Morgunblaðið - 21.12.2019, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2019
Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is
Apótekið þitt
í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2
Afgreiðslutími:
9-18:30 virka daga
10-16:00 laugardaga
Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af
heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta.
Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á
persónulega þjónustu og hagstætt verð.
• Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur
• Frí heimsendingarþjónusta
Ævisaga Stefáns,
hreindýrabónda á Grænlandi
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Í svona húsnæði fara margir í gegn
og stoppa stutt. Mikið mæðir á hús-
næðinu og það þarf að endurnýja
það reglulega svo það fari nú ágæt-
lega um fólk, segir Þórhildur Haga-
lín,“ upplýsingafulltrúi hjá Útlend-
ingastofnun.
Síðustu vikur hefur verið unnið að
endurbótum á húsnæði umsækj-
enda um alþjóðlega vernd í Bæjar-
hrauni 16 í Hafnarfirði. Veggjalús
fannst í hluta húsnæðisins. Þórhild-
ur segir í samtali við Morgunblaðið
að eldhús, þvottahús, gluggar og
gólfefni hafi verið endurnýjuð, skipt
um húsögn og húsnæðið málað.
Verður húsnæðið tekið aftur í notk-
un á næstu dögum.
„Þetta húsnæði verður nú fyrsti
móttökustaður fyrir fjölskyldur,
pör, einstæðar konur og fylgdarlaus
ungmenni þegar þau koma inn í
kerfið. Útlendingastofnun er líka
með móttökumiðstöð í Bæjarhrauni
18 þar sem málin eru unnin, mót-
tökuteymi eru með aðsetur og við-
talstími er fyrir einstaklinga. Það er
þægilegt að hafa þetta nálægt hvað
öðru,“ segir Þórhildur.
Alls eru nú um sex hundruð ein-
staklingar í úrræðum á vegum Út-
lendingastofnunar. Stofnunin er
með samninga við þrjú sveitarfélög,
Reykjavík, Reykjanesbæ og Hafn-
arfjörð, um húsnæðisúrræði og
þjónustu fyrir umsækjendur um al-
þjóðlega vernd. Ríflega tvö hundruð
eru nú í úrræðum Reykjavíkurborg-
ar, rúmlega sjötíu í Reykjanesbæ og
um fimmtíu í Hafnarfirði. Auk þess
eru um 240 í úrræðum á vegum Út-
lendingastofnunar sjálfrar í sömu
sveitarfélögum.
Mikil fjölgun milli ára
Þórhildur segir að útlit sé fyrir að
svipaður fjöldi umsókna um alþjóð-
lega vernd berist í ár og í fyrra.
„Heildarfjöldinn er svipaður en
samsetning hópsins hefur breyst.
Umsóknum frá ríkjum sem við köll-
um örugg upprunaríki hefur fækkað
mikið. Þær eru nú um 15% af um-
sóknum en voru um 60% árið 2016.
En að sama skapi hefur fjölgað um-
sóknum frá ríkjum sem eru ekki
skilgreind örugg. Það endurspegl-
ast í fjölda veitinga. Nærri tvisvar
sinnum fleiri einstaklingar hafa
fengið vernd eða viðbótarvernd í ár
en í fyrra,“ segir Þórhildur en 160
fengu jákvæða niðurstöðu í fyrra
en 311 hafa fengið jákvæða nið-
urstöðu fyrstu ellefu mánuði árs-
ins.
Þessi nýja samsetning þýðir
nýjar áskoranir að sögn Þórhild-
ar. Málsmeðferðartími er sá sami
og í fyrra. Að jafnaði tekur 4-
10 daga að afgreiða for-
gangsmeðferð en meðal-
málsmeðferðartími
allra mála er 157 dagar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Endurbætur Húsnæðið í Bæjarhrauni verður fyrsti viðkomustaður fyrir fjölskyldur þegar þær koma hingað.
Móttökuhúsnæði fyrir
fjölskyldur endurbætt
Umsækjendur um alþjóðlega vernd fá inni í Hafnarfirði
Í yfirlýsingu á Facebook-síðu Aarke
á Íslandi sem flytur inn sódavatns-
tæki frá samnefndu vörumerki var
óánægju lýst með viðskiptahætti raf-
tækjaverslunarinnar Elko sem hefur
orðið sér úti um slík tæki „eftir
krókaleiðum“ og selt í versluninni,
að því er segir í yfirlýsingu félagsins.
Í henni segir að það sé gert í óþökk
bæði umboðsaðilans hér á landi, fjöl-
skyldufyrirtækisins Halba og fram-
leiðandans í Svíþjóð. „Okkur þykir
miður að sjá svona stórt og virðulegt
fyrirtæki stunda slíka viðskipta-
hætti,“ segir meðal annars.
„Móðurfyrirtækið Aarke harmar
það mjög að þetta hafi komið upp hér
á landi og til að koma til móts við
þessar aðstæður á litlum markaði
munum við bjóða upp á auka Aarke
PET flösku með seldum tækjum hjá
viðurkenndum endursöluaðilum á
Íslandi út desembermánuð,“ segir
enn frekar.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Gestur Hjaltason, framkvæmda-
stjóri Elko, að sér þyki tilburðir
fyrirtækisins hér á landi gamaldags.
„Að okkar mati er þetta nú bara
frjáls heimur. Viðskiptavinir leita
eftir vörum hjá okkur, við höfum
samband við þá og viljum kaupa af
þeim vörur og endurselja. Þeir neita
að selja okkur og okkur gengur illa
að fá vörur afhentar frá þeim. Við
leituðum því annað og útvegum
vörur löglega inn í landið, í óþökk
þeirra, að því er virðist,“ segir Gest-
ur.
„Í sjálfu sér er þetta bara liðin tíð.
Heimurinn er opinn og þú getur
fengið þetta í póstkröfu og á netinu.
Þetta eru fornaldarleg sjónarmið og
einokunartilburðir,“ segir Gestur
sem kveðst undrandi á því að um-
boðsaðilinn vilji ekki selja tækin í
einni stærstu verslun landsins.
„Sódastríð“ um
sódavatnstæki
Umboðsaðili segir Elko selja tæki í
sinni óþökk „Einokunartilburðir“
Deilur Sódavatnstækin frá Aarke
hafa verið til sölu í Elko.
Alls sóttu 774 um alþjóðlega
vernd á Íslandi fyrstu ellefu mán-
uði ársins. Flestir umsækjendur
eru frá Venesúela, 144 talsins,
og Írak, 128 talsins. Alls eru
þetta 35% umsækjenda.
Útlendingastofnun hefur tekið
1.028 ákvarðanir varðandi um-
sóknir um alþjóðleg vernd það
sem af er ári.
311 einstaklingum hefur verið
veitt vernd, eða 30% umsækj-
enda samanborið við 160 á sama
tíma í fyrra. Flestir sem hafa
fengið vernd koma frá Vene-
súela, 121, og Írak, 47
talsins. Alls dvelja nú
240 í húsnæði á veg-
um stofnunarinnar
og þiggja þjónustu.
360 manns dvelja í
húsnæði og þiggja
þjónustu hjá Reykja-
víkurborg,
Reykjanesbæ
og Hafnar-
fjarðarbæ.
Tekið 1.028
ákvarðanir
STOFNUNIN Í ÁR
Þórhildur
Hagalín