Morgunblaðið - 24.12.2019, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 4. D E S E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 301. tölublað 107. árgangur
Ármúli 8 I 108 Reykjavík I Sími 516 0600 I www.birgisson.is
Óskum viðskiptavinum og landsmönnum öllum
gleðilegrar hátíðar með þökk fyrir viðskiptin
á árinu sem er að líða.
Gleðilegahátíð
Óskum viðskiptavinum og landsmönnum öllu
gleðilegrar hátíðar með þökk fyrir viðskiptin
á árinu sem er að líða.
JARÞRÚÐUR
AFTUR Á
HEIMASLÓÐIR
VINSÆLT
VÖRUMERKI
SPILLING, ÞÖGG-
UN OG MÚTUR
Á FJÖLUNUM
DR. FOOTBALL 14 HILMAR JÓNSSON 30ÞJÓNAR Á ÞÓRSHÖFN 12
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Formenn verkalýðsfélaga segja
minni verðbólgu en spáð var auka
líkur á að markmið lífskjarasamn-
inganna náist. Sú óvenjulega staða
er uppi á Íslandi að verðbólga
mælist nú aðeins 2% í niðursveiflu.
Vilhjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, segir
lífskjarasamningana hafa stuðlað að
minni verðbólgu og vöxtum. Það
hafi aftur sparað launþegum háar
fjárhæðir í afborganir af lánum.
„Lífskjarasamningarnir eru, svo
ekki verður um villst, að skila þeim
árangri sem lagt var upp með,“ seg-
ir Vilhjálmur um stöðuna. Lækkun
tekjuskatts um áramótin styrki
kaupmátt láglaunafólks enn frekar.
Horfur á lítilli verðbólgu
Erna Björg Sverrisdóttir, aðal-
hagfræðingur Arion banka, segir út-
lit fyrir að verðbólgan verði við 2,5%
markmið Seðlabankans út næsta ár
hið minnsta. Með þetta í huga telur
hún að raunlaun kunni að hækka
meira 2020 en bankinn hafði spáð.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, segir að þótt margt hafi gengið
vonum framar í tengslum við samn-
ingana hafi hann þungar áhyggjur
af mögulegum verðhækkunum hjá
birgjum og hinu opinbera. Þá sé
vaxandi atvinnuleysi hjá nýjum hóp-
um áhyggjuefni, ekki síst ungu
fólki.
Þegar kjarasamningarnir voru
undirritaðir í byrjun mars voru um
6.000 einstaklingar á atvinnuleysis-
skrá hjá Vinnumálastofnun. Þeim
hefur síðan fjölgað í 7.600.
Vísitala kaupmáttar hækkaði nær
stöðugt á þessum áratug.
Treystir samninga
Minni verðbólga en spáð var styður lífskjarasamningana
Arion banki telur raunlaun geta hækkað umfram spá 2020
MMinni verðbólga »10
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Jólatréð Systurnar Hugrún Edda og Kolfinna skreyta hér jólatréð hjá ömmu og afa. Jólin eru hátíð barnanna en þá er líka haldið fast í gamlar hefðir, eins og að skreyta jólatréð. »18-19
Gleðileg jól
Í aðfangadags-
blaði Morgun-
blaðsins í dag
sýnir Ragnar
Jónasson, lög-
fræðingur og
spennusagna-
höfundur, á sér
nýja hlið í fal-
legri jólasögu.
Titill sögunnar
er Andartak við
sjóinn og gerist hún á Siglufirði en
þaðan er Ragnar einmitt ættaður.
Ástin, örlögin, minningar frá lið-
inni tíð og heitar tilfinningar eru
þráðurinn í sögu Ragnars þar sem
jól, stórhríð og snjóflóð í síldar-
bænum eru umgjörðin. »20
Ragnar með
jólasögu
Ragnar
Jónasson