Morgunblaðið - 21.12.2019, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2019
Útsölustaðir: Flest apótek, heilsuhillur stórmarkaða.
Enzymedica býður uppá öflugustu meltingar-
ensímin á markaðnum en einungis eitt hylki
með máltíð getur öllu breytt.Meltingarónot, uppþemba,
vanlíðan, röskun á svefni og
húðvandamál eru algengir
fylgifiskar þegar gert er vel
við sig í mat og drykk.
■ Ensím eru nauðsynleg fyrir meltingu og
öll efnaskipti líkamans.
■ Betri melting, meiri orka, betri líðan!
■ 100% vegan hylki.
■ Digest Basic hentar fyrir börn
Gleðilega meltingu
Jólanna beðið Undirbúningur fyrir jólin stend-
ur nú sem hæst víða um heim. Þessi mynd var
tekin í gær í borginni Nasaret í Ísrael sem er oft
nefnd arabísk höfuðborg landsins. Fjöldi píla-
gríma sækir borgina heim um jólin en þar er
sagt að Jesús Kristur hafi alist upp.
AFP
Jólaundir-
búningur
í Nasaret
Geimfar, sem bandaríska flugvélar-
framleiðandinn Boeing hefur hann-
að, eyddi of miklu eldsneyti eftir að
því var skotið á loft í gær.Var ástæð-
an sú að tölva í farinu var ekki sam-
stillt tölvu í stjórnstöð á jörðu niðri.
Þá varð ljóst að farið, sem nefnist
Starliner, kæmist ekki til alþjóðlegu
geimstöðvarinnar eins og fyrirhugað
var og mun það þess í stað koma á ný
til jarðar á morgun. Upphaflega átti
geimferðin að standa yfir í viku og
geimfarið átti að lenda aftur að
morgni 28. desember.
Farinu var skotið á loft frá Ca-
naveral-höfða á Flórída með Atlas V
eldflaug. Geimfarið var mannlaust
en í því var brúða, nefnd Rosie, hlað-
in skynjurum. Tilgangur ferðarinnar
var að rannsaka hvort óhætt væri að
nýta farið til mannaðra geimferða.
Bandaríkjamenn hafa ekki sent
geimfara til geimstöðvarinnar frá
Bandaríkjunum síðan 2011 þegar
geimferjurnar voru teknar úr notk-
un. Bandarískir geimfarar hafa þess
í stað farið í rússneskum Sojus-geim-
förum.
Geimferð Boeing misheppnaðist
Geimfarið eyddi of miklu eldsneyti
og komst ekki til geimstöðvarinnar
AFP
Geimskot Áhorfendur fylgjast með geimskotinu á Canaveralhöfða.
Greta Tunberg tók sér á ný stöðu
framan við sænska þinghúsið í Stokk-
hólmi í gærmorgun meðal annarra
ungmenna sem mótmæltu þar að-
gerðaleysi stjórnvalda gegn loftslags-
breytingum.
Tunberg er komin heim til Svíþjóð-
ar eftir margra mánaða ferðalag.
Hún sigldi yfir Atlantshaf til Banda-
ríkjanna í ágúst til að taka þátt í lofts-
lagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í
New York og síðan aftur til Evrópu
til að sækja aðra ráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna um loftslagsmál í
Madríd á Spáni í síðustu viku.
Hópur lífvarða fylgdi Tunberg
þegar hún kom að þinghúsinu í gær-
morgun þar sem hún hóf mótmæla-
setu fyrir rúmu ári. Í kjölfarið varð
Tunberg, sem er 16 ára, óformlegur
talsmaður ungmenna sem vilja vekja
athygli ráðamanna á loftslagsvá sem
vofi yfir.
Tunberg var vel fagnað þegar hún
birtist í Stokkhólmi í gær.
„Välkommen hem!“ skrifaði einn
stuðningsmaður hennar á Instagram-
síðu hennar.
AFP
Aftur heima Greta Tunberg tók sér á ný stöðu framan við þinghúsið í
Stokkhólmi í gær en þar hóf hún loftslagsmótmæli sín fyrir rúmu ári.
Tunberg komin heim
Tók þátt í mótmælafundi ungmenna
við þinghúsið í Stokkhólmi í gær
Danska ríkisstjórnin hefur náð
samkomulagi um að árlegur
kostnaður þeirra sem taka smá-
lán geti ekki farið yfir 35%.
Fram kemur á vef danska
ríkisútvarpsins, DR, að dæmi
séu um að vaxtakostnaður neyt-
enda vegna smálána hafi verið
7-800% af lánsupphæðinni.
DR hefur eftir Simon Koll-
erup atvinnumálaráðherra að
þetta sé í fyrsta skipti sem sett
sé þak á kostnað vegna smál-
ána.
Þá felst í samkomulaginu, að
smálánafyrirtæki sem innheimta
meira en 25% vexti mega ekki
auglýsa lánin í lestum og stræt-
isvögnum, eins og nú er algengt.
Danskt vaxtaþak
sett á smálán
Yfirgnæfandi
meirihluti þing-
manna í neðri
deild breska
þingsins sam-
þykkti í gær að
stjórnarfrumvarp
um útgöngu
Breta úr Evrópu-
sambandinu færi
til annarrar um-
ræðu í þinginu.
Alls samþykktu 358 þingmenn
frumvarpið en 234 voru því andvígir.
Sex þingmenn Verkamannaflokks-
ins, sem er í stjórnarandstöðu,
studdu frumvarpið, þótt Jeremy
Corbin, leiðtogi flokksins, hefði
hvatt liðsmenn sína til að greiða at-
kvæði gegn því.
Önnur umræða um frumvarpið
hefst 7. janúar en samkvæmt því
ganga Bretar úr Evrópusambandinu
ekki síðar en 31. janúar.
Boris Johnson, forsætisráðherra
Breta, sagði í gær að landið hefði nú
færst einu skrefi nær Brexit.
Meirihluti
studdi Brex-
it-frumvarp
Einu skrefi nær út-
göngu, segir Johnson
Boris Johnson