Morgunblaðið - 21.12.2019, Side 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2019
21. desember 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 122.96 123.54 123.25
Sterlingspund 161.07 161.85 161.46
Kanadadalur 93.67 94.21 93.94
Dönsk króna 18.307 18.415 18.361
Norsk króna 13.704 13.784 13.744
Sænsk króna 13.074 13.15 13.112
Svissn. franki 125.33 126.03 125.68
Japanskt jen 1.122 1.1286 1.1253
SDR 169.5 170.52 170.01
Evra 136.82 137.58 137.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.2968
Hrávöruverð
Gull 1474.4 ($/únsa)
Ál 1756.0 ($/tonn) LME
Hráolía 66.19 ($/fatið) Brent
þúsund tonn af efninu hér á landi á
ári. Malbikunarfyrirtækið Hlaðbær
Colas er langstærsti viðskiptavinur-
inn og notar nálægt helming af því
biki sem Nynas flytur inn, eða á
bilinu 12-15 þúsund tonn á ári. Aðrir
viðskiptavinir eru Vegagerðin, Mal-
bikunarstöðin Höfði og Akureyrar-
bær m.a. Þá má nefna að hlutdeild
Nynas í biki í Svíþjóð og Finnlandi
er í kringum 80%, og 30% í Bret-
landi. Þá selur fyrirtækið til Eystra-
saltslandanna og fleiri landa sunnar í
Evrópu.
Hágæða efni
Eins og fram kemur í fréttum af
vandræðum Nynas í erlendum fjöl-
miðlum, þá hefur venesúelska eign-
arhaldið á félaginu gert að verkum
að það má ekki lengur kaupa hrá-
olíu frá Venesúela. Ástæðan er við-
skiptabann Bandaríkjanna á Suður-
Ameríkuríkið. Venesúelsk hráolía
þykir mikið gæðahráefni í bik, og
því hefur viðskiptabannið haft veru-
lega slæm áhrif á Nynas, og er or-
sökin fyrir fyrrnefndri greiðslu-
stöðvun. „Viðskiptabannið hefur
t.d. gert það að verkum að við hér á
Íslandi getum ekki greitt fyrir bikið
í Bandaríkjadölum. Þær greiðslur
eru stöðvaðar af bandarískum
bönkum. Fyrir ári þurftum við því
að byrja að greiða fyrir allt bik sem
flutt er til Íslands í sænskum krón-
um og evrum,“ segir Þorsteinn.
Þorsteinn segir að ástæða þess að
hráolía frá Venesúela er jafn gott
hráefni og raun ber vitni sé sú að ol-
ían þaðan sé þung og henti mjög vel
til bikframleiðslu. Til samanburðar
sé olía sem kemur upp í Norðursjón-
um mun léttari, og bæði henti verr til
framleiðslu á biki og yrði kostnaðar-
samari.
Nynas hefur að sögn Þorsteins
gripið til þess ráðs í staðinn að kaupa
hráolíu frá Brasilíu og Kólumbíu til
bikframleiðslunnar. „Menn vilja
kaupa þaðan til að fá svipuð gæði á
vörunni.“
Best að aflétta eignarhaldi
En hvað er til ráða fyrir Nynas?
Hvernig getur félagið komið sér út
úr vandræðunum?
Þorsteinn segir að best væri fyrir
fyrirtækið ef Venesúela myndi af-
sala sér hlut sínum í fyrirtækinu.
Þannig væri mögulega hægt að
halda áfram eðlilegri starfsemi og
kaupa hráefnið að nýju frá Vene-
súela. „Eignarhaldið er greinilega að
skaða fyrirtækið.“
Sigþór Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Hlaðbæjar Colas, segist að
sjálfsögðu vera uggandi vegna stöð-
unnar, en þó sé hann ekkert sérstak-
lega órólegur. „Við fylgjumst mjög
vel með þróun mála. Við erum hins-
vegar í sterkri stöðu sem dótturfyr-
irtæki alþjóðlega verktakarisans Co-
las Group, sem er stærsti
bik-kaupandi í heimi. Það er gott að
hafa það bakland. Þar er teymi að
vinna í þessum málum, og fyrirtækið
er tilbúið að stíga inn ef á þarf að
halda. Við vinnum líka náið með um-
boðsaðila Nynas hér á landi.“
Sigþór segir aðspurður að Hlað-
bær Colas velti um fimm milljörðum
króna á ári, og kaup á biki séu ná-
lægt 20% af öllum kostnaði félags-
ins.
Ísland fær áfram bik á næsta ári
Morgunblaðið/Hari
Slitlag Starfsmenn Hlaðbæjar Colas setja malbik í holur. Fyrirtækið nýtur þess að vera dótturfélag Colas Group.
Malbik
» Hráefni til bikgerðar, sem
stundum er kallað asfalt eða
bitumen, þykir einstaklega
gott í olíuríkinu Venesúela í
Suður-Ameríku.
» Bik er lykilhráefni í malbik,
sem notað er til að leggja
bundið slitlag á vegi hér á landi
og annars staðar.
» Tuttugu og fimm þúsund
tonn af biki eru flutt inn árlega
hingað til lands frá Nynas AB.
Viðskiptabann Bandaríkjanna á Venesúela hefur valdið sænska olíuframleiðandanum Nynas AB
miklum vandræðum Er með 100% markaðshlutdeild á Íslandi Hlaðbær Colas fær stuðning að utan
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Greiðslustöðvun sem sænska olíu-
framleiðslufyrirtækið Nynas AB
hefur óskað eftir í Svíþjóð mun ekki
hafa áhrif á framboð á biki á Íslandi á
næsta ári, að sögn Þorsteins Guðna-
sonar, umboðsaðila Nynas á Íslandi.
„Við erum með samninga fyrir næsta
ár, sem eru byggðir á ákveðnum
gæðakröfum sem við þurfum að upp-
fylla. Það er ekkert í spilunum í dag
sem segir til um að við getum ekki
uppfyllt þá samninga,“ segir Þor-
steinn í samtali við Morgunblaðið.
Spurður að því hvort beygur sé í
mönnum vegna slæmrar stöðu Ny-
nas, segir Þorsteinn að staðan valdi
óróleika og áhyggjum, ekki sé hægt
að draga fjöður yfir það. „Nynas hef-
ur selt bik til Íslands í áratugi, allt
frá 1970. Á þeim fundum sem ég hef
átt með þeim síðustu vikurnar, m.a. í
Svíþjóð, er ekkert í kortunum annað
en að við getum uppfyllt alla samn-
inga sem við erum með núna, og um-
samið verð mun standa.“
Í eigu Finna og Venesúela
Nynas AB, sem stofnað var árið
1928, er að 50% hluta í eigu venesú-
elska olíufyrirtækisins PDVSA, sem
er í eigu venesúelska ríkisins, og 50%
eigu Neste Oil í Finnlandi. Starfsemi
félagsins skiptist aðallega í tvennt,
annarsvegar framleiðslu á biki, sem
er lykilefni í malbik, og hinsvegar
framleiðslu á olíu sem notuð er til
kælingar fyrir straumbreyta í tengi-
virkjum og spennustöðvum, og er
meðal annars notuð af Landsvirkjun
og Orkuveitu Reykjavíkur. Nynas er
með gríðarlega sterka stöðu á bik-
markaði á Norðurlöndum, og er til
dæmis með 100% markaðshlutdeild
á Íslandi. Selur fyrirtækið um 25
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
● Arctic Adventures (AA) og Icelandic
Tourism Fund I (ITF) hafa ákveðið að
sameina fyrrnefnda fyrirtækið og INto
the Glacier ehf. Um leið mun AA kaupa
hluti ITF í fjórum fyrirtækjum, Óbyggða-
setri Íslands í Fljótsdal, Raufarhóli sem
rekur ferðaþjónustu í Raufarhólshelli,
Skútusiglingum á Ísafirði sem starfa
undir vörumerkinu Borea Adventures
og Welcome Entertainment sem stend-
ur að leiksýningunni „Icelandic Sagas -
The Greatest Hits“ í Hörpu.
Kaupverðið greiðist með hlutum í
AA. Í tilkynningu frá fyrirtækjunum
kemur fram að stefnt sé að því að skrá
hið sameinaða félag á hlutabréfamark-
að innan tveggja ára. Samanlögð velta
fyrirtækjanna á árinu sem senn er liðið
nemur um 7 milljörðum króna.
Risi í íslenskri ferða-
þjónustu verður til