Morgunblaðið - 21.12.2019, Side 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2019
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum
nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2019 Ford F-350 Lariat Sport
Litur: Magnetic/ Svartur að innan.
6,7L Diesel ,450 Hö, 925 ft of torque
Lariat með Sport pakka, Ultimate pakka , up-
phituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart
og trappa í hlera, Driver alert og distronic,
Bang Olufssen hljómkerfi, 360 myndavél.
VERÐ
10.129.000 m.vsk
2019 Ram Limited 3500 35”
Nýtt útlit 2019! Litur: Granite Crystal
Nýr 6,7L Cummins Turbo Diesel, 400 hö,
togar 1000 pund! Aisin sjálfskipting, upphi-
tanleg og loftkæld sæti,
hiti í stýri, sóllúga, nýr towing technology
pakki. 35” dekk.
VERÐ
11.395.000 m.vsk
2019 Ford F-150 Lariat Sport
Litur: Svartur, svartur að innan.
FX4 offroad-pakki, Sport-pakki,Bakkmyn-
davél, Bang & Olufsen hátalarakerfi, hiti í
öllum sætum, hiti í stýri, fjarstart, o. fl.
3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra, 375 hestöfl
470 lb-ft of torque
VERÐ
12.770.000 m.vsk
2019 Ford F-150 Lariat
Litur: Platinumhvítur, svartur að innan.
FX4 offroad-pakki, Bakkmyndavél, Bang &
Olufsen hátalarakerfi, hiti í öllum sætum,
hiti í stýri, fjarstart, o. fl. 3,5 L Ecoboost (V6),
10-gíra, 375 hestöfl
470 lb-ft of torque
VERÐ
12.770.000 m.vsk
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég er farinn að hallast að þvíað það séu bara tveir kostirí stöðunni þegar kemur að
jólaplötum. Annað hvort eru þær
góðar eða ekki, annað hvort nærðu
landi stemningslega eða þér er skol-
að út á hafsauga aftur. Því að hver
nennir að hlusta á sæmilega jóla-
plötu? Þegar ég hugsa um það eru
stemningsvænt-
ingar okkar fyrir
þessari tíð það
miklar, að plöt-
urnar verða bara
að ná upp í þessa
nánast óraunhæfu
staðla sem við er-
um búin að setja. Ef þær eru
hálfdrættingar, eru þær engir
drættingar.
Sem leiðir að því að hér sting
ég glaður niður penna um plötu,
sem er nýtt tillegg í þessa flóru. Þá
flóru, sem tengir fast og vel við jóla-
andann og allar þær hugmyndir
sem við höfum um hann. Hjörtun
okkar jóla, eftir þær Marínu Ósk og
Stínu Ágústs, er þannig að maður
eiginlega finnur fyrir dökkbrúnum,
skandinavískum við þegar maður
hlustar. Lykt af bökuðum eplum og
greni flæðir úr hátölurunum. Jóla-
lög frá Svíþjóð, Finnlandi, Noregi,
Danmörku og Íslandi, þessu er flétt-
að saman við djassútsetningar
gítarleikarans Mikaels Mána Ás-
Ilmandi ljúf jólastemning
Stemning Marína Ósk og Stína Ágústs fara alla leið með jólastemninguna.
mundssonar og útkoman glæsilegt
jafnvægi djassstemma og þjóðlaga-
keims. Með honum eru þeir Þor-
grímur Jónsson (kontrabassi) og
Matthías MD Hemstock (trommur)
og undirleikur allur hinn glæstasti.
Svalur, pínu úti á kanti og í fullkom-
inni fylgd við raddir þeirra Marínu
og Stínu en þær semja svo íslenska
texta við lögin.
Eitt af því fjölmarga sem hress-
ir við plötuna er efnisvalið. Það er
nefnilega nóg af listamönnum sem
gerast vesturfarar þegar kemur að
þessum efnum. Veiða upp upp lög
sem Nat King Cole, Bing Crosby og
fleiri hafa gert sígild og allt gott
með það en sá markaður er um leið
nokkuð mettaður. Rými til að koma
manni á óvart eða valda því að eyr-
un sperrist er afar takmarkað. Að
fara austur, þ.e. til hinna landanna á
Norðurlöndum, hreinsar upp sviðið
ef svo má segja, og sá skýri rammi
sem við höfum hér er einn af þátt-
unum sem útskýra það hversu vel
platan er lukkuð. Það er meira en að
segja það að útbúa vel heppnað verk
af þessum toga, verk sem stenst tím-
ans tönn og verður sígilt eftir því
sem frá líður. Þrjú á palli eiga eina
svona (hin stórkostlega Hátíð fer að
höndum ein) og nýlega höfum við
séð plötur eins og Majones jól (Bogo-
mil Font og Stórsveit Samúels J.
Samúelssonar) og Nú stendur mikið
til (Sigurður Guðmundsson og Mem-
físmafían). Ég er vissulega í ham
þegar ég skrifa þetta, en þessi plata
gæti mögulega náð þessum árangri.
Lykillinn að plötunni er nefni-
lega stemningin, fyrst og síðast,
fremur en einstök lög. Merkilegt
hvað þessi lifandi andi næst vel
fram, en platan var tekin upp sem á
tónleikum væri, allir í sama her-
bergi og bara talið í. Það er eins og
þetta ágæta fólk standi inni í stofu
hjá manni. Hljóðfæraleikararnir
leyfa sér að fara á hressilegt
hlemmiskeið á völdum köflum og
allir þessir útúrdúrar virka, eru
passandi. T.d. í „Leppalúðasaga“,
þar sem Mikael tekur allsvakalegt
gítarsóló undir restina, áður en þær
stöllur detta inn í samsöng sem er í
senn gáskafullur og stuðvænn.
Snilld! Tekist er á við sígild lög eins
og „Úti er alltaf að snjóa“ og „Jóla-
kötturinn“ en einnig eru hér lög
sem ég þekki minna. Allt er þó með
sama brag og rennslið út plötuna er
fumlaust. Verðug viðbót í jólaplötu-
galleríið og vel að verki staðið!
»Maður eiginlegafinnur fyrir dökk-
brúnum, skandinav-
ískum við þegar maður
hlustar. Lykt af bök-
uðum eplum og greni
flæðir úr hátölurunum.
Hjörtun okkar jóla
er ný jólaplata eftir
söngkonurnar Marínu
Ósk og Stínu Ágústs.
Pistilritari sá jólasæng
sína upp reidda og
djúprýndi gripinn sem
er með eindæmum vel
heppnaður.
Barnabækur eftir GunnarHelgason hafa slegið ígegn undanfarin ár og ekkiað ástæðulausu. Hann hef-
ur nú sagt skilið við bækur um mis-
klikkaða fjölskyldumeðlimi og fót-
boltaliðið Fálkana og í nýjustu bók
sinni, Draumaþjófnum, fer hann á
nýjar slóðir: rottuslóðir.
Í Draumaþjófn-
um segir af rottu-
prinsessunni
Eyrnastóru Að-
albarni Gull-
fallegu Rottudís,
eða Eyrdísi, sem
yfirgefur heima-
slóðir sínar í
Hafnarlandi í
miklu tilfinninga-
uppnámi eftir að hafa orðið vitni að
því að móðir hennar, rottuforinginn,
lét kasta besta vini Eyrdísar fyrir sel,
eitt hættulegasta dýr heims í augum
Hafnarrottu. Eyrdís heldur því inn í
borgina, en þaðan hefur engin Hafn-
arrotta sloppið lifandi, allavega eftir
því sem íbúar Hafnarlands best vita,
en lesendur geta jafnvel velt því fyrir
sér hvort það sé önnur ástæða fyrir
því að rotturnar snúa ekki til baka.
Sagan af Eyrdísi og rottunum sem
verða á vegi hennar er nefnilega ekki
aðeins bráðskemmtileg og snilld-
arlega skrifuð, heldur er hún einnig
eins konar ádeila á samfélagið, stétta-
skiptingu og málefni flóttafólks.
Hafnarland er þannig einhvers
konar distópía þar sem stéttaskipt-
ing, röð og regla og foringjadýrkun er
gríðarleg. Verstu óvinir rottanna í
Hafnarlandi, fyrir utan rándýr sem
þeim stafar lífshætta af, eru Bátarott-
urnar „sem voru stórhættulegar og
gátu eyðilagt Samfélagið með því að
éta allan matinn eða eitthvað“. Þegar
Eyrdís heldur inn í borg óttans kemst
hún þó að ýmsu nytsamlegu um aðrar
tegundir rotta, eins og því að þó að
ein rotta af einhverri tegund sé
grimm þá þýði það ekki að allar rott-
ur af sömu tegund séu það, og að
flestar séu þær bara rottur eins og
aðrar rottur sem elska börnin sín og
vilja ekki annað en að lifa og komast
af í hörðum heimi.
Hugmyndin um fyrirmyndarríkið
er einnig sterk í sögunni af Drauma-
þjófnum, en Sæluríkið, ríki rusla-
haugsrottanna þar sem allir eru jafn-
ir, gegnir því hlutverki í sögunni. Þar
er leiðtoginn kvenkyns og í stað þess
að stjórna öllu með harðri hendi, eins
og Skögultönn gerir í distópísku
Hafnarlandinu, er það hlutverk hans
að sjá til þess að öllum líði vel, og
hann sér jafnvel sjálfur um þá allra
veikustu í samfélaginu, en það er
kannski einmitt sá eiginleiki sem leið-
togar framtíðarinnar þurfa að hafa ef
takast á að snúa þeirri þróun við sem
heimurinn horfir fram á í dag.
En nóg af samfélagslegum ádeilu,
lesendur þurfa ekkert að óttast því
henni er pakkað í bráðskemmtilegan
og spennandi búning. Gunnar segir
einstaklega skemmtilega frá ævin-
týrum rottanna og persónurnar bera
t.d. mjög skemmtileg, rottuleg nöfn á
borð við Eyrnastór, Skögultönn,
Naggeir, og í persónulegu uppáhaldi
hjá undirritaðri: Halaldur, til marks
við óvenjulega langan hala. Þá hafa
ýmis mannleg hugtök og upphrópanir
verið aðlöguð rottum eins og þrerott-
ungar (þremenningar) og Naga sé lof
(Guði sé lof).
Draumaþjófurinn gefur fyrri bók-
um Gunnars ekkert eftir og er þá
jafnvel heldur dregið úr. Stóra spurn-
ingin er helst hvort lesendur fá fram-
hald á söguna um Eyrdísi og hinar
rotturnar í hinu nýja Draumaríki.
Persónulega myndi ég til dæmis
gjarnan vilja komast að því hvort fað-
ir Eyrdísar hafi raunverulega ekki
sloppið lifandi frá borginni.
Af rottum og fyrirmyndarríkinu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Draumaþjófurinn Gefur fyrri bókum Gunnars ekkert eftir og er þá jafnvel heldur dregið úr, að mati rýnis.
Barnabók
Draumaþjófurinn bbbbb
Eftir Gunnar Helgason
Mál og menning, 2019. Innb. 207 bls.
ÞORGERÐUR ANNA
GUNNARSDÓTTIR
BÆKUR