Morgunblaðið - 21.12.2019, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2019
Undirföt
Náttföt
Náttkjólar
Sloppar
Opið
alla daga
til jóla
Glæsilegar
jólagjafir
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði
miðsvæðis á
höfuðborgar-
svæðinu.
Á reitnum eru
nú átta einbýlis-
húsalóðir með 12
íbúðum. Ef
áformin ganga
eftir gætu hins
vegar orðið um
180 íbúðir á reitn-
um. Þá verða þar
254 bílastæði að meðtöldum gesta-
stæðum. Flest bílastæðin verða í bíla-
kjallara.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri
Kópavogs, segir að í þessu tilfelli hafi
tiltekinn aðili farið í uppkaup á ein-
býlishúsum án vitneskju bæjarins
„og án þess að nokkur vilyrði hafi
verið gefin um nokkurn skapaðan
hlut af hendi bæjarins“.
Mögulega horft til þéttingar
„Í rauninni fer hann í uppkaupin
áður en hann ræðir eitt aukatekið orð
við okkur, hann heykist síðan á verk-
efninu og nýr aðili tekur það yfir. Það
er rætt um þéttingu byggðar í svæð-
is- og aðalskipulagi bæjarins og um
betri nýtingu lands. Mögulega hefur
viðkomandi aðili horft til þess. Þá er
óhætt að fullyrða að verndunargildi
húsanna var mjög takmarkað. Mörg
húsin voru í slæmu ástandi. Það hefur
þá legið fyrir að ráðast hefði þurft í
umtalsverðan kostnað í mörgum
þeirra til að taka þau í gegn.“
Spurður um aðdragandann segir
Ármann að uppkaupin hafi hafist
fyrir þremur til fjórum árum.
„Nú er þetta komið í ferli. Málið er
búið að fá forkynningu og á leið í aug-
lýsingu. Viðkomandi sendi inn erindi í
skipulagsráð að lausn fyrir blettinn
sem er að mörgu leyti mjög vel út-
færð og tekur að einhverju marki til-
lit til byggðar sem fyrir er. Tillagan
er að mörgu leyti hófleg miðað við
margt sem maður hefur séð,“ segir
Ármann. Húsin verði lægst til suðurs
en hæst til norðurs.
Ármann bendir svo á að viðkom-
andi aðili eigi líka öll húsin norðan-
megin á Háveg, norðan við fyrir-
hugaðan þéttingarreit.
Raunar eiga fjárfestarnir fleiri lóð-
ir eins og sýnt er hér á næstu síðu.
Það einkennir margar einbýlis-
húsalóðirnar að garðarnir eru stórir
og landnýtingin takmörkuð. Það er í
takt við tíðaranda þess tíma.
Hverfið er gamalt og má nefna að
húsin við Skólatröð 2-8 voru byggð á
fyrri hluta sjötta áratugarins.
„Reiturinn er á milli tveggja skóla
og hentar að mörgu leyti mjög vel til
þéttingar byggðar m.t.t. skóla og al-
menningssamgangna, enda kemur
borgarlínan til með að liggja a.m.k.
upp í Hamraborg og hugsanlega þar
fram hjá líka,“ segir Ármann.
Teikning/T.ark arkitektar/Úr tillögu að deiliskipulagi Traðarreits-austur
Traðarreitur-eystri Menntaskólinn í Kópavogi er austan við fyrirhuguð fjölbýlishús.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Skipulagssvæðið Hér er horft yfir Traðarreit-eystri. Einbýlishúsin eru með stóra garða.
Einbýlishús víkja við þéttingu byggðar
Átta einbýlishús á Traðarreit-eystri í Kópavogi, vestan við MK, verða rifin og byggðar 209 íbúðir
Fjárfestar hafa keypt a.m.k. 17 hús í hverfinu með uppbyggingu í huga Mörg húsin eru gömul
Ármann Kr.
Ólafsson
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Skipulagsráð Kópavogs hefur sam-
þykkt kynningu á vinnslutillögu
vegna áforma um þéttingu byggðar
vestan Menntaskólans í Kópavogi.
Tillagan felur í sér breytingu á
aðalskipulagi Kópavogs.
Nánar tiltekið varðar málið svo-
nefndan Traðarreit-eystri. Hann af-
markast af Álftröð í austri, Digranes-
vegi í suðri, Skólatröð í vestri og
Hávegi í norðri. Reiturinn er milli
Kópavogsskóla og MK og þaðan er
stutt yfir í Hamraborg. Þá er hann