Morgunblaðið - 21.12.2019, Side 26

Morgunblaðið - 21.12.2019, Side 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2019 Óskar Bergsson fasteignasali s. 893 2499 Hildur Harðardóttir lögfr. og lgfs. s. 897 1339 Elín G. Alfreðsdóttir nemi til lögg. s. 899 3090 Sveinbjörn Sveinbjörnsson lögmaður s. 892 2804 Rakel Árnadóttir fasteignasali s. 895 8497 Vilhjálmur Einarsson fasteignasali s. 864 1190 Eignaborg óskar lesendum Morgunblaðsins og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs, með þökk fyrir viðskiptin á liðnum árum. Ámorgun, 22. desember, eru vetrarsólhvörf, öðru nafni vetr-arsólstöður, sá tími árs þegar sólargangur er stystur. Núverða hin árvissu hvörf í náttúrunni að sól tekur smámsaman að hækka á lofti. Bæði orðin sólhvörf og sólstöður eru notuð í sömu merkingu í ís- lensku, um það þegar sólin er allra hæst á lofti í júní og þegar hún sýnir sig styst í desember áður en dag tekur að lengja á ný. Orðið sólstöður er þekkt a.m.k. frá 14. öld, í alfræðiritum og bibl- íuþýðingum (sbr. latneska jafnheitið solstitium). Orðið var þá ýmist haft í eintölu, sólstaða, eða í fleirtölu sólstöður eins og venja er í nú- tímamáli. Talið hefur verið að -staða vísi hér til þess punkts þegar sól- in stendur lægst að vetrinum eða hæst að sumrinu. Orðið sólhvörf kemur fyrir þegar í íslensku alfræðihandriti frá því um 1200 og er jafnframt að finna t.a.m. í lögbók- inni Grágás. Þetta norræna orð á sér einnig eft- irlifandi frænkur í dönsku og norsku, sol(h)verv. Í þessu samhengi er orð- ið hvörf haft í merkingunni „þáttaskil“ eða „umskipti“, þ.e. þegar eitthvað snýst, breytist, tekur nýja stefnu. Af sama stofni er sögnin hverfa sem getur m.a. merkt „snúa“. Sú merking orðsins kemur vel fram t.d. þegar talað er um að einhver eigi að einhverju að hverfa, hverfi aftur til fyrri starfa eða hverfi aftur heim (sbr. afturhvarf) og þar fram eftir götum. Til er einnig kvenkynsorðið hverfa í merking- unni „hlið“, sbr. orðin rétthverfa og ranghverfa, um réttuna og röng- una á flíkum. Sagt er að eitthvað snúist í andhverfu sína, og lýsing- arorðið andhverfur merkir hið sama og andsnúinn. Í hugann kemur einnig orðið hverfisteinn, þ.e. steinn sem er látinn snúast, og orða- sambandið á hverfanda hveli (hvel merkir „hjól“), um það sem er fall- valt og getur hæglega breyst, eins og hjól snýst. Í Grettis sögu er í orðasambandinu haft hjól en ekki hvel; Ásmundur hærulangur segir um son sinn að sér þyki „á mjög hverfanda hjóli um hans hagi“. Í Íslensku orðaneti Jóns Hilmars Jónssonar (sjá málið.is) eru skráð 25 orð sem eru mynduð eins og sólhvörf og vísa á einhvern hátt til umskipta eða breytinga. Nefna má sem dæmi orðin straumhvörf, veðrahvörf og efnahvörf. Orðliðurinn -hvarf, í eintölu, kemur einnig víða við sögu. Orðið fráhvarf er haft um það að hafa snúið burt frá einhverju, sbr. fráhvarfseinkenni um slæma líðan sem getur fylgt því að hætta ofneyslu áfengis eða annarra vímugjafa, oft haft í fleirtölu, fráhvörf. Orðstofninn í hverfa og hvarf eða hvörf er sem sé vel nýttur í ís- lenskri orðmyndun og hefur hér þó eingöngu verið hugað að litlum hluta merkingarsviðanna sem um getur verið að ræða í nútímamáli en ekki að algengustu merkingunni sem lýtur að því að eitthvað týnist eða fari úr augsýn (mannshvarf, skipshvarf o.s.frv.). Sólhvörf Tungutak Ari Páll Kristinsson aripk@hi.is Morgunblaðið/G.Sig. Vetrarsólstöður Sólarupprás við Rauðavatn í desember. Hálendisþjóðgarður er nú kominn á dagskrá.Það er sérstakt fagnaðarefni. Hinósnortnu víðerni Íslands á miðhálendinuog raunar á nyrzta hluta Vestfjarðakjálk- ans eru orðin ein helzta auðlind okkar Íslendinga og þess vegna er stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu eins konar ígildi útfærslu og friðunar fiskimiðanna. Þegar Alþingi hefur samþykkt stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands dettur væntanlega engum lengur í hug að leggja varanlega og malbikaða þjóðvegi um hálendið með tilheyrandi benzínstöðvum og sjoppum eins og hugmyndir voru uppi um fyrir ekki löngu. Þegar slíkar hugmyndir voru til umræðu, m.a. hjá kjörnum fulltrúum þjóðarinnar, var náttúra Íslands ekki orðin sú tekjulind fyrir þjóðina, sem hún er orð- in nú. Því að auðvitað er það náttúra landsins, sem dregur til sín þá ferðamenn, sem nú eru að verða ein helzta tekjulind okkar. Væntanlega dettur engum í hug nú að eyðileggja þá tekjulind, sem vissulega er jafn óviss og síldin vegna þess að ferðamenn geta horfið jafn skjótt og síldin gerði á sínum tíma. Það mátti heyra á Kastljósþætti RÚV sl. miðvikudagskvöld að búast má við einhverri andstöðu vegna þess- ara fyrirætlana, m.a. frá sveitarstjórnum. Vonandi láta alþingismenn það ekki hafa áhrif á sig. Og af því að spyrill í þeim þætti spurði Guðmund Inga Guðbrandsson umhverfisráðherra sérstaklega, hvort hann ætti von á stuðningi Sjálfstæðisflokksins við þessi áform, skal enn einu sinni minnt á að sá stjórnmálamaður, sem fyrstur manna hér setti um- hverfismál á hina pólitísku dagskrá fyrir rúmlega hálfri öld var einn af þingmönnum Sjálfstæðisflokks- ins á þeim tíma, Birgir Kjaran. Hvers vegna skyldi Sjálfstæðisflokkurinn ekki sýna þeirri arfleifð þá virðingu sem sjálfsögð er? Að koma inn á miðhálendi Íslands í fyrsta sinn er stórkostleg upplifun. Hvítir jöklar, svartir sandar og fögur stórfljót, allt er þetta svo stórbrotið að orð fá ekki lýst. Þessi auðlind á eftir að gefa meira af sér en virkj- anir. Í því samhengi er ástæða til að vekja athygli á umsögn Eldvatna, samtaka um náttúruvernd í Skaft- árhreppi sem er að finna á samráðsgátt stjórnvalda. Þar segir m.a.: „Hvað orkunýtingu innan Hálendisþjóðgarðs varð- ar leggja Eldvötn þunga á herzlu á að „þróun og við- hald“ virkjana innan marka hans má alls ekki krefj- ast frekara rasks á landi og náttúru en orðið er. Engar frekari framkvæmdir vegna orkuvinnslu rýmast innan þjóðgarðs, hvorki nýframkvæmdir né endurbætur sem krefjast jarðrasks. Hvað orkudreifingu varðar þá skal eingöngu heim- ila flutning í jörðu en loftlínur séu ekki viðeigandi á svæði sem njóta verndar, m.a. vegna landslags og víðernis.“ Þessi sjónarmið Eldvatna eiga eftir að verða um- deild en standa fyrir sínu. Þá er augljóst að aðrar framkvæmdir innan Hálendisþjóðgarðsins hljóta að verða í algeru lág- marki. Þá er ekki átt við vegalagningu en hug- myndir um slíkt hljóta að vera úr sögunni, heldur húsbyggingar, sem töluverður þrýstingur er á að leyfa. Það er mun auðveldara í dag að verja slíka vernd- arstefnu á miðhálendinu en fyrir 20-30 árum vegna þess, sem áður var nefnt, að miðhálendið er þegar orðið mikil tekjulind og að framkvæmdir eyðileggja þá tekjulind. Í þessu sambandi má enn minna á nyrzta hluta Vestfjarðakjálkans. Hugmyndir um Hvalárvirkjun eru sama marki brenndar. Sú virkjun mundi eiga þátt í að eyðileggja hinar vestfirsku óbyggðir, sem geta auðveldlega átt eftir að verða Vestfirðingum mikil tekjulind vegna þeirrar stórbrotnu náttúru, sem þar er að finna. Baráttan fyrir yfirráðum okkar Ís- lendinga yfir auðlindum hafsins við Íslandsstrendur stóð í aldarfjórðung. En við höfðum sigur að lokum og losuðum okkur við þá útlendinga, sem fóru ráns- hendi um auðlindir okkar. Þess vegna er það enn sárara en ella að fylgjast með Íslendingum stunda þess konar arðrán í auðlindum fátækra þjóða í öðr- um heimsálfum og raunar algerlega óskiljanlegt. Það verður spennandi að fylgjast með umræðum á Alþingi um hálendisþjóðgarð. Og ekki sízt, hvort þar spretta fram einhverjir talsmenn „sérhagsmuna“, sem við þekkjum vel frá umræðum um aðrar auð- lindir, sem teljast lögum samkvæmt sameign þjóð- arinnar. En í samráðsgáttinni má sjá að Hálendis- þjóðgarðurinn mun ná til „landsvæða sem eru sameign þjóðarinnar“. Og auðvitað er sjálfsagt og á ekki að þurfa að vera deiluefni að sameign þjóðarinnar á auðlindum þessa lands og í hafinu við landið verði fest í stjórn- arskrá. Það á hvorki að vera hægt að selja þær auðlindir útlendingum, með beinum eða óbeinum hætti eins og nú gætir tilhneigingar til, hvort sem er til sjós eða lands. Þegar til lengri tíma er litið er augljóst að hér er á ferð eitt af stærstu málum, sem eru á verk- efnaskrá núverandi ríkisstjórnar og eru þáttur í stjórnarsáttmála núverandi stjórnarflokka. Mestar líkur eru á að um þetta mál verði víðtæk samstaða á Alþingi. En vafalaust kemur upp and- staða úr einhverjum áttum sem þingmenn eiga ekki að láta hafa áhrif á sig. „Inngrip“ í skipulagsvald sveitarstjórna, sem sveitarstjóri Bláskógabyggðar hafði orð á í Kast- ljósþættinum sl. miðvikudagskvöld skipta engu máli í þessu stóra samhengi. Hálendisþjóðgarður ... … er ígildi frið- unar fiskimiða Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Íslendingar fylgjast miklu beturmeð stjórnmálum í Bretlandi og Bandaríkjunum en á meginlandi Norðurálfunnar, og er það eflaust vegna enskunnar, sem við höfum betur á valdi okkar en flest önnur mál, en þessi lönd eru líka nálægt okkur landfræðilega og stjórn- málalega. Bandaríkin hafa við okkur varnarsamning, og Bretland er einn stærsti viðskiptavinur okkar. Þegar gengið er til kosningar í þessum löndum spretta iðulega fram spekingar uppi á Íslandi og hneyksl- ast á úrslitum, því að í hvorugu land- inu tíðkast hlutfallskosningar. Do- nald Trump hlaut til dæmis færri atkvæði samanlagt en Hillary Clin- ton í bandaríska forsetakjörinu 2016. En tilgangur forsetakjörsins var ekki að mæla almennt fylgi frambjóðendanna, heldur kaus hvert af fimmtíu ríkjum Bandaríkjanna kjörmenn sína eftir misjöfnum reglum (sum jafnvel hlutfallskosn- ingu) og síðan valdi kjörmanna- samkoma forsetann. Bandaríkin eru ekki eitt kjördæmi, og það væri and- stætt eðli þeirra að vera það. Það er bandalag fimmtíu ríkja. Í Bretlandi eru einmennings- kjördæmi, og það veldur því, að stærsti flokkurinn getur fengið miklu hærra hlutfall á þingi en talið í atkvæðum, eins og gerðist nú í des- emberkosningunum 2019. Kerfinu er ekki ætlað að endurspegla heild- arfylgi hvers flokks, heldur sendir hvert kjördæmi einn mann á þing. Einn stór kostur er við þetta kerfi. Hann er, að ábyrgð stjórnenda og kostir um að velja verða miklu skýr- ari. Tvö lýðræðishugtök eru helst not- uð á Vesturlöndum. Annað er, að þingið eigi að endurspegla sem ná- kvæmast þjóðarviljann. Margvísleg vandkvæði eru á að gera það, en vissulega á þá hlutfallskosning við. Hitt hugtakið er, að lýðræði sé frið- samleg leið til að skipta um valdhafa, séu kjósendur óánægðir með þá. Þar á betur við fyrirkomulagið á Bret- landseyjum, enda á Clement Attlee að hafa sagt, að höfuðkosturinn við lýðræðið væri, að losna mætti við valdhafana án þess að þurfa að skjóta þá. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Til hvers eru kosningar?-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.