Morgunblaðið - 21.12.2019, Síða 34

Morgunblaðið - 21.12.2019, Síða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2019 ✝ Lára Þor-steinsdóttir fæddist í Litla- Garði rétt fyrir ut- an Akureyri, nú Eyjafjarðarbraut, 10. janúar 1929. Hún andaðist 6. desember 2019. Afi hennar, Benedikt Sigurðs- son, hafði flutt með konu og börn að Litla-Garði árið 1909 í torfbæ og hafið þar búskap. Foreldrar Láru voru Þorsteinn Benedikts- son, f. 1899, d. 1977, múr- arameistari, og Guðrún Jó- hannsdóttir, f. 1898, d. 1981, sem alin var upp í Sveinbjarn- argerði í Vaðlaheiði og hófu þau búskap sinn í Litla-Garði árið 1928. Faðir hennar og föð- urbróðir, Jón Benediktsson prentari, byggðu veglegt stein- hús í Litla-Garði og þar ólust börn þeirra upp sem einn stór systkinahópur. Þorsteinn og Guðrún eign- uðust þrjár dætur: Láru, Þóru, f. 1930, d. 2017, og Jónínu, f. 1932. Fjölskyldan flutti frá Litla-Garði árið 1945 í Helga- Eddu Helgu. 3) Tryggvi Þór Agnarsson, f. 1954, maki Erla Sólrún Valtýsdóttir, f. 1956. Þau eiga tvö börn: a) Elísabetu Láru sem er gift Birki Árna- syni. Þau eiga fjögur börn: Brynju Sól, Aþenu Mareyju, Bertu Maríu og Viktor Smára. b) Katrínu Guðrúnu. 3) Lára Guðrún Agnarsdóttir, f. 1959, maki Kristján Sigurðsson, f. 1962. Þau eiga þrjú börn: a) Sigurð Orra, í sambúð með Guðrúnu Lilju Kvaran. b) Láru, gift Pedro Suárez Miranda. c) Agnesi Björgu, í sambúð með Gunnlaugi Agli Steindórssyni. Þau eiga eitt barn: Láru Her- dísi. Agnar var sjómaður en hætti sjómennsku 1954. Hann vann mestalla sína starfsævi í Áburð- arverkmiðjunni, lengst af sem verkstjóri. Agnar og Lára hófu búskap á Laugavegi 19 en bjuggu síðan flest sín búskap- arár á Smiðjustíg 4 og Njáls- götu 59 með viðkomu vestur í Dölum og keyptu jörðina Hnúk í Klofningshreppi. Lengst af starfaði Lára hjá Hans Pet- ersen í Bankastræti. Agnar lést árið 2007 og þá flutti Lára í þjónustuíbúð á Vitatorgi við Lindagötu. Í rúm þrjú ár dvaldist Lára svo á Hjúkrunarheimilinu Mörk. Lára var jarðsungin 16. des- ember 2019 í kyrrþey að ósk hinnar látnu. magrastræti 36 þar sem Þorsteinn hafði reist hús. Í Helgamagra- stræti fæddist elsta barn Láru árið 1948, sem hún átti með Agnari Tryggvasyni, f. 1927, d. 2007. Árið 1949 giftist Lára Agnari og hófu þau búskap í Reykja- vík. Agnar var sonur Tryggva Siggeirssonar kaupmanns og Láru Guðlaugsdóttur. Systir Agnars var Helga Tryggvadótt- ir, f. 1920, d. 2003. Alls eign- uðust Lára og Agnar fjögur börn: 1) Sverrir Agnarsson, f. 1948. Hann á tvö börn: a) Jó- hannes. Hann á eitt barn: Mar- íu. b) Ómar. Hann á eitt barn: Láru Líf. 2) Edda Helga Agn- arsdóttir, f. 1950, maki Jón Þráinn Magnússon, f. 1950. Þau eiga tvö börn: a) Kolbrúnu sem var gift Hlyni Hreinssyni, þau eru nú skilin. Þau eiga þrjú börn: Jón Inga, Hafstein og Emil. b) Helgu, sem er gift Þor- geiri Magnússyni og þau eiga tvö börn: Magnús Ingvar og Elsku mamma mín, núna ertu farin frá okkur og vonandi á betri stað í Sælulandinu þar sem pabbi hefur tekið vel á móti þér. Mamma ólst upp í Litla Garði rétt fyrir utan Akureyri. Á efri hæðinni bjó Jón Ben. föðurbróð- ur hennar og Guðný kona hans með fjögur börn. Niðri bjuggu svo afi Steini og amma Guðrún með dætur sínar þrjár, mömmu, Þóru og Ninnu. Með þeim mynduðust sterk bönd sem héldust alla ævi. Mamma flutti 19 ára gömul til Reykjavíkur þá með Sverri bróður minn á fyrsta ári. Þar giftu mamma og pabbi sig og fluttu á Laugaveg 19. Seinna bjuggu þau á Smiðjustíg 4 í húsi sem afi Tryggvi hafði byggt. Í Reykjavík fæddumst við svo hin systkinin. Ég man fyrst eftir mér á Njálsgötu 59. Þar var oft mjög gestkvæmt þar sem ætt- ingjar að norðan voru ætíð vel- komnir og alltaf nóg pláss til að gista þegar þeir áttu erindi í borgina. Mamma var glaðlynd að eðl- isfari og hafði mjög gaman af að vera með öðru fólki og naut sín best þar sem eitthvað var um að vera. Litla Garðs-frænkurnar voru saman í saumaklúbb og ár- um saman hittust fjölskyldurnar og gerðu margt saman. Á sumr- in var svo pakkað niður og brunað norður til Akureyrar til að eyða sumarfríinu með norð- anfjölskyldunni. Þá vor ófáar ferðir farnar yfir í Vaglaskóg, í Fnjóskadalinn, þar sem ættingj- ar voru heimsóttir eða farið í berjamó. Þegar ég er unglingur þá ákveða mamma og pabbi að kaupa jörð vestur í Dölum þar sem Edda systir bjó á næsta bæ ásamt fjölskyldu sinni. Þar naut mamma sín mjög mikið þar sem hún elskaði öll dýr og var ekki óalgengt að þegar hún sótti kýrnar þá fylgdu henni nokkrir heimalningar, kálfar, tveir hundar og kötturinn. Þegar við fluttum aftur til Reykjavíkur þá fluttum við á Smiðjustíginn og á tímabili unnum við báðar í Hans Petersen í Bankastræti. Það var mjög skemmtilegur tími, oft mikið að gera og brölluðum við margt saman á þeim árum. Eft- ir sveitalífið fóru mamma og pabbi að ferðast og voru margar ferðir farnar til Benedorm þar sem þau nutu þess að liggja í sólinni og njóta lífsins. Söngur og tónlist skipaði stóran sess í þeirra lífi og ófá danssporin voru tekin á stofu- gólfinu þar sem við systkinin lærðum að dansa gömlu dans- ana. Mamma og pabbi voru fastagestir í Sundhöll Reykja- víkur og voru mætt þangað alla virka daga á morgnana kl. 7 meðan heilsan leyfði. Mamma var einstök amma og umvafði barnabörnin sín af kær- leik og ást. Þau voru alltaf vel- komin í heimsókn og ekki leidd- ist henni að leika, spila og syngja með þeim. Ófáar peys- urnar prjónaði hún á þau hvort sem það voru lopapeysur eða út- prjónaðar ullarpeysur. Við mamma vorum alla tíð mjög góðar vinkonur og var hún alltaf til í að styðja við allt sem ég hef tekið mér fyrir hendur og áttu þau alveg sérstakt sam- band Kristján maðurinn minn og hún. Ég kveð þig mamma mín með sorg í hjarta en veit jafnframt að þinn tími var kominn og pabba örugglega farið að lengja eftir þér. En ég á eftir að sakna þín alveg óendanlega því þú hef- ur alltaf verið mín besta vinkona sem ég gat alltaf treyst á og leitað til. Hvíl í friði, þín dóttir, Lára Guðrún. Lára Þorsteinsdóttir tengda- móðir mín og vinkona er látin. Ég kynntist henni fyrst 1984 þegar ég og Lára Guðrún dóttir hennar byrjuðum okkar sam- band. Auðvitað er alltaf smá stress að hitta foreldra kærust- unnar í fyrsta sinn en Lára gerði mér þetta auðvelt. Með hlýju sinni, kímni og ljúfri fram- komu fann ég að ég var velkom- inn á heimili þeirra Agnars. Samband okkar byrjaði vel og varð síðan einungis betra. Ég er endalaust þakklátur fyrir að hafa kynnst og orðið vinur Láru. Hún var einstök kona, heims- kona en líka sveitakona. Fædd á Akureyri og átti þar góða æsku, gerðist bóndakona í Dölunum um tíma, en bjó lengst af í Reykjavík. Við Lára urðum strax góðir vinir. Góðmennskan og hlýjan sem hún var gædd gerði það að verkum að öllum var hlýtt til hennar. Á það bæði við um dýr og menn. Við Lára Guðrún áttum t.d. hunda í mörg ár og þeir hreinlega elskuðu tengdamömmu og þegar hún var í heimsókn vildu þeir ekki missa hana úr augsýn. Börn- unum mínum reyndist hún frá- bær amma. Þau voru alltaf vel- komin til hennar og aldrei bar skugga á þeirra samband. Aldr- ei var neinn fyrir hjá tengda- mömmu. Þar á vel við málshátt- urinn þar sem er hjartarúm þar er húsrúm. En stundum var t.a.m. sofið í öllum hornum í Álakvíslinni þegar við fimm manna fjölskyldan vorum þar í heimsókn. Allar góðu stundirnar sem við áttum saman sitja eftir í minn- ingunni. Söngstundirnar, matar- boðin, ættarmótin, bókaspjallið, bridsumræðurnar og fleira og fleira. Takk fyrir allt. Kristján. Elsku amma Lára, fáir hafa átt ömmu sem hefur verið þeim jafn góð vinkona. Þú varst nefnilega ekki bara traust og góð heldur varstu einmitt það, vinkona okkar. Það var alltaf svo gott að koma til þín og alltaf allir vel- komnir, okkar heimili og skjól í Reykjavík fyrir landsbyggðar- fólkið þitt. Við munum sakna allra dásamlegu samtalanna sem við áttum, hvort sem það var að rifja upp gamla tíma eða ræða um slúður nútímans; söngstund- anna þar sem Siggi spilaði á gít- ar og þú kunnir alltaf alla texta, jafnvel þá sem ekki voru í bók- inni; göngutúranna þar sem þú kynntir okkur miðbæinn með reglulegum stoppum í Máli og menningu eða út að borða á Ítalíu, miðbæinn þinn. Það er leitun að glaðværari eða betri konu. Við trúum ekki öðru en að afi Agnar hafi komið og sótt þig. Takk fyrir allan hláturinn, góðu samtölin, sundferðirnar, bíókvöldin, strætóferðirnar, hakkabuffin og allt hitt. Við sjáumst aftur. Sigurður, Lára og Agnes Björg. Lára Þorsteinsdóttir Nú kveðjum við kæra samstarfs- konu og vinkonu. Ótímabær kveðjan sú – en Alda fagnaði 60 árum 7. mars síðastliðinn. Mér finnst eins ég hafi verið í fimmtugsafmæli hennar hérna bara rétt um daginn. Mann óar við því oft hve fljótur tíminn er að líða, og óhjákvæmi- lega hugsar maður á svona tím- um, „æ ég vildi að ég hefði verið oftar í sambandi“. Eftirsjáin er oft sár fylgifiskur söknuðarins þegar maður fær svona fregnir af ótímabæru and- láti gamals félaga. Alda vann með okkur hjá EJS frá árinu 2003 og var partur af sí- stækkandi hópi þeirra starfs- manna sem áttu stóran þátt í uppbyggingu, þróun og eflingu samsteypunnar sem styrktist sí- fellt með árunum og varð síðar að EJS/Skýrr sem svo að lokum varð partur af Advania. Alda var einstakur karakter sem setti mikinn svip á flóruna sem við EJS-arar vorum. Hún var með eindæmum sam- viskusöm, og man ég að hægt var að stilla klukku eftir stundvísi hennar, hún var hörkudugleg, einstaklega áreiðanleg og kraft- mikill samstarfsmaður. Alda var kjarnakona sem kall- aði ekki allt ömmu sína – en það sem einkenndi hana líka var blíð- leiki og góðmennska. Hún var góður vinur vina Alda Björgvinsdóttir ✝ Alda Björg-vinsdóttir fæddist 7. mars 1959. Hún lést 9. desember 2019. Útför Öldu fór fram 19. desember 2019. sinna og sannarlega haukur í horni að eiga og geta leitað til. Hún kallaði hlut- ina oftast eins og þeir voru og gat maður reitt sig á bæði í senn góðlát- leg og hreinskilin ráð þegar maður leitaði til hennar hvort sem var með álit, uppástungur eða það sem maður deildi með henni. Hún unni fjölskyldu sinni meira en allt og var gaman að heyra hana segja frá ófáum ferðalögum sínum erlendis m.a. til að hitta systur sína og skyld- menni sem hún átti þar ytra. Mér er líka sérstaklega minn- isstætt hvernig augu hennar blik- uðu af stolti í hvert skipti sem hún talaði um son sinn Gunnar Birni. Hún talaði oft og iðulega um hann. Hún var sannarlega stolt móðir sem sá ekki sólina fyrir stráknum sínum og greinilega var þarna um einstakt og náið mæðginasamband að ræða. Við viljum þakka þér elsku Alda fyrir samfylgdina í gegnum lífið og starfið. Þín verður sannarlega saknað og deginum ljósara að við fráfall þitt er nú stórt skarð hoggið í hóp okkar EJS-fjölskyldunnar. Viljum við senda Gunnari Birni syni Öldu, systkinum henn- ar, ættingjum og vinum okkar innilegustu samúðarkveðjur og sendum ykkur styrk í sorginni sem nú dynur yfir og fram undan er. Fyrir hönd EJS-fjölskyldunn- ar og vina þinna. Þín vinkona Sandra Birgisdóttir. Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Hjartans þakkir fyrir auðsýnda hlýju og væntumþykju við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, SIGURÐAR VALDIMARS GUNNARSSONAR múrara. Sérstakar þakkir til starfsfólks HERU - líknarþjónustu og líknardeildar Landspítalans í Kópavogi. Guðrún Stefanía Guðjónsdóttir Guðrún Berglind Sigurðard. Guðmundur M. Sigurðsson Gunnar Heimir Kristjánsson Selma Gísladóttir Ragnar Steinn Ragnarsson María Lísa Benediktsdóttir Rúnar Steinn Ragnarsson Helga Kristrún Hjálmarsdóttir og barnabörn Sú væntumþykja og hlýja sem við nutum við fráfall RÖGNU H. HJARTAR, Sléttuvegi 11, sem lést 11. nóvember, gladdi okkur mjög. Bestu þakkir og óskir um heilaga hátíð. Jakobína Sigtryggsdóttir Friðrik J. Hjartar Anna Nilsdóttir Rúnar J. Hjartar Áslaug Arndal og fjölskyldur Það er erfitt að kveðja. Nú hefur Badda móðursystir lagt í sína hinstu för. Það flæða fallegar minningar allt frá barnæsku þegar við systkinin fórum í heimsóknir til Böddu og Hilmars en var mikill samgangur milli þeirra systra og okkar barnanna, alltaf svo mikil til- hlökkun og gleði. Badda frænka var kröftug, kærleiksrík, barngóð og gaf hlýj- an faðminn alla tíð. Með netinu hafði samband okkar styrkst í seinni tíð og heimsókn okkar mömmu nýlega fór í að rýna í gamlar myndir og rifja upp gamla tíma og þá vel hlegið. Þó höggin í lífi hennar væru hörð, eins og að missa tvö af þremur börnum í umferðaslysi, þá hélt hún áfram, umvafði sig ljósi minninga þeirra og lifði í umhyggju sonar síns og tengda- Bjarnheiður Einarsdóttir ✝ BjarnheiðurEinarsdóttir fæddist 17. nóv- ember 1939. Hún lést 10. desember 2019. Útför Bjarn- heiðar fór fram 19. desember 2019. dóttur sem nú kveðja sína elsku- legu móður. Elsku Kiddi Már minn, Ella, ömmu- börnin, Guð gefi ykkur styrk, bless- un og ljós á mjög svo erfiðum tímum. Minning hennar lifir og ég veit að vel hefur verið tekið á móti henni í sumar- landinu góða. Ég kveð að sinni og þakka fyrir allt sem þú varst mér, elsku frænka mín. Er þér til heiðurs kveiki ég á kerti, með kærleika ég man hin liðnu ár og finn að oft þinn hugur hjartað snerti þá hrynja niður kinnar gleðitár. Ég stari inn í ljóssins blíða loga sem lýsir mína sál og hjarta mitt þá sé ég mynd af þér í björtum boga og brosið færist yfir andlit þitt. Ég skynja yl og mátt frá mínum stjaka því myndin þín í kertaljósi er. Á meðan einhver von hér fær að vaka þá verður ekki hægt að gleyma þér. (Kristján Hreinsson) Dagbjört Gísladóttir. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.