlestrar og bænir, kakó og
piparkökur.
HALLGRÍMSKIRKJA | Fjölskyldumessa kl.
11. Umsjón: Kristný Rós Gústafsdóttir, verk-
efnastjóri og djákni, Ragnheiður Bjarnadóttir,
Rósa Árnadóttir og sr. Sigurður Árni Þórðarson.
Ungmenni úr æskulýðsfélaginu aðstoða.
Stúlknakórinn Graduale Futuri leiðir söng og
flytur helgileikinn Fæðing frelsarans eftir Hauk
Ágústsson undir stjórn Sunnu Karenar Ein-
arsdóttur. Fiðluleikarar Gréta Petrína Zimsen
og Sigrún Ólafsdóttir. Organisti er Björn Stein-
ar Sólbergsson.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra Helga
Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir
altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Org-
anisti er Guðný Einarsdóttir. Samskot dagsins
renna til Hjálparstarfs kirkjunnar.
HJALLAKIRKJA | Sunnudaginn 22. desem-
ber verður kaffihúsamessa fyrir alla fjölskyld-
una kl. 11.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam-
koma sunnudag kl. 14 á ensku. English speak-
ing service.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sighvatur Karlsson, settur héraðsprestur, pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju
syngur undir stjórn Lenku Mátéová kantors.
LANGHOLTSKIRKJA | Aðventustund fjöl-
skyldunnar og sunnudagaskóli kl. 11. Guð-
björg Jóhannesdóttir sóknarprestur leiðir að-
ventustundina, Sara Gríms leiðir
sunnudagaskólann. Organisti er Magnús
Ragnarsson, Graduale kórinn syngur undir
stjórn Þorvaldar Arnar Davíðssonar. Dagmar
Njarðardóttir leikur á trompet. Súkkulaði og
piparkökur.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Kamm-
erkór Reykjavíkur syngur undir stjórn Sigurðar
Bragasonar. Sr. Davíð Þór Jónsson þjónar fyrir
altari og prédikar. Sunnudagaskóli á meðan.
Kaffi á eftir.
LÁGAFELLSKIRKJA | Bæna- og kyrrðarstund
kl. 11 sunnudag. Prestur Arndís Linn leiðir
stundina. Þórður Sigurðarson leikur ljúfa tóna.
www.lagafellskirkja.is
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ólaf-
ur Jóhann Borgþórsson predikar. Kór Selja-
kirkju leiðir söng. Organisti: Tómas Guðni Egg-
ertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Sunnudagur 22.
des. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Bjarni Þór
Bjarnason sóknarprestur og leiðtogar sunnu-
dagaskólans sjá um stundina. Jólasveinninn
kemur í heimsókn og gefur gjafir. Kaffiveitingar
eftir athöfn. 23. desember. Orgelleikur og
söngur við kertaljós kl. 22. Friðrik Vignir Stef-
ánsson organisti og Eygló Rúnarsdóttir syngur.
VÍDALÍNSKIRKJA | Jólasöngvar fjölskyld-
unnar kl. 11. Garðakórinn og barnakór Vídal-
ínskirkju syngja. Helga Björk Jónsdóttir djákni
les jólasögu og þjónar fyrir altari ásamt messu-
þjónum. Peter Tompkin leikur á óbó. Stundinni
er útvarpað beint á rás 1.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Jólaball 22. desem-
ber kl. 11. Jólasveinninn mætir á svæðið og
syngur nokkur jólalög og gefur börnunum góð-
gæti.
ORÐ DAGSINS:
Vitnisburður Jóhannesar
(Jóh. 1)
Morgunblaðið/Sigurður ÆgissonSauðárkrókskirkja
Ég viðurkenni alveg
að ég var mjög hikandi
að prufa samtals-
meðferð á netinu og
hafði smá fordóma
gagnvart því. Ég vissi
ekki hvernig ég sem
fagaðili ætti að geta
byggt upp traust og
ramma á netinu.
Æskuvinkona mín
sem er búsett á Eski-
firði var farin að pressa verulega á
mig að stíga inn í 21. öldina til að
auðvelda aðgengi að heilbrigðis-
þjónustu. Nú er ég sjálf utan af landi
og sé hversu margar dyr þetta hefur
opnað fyrir landsbyggðina. Að auki
er ég búsett erlendis og hef fullan
skilning á að margir Íslendingar vilji
tala sitt tungumál í meðferð. Hvað
sem því líður ákvað ég að láta undan
pressunni og sé alls ekki eftir því.
Samtalsmeðferðir á netinu hafa
komið mér verulega á óvart á marga
vegu (og allt jákvætt).
Í fyrsta lagi er þetta mjög einfalt
og aðgengilegt fyrir hvern sem er.
Hugbúnaðurinn er auðveldur í notk-
un og að auki öruggur fyrir sam-
skipti með trúnaðarmál (og m.a.
samþykktur af Landlækni sem með-
ferðartækni).
Í öðru lagi erum við flestöll með
tölvur og önnur tæki sem við sitjum
oft við. Það þarf því ekki að leggja
mikið á sig til að koma á sam-
skiptum. Unglingar eru vanir því að
tala við fólk í gegnum tölvu, t.d. við
spilun á tölvuleikjum og oft á tíðum
við einstaklinga sem þeir þekkja
nánast ekkert. Börn geta verið inn-
an sinna tryggu ramma, annaðhvort
heima hjá sér eða í skólanum. Þau
þurfa ekki að aðlagast nýjum og
framandi aðstæðum sálfræðistof-
unnar og geta komið sér beint að
efninu.
Það sem kom mér einna helst á
óvart er kynjamismunur þeirra sem
hafa leitað til mín.
Samkvæmt rannsóknum eru karl-
menn í verulegum minnihluta þeirra
sem sækja sér aðstoð, en þegar um
ræðir fyrirspurnir um samtals-
meðferð á netinu eru
karlmenn í miklum
meirihluta, a.m.k. í
mínu tilviki. Þá er ég að
meina karlmenn á öll-
um aldri, frá 14-50 ára,
og ekki einungis á Ís-
landi heldur einnig víðs
vegar í Evrópu. Hugs-
anlega hefur loksins
tekist að opna ein-
hverjar dyr fyrir karl-
menn sem glíma við
andlegar áskoranir.
Ég tel að samtals-
meðferðir í gegnum netið geti leitt
til byltingar fyrir aðgengi margra
hópa og einstaklinga að nauðsyn-
legri þjónustu. Fyrir utan að ná til
karlmanna í auknum mæli geti að-
gengi að sálfræðiþjónustu á lands-
byggðinni breyst til muna.
Að auki hafa þessar samtals-
meðferðir gefið mér mikið, sem
áhugamanneskju um menningu og
fjölbreytt félagsstarf á landsbyggð-
inni.
Loks má nefna að það skemmir
alls ekki boðskapinn að hugbúnaður-
inn sem ég er að hrósa var stofnaður
af íslenskri konu, Þorbjörgu Helgu
Vigfúsdóttur.
Sjá hér:
https://karaconnect.com/
Ég vil mæla með þessari lausn
fyrir alla, unga sem aldraða, sem af
einhverjum ástæðum kjósa ekki eða
geta ekki sótt samtalsmeðferð á
stofu. Ávinningurinn er í meg-
inatriðum sá sami. Það sem skiptir
mestu máli er að geta leitað til fag-
aðila þegar þörfin knýr á og þökk sé
tækninni hefur það aldrei verið auð-
veldara.
Fyrirspurnir má senda hingað:
https://mindtherapy.dk/ kontakt/
Samtalsmeðferð
á netinu – bylting
fyrir ýmsa hópa
Eftir Þóreyju
Kristínu
Þórisdóttur
Þórey Kristín
Þórisdóttir
» Samtalsmeðferð á
netinu er að opna
dyr fyrir landsbyggðina,
ungu kynslóðina og
karlmenn
Höfundur er sálfræðingur og heilsu-
markþjálfi.
kristin@mindtherapy.dk
Veistu um góðan
rafvirkja?
FINNA.is