Morgunblaðið - 21.12.2019, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 21.12.2019, Qupperneq 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2019 VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þessi hugmynd er búin að vera í loftinu í nokkurn tíma niðri í Þjóð- leikhúsi. Þar hefur pappakassi geng- ið á milli fólks, en í honum voru öll ritverk Þorvaldar,“ segir Finnur Arnar Arnarson, leikstjóri, höf- undur og leik- myndahöfundur sýningar sem nefnist Engillinn og frumsýndur er í Kassanum í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Verkið byggist á verkum rithöfundarins, myndlistar- mannsins og kennarans Þorvaldar Þorsteins- sonar, sem féll frá langt fyrir aldur fram árið 2013, einungis 53 ára gam- all. Þorvaldur skildi eftir sig fjölda verka sem notið hafa mikillar hylli, skáldsögur, örleikrit, leikrit í fullri lengd og handrit fyrir sjónvarp og útvarp. Dótakassi fyrir leikhópinn „Kassinn endaði í fanginu á mér og mér tókst að setja saman ein- hverja beinagrind sem fólki þótti ástæða til að skoða betur. Svo þegar það var betur unnið þá var ákveðið að taka það til sýningar,“ segir Finn- ur og tekur fram að hann hafi fljót- lega langað að leikstýra sýningunni þar sem hann hafði mótað sjónræna útfærslu samhliða skrifunum. „Ég ákvað því að hoppa í djúpu laugina og spurði Ara [Matthíasson þjóðleik- hússtjóra] hvort hann treysti mér til að leikstýra þessu, sem hann gerði og það er mjög gaman,“ segir Finn- ur sem þreytir með uppfærslunni frumraun sína sem leikstjóri. Aðspurður segir Finnur að í megindráttum megi skilgreina sýninguna sem leikhús þó að mynd- listin verði einnig áberandi. „Það má kannski segja að þetta sé smá skrýt- ið leikhús. Það er ákveðið atriði sem tengir saman allra leiknu þættina,“ segir Finnur Arnar og bendir á að leiknu atriðin séu mislöng, allt frá tveimur upp í fimmtán mínútur. „Þetta er ákveðinn dótakassi fyrir leikarana sem fá að leika fullt af per- sónum og skipta margoft um gervi og búninga. Inni á milli leiknu atrið- anna og í kringum sýninguna leyn- ast vísanir í myndlistarverk Þor- valdar,“ segir Finnur og bendir sem dæmi á að uppi á þaki á Kassanum eru þrír hátalar. „Úr þeim hljómar upplestur á nöfnum skattgreiðenda á landinu og þeim þakkað sér- staklega fyrir þeirra framlag til menningar og lista,“ segir Finnur og tekur fram að sá gjörningur vísi í verk sem Þorvaldur sýndi í Finn- landi. „Við reynum þannig að koma ekki aðeins myndlist hans að í sýn- ingunni heldur einnig hugmynda- heimi hans sem fræðimanns. Síðustu æviár sín var hann orðinn mjög upp- tekinn af því hvernig við værum að ala börnin okkar upp og hvernig við værum að sinna menntakerfinu og okkur sem skapandi einstakling- um,“ segir Finnur og tekur fram að sýningin sé þannig alfarið unnin í anda Þorvaldar. Ég er með einvalalið „Ég er með einvalalið með mér í þessu ferli,“ segir Finnur og vísar þar til Grétu Kristínar Ómarsdóttur dramatúrgs sýningarinnar, Þór- unnar Maríu Jónsdóttur sem hann- ar búninga, Ólafs Ágústs Stefáns- sonar sem hannar lýsingu, Péturs Ben sem semur tónlistina og leik- hópsins sem skipaður er Arndísi Hrönn Egilsdóttur, Atla Rafni Sig- urðarsyni, Baldri Trausta Hreins- syni, Eggerti Þorleifssyni, Guðrúnu S. Gísladóttur og Ilmi Kristjáns- dóttur. „Eggert var mikill vinur Þorvaldar og Þorvaldur skrifaði mörg sín hlutverk beint upp í Egg- ert. Það lá því beint við að leita til hans og hann var mjög til í að vera með – sem og aðrir í hópnum. Öll þekktu þau Þorvald og langaði að vera með sem skiptir auðvitað máli.“ Spurður um sjónræna umgjörð sýningarinnar segist Finnur hafa verið innblásinn af verki Þorvaldar sem hann sýndi í Listasafni Reykja- víkur og hét „Tapað/fundið“. „Þar sýndi hann þá hluti sem fundist höfðu á víðavangi og fólk hafði ekki vitjað til lögreglunnar. Þetta var ótrúlegt samansafn af hlutum. Í tengslum við það verk varð sú hug- mynd til að fara í samstarf við Sorpu. Í seinasta mánuði var 20 feta söfnunargámi komið fyrir í Sorpu Ánanaustum og stútfylltist hann á einni helgi,“ segir Finnur og tekur fram að þau hafi ekki verið að leita að neinu sérstöku. Konfektmolasýning „Okkur langaði bara til að fá per- sónulega, hversdagslega og verald- lega muni sem fólk hefur eignast, notið, geymt, gleymt og losað sig við og gefa þeim nýtt hlutverk á leik- sviðinu. Verkið fjallar um raunveru- leikann og þessir hlutir sem fólk hefur losað sig við eru bara ákveðin birtingarmynd af raunveruleik- anum,“ segir Finnur og tekur fram að allir munir á sviðinu verði til sölu. „Ef áhorfendur sjá eitthvað sem þá langar í þá er hægt að kaupa gripinn og fá hann afhentan eftir síðustu sýningu,“ segir Finnur og tekur fram að ágóðinn rennur til Kven- félagssambands Íslands. „Ýmis kvenfélög eru í samstarfi við okkur og munu konur úr þeim félögum halda kökubasar á öllum sýningum þar sem ágóðinn af sölunni rennur til góðgerðamála,“ segir Finnur og bendir á að kökubasarinn sé bein vísun í verk eftir Þorvald sem hann sýndi á Listasafninu á Akureyri. Spurður hvort sýningin verði kon- fektmolakassi fyrir þá sem þekktu vel til verka Þorvaldar svarar Finn- ur því játandi. „Já, það má hiklaust lýsa þessu sem konfektmolasýningu. Ég ímynda mér samt að myndlistin sé meira dulin en ritverkin,“ segir Finnur og bendir á að Vasaleikhúsið sé fyrirferðarmikið í verkinu. „Sú snilld sem flutt var í útvarpinu og margir þekkja. Vasaleikhúsið, líkt og mörg verka hans, eru í raun hversdagslegur absúrdismi þar sem hin einkennilegustu samtöl eiga sér stað,“ segir Finnur og bendir á að vinnan með verk Þorvaldar hafi sjálfkrafa virkjað skynjunina. Sköpunarferlið ævintýri „Maður þarf ekki annað en fara í útiklefann í Vesturbæjarlauginni til að heyra nákvæmlega svona samtöl. Þessi hversdagsleiki er absúrd og stórskrýtinn, sem er mjög áhuga- vert. Í tengslum við sýninguna stört- uðum við það sem við köllum Hvers- dagsleikhúsið,“ segir Finnur og vísar þar til listgjörnings þar sem tíu sætum úr Þjóðleikhúsinu var komið fyrir á völdum stöðum hringinn um landið. „Þar er hugmyndin að hvers- dagslegt rými verður leiksvið. Fólk að störfum og gestir og gangandi í hversdagslegum erindagjörðum verði leikarar og þeim sem sest í sætið býðst að verða áhorfandi og vonandi sjá hversdagsleikann í öðru ljósi,“ segir Finnur og tekur fram að sköpunarferlið allt hafi verið mikið ævintýri. Aðspurður segir Finnur húmor Þorvaldar skila sér vel í sýn- ingunni. „Sá húmor liggur í text- anum og skilar sér því eðlilega inn á leiksviðið. Þegar reykkafari ryðst inn í brennandi hús til að bjarga konu og samtalið endar á umræðum um forvarnarstarf. Þetta er svo skemmtilega klikkað að ég get ekki ímyndað mér annað en að þetta kitli einhverjar hláturtaugar hjá flest- um.“ Snilldin í verkum Þorvaldar Ekki er hægt að sleppa Finni án þess að spyrja hvort hann hafi leitt hugann að því hvernig Þorvaldi hefði litist á útkomuna hefði hann getað mætt á frumsýninguna í kvöld. „Ég held hann mæti á frumsýninguna. Ég held að hann sé búinn að vera á sveimi innan um dótið okkar síðustu vikur. Ég ætla því að leyfa mér að trúa því að hann verði á þessari frumsýningu. Ég þekkti hann ágæt- lega og ég held að hann hefði orðið hrifinn af þessari leið sem við förum. Við erum ekki beint að minnast hans með dramatískum hætti heldur frek- ar að vinna með verkin hans og benda fólki á snilldina sem þar býr. Það er engin helgislepja í gangi eða óttablandin virðing borin fyrir efn- inu. Ég leyfi mér að trúa að hann hefði orðið stoltur af þessari sýn- ingu,“ segir Finnur sem kynntist Þorvaldi fljótlega eftir að hann fór að starfa sem myndlistarmaður. Orða þarf hið augljósa „Ég sýndi nokkrum sinnum með honum á samsýningum og þekkti hann persónulega,“ segir Finnur og bætir við: „Hann hafði alveg ótrú- lega mikla og sterka útgeislun. Þeg- ar ég fór að kenna myndlist og fékk hann til að koma og tala við nemend- urna hafði hann ótrúlegan hæfileika til að segja hlutina á skiljanlegan hátt. Eins og hann sagði: „Stundum þarf bara að orða hið augljósa.“ Þannig opnuðust oft gáttir í huga fólks yfir því sem hann sagði. Hann var mikil fyrirmynd mjög margra,“ segir Finnur og bendir á að boð- skapur Þorvaldar og sýningarinnar eigi brýnt erindi nú á tímum. „En sýningin fjallar um það að þora að vera maður sjálfur.“ „Hversdagslegur absúrdismi“  Engillinn nefnist leiksýning byggð á textum og myndlist eftir Þorvald Þorsteinsson sem Þjóðleik- húsið frumsýnir í Kassanum í kvöld  Finnur Arnar Arnarson þreytir frumraun sína sem leikstjóri Finnur Arnar Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Fjölhæfni Þorvaldur Þorsteinsson. Ljósmynd/Saga Sig Vinur „Eggert var mikill vinur Þorvaldar og Þorvaldur skrifaði mörg sín hlutverk beint upp í Eggert,“ segir Finnur Arnar Arnarson um listamanninn Þorvald Þorsteinsson og Eggert Þorleifsson leikara sem leikur í Englinum. eignasala@eignasala.is Óskum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.