Morgunblaðið - 24.12.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2019
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is
Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga
VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI,
TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI?
Fjölmör
stuttnáms
í handve
g
keið
rki.
Skráning og upplýsingar á
www.handverkshusid.is
Stillt var í veðri og margt um
manninn á Þorláksmessu í mið-
bænum líkt og vant er á þessum
degi.
Flestir virtust hafa gert allt tím-
anlega sem þarf að gera til að
halda hátíðleg jól því lítill æsingur
var í fólki og hamingjan áþreif-
anleg í hátíðlegu andrúmsloftinu.
Eftir því tók Rose Lavendero,
ferðamaður frá New York, sem
blaðamaður tók tali í miðbænum í
gærkvöldi.
„Það er yndislegt að vera hérna
á þessum tíma. Ég er svo hrifin af
orkunni hérna, hún er öðruvísi en
heima. Hér er rólegra og hljóðlát-
ara.“
Tinna Þórdís, Erna, Sara og Sæ-
mundur voru búin að uppfylla
næstum allar sínar jólaskyldur og
voru glöð í bragði þegar blaða-
maður rakst á þau í Austurstræti.
Þrátt fyrir að þar væri margt
um manninn voru ys og læti víðs
fjarri.
Fjölskyldan fer alltaf í bæinn á
Þorláksmessu og hefur gaman af.
„Við komum hingað fyrir stemn-
inguna, alltaf þegar veður leyfir,“
sagði Erna.
Söru fannst allt skemmtilegt við
jólin en Tinna Þórdís sagði það
besta við jólin vera : „Að vera með
fjölskyldunni.“
Friðarganga var að venju geng-
in niður Laugaveginn og sömuleið-
is fór sama ganga fram á Ísafirði
og Akureyri.
Var þetta í 39. sinn sem gangan
fór fram í Reykjavík.
ragnhildur@mbl.is
Fjölskylda Tinna Þórdís, Erna, Sæmundur og Sara voru í sannkölluðu jólaskapi á Þorláksmessu í miðbænum. Bandarísk Cameron, Rose og Ted eru hrifin af íslenskri jólastemningu.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Söngelsk Hamrahlíðarkórinn og Kór Menntaskólans við Hamrahlíð leiddu Friðargönguna og sungu viðeigandi lög.
Mannmergð en
ekkert stress
Hátíðleg stemning á Þorláksmessu
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Til skoðunar er að endurheimta
mikilvæg hrygningarsvæði og góð
veiðisvæði í Hítará í Borgarbyggð
eftir að stórt berghlaup féll úr
Fagraskógarfjalli vestan árinnar 7.
júlí 2018. Bergfyllan fyllti farveg
Hítarár á um 1,6 kílómetra kafla
skammt ofan við Kattarfoss. Hefur
Skipulagsstofnun nú komist að
þeirri niðurstöðu að fyrirhuguð
framkvæmd sé ekki líkleg til að hafa
í för með sér umtalsverð umhverfis-
áhrif og er framkvæmdin því ekki
háð mati á umhverfisáhrifum.
Ólafur Sigvaldason, formaður
Veiðifélags Hítarár, segir fram-
kvæmdina ekki vera flókið verk.
„Þetta er nú einfalt mál en mun
auðvitað taka dálítinn tíma því þetta
er svolítið magn. Framkvæmdin
sjálf er aftur á móti ekki flókin,“ seg-
ir hann í samtali við Morgunblaðið
og bætir við: „Það þarf bara að opna
fyrir vatnið aftur og beina ánni í sinn
rétta farveg. Um leið opnast aðgengi
fyrir laxinn upp á svæðið fyrir ofan
skriðuna. Samtals eru þetta því um
20 kílómetrar sem eru að endur-
heimtast sem laxgengt svæði.“
Aðspurður segir hann þörf á deili-
skipulagi áður en hægt verður að
hefja framkvæmdir. Þá telur Skipu-
lagsstofnun nauðsynlegt að fyrir
liggi niðurstöður rannsóknar á
kornastærðarkúrfu skriðunnar áður
en hægt verður að samþykkja deili-
skipulag. „Í deiliskipulagi þarf jafn-
framt að útfæra framkvæmdirnar
nánar með tilliti til þeirra niður-
staðna. Í deiliskipulagi þarf að út-
færa skurð, vegslóða og landmótun
með nákvæmum hætti ásamt því að
tilgreina og setja skýr fyrirmæli um
mótvægisaðgerðir,“ segir í ákvöðrun
Skipulagsstofnunar.
Áin fer hamförum á nýju svæði
Vatnafar Hítarár er gjörbreytt
eftir berghlaupið þar sem rúmlega 7
kílómetra langur árfarvegur neðan
skriðunnar að mótum við hliðarána
Tálma er nánast þurr. Ofan skrið-
unnar myndaðist lón og Hítará fann
sér farveg framhjá skriðunni niður í
hliðarána Tálma.
Spurður hvort vitað sé hvenær
framkvæmdir geti hafist kveður
Ólafur nei við.
„Nei, það er ekki vitað. Það hefur
dregist úr hófi nú þegar að byrja á
þessu enda fer áin hamförum í nýj-
um farvegi. Hún er búin að færa sig
og taka veg. Þessi nýi farvegur hef-
ur enga burði fyrir allt þetta vatn,“
segir hann.
Vilja nú endurheimta
mikilvæg svæði í Hítará
Framkvæmdin er ekki háð mati á umhverfisáhrifum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Náttúruhamfarir Gríðarlegt magn af jarðvegi féll í Hítará í júlí 2018.
Mannanafnanefnd samþykkti 11.
desember sl. beiðni um karl-
mannsnafnið Ormsvíkingur og
skal nafnið fært á manna-
nafnaskrá.
Karlmannsnöfnin Sófús, Siggi,
Lambi og Ramses voru einnig
samþykkt sama dag.
Að auki var karlmannsnafnið
Arían samþykkt en nefndin hafn-
aði eiginnafninu Arian. Eigin-
nafninu Bastian var einnig
hafnað. Í úrskurði mannanafna-
nefndar voru síðastnefndu
nöfnin sögð brjóta bága við ís-
lensk málkerfi ef þau væru bor-
in fram eftir stafanna hljóðan.
Mannanafnanefnd samþykkti
hins vegar kvenkynsnöfnin
Deda og Erica, en hið síð-
arnefnda skal færa á manna-
nafnaskrá sem ritmynd af nafn-
inu Erika.
Millinöfnin Hlíðbekk og Kvist
hlutu einnig náð fyrir augum
nefndarinnar. rosa@mbl.is
Nú má heita Ormsvíkingur og Lambi en
Arian og Bastian ekki leyfð sem eiginnöfn