Morgunblaðið - 21.12.2019, Page 43
DÆGRADVÖL 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2019
PFAFF • Grensásvegi 13 • Sími: 414 0400 • www.pfaff.is
UpPlIfÐU
HlJÓMiNn
Með SeNnHeIsEr MoMeNtUm IiI
„HANN FÓR BARA EINU SINNI Á VEIÐAR.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að vera stjarnan í
eigin sápuóperu.
ÞÓ AÐ FÓLK VILJI
EKKI TRÚA ÞVÍ …
AÐ STUNDUM ER
SÍÐASTA SÆTI BEST …
SÍÐASTI KLEINUHRINGURINN,
SÍÐASTA SMÁKAKAN, SÍÐASTA
KARTÖFLUFLAGAN …
BÍDDU! SMÁKÖKUKRÚSIN ER
HORFIN? HVAÐ GERÐIST?
ÉG ÆTLA AÐ
SKIPTA HENNI
ÚT FYRIR
ÖRYGGIS-
HÓLF!
OG ÉG ÆTLA AÐ GEYMA LYKILINN!
„GETURÐU ÚTSKÝRT ÞETTA Á EINHVERN
ANNAN HÁTT? ÉG HEF EKKI VIT Á BALLETT.”
um að færa sér tvær bækur handa
Gorbatjsov og og Reagan þegar
leiðtogafundurinn var haldinn í
Höfða.“
Fjölskylda
Eiginkona Örlygs er Þóra Þor-
geirsdóttir, f. 31.1. 1933, húsfreyja.
Foreldrar hennar voru hjónin Þor-
geir Jónsson, bóndi í Gufunesi við
Reykjavík, f. 7.12. 1903, d. 5.1. 1989,
og Guðný Guðlaugsdóttir, húsfreyja
í Gufunesi, f. 31.12. 1905, d. 13.12.
1952.
Börn Örlygs og Þóru eru 1)
Þorgeir, f. 13.11. 1952, hæstarétt-
ardómari í Reykjavík, maki: Iðunn
Reykdal, f. 22.3. 1953: 2) Örlygur
Hálfdan, bókaútgefandi í Reykja-
vík, f. 15.9. 1956, maki: Guðbjörg
Geirsdóttir, f. 1.3. 1956; 3) Matthías,
húsasmiður í Reykjavík, f. 6.10.
1962, d. 20.6. 2014, maki: Elva Sig-
tryggsdóttir, f. 26.4. 1965. Matthías
var áður í sambúð með Kolbrúnu
Ólafsdóttur, f. 28.4. 1963. 4) Arnþór,
hljóðmaður í Reykjavík, f. 13.11.
1970.
Systkini Örlygs voru 1) Bjarney
Valdimarsdóttir, f. 8.3. 1917, d. 8.10.
1924; 2) Hulda Sigríður Guðmunds-
dóttir, hjúkrunarkona í Reykjavík,
f. 2.9. 1920, d. 13.5. 2010; 3) Matt-
hías Þorbjörn Guðmundsson, verk-
stjóri í Reykjavík, f. 10.9. 1921, d.
16.9. 1988; 4) Guðmundur Guð-
mundsson, skipstjóri í Reykjavík, f.
12.1. 1926, d. 4.3. 1995, og 5) Sveinn
Bjarnar Hálfdanarson, vélstjóri í
Reykjavík, f. 28.9. 1927, d. 8.3. 2015.
Foreldrar Örlygs voru Hálfdan
Halldórsson verslunarstjóri í Viðey
og Reykjavík, f. 16.12. 1886, d.
10.10. 1968, og Jóhanna Guðlaug
Bjarnadóttir húsfreyja, f. 25.9. 1894,
d. 31.7. 1987.
Örlygur Hálfdanarson
Guðný Pálsdóttir
húsfreyja á Fossi og Prestbakka
Guðmundur Guðmundsson
bóndi á Fossi og Prestbakka á Síðu
Matthildur Guðmundsdóttir
húsfreyja í Eystri-Tungu
Jóhanna Guðlaug Bjarnadóttir
húsfreyja í Viðey og Reykjavík
Bjarni Björnsson
bóndi í Eystri-Tungu í Landbroti
Anna Bjarnadóttir
húsfreyja í Efri-Vík
Björn Jónsson
bóndi í Efri-Vík í Meðallandi
Guðbrandur Ólafsson
bóndi á Randversstöðum
í Breiðdal
Óli Kristján Guðbrandsson
skólastjóri á Höfn í
Hornafi rði
Vésteinn Ólason
fv. prófessor við
Háskóla Íslands
Sveinn Bjarnar
Hálfdanarson
vélstjóri í
Reykjavík
Óttar
Sveinsson
rithöfundur
Hjalti Jón
Sveinsson
skóla meistari
Kvenna-
skólans í
Reykjavík
Guðbjörg Guðmundsdóttir
húsfreyja á Hólum
Sveinn Jónsson
bóndi á Hólum í Mjóafi rði
Anna Sveinsdóttir
húsfreyja í Kolmúla og á Eskifi rði
Halldór Ólafsson
bóndi í Kolmúla, Hólagerði í Fáskrúðsfi rði og á Eskifi rði
Guðrún Stefánsdóttir
húsfreyja á Kömbum
Ólafur Vigfússon
bóndi á Kömbum í Stöðvarfi rði
Úr frændgarði Örlygs Hálfdanarsonar
Hálfdan Halldórsson
verslunarstjóri í Viðey og Reykjavík
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Land, sem vatni liggur að.
Lítt sá vinur kemst úr stað.
Seggur kenndur sýslu við.
Á sveitabæjum þekkt nafnið.
Harpa á Hjarðarfelli sendir þessa
lausn:
Að vatni strandir víðast liggja
Varla lönd né strönd hann fer
Strandamenn þeir Strandir byggja
Strönd er bæjarnafnið hér.
Eysteinn Pétursson svarar:
Maður strý á ströndu tróð.
Strandaglópi er vist ei góð.
Strandamaður sterkur er.
Strönd er nafn á bæjum hér.
„Þá er það lausnin,“ segir Helgi
R. Einarsson:
Við fjöruborðið stendur strönd.
Við strandir kennd mörg bæjarlönd.
Styrk er Strandamannsins hönd.
Að strandaglópum berast bönd.
Þessi er lausn Guðrúnar Bjarna-
dóttur:
Upp við strönd hann vaða vann,
en vinurinn er tæpast strand.
Hann leit hinn sterka Strandamann.
Á Strönd vill gista’ á ferð um land.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Strönd hjá vatni víst má sjá.
Varla lönd né strönd kemst sá.
Ströndungur er Ströndum frá.
Strönd er nafnið bænum á.
Þá er limra:
Með konunum suður til Kanarí
kenndur hann ferðalög spanar í,
og ströndinni á
sér unir þeim hjá
allsber, en þær eru vanar því.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Kveð ég nú af kappi og dug,
kom mér gáta ein í hug,
eflaust þó með sóma og sann
sérhver hana ráða kann:
Fagnaðarboðskap flytur sá,
fremstur hluti sporði á.
Einatt veginn vísar þér.
Vel í holu unir sér.
Gömul vísa í lokin:
Stóra mastrið stend ég við
storminn fast á góni.
Aflið rastar út á hlið
öldu kastar ljóni.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Tveggja stranda járn
Atvinna