Morgunblaðið - 21.12.2019, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 21.12.2019, Blaðsíða 44
Ari Freyr Skúlason, landsliðsmaður í knattspyrnu, missti í gærkvöld af sínum fimmta leik í röð með belgíska félaginu Oostende þegar það mætti Mechelen í A-deildinni þar í landi. Ari meiddist í landsleik gegn Moldóvu í nóvember. Meiðslin tóku sig upp gegn Club Brugge skömmu síðar og hefur hann frá þeim tíma ekki spilað fjóra leiki í deildinni og einn í bikarkeppninni með liðinu. Hann hafði fram að því spilað fimmtán af fyrstu sextán leikjunum í deildinni, alla í byrjunarliðinu, og skorað tvö mörk. Ari sagði við Morgunblaðið í gær að hann hefði fengið stóra rifu á lærvöðva og slík meiðsli þýddu fjögurra til sex vikna fjarveru. „Ég tek ekki neina áhættu með því að spila síðasta leikinn fyrir frí,“ sagði Ari sem verður því ekki heldur með þegar Oostende sækir Char- leroi heim í deildinni 27. desember. Eftir það er rúmlega þriggja vikna vetr- arfrí í deildinni og Ari reiknar með því að vera klár í slaginn á ný 18. janúar en þá á Oostende heimaleik gegn Waasland-Beveren. vs@mbl.is Ari Freyr Skúlason Ari tilbúinn eftir vetrarfríið 44 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2019 Þýskaland Hoffenheim – Dortmund ......................... 2:1 Staða efstu liða: RB Leipzig 16 10 4 2 45:19 34 Mönchengladb. 16 11 1 4 33:18 34 Bayern M. 16 9 3 4 44:22 30 Dortmund 17 8 6 3 41:24 30 Schalke 16 8 5 3 27:19 29 Hoffenheim 17 8 3 6 25:28 27 Freiburg 16 7 4 5 25:21 25 Leverkusen 16 7 4 5 22:21 25 Ítalía Fiorentina – Roma ................................... 4:1 Staða efstu liða: Juventus 17 13 3 1 31:17 42 Inter Mílanó 16 12 3 1 32:14 39 Lazio 16 11 3 2 38:16 36 Roma 17 10 5 2 33:17 35 Cagliari 16 8 5 3 32:21 29 Atalanta 16 8 4 4 38:25 28 Belgía Mechelen – Oostende .............................. 1:0  Ari Freyr Skúlason lék ekki með Oost- ende vegna meiðsla. Lið hans er í 13. sæti af 16 liðum í deildinni. B-deild: Lommel – Beerschot ............................... 1:0  Kolbeinn Þórðarson var í byrjunarliði Lommel, skoraði sigurmarkið, og fór af velli í uppbótartíma. Frakkland B-deild: Grenoble – Rodez .................................... 2:1  Kristófer Ingi Kristinsson var ekki í leikmannahópi Grenoble. England B-deild: Middlesbrough – Stoke............................ 2:1 Staða efstu liða: WBA 22 14 7 1 45:23 49 Leeds 22 14 5 3 35:13 47 Preston 22 11 4 7 35:27 37 Brentford 22 11 3 8 33:17 36 Sheffield Wed. 22 10 6 6 33:20 36 Fulham 22 10 5 7 33:24 35 Bristol City 22 9 8 5 34:32 35 KNATTSPYRNA Enski boltinn á Síminn Sport Everton – Arsenal ............... (mbl.is) L12.30 Manchester City – Leicester............ L17.30 Watford – Manchester United............... S14 Tottenham – Chelsea......................... S16.30 UM HELGINA! HANDBOLTI Svíþjóð Ystad IF – Kristianstad ...................... 25:27  Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði 5 mörk fyrir Kristianstad og Teitur Örn Ein- arsson 3. Sävehof – IFK Ystad ............................24:22  Ágúst Elí Björgvinsson varði ekki skot í marki Sävehof. Alingsås – Varberg ............................. 24:25  Aron Dagur Pálsson skoraði ekki fyrir Alingsås. Þýskaland B-deild: Lübeck-Schwartau – Dormagen....... 28:32  Sigtryggur Daði Rúnarsson skoraði 3 mörk fyrir Lübeck-Schwartau. 1. deild karla Álftanes – Sindri................................. 101:82 Snæfell – Hamar................................. 84:113 Vestri – Skallagrímur ....................... frestað Staðan: Höttur 12 11 1 1040:928 22 Breiðablik 12 10 2 1207:991 20 Hamar 12 10 2 1181:1073 20 Vestri 10 6 4 871:775 12 Álftanes 12 5 7 983:1024 10 Selfoss 11 4 7 845:879 8 Snæfell 12 2 10 949:1150 4 Skallagrímur 11 2 9 921:1066 4 Sindri 10 1 9 808:919 2 Evrópudeildin Lyon – Alba Berlín .............................. 93:81  Martin Hermannsson skoraði 17 stig, gaf 5 stoðsendingar og tók 2 fráköst hjá Alba Berlín. NBA-deildin Milwaukee – LA Lakers .................. 111:104 Atlanta – Utah .................................. 106:111 San Antonio – Brooklyn................... 118:105 LA Clippers – Houston.................... 117:122 Efst í Austurdeild: Milwaukee 25/4, Boston 18/7, Miami 20/8, Toronto 19/8, Philadelphia 20/9, Indiana 19/9, Brooklyn 15/13, Orlando 12/16. Efst í Vesturdeild: LA Lakers 24/5, LA Clippers 21/9, Denver 18/8, Houston 19/9, Dallas 18/9, Utah 17/11, Oklahoma 13/14, Sacramento 12/15. KÖRFUBOLTI KÖRFUBOLTI Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Guðrún Ósk Ámundadóttir hefur náð góðum árangri með kvennalið Skallagríms í körfubolta í vetur, en hún var ráðin þjálfari liðsins fyrir tímabilið. Guðrún var spilandi aðstoðarþjálfari á síðasta tímabili, en er nú aðalþjálfari í meist- araflokki í fyrsta skipti. Skalla- grímur, sem vann aðeins sex leiki á öllu síðasta tímabili, situr í fjórða sæti Dominos-deildarinnar yfir há- tíðarnar með átta sigra í þrettán leikjum. Guðrún er uppalin hjá Skallagrími, en hefur einnig leikið með Haukum og KR. Hún við- urkennir að það séu ákveðin við- brigði að skórnir séu farnir á hill- una og að hún sé komin alfarið í þjálfun. Miklu stressaðri á hliðarlínunni „Þetta er svolítill mikill munur. Maður hefur minni stjórn á því sem gerist á vellinum, en ég hef verið aðstoðarþjálfari líka, svo ég vissi nokkurn veginn hvernig þetta yrði. Ég er miklu stressaðri á hlið- arlínunni en ég var nokkurn tím- ann á vellinum, sérstaklega í jöfn- um leikjum. Eftir leiki þá hugsa ég miklu meira hvað hefði mátt betur fara og hvað ég hefði getað gert öðruvísi. Það fór minna í gegnum hausinn á mér sem leikmaður. Það fer mun meiri tími í að undirbúa hvern leik fyrir sig. Það tekur tíma að skoða andstæðinginn og þetta er miklu meiri vinna en áð- ur,“ sagði Guðrún í samtali við Morgunblaðið. Ekkert gaman, enginn árangur Eins og gefur að skilja er Guð- rún ánægð með spilamennsku Skallagríms til þessa. Liðið tapaði tíu síðustu leikjum sínum á síðustu leiktíð og hafnaði í sjöunda sæti af átta liðum. Allt annað er að sjá til liðsins á þessu tímabili. „Ég er gríðarlega sátt með þetta og stolt af liðinu. Þetta eru skemmtilegar stelpur sem eru tilbúnar að leggja á sig. Það er mjög mikil leikgleði hjá okkur og númer 1, 2 og 3 er að hafa gaman af þessu og gera þetta saman. Liðsheildin er rosalega flott og ef þetta er ekki gaman nærðu engum árangri. Þegar sam- heldnin er góð og allir hafa gaman, uppskerum við eftir því,“ sagði Guðrún. Hún er virkilega ánægð með er- lenda leikmenn liðsins, sem hafa spilað vel. Danska landsliðskonan Emilie Hesseldal hefur slegið í gegn og þá hefur Keira Robinson frá Bandaríkjunum smellpassað inn í liðið. Hin danska Mathilde Colding-Poulsen leikur einnig með liðinu, sem og hin pólska Maja Michalska, en hún lék einnig með Borgnesingum á síðustu leiktíð. „Þær passa mjög vel inn í þetta og bara í samfélagið í heild, þær eru að vinna og leggja á sig. Þær gefa ótrúlega mikið og ég gæti ekki verið heppnari með leikmenn. Síðustu ár höfum við ekki verið mjög heppin með erlenda leik- menn, en í ár myndi ég segja að við höfum dottið í lukkupottinn.“ Systirin fær enga sérmeðferð Skallagrímur er með 16 stig og í fjórða sæti deildarinnar. Haukar eru í sætinu fyrir neðan með jafn- mörg stig og Keflavík og KR eru fyrir ofan með 20 stig, tveimur minna en topplið Vals. Munurinn á fimm efstu liðunum er því lítill. „Markmiðið er að komast í úr- slitakeppnina og það verður vænt- anlega barátta þangað til í síðasta leik. Það getur allt gerst og deildin er þannig núna að allir geta unnið alla og hún er jöfn. Það er mun skemmtilegra að hafa þetta svona spennandi,“ sagði Guðrún. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, yngri systir Guðrúnar, leikur með Skallagrími, en aðeins eitt ár skil- ur þær að. Systurnar gengu saman í raðir Skallagríms árið 2015, en þær voru einnig liðsfélagar hjá KR á þeirra fyrstu árum í meist- araflokki. Hafa þær verið liðs- félagar, mótherjar og nú í öðruvísi hlutverki. Sigrún segir sambandið þeirra ekki breytt. „Í rauninni ekki. Við höfum bæði spilað saman og hvor á móti annarri og við þekkjum hvor aðra mjög vel. Við erum bestu vinkonur og ég held að það hjálpi okkur frekar en eitthvað annað. Við kunnum vel hvor á aðra og við er- um í þessu saman. Ef það er ein- hver sem þekkir mig vel, þá er það hún og eins ég hana. Hún er samt bara hluti af liðinu og fær ekki öðruvísi meðferð en einhver annar. Við vitum það báðar og við stefnum að sama markmiðinu. Við hugsum ekki endilega að við séum systur þegar við erum í þessum hlutverkum.“ Guðrún er aðeins 32 ára og við- urkennir hún að það hafi komið sér á óvart að fá tækifæri til að taka við liðinu síðasta ágúst, en hún hafi þó haft augastað á starf- inu. „Þetta kom mér á óvart. Draum- urinn var að fá að taka einhvertím- ann við þessu liði en ég gerði mér ekki vonir um að taka við því svona fljótt. Ég er gríðarlega þakklát fyrir traustið. Stjórnin hefur verið frábær og umgjörðin hérna er virkilega góð. Ég hef ver- ið að þjálfa yngri flokkana síðustu ár og það hefur gengið mjög vel. Það eru bjartir tímar og margar efnilegar stelpur að koma upp.“ Mættu endilega vera fleiri Ólöf Helga Pálsdóttir er að gera fína hluti með Hauka og hefur liðið unnið fjóra leiki í röð og er með jafn mörg stig og Skallagrímur. Guðrún segir það vissulega góða þróun að tvær konur séu að þjálfa í efstu deild með góðum árangri. „Að mínu mati er það mjög gott. Það er t.d. aðeins einn kvendómari og það mættu endilega vera fleiri. Vonandi er þetta fyrsta skrefið til að fá fleiri konur upp. Kannski hefur verið einhver feimni eða hræðsla að taka þetta skref. Þetta er stór áskorun, en á sama tíma frábært tækifæri,“ sagði Guðrún Ósk.  Guðrún fékk óvænt drauma- starfið  Vill sjá fleiri konur starfa sem þjálfara Kannski hefur verið feimni eða hræðsla Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þjálfarinn Guðrún Ósk Ámundadóttir í leik með Skallagrími. Nú er hún komin í nýtt hlutverk sem þjálfari liðsins og fer vel af stað. Hilmar Snær Örvarsson úr Víkingi lýkur árinu 2019 á góðum nótum í skíðabrekkunum. Hilmar vann í gær til silfurverðlauna í svigi á Evr- ópumótaröð IPC en keppt var í St. Moritz. Hilmar var annar eftir fyrri ferðina þegar hann skíðaði á 46,67 sekúndum. Í seinni ferðinni fór hann niður brekkuna á 51,03 sek- úndum og staða hans breyttist ekki eftir fyrri ferðina. Hilmar undir- strikar þar með að hann er einn sá snjallasti í heimi í svigi í standandi flokki en í ársbyrjun sigraði hann á heimsbikarmóti í Zagreb. Hilmar á verð- launapalli í Sviss Ljósmynd/ifsport Fleygiferð Hilmar Snær Örv- arsson á mikilli ferð í brekkunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.