Morgunblaðið - 21.12.2019, Blaðsíða 45
JÚDÓ
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Sveinbjörn Jun Iura, júdókappi úr
Ármanni, er einn þeirra Íslend-
inga sem eiga möguleika á að
komast á Ólympíuleikana í Japan
sem haldnir verða 24. júlí til 9.
ágúst á næsta ári. Sveinbjörn
vinnur að því hörðum höndum og
þarf að beita alls kyns (júdó)
brögðum á mótum erlendis á kom-
andi ári til að ná nægilega góðri
stöðu á heims-
listanum. Staða
hans þar með
vorinu mun
skera úr um
hvort honum
takist ætl-
unarverkið. Ekki
liggur fyrir
hversu hátt hann
þarf að ná þar
sem kvóti á
þjóðir á heims-
álfur spilar inn í niðurstöðuna á
endanum.
„Ég er að ég held í 67. sæti á
heimslistanum eins og er. Staðan
hefði mátt vera betri en er ágæt.
Um leið og manni gengur vel í
einu stóru móti þá getur maður
rokið upp listann. Á næsta ári á ég
eftir að keppa í átta mótum víða
um heim en flest verða þó í Evr-
ópu. Í byrjun janúar mun ég
keppa á heimsbikarmóti í Tel Aviv
í Ísrael og verður það fyrsta mót
ársins hjá mér. Í febrúar er eitt
stærsta mót í heiminum á dagskrá
en það er haldið í París og þar
keppa bestu júdómenn í heim-
inum. Áhuginn á júdó er mikill í
Frakklandi og það myndast svaka-
leg stemning á þessu móti. Ég hef
keppt tvisvar á þessu móti og það
er virkilega skemmtilegt. Ég hef
komist í 16-manna úrslit og það
var alveg geggjað. Sérstaklega
þegar maður er Íslendingur því þá
býst fólk ekki við því,“ sagði
Sveinbjörn þegar Morgunblaðið
ræddi við hann í gær. Á hann
einnig eftir að fara á stórt mót í
Þýskalandi og í byrjun maí verður
Evrópumeistaramótið í Prag. Að
EM loknu verða væntanlega
komnar sterkar vísbendingar um
hvort Sveinbjörn komist inn á
leikana í Tókýó.
Verðlaunin veita sjálfstraust
Sveinbjörn vann til brons-
verðlauna á heimsbikarmóti í
Hong Kong í lok nóvember sem
gefur honum aukið sjálfstraust
fyrir átökin sem framundan eru.
„Já klárlega. Ég þarf að við-
halda bardagaandanum og sjálfs-
traustinu. Hungrið þarf að vera til
staðar og þetta var bara forréttur
í þeim skilningi. Þetta var í fyrsta
skipti sem ég náði á pall í svo
sterku móti. Ég hafði orðið Norð-
urlandameistari og náð árangri á
minni alþjóðlegum mótum. En
þetta er minn besti árangur til
þessa en minn þyngdarflokkur, -81
kg., er vinsæll og mikil samkeppni
í þeim flokki á alþjóðlegum mót-
um,“ sagði Sveinbjörn og hann
segir mikla spennu skapast í
kringum fyrstu glímuna á slíkum
mótum. Vinni menn hana, og kom-
ast þar af leiðandi áfram, eru
komin stig í hús sem gilda til
heimslistans. Tapist hins vegar
fyrsta glíman er þátttöku á mótinu
lokið og fyrirkomulagið er því ansi
grimmt. Taugarnar eru því þandar
í fyrstu glímu á stærstu mótunum.
„Það getur allt gerst á þessum
mótum hvað varðar óvænt úrslit
því maður hefur séð ótrúlega hluti
gerast. Takist manni að vinna
fyrstu glímuna þá finnst manni að
maður geti unnið alla. Fyrsta
glíman er mest stressandi enda
mikið í húfi. Þar er mesta áskor-
unin og viss múr sem þarf að
brjóta. Þú getur ímyndað þér
pressuna sem er á íslenskum
keppanda sem er búinn að fljúga
til Ástralíu eða Asíu. Ef þú tapar
fyrstu glímu ertu úr leik og ef ein-
beitingin er ekki til staðar gæti
andstæðingurinn þess vegna skellt
þér eftir nokkrar sekúndur.“
Japanska taugin til staðar
Eins og fram hefur komið væri
draumur fyrir Sveinbjörn að
keppa einmitt á þessum Ólympíu-
leikum sem um ræðir. Föðurætt
hans er frá Japan og sjálfur bjó
hann þar fyrstu ár ævinnar. Fað-
irinn, Yoshihiko Iura, er auk þess
þjálfari Sveinbjörns og yfirþjálfari
hjá Ármanni. Sveinbjörn hefur
farið til Japan til æfinga og gerði
það einnig á þessu ári sem senn er
á enda.
„Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem ég fer í æfingabúðir í Japan
og ég veit að hverju ég geng. Þar
eru þvílíkt harðar æfingar, tvisvar
á dag, sex daga vikunnar. Þar er
ég að æfa með mönnum sem eru í
háskóla og eru 18-22 ára. Ég er
orðinn það gamall að ég þarf að
æfa skynsamlega til að líkaminn
haldi þetta út. Menn taka þessu af
mikilli alvöru og eini gallinn er
kannski að gleðin mætti vera
meiri. Mér finnst skipta máli að ná
jafnvægi milli alvörunnar og létt-
leikans.
Þeir eru eins og þeir séu að
undirbúa sig fyrir stríð. En þetta
er þeirra þjóðaríþrótt og þeir eru
bestir í íþróttinni þannig að maður
ber virðingu fyrir þeirra vinnu-
brögðum. Enda er ég hálfur Jap-
ani og þekki menninguna. Þess
vegna eru Ólympíuleikarnir í Tók-
ýó mikið mál fyrir okkur feðgana.
Það væri hrikalega skemmtilegt ef
maður fengi tækifæri til að keppa
þar,“ sagði Sveinbjörn Iura í sam-
tali við Morgunblaðið.
Sveinbjörn bragðaði á
forréttinum í Hong Kong
Júdókappinn Sveinbjörn Iura á ferð og flugi næstu mánuðina
Ljósmynd/JSÍ
Tekist á Sveinbjörn Iura mun glíma við ýmsa erlenda andstæðinga á alþjóðlegum mótum eftir áramótin.
Sveinbjörn
Iura
Sveinbjörn Jun Iura
» Fæddist 1. september 1989.
» Keppir fyrir Ármann.
» Reynir að vinna sig inn í
júdókeppni Ólympíuleikanna
sem fram fara í Japan næsta
sumar.
» Er hálfur Japani í föðurætt-
ina og hefur því lengi haft
augastað á leikunum í Tókýó.
» Náði sínum besta árangri til
þessa á alþjóðavettvangi í lok
nóvember þegar hann vann til
bronsverðlauna á heimsbik-
armóti í Hong Kong.
ÍÞRÓTTIR 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2019
Ég held að úrvalsdeild karla í
körfubolta, þessi sem kennd er
við pítsur, hafi sjaldan eða aldrei
verið betri en á yfirstandandi
keppnistímabili.
Þá á ég við gæði körfuboltans,
styrk leikmannanna sem spila í
deildinni og svo spennuna sem
hefur verið í vetur og virðist ætla
að halda áfram.
Auðvitað gæti vel farið svo að
KR-ingar yrðu bestir þegar á
reynir í vor, eða þá að gríðarlega
vel mannað Stjörnuliðið næði
loks að ýta þeim af stalli.
Þetta er þó engan veginn
sjálfgefið, níu af tólf liðum deild-
arinnar virðast geta unnið hvert
annað nánast hvenær sem er. Nú
eru boðaðar talsverðar leik-
mannabreytingar áður en keppni
hefst á ný eftir áramótin, mörg
lið munu skipta um erlenda leik-
menn sem á eftir að hafa áhrif á
seinni hluta mótsins.
En eins og það hefur verið
áhugavert að fylgjast með deild-
inni undanfarin misseri þá sakna
ég þess að við fáum ekki að sjá
betur hvar íslensku liðin standa í
samanburði við nágrannaþjóðir.
Íslensku liðin taka ekki þátt
í Evrópumótunum og það er mik-
il synd. Auðvitað kemur margt
til, það er einfaldlega erfitt að fá
keppnisrétt og Evrópukeppni
hefur lítið annað en kostnað í för
með sér. Því miður.
Íslensk lið spiluðu oft Evr-
ópuleiki á árum áður. KR-ingar
fyrstir þegar þeir léku við Alvik
frá Svíþjóð 1965 og við Evr-
ópumeistarana Simmenthal Míl-
anó frá Ítalíu tveimur árum síðar.
Ég man eftir viðureignum ÍR
við Real Madrid á áttunda ára-
tugnum og Íþróttafélag stúd-
enta, sem varð bikarmeistari
1978, mætti Barcelona. Synd að
þetta sé ekki hægt í dag.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Spánverjinn Mi-
kel Arteta tekur
formlega við sem
knattspyrnu-
stjóri Arsenal á
morgun, sunnu-
dag, og fylgist
því með við-
ureign liðsins við
sitt gamla félag
Everton úr stúk-
unni á Goodison
Park í dag. Liðin mætast þar í
fyrsta leik helgarinnar í ensku úr-
valsdeildinni klukkan 12.30.
Freddie Ljungberg stýrir Arsen-
al í leiknum eins og hann hefur gert
síðan Unai Emery var sagt upp
störfum í lok nóvember.
Arteta er ráðinn til hálfs fjórða
árs, eða til loka tímabilsins 2023, og
er kominn til Arsenal á ný eftir
rúmlega þriggja ára fjarveru. Hann
lék með liðinu frá 2011 til 2016,
kom þá frá Everton, en hefur síð-
ustu ár verið aðstoðarstjóri Pep
Guardiola hjá Manchester City.
Hann er reyndar kallaður „yf-
irþjálfari“ af hálfu Arsenal og því
er ekki ljóst hversu mikið hann
mun hafa að segja varðandi leik-
mannamál félagsins. Arteta tekur
við Arsenal í 10. sæti úrvalsdeild-
arinnar eftir mjög slæman kafla
undanfarnar vikur. vs@mbl.is
Áhorfandi í
dag en tekur
við á morgun
Mikel
Arteta
Martin Hermannsson, landsliðs-
maður í körfubolta, átti afar góðan
leik með þýska liðinu Alba Berlín,
þrátt fyrir 81:93-tap á útivelli gegn
Frökkunum í Lyon-Villeurbanne í
Evrópudeildinni, sterkustu keppni
álfunnar. Martin var stigahæstur í
sínu liði með 17 stig og gaf hann
einnig flestar stoðsendingar, eða
fimm. Þá tók hann tvö fráköst. Alba
hefur átt í erfiðleikum í keppninni
upp á síðkastið og er liðið búið að
tapa fjórum leikjum í röð. Martin
og félagar eru í 16. sæti af 18 liðum
með fjóra sigra og ellefu töp.
Flest stig og
stoðsendingar
Ljósmynd/EuroLeague
Bestur Martin Hermannsson
var bestur hjá Alba Berlín.
Ágúst Elí Björgvinsson, markvörð-
ur sænsku meistaranna Sävehof og
íslenska landsliðsins í handknatt-
leik, yfirgefur félagið að þessu
keppnistímabili loknu. Frá þessu
var skýrt á vef Sävehof í gær og
sagt að niðurstaða af viðræðum fé-
lagsins við Ágúst hefði orðið sú að
hann framlengi ekki samning sinn
sem rennur út í vor. Hann ætli að
reyna fyrir sér annars staðar á
næsta tímabili. Ágúst kom til Säve-
hof frá FH sumarið 2018 og átti
stóran þátt í sigri liðsins í úr-
slitakeppninni í Svíþjóð síðasta vor.
Ágúst er á förum
frá Sävehof
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Breytingar Ágúst Elí Björgvinsson
fer frá Sävehof eftir tímabilið.