Morgunblaðið - 24.12.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2019
Selfoss // Akureyr i // Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Mest seldu fjórhjól
á Íslandi síðastliðin 4 ár!
Verð frá
1.480.000
með vsk.
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Breytingar á hinum ýmsu opinberu
gjöldum fylgja áramótunum næstu
eins og mörgum hinum fyrri. Flest
krónutölugjöld verða hækkuð um
2,5%, sem er minni hækkun en sem
nemur verðlagshækkunum. Þó eru
dæmi um að krónutölur hækki um
157%, en einnig eru dæmi um að þau
lækki um heil 42%, líkt og komu-
gjöld á heilsugæslustöðvum gera um
áramótin þegar þau fara úr 1.200
krónum í 700 krónur.
Úr 350 í 900 krónur
Áfengis- og tóbaksgjöld hækka al-
mennt um 2,5%. Samkvæmt upplýs-
ingum frá ÁTVR um vænt útsölu-
verð, sem miða við óbreytt verð frá
birgjum, mun karton af sígarettum,
sem á þessu ári kostaði 10.733 kr.,
kosta 10.918 krónur á næsta ári. Þá
mun 500 ml bjór sem nú kostar 379
krónur á næsta ári kosta 385 kr.
Rauðvínsflaska sem nú kostar 2.098
krónur mun á næsta ári kosta 2.129
og vodkaflaska, 700 ml, sem nú kost-
ar 5.699 mun á næsta ári kosta
5.824.
Úrvinnslugjald á ökutæki hækkar
úr 350 krónum í 900 krónur, sem er
157% hækkun. Þá mun almennt
komugjald á heilsugæslu á dag-
vinnutíma lækka úr 1.200 krónum í
700, sem er um 42% lækkun.
Útvarpsgjald hækkar úr 17.500
krónum í 17.900.
Kolefnisgjald hækkar um 10%
Samkvæmt upplýsingum frá FÍB
mun bensínverð hér á landi hækka
um 3,4 krónur á lítra um áramótin
miðað við óbreytta álagningu og
mun lítrinn af dísilolíu hækka um 3,2
krónur á lítra. FÍB ráðgerir að
bensínverð miðað við núverandi út-
söluverð og álagningu hækki úr
238,1 krónu (N1 og Olís) í 241,50
krónur á lítra og dísilolía úr 233,10
krónum í 236,30 krónur á lítra.
Bensíngjöldin hækka samtals um
1,85 krónur á lítra. Kolefnisgjald
hækkar um 10%, fer úr 9,10 í 10
krónur á lítra hvað bensín varðar.
Kolefnisgjald á dísilolíu hækkar úr
10,40 í 11,45 krónur. Olíugjald
hækkar um 2,5%, úr 62,85 krónum í
64,40 krónur á lítra. Virðisauka-
skattur leggst síðan ofan á þessi
gjöld.
Kostar 400 krónur að leggja
Gjaldskrá Reykjavíkurborgar
tekur nokkrum breytingum en sem
dæmi hækkar gjald í sundlaugar
borgarinnar úr 1.000 krónum í 1.030,
og sömuleiðis hækkar 20 miða sund-
kort fullorðinna úr 8.450 í 8.700.
Stakt far með strætó fer úr 470
krónum í 480 og námsgjald fyrir
leikskólabarn í flokki I hækkar úr
18.315 kr. í 18.777 krónur.
Bílastæðagjald á gjaldsvæði 1
hækkar úr 370 kr./klst. í 400 kr./klst.
en lánsskírteini Borgarbókasafns
Reykjavíkur stendur í stað, 2.500
krónur, en það hækkaði um 19% um
seinustu áramót.
Dæmi um fyrirhugaðar verðbreytingar á komandi ári
157%
verður hækkun
úrvinnslugjalds
á ökutæki – sem
innheimt er tvisvar
á ári með bifreiða-
gjaldi – eða úr
350 í 900 kr.
75% verður hækkun á úrvinnslugjaldi á
plastumbúðir eða úr 16 í 28 kr./kg
700 kr. í stað 680 mun kosta fyrir barn í Húsdýra-
garðinn í Reykjavík, sem er 20 kr.
hækkun eða um 2,9%
Árskort fjölskyldu hækkar um 3%,
eða úr 20.300 í 20.900 kr.
17.900
kr. í stað 17.500
verður útvarps-
gjald sem er
2,3% hækkun
10.050
kr. í stað 9.796 munu
máltíðir í grunnskólum
Reykjavíkur kosta í
mánaðar áskrift,
sem er 2,6%
hækkun
42%
verður lækkun á
almennu komugjaldi
á heilsugæslustöð,
eða úr 1.200 í 700
kr. á dagvinnutíma
8,3%
2,5% er fyrir-huguð
hækkun leikskólagjalda
í Reykjavík
241,50 kr. í stað um 238 kr. verður
algengt verð á lítra af bensíni miðað
við núverandi útsöluverð og álagn-
ingu eftir hækkanir á bensíngjöld-
um, dísilolía mun hækka úr 233,10
kr. lítrinn í 236,30 kr.
2,5% er fyrir-
huguð hækkun á
áfengis- og tóbaksgjaldi
480 kr. í stað 470 mun
eitt far með Strætó
kosta staðgreitt, sem er hækkun um 2,1%
Tímabilskort, 1 mánuður, hækkar
um 2,3% úr 12.800 í 13.100 kr.
1.030 kr. mun stakt gjald fyrir fullorðna kosta í
sundlaugar Reykjavíkur í stað 1.000 kr.
sem er 3% hækkun
Stakt gjald fyrir
börn hækkar
ekki og er
160 kr.
er fyrirhuguð hækkun á
menningarkorti Reykjavíkur,
eða úr 6.000 í 6.500 kr.
Algeng tegund af rauð-
víni mun hækka í verði
um 30 kr. fl askan
385 kr. mun hálfur
lítri af 5% bjór
kosta, sem er
hækkun um 6 kr.
Verð á kartoni
af sígarettum
hækkar um 1,7%,
úr 10.733 kr.
í 10.918
Opinber gjöld taka breytingum
Útvarpsgjaldið komið upp í 17.900 krónur FÍB býst við að bensínverð hækki um 3,4 krónur á
lítrann Komugjöld á heilsugæslu lækka Verð á lánsskírteinum bókasafna stendur í stað
Morgunblaðið/Eggert
Umferð Eigendur ökutækja munu finna fyrir hækkunum eftir áramót á
ýmsum gjöldum tengdum rekstri bílanna, m.a. á kolefnisgjaldi.
Gæsluvarðhald yfir einum þeirra
manna sem liggja undir grun um að
hafa flutt inn rúm 16 kg af kókaíni
til landsins um Keflavíkurflugvöll í
vor var framlengt sl. fimmtudag
um fjórar vikur. Úrskurður héraðs-
dóms um varðhald yfir manninum
rann út í gær, en hann var handtek-
inn í Reykjavík í maí sl. Ákæra var
gefin út í ágúst og er málið nú til
umfjöllunar í héraðsdómi. Menn-
irnir sem liggja undir grun eru
þrír, fæddir 1996 og 1999.
Sá sem nú er haldi á yfir höfði sér
allt að 12 ára fangelsi.
Áfram í varðhaldi
Vinnu lögreglu á vettvangi brunans
í fjölbýlishúsi Vesturbergi í Breið-
holti í Reykjavík fyrir helgina lauk
í gær. Málið er enn óupplýst.
Íkveikja er einn möguleikinn sem
skoðaður er við rannsókn. Eldurinn
kviknaði í geymslu í húsinu. Þar
var mikill eldsmatur og af neist-
anum varð mikið bál.
Eldsvoði í rannsókn