Morgunblaðið - 24.12.2019, Blaðsíða 34
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2019
Kaupfélag Skagfirðinga óskar starfsfólki,
félagsmönnum, viðskiptavinum
svo og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla.
Þökkum viðskiptin
á árinu sem er að líða.
Kaupfélag Skagfirðinga
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég var búin að semja efni frá 2016
og var komin langleiðina með að
fylla plötu. Þá ákvað ég að sækja um
hljóðritunarstyrk hjá Rannís og
fékk þar veglegan styrk. Þá gat ég
ekki hætt við heldur bókaði stúdíó
þremur mánuðum síðar og lét bara
vaða,“ segir Marína Ósk Þórólfs-
dóttir um tilurð fyrstu sólóplötu sína
sem nefnist Athvarf og út kom fyrr í
vetur og nálgast má á tónlistarveit-
unni Spotify. Platan inniheldur ell-
efu lög sem öll eru samin og útsett af
söngkonunni sjálfri.
Hversdagsleg augnablik
Marína Ósk lauk bæði burtfarar-
prófi í klassískum þverflautuleik,
undir handleiðslu Martial Nardeau
og burtfararprófi í rytímskum söng
undir handleiðslu Kristjönu Stef-
ánsdóttur vorið 2011. Haustið 2013
lá leið hennar til Hollands þaðan
sem hún lauk BMus-prófi í djass-
söng vorið 2017 frá Conservatorí-
unni í Amsterdam. Ári síðar fluttist
hún til Stokkhólms og hóf mast-
ersnám í flutningi djasstónlistar við
Konunglega tónlistarháskólann þar í
borg, en er sem stendur í leyfi þar
sem henni bauðst afleysingastaða
sem rytmískur söngkennari við
Menntaskóla í tónlist (MÍT). „Það
hentaði mér ágætlega að koma heim
í þessa átta mánuði sem staðan
býðst því þá gat ég fylgt plötunni
minni betur úr hlaði,“ segir Marína
Ósk sem heldur mastersnámi sínu
áfram næsta haust.
„Eftir að hafa lengi flutt tónlist
eftir aðra fann ég í náminu mínu í
Amsterdam fyrir aukinni þörf fyrir
að skapa mitt eigið efni og fá tæki-
færi til að vera persónulegri,“ segir
Marína Ósk þegar hún er spurð hvað
hafi ýtt henni út í lagasmíðar á sín-
um tíma.
„Ég byrjaði á að semja mikið af
íslenskum textum og fór að íslenska
djassstandarda sem endaði með
plötuútgáfu,“ segir Marína Ósk og
vísar þar til plötunnar Beint heim
sem hún gaf út 2017 ásamt gítarleik-
aranum Mikael Mána Ásmundssyni
sem hún kynntist í náminu í Hol-
landi. Að sögn Marínu Óskar eru
flest lögin á Athvarfi samin á gítar í
opinni stillingu. „Það var eins og ein-
hver gátt hefði opnast við það að
stilla gítarinn með þessum hætti. Ég
fékk heilmikinn innblástur og lögin
komu líkt og af færibandi,“ segir
Marína Ósk, en lögin eiga það öll
sameiginlegt að fjalla um upplifun
Marínu Óskar á hversdagsleikanum
og ýmsum fyrirbærum náttúrunnar,
svo sem rigningu og snjókomu.
Spurð um titil plötunnar segir
Marína Ósk hann vísa til þess að tón-
list hafi lengi verið henni eins konar
griðastaður. „Alveg frá því ég var
krakki hef ég leitað í tónlist til að
hvíla mig, safna kröftum og leita
lausna. Sem táningur átti ég það til
að loka mig af inni í herbergi, leggj-
ast niður og einfaldlega hlusta á tón-
list. Þegar ég fór að semja mína eig-
in tónlist tók ég eftir því að ég var
oftast að semja lög um það sem róar
mig. Lögin fjalla öll um hvers-
dagsleg augnablik þar sem ég finn
ró – þannig myndast einhvers konar
eigið athvarf,“ segir Marína Ósk og
tekur fram að það hafi legið beint við
að semja alla textana á íslensku.
„Eftir að hafa búið fyrst í Hollandi
í fjögur ár og síðan Svíþjóð fann ég
að ég saknaði þess að tjá mig á
móðurmálinu. Eftir að hafa talað
ensku og sænsku árum saman fann
ég hversu mikið frelsi fólst í því að
tjá mig á íslensku og geta sagt ná-
kvæmlega það sem ég vildi segja í
stað þess að læðast eins og köttur í
kringum heitan grautinn um efnið
vegna þess að mig skorti réttu orð-
in,“ segir Marína Ósk.
Ákvað að taka áhættu
Tónlistin á plötunni er órafmögn-
uð og hvert lag tekið upp í heilum
tökum. Spurð hvers vegna hún hafi
valið að fara þá leið segist Marína
Ósk vera undir áhrifum djassins.
„Sú tónlist sem hefur haft hvað
dýpst áhrif á mig er tónlist sem er
fullkomlega ófullkomin og mannleg
og uppáhaldsplöturnar mínar eru
gamlar djassplötur þar sem brak í
gólfi og mistök heyrast á upptök-
unum. Ég ákvað að taka áhættuna
og taka sönginn upp í sama rými og
á sama tíma og hljóðfæraleikararnir
og leyfa tónlistinni að taka þá stefnu
sem hún vildi í hverri töku,“ segir
Marína Ósk. Flytjendur með henni á
plötunni eru Mikael Máni Ásmunds-
son á rafgítar, orgel og fleira, Lito
Mabjaia á rafbassa, Ásgeir J. Ás-
geirsson á kassagítar, Þorvaldur
Halldórsson á trommur og Rakel
Pálsdóttir og María Magnúsdóttir
sem syngja bakraddir.
Ljósmynd/Sigga Ella
„Fullkomlega ófullkomin“ tónlist
Athvarf er fyrsta sólóplata Marínu Óskar Tónlistin alltaf verið griðastaður tónlistarkonunnar
Fór að semja lög um það sem róaði hana Hafði þörf fyrir að flytja persónulegra efni en áður
Safna kröftum „Alveg frá því ég
var krakki hef ég leitað í tónlist til
að hvíla mig, safna kröftum og
leita lausna,“ segir Marína Ósk.