Morgunblaðið - 21.12.2019, Page 25

Morgunblaðið - 21.12.2019, Page 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2019 Sólsetur Það var fallegt að horfa yfir Borgarnes á stilltu vetrarkvöldi í vikunni þegar sólin var að hníga til viðar og bæjarbúar að taka á sig náðir. Eggert Alþingi hefur nú samþykkt frumvarp mitt um lengingu fæðingarorlofs úr níu mánuðum í tólf. Lengist það í tíu mánuði strax um næstu áramót og verður lengingin að fullu komin til fram- kvæmda 1. janúar 2021. Góð samstaða var um málið á Al- þingi og greiddu 54 þingmenn atkvæði með frumvarpinu. Það er mikið fagn- aðarefni enda erum við að stíga stórt skref í átt að bættum hag barnafjölskyldna í landinu. Til að und- irstrika það má nefna að samþykktin felur í sér að það heildar- fjármagn sem rennur til fæðingarorlofs mun hækka úr tíu milljörðum í tuttugu þegar aðgerðirnar verða að fullu komnar í fram- kvæmd. Baráttumál verður að lögum Ég er þess fullviss að lenging fæðingarorlofs mun gagnast fjöl- mörgum og þá auðvitað allra helst okkar yngsta og viðkvæmasta þjóðfélagshópi. Ég gleðst ekki síð- ur persónulega enda ekkert laun- ungarmál að endurreisn fæðing- arorlofskerfisins hefur verið eitt helsta áherslumál mitt í embætti frá upphafi. Hámarksgreiðslur voru hækkaðar umtalsvert um síð- ustu áramót og nú er lengingin í höfn en hvort tveggja var að mínu mati löngu tímabært. Við vitum að börnum á fyrsta aldursári er fyrir bestu að dvelja sem mest í umsjá foreldra sinna og er ég stoltur af því að hafa átt þátt í að stuðla að auknum samvistum foreldra og barna. Ég er sannfærður um að það sé hverju barni gott veganesti út í lífið. Frekari úrbætur í vændum Ekki verður þó lát- ið hér við sitja því fyrr á þessu ári skip- aði ég nefnd sem hef- ur það hlutverk að endurskoða lög um fæðingar- og for- eldraorlof í heild sinni. Á næsta ári verða liðin tuttugu ár frá gildistöku lag- anna. Þau þóttu bylt- ingarkennd á sínum tíma en tímabært er að endurskoða ýmis ákvæði þeirra. Í þeirri vinnu verður tekið tillit til ýmissa álitaefna sem komið hafa fram sem mun án efa skila frekari umbótum á kerfinu. Er gert ráð fyrir að vinnu nefnd- arinnar ljúki um mitt næsta ár og að lagt verði fram nýtt frumvarp á haustþingi 2020. Samhliða umbótum á fæðing- arorlofskerfinu þarf líka að tryggja að börnum bjóðist leik- skólavist þegar rétti foreldra til fæðingarorlofs lýkur, en vantað hefur upp á þá samfellu í kerfinu. Af þeim sökum hef ég óskað eftir formlegu samtali við sveitarfélög með það að markmiði að hægt verði að tryggja öllum börnum leikskólavist við tólf mánaða ald- ur. Eftir Ásmund Einar Daðason » Það heildar- fjármagn sem rennur til fæðingarorlofs mun hækka úr tíu milljörðum í tuttugu þegar aðgerðirnar verða að fullu komnar til framkvæmda. Ásmundur Einar Daðason Höfundur er félags- og barnamálaráðherra. Stórt skref í átt að bættum hag barnafjölskyldnaFréttastofa RÚV erkostuleg stofnun. Mér er nær að halda að þeir hafi lög að mæla sem segja hana ekki frétta- miðil heldur miklu fremur beinan þátttak- anda í málaskaki sam- félagsins og þá með af- stöðu sem sett er fram án kinnroða. Ég varð þess vafa- sama heiðurs aðnjót- andi sl. fimmtudagskvöld að verða skotspónn þessarar fréttamennsku. Í aðalfréttatímanum klukkan 19 var fyrsta fréttin af því, að Benedikt Bogason hæstaréttardómari og for- maður dómstólasýslunnar hefði sótt um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar á sýknudómi Landsréttar í meiðyrða- máli hans gegn mér. Aðalfrásagn- arefnið var að ég hefði reynt að hafa áhrif á val dómara í Landsrétti til að dæma málið, með símtölum við dóm- stjórann og einn dómaranna í mál- inu. Byggðist fréttin á fullyrðingum Vilhjálms Vilhjálmssonar lögmanns Benedikts, sem var búinn að finna það út með textaskýringum á tölvu- pósti frá mér að ég hefði átt samtalið við dómstjórann áður en hann tók ákvörðun um hverjir skyldu dæma. Meginefni fréttarinnar rangt Þetta meginefni fréttarinnar er rangt, enda studdist það ekki við neitt nema getsakir Vilhjálms lög- manns. Ég hafði vissulega hringt í dómstjórann, eins og ég hafði skýrt frá í tölvupósti sem m.a. var sendur lögmanninum. Þar hafði ég komist svo að orði að ég hefði haft áhyggjur af því að dómarar sem skipuðu dóm- inn „yrðu ekki hlutlausir“. Þetta orðalag hafði lögmaðurinn talið sýna að ég hefði rætt við dómstjórann áð- ur en skipað var í dóminn. Þetta var hreinn misskilningur hans eins og öllum sem lásu hefði átt að verða ljóst. Ég átti bara við hið augljósa, að þeir yrðu ekki hlutlausir við meðferð málsins. Samtalið átti ég við dóm- stjórann eftir að hann hafði lokið við að skipa í dóminn og tilkynnt máls- aðilum það. Eftir það gat hann ekki breytt þeirri ákvörðun, þó að óskað hefði verið eftir því, en það gerði ég auðvitað ekki. Atburðarásin Ástæða er til að fara nokkrum orðum um þessa atburðarás. Hinn 11. febrúar 2019 barst tilkynning frá Landsrétti um að málflutningur í máli Benedikts gegn mér skyldi fara fram hinn 1. apríl 2019. Kom fram í tilkynningunni hverjir yrðu dómarar í málinu. Ég hafði strax áhyggjur af skipan eins þeirra, þar sem mér hafði verið tjáð að þessi dómari væri í vin- fengi við dómara í Hæstarétti og hugsanlega leyfisbeiðanda sjálfan. Ég hafði því símasamband við dóm- stjórann, aðallega til að fá að vita hvort aðrir dómarar við réttinn hefðu lýst vanhæfi og þá vegna valdastöðu Benedikts gagnvart Landsrétti, en dómstólasýslan, sem hann stýrir, gerir tillögur til Alþingis um fjárveitingar til réttarins. Dóm- stjórinn sagði ekki annað um þetta en það sem lá fyrir, að búið væri að skipa í dóminn. Dómararnir myndu sjálfir fjalla um kröfur um að víkja sæti vegna vanhæfis ef fram kæmu. Það var mér auðvitað ljóst sem og hitt að ég var að tala við yfirmann sem hafði lokið ákvörðunum sínum í málinu og hefði ekki einu sinni heim- ild til að breyta þeim. Ég bar auðvit- að ekki fram neinar óskir um slíkt. Svo er að sjá af beiðni Benedikts til þeirrar stofnunar sem hann vinn- ur við, um leyfi til að áfrýja sýknu- dóminum til Hæstaréttar, að þetta sé ein aðalástæðan fyrir beiðninni. Síðan hafði ég einnig í nefndum tölvupósti skýrt frá því að gefnu til- efni að ég hefði lyft símanum og hringt til þess dómara sem ég taldi að kynni að vera vanhæfur til að inna hann eftir því hvort hann væri í þannig tengslum við Benedikt eða aðra sem tengdust honum að van- hæfi gæti valdið. Beindi ég því til dómarans að huga að þessu en til- kynnti honum líka að ég myndi ekki krefjast þess að hann viki sæti. Var þetta símtal afar kurteislegt af beggja hálfu. Svör mín klippt út úr viðtalinu Meginefni fréttar RÚV í frétt- unum klukkan 19 var að segja frá villukenningu Vilhjálms lögmanns um þetta, m.a. með viðtali við hann. Í lokin var sagt að talað yrði við mig í fréttum klukkan 22. Kannski betur hefði heppnast við fréttaflutninginn að leita afstöðu minnar áður en fyrri fréttin var flutt. Þannig hljóta allar sómakærar fréttastofur að vinna. Það var svo tekið viðtal við mig sem sjónvarpað var í seinni frétta- tímanum. Þar var búið að klippa við- talið til og fjarlægja svör mín um að samtalið við dómstjórann hefði ekki átt sér stað fyrr en hann hafði lokið störfum við að skipa í dóminn, þann- ig að þar yrði engu breytt. Þetta voru svör við aðalefni uppsláttarins í fyrri fréttatímanum. Þessi vinnu- brögð fréttastofunnar eru auðvitað ekki boðleg. Og svona að lokum. Það er auðvit- að ekkert athugavert við að málsaðili eða lögmaður eigi orðastað við dóm- ara um mál eftir að hann hefur lokið starfi sínu í tengslum við það, hvort sem það felst í að kveða upp dóm í málinu eða skipa dómara til að dæma í því. Gegn mér er sýnilega reynt að gera úr mér tröllkarl sem bægslast um eins og fíll í postulínsbúð. Það eina sem ég hef gert til að vinna mér inn óvild hjá dómaraelítunni er að segja rökstudd deili á verkum henn- ar. Það finnst þeim nauðsynlegt að þagga niður með rógi ef ekki vill bet- ur. Það vekur undrun mína að frétta- stofa allra landsmanna skuli láta misnota sig með því að fá sig til þátt- töku í þessu spili. Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson »Þar var búið að klippa viðtalið til og fjarlægja svör mín um að samtalið við dómstjór- ann hefði ekki átt sér stað fyrr en hann hafði lokið störfum við að skipa í dóminn, þannig að þar yrði engu breytt. Jón Steinar Gunnlaugsson Höfundur er lögmaður. Fréttirnar segir fréttastofa RÚV

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.