Morgunblaðið - 24.12.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.12.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2019 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Þorláksmessa er einn stærsti dagur ársins hjá verslunum hvarvetna um landið og fylgir deginum oftast bæði jólastemning og stress. Verslunarfólk sem blaðamaður Morgunblaðsins gaf sig á tal við í gær var sammála um að jólaverslun hefði gengið ótrúlega vel í mánuðinum. Spáðu flestir góðri sölu í gær og töldu að batnandi veðurspá gærdagsins víða um land væri góðs viti fyrir verslun. Höfðu margir orð á því að fólk hefði byrjað fyrr að undirbúa jólin í ár og því væri jólastressið í lág- marki hjá flestum. Margir lögðu leið sína í hlýjuna á Glerártorgi á Þorláks- messu en Ugla Snorradóttir, sölumað- ur hjá Halldóri Ólafssyni úrsmið, sagð- ist vera vel undirbúin fyrir daginn. Kvað hún starfsmenn hafa spáð því að meira yrði að gera en venjulega vegna veðurblíðunnar. „Það var svo brjálað veður í gær að margt fólk sem kemur vanalega komst ekki út af veðri. Þannig að við erum búin að undirbúa okkur,“ sagði Ugla og bætti við: „Þetta er alltaf ótrúlega gaman. Þvílíkur „stemmari“ og allir í góðum gír.“ Jólastemningin var ekki síðri hjá kaupmönnum á Austurlandi en spurð um jólaverslunina í ár sagði Kristín Ólafsdóttir, eigandi gjafavöruverslun- arinnar Klassík á Egilsstöðum, kaup- hegðun viðskiptavina hafa verið öðru- vísi í ár en verið hefur og sagði að jólastressið virtist liggja minna á fólki í ár en oft áður. Sagði hún marga hafa byrjað fyrr en áður að kaupa jólagjafir og að fólk keypti nú fjölbreyttari vörur. Samhugur um að versla heima „Oft hefur verið eitthvað eitt ákveð- ið eða tvennt sem fólk ásælist en nú er þetta rosalega dreift,“ sagði Kristín. „Mér finnst líka vera samhugur í fólki að reyna að versla í heimabyggð. Það er náttúrlega það sem þetta snýst um hjá okkur sem erum að reyna að halda út þjónustu í smáum samfélög- um.“ Sjaldan er eins mikill asi á fólki á höfuðborgarsvæðinu og á Þorláks- messu en eins og áður segir virðist verslunarfólk vera sammála um að stressið sé minna hjá mörgum í ár en áður. „Fólk fór aðeins fyrr af stað en oft áður, þannig að þetta er búið að vera svona jafnt einhvern veginn. Mjög þægilegt,“ sagði Bergþóra Guðnadótt- ir, eigandi Farmers and Friends á Granda og Laugavegi, í gær. Sagði hún jólaverslunina hafa gengið afar vel. Hún staðfesti að Þorláksmessu- morgunn hefði byrjað með látum og kvað stemninguna í miðbænum vera frábæra. Tinna Jóhannsdóttir, markaðsstjóri Smáralindar, sagðist í gær búast við 35-40 þúsund manns að lágmarki í hús- ið á Þorláksmessu. „Þetta er hápunktur ársins hjá öll- um, bæði kaupmönnum og okkur sem stýrum húsinu,“ sagði hún. Tók hún undir með öðru verslunar- fólki og sagðist ekki hafa tekið eftir miklu jólastressi. „Mér finnst frekar mikil rólegheit yfir fólki,“ sagði hún. „Mín tilfinning er að fólk hafi und- irbúið jólin með fyrra fallinu þetta árið. Nýtt tilboðsdaga eins og svartan föstu- dag og miðnæturopnanir og svoleiðis þannig að jólaverslun byrjaði fyrr.“ Lítið um jólastress á Þorláksmessu  Verslunarfólk er sammála um að landsmenn hafi byrjað fyrr en venjulega að undirbúa jólin  „Þetta er alltaf ótrúlega gaman. Þvílíkur stemmari og allir í góðum gír,“ segir sölumaður á Akureyri Morgunblaðið/Margrét Þóra Þórsdóttir Þorláksmessa Margir lögðu lokahönd á jólainnkaupin á Glerártorgi í gær. Teitur Gissurarson teitur@mbl.is „Það eru töluvert margir útlendingar sem koma hingað til lands til að gifta sig,“ segir Sólrún Ingunn Sverrisdóttir, fulltrúi sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, en starf hennar felst að stærstum hluta í því að gefa fólk saman. Segir hún að það færist í vöxt að fólk fari til sýslu- manns til að gifta sig, og nefnir hún sérstaklega fjölgun þeirra erlendu ferðamanna sem koma hingað gagngert í þessum göfuga tilgangi. „Þeir koma hingað bara til að gifta sig, og fara svo aftur,“ segir Sólrún. Auðveldara að gifta sig hér Aðspurð segist Sólrún ekki vita með vissu hver sé ástæða þess að sífellt fleiri útlenskir ferðamenn sækja Ísland heim til að láta gefa sig saman en nefnir að hjónabönd samkynhneigðra séu sums staðar bönnuð. Því þekkist dæmi þess að samkynhneigð pör komið hingað til að gifta sig. Þá bætir hún við: „Svo er kannski auðveld- ara að gifta sig á Íslandi en víða annars staðar. Sum ríki gera kröfur um að fólk sé búsett í landinu. Sem dæmi geturðu í Frakklandi ekki gift þig hjá dómara eða sýslumanni nema þú sért búsettur í því hverfi sem dómarinn er í. Við gerum ekki þær kröfur. Við gerum kröfu um skilríki, sem leggja þarf fram, svo sem hjú- skaparvottorð, fæðingarvottorð og persónuskil- ríki.“ Spurð um athöfnina sem slíka, segir Sólrún að hún sé formleg, og kannski ekki eins per- sónumiðuð og athafnir sem prestar eða for- stöðumenn skráðra trú- og lífsskoðunarfélaga framkvæma. Þrátt fyrir það fara ekki allar gift- ingar fram á skrifstofu sýslumannsins. „Við för- um í heimahús, niður á höfn, út á strönd eða út í skip, eða hvað það nú er sem fólk vill gera af þessu tilefni.“ Fólk vill koma málum á hreint Eins og við má búast eru giftingarnar sem Sólrún sér um ekki með neinu trúarlegu ívafi. Spurð hvort það sé ekki einmitt ástæðan fyrir því að margir Íslendingar sækja sýslumann heim til að gifta sig kveður hún já við. Hún bæt- ir einnig við: „Eins held ég að fólk vilji í aukn- um mæli koma sínum málum á hreint. Þetta skiptir máli ef fólk á börn saman og einnig upp á erfðarétt og stofnun félagsbús og fleira. Það er ekki þessi sama kvöð og áður, að vera með íburðarmikið brúðkaup.“ Þá séu einnig dæmi um að fólk vilji gifta sig án þess að nokkur viti. „Parið bara kemur og óskar þess að enginn fái að vita um þennan gjörning. Það er einnig nokkuð algengt.“ Koma til Íslands til að gifta sig  Færst hefur í vöxt að fólk gifti sig hjá sýslumanni  Sólrún Ingunn hefur gefið saman mörg pör  Sum koma hingað til lands gagngert til að gifta sig Ljósmynd/Aðsend Hjón Sólrún (t.h.) ásamt Alexöndru Dís Unudótt- ur og Arnari Imsland sem giftu sig í gær. Gert er ráð fyrir að um 250 manns muni nýta sér aðstoð Hjálpræðis- hersins í dag og snæða jólahádegis- verð í höfuðstöðvum samtakanna í Mjódd. Þar verður skráðum gestum boðið upp á reyktan lax í forrétt, lambalæri í aðalrétt og ís og köku í eftirrétt en á bilinu 20 til 30 sjálf- boðaliðar verða til þjónustu reiðu- búnir við borðhaldið. „Við erum með marga sjálf- boðaliða og fyrirtæki sem leggja okkur lið og útvega gjafir, mat og annað,“ segir Hjördís Kristins- dóttir, foringi Hjálpræðishersins. Horfið var frá því fyrirkomulagi sem tíðkast hefur undanfarin ár, að hafa málsverðinn að kvöldi til, en það má rekja til breyttra aðstæðna, að sögn Hjördísar. „Samsetning hópsins hefur breyst auk þess sem Strætó gengur ekki um kvöldið,“ sagði Hjördís. Áður voru heim- ilislausir í meirihluta en nú eru fleiri hælisleitendur og einstæð- ingar í hópi þeirra sem nýta sér að- stoðina. Á þriðja hundrað í jólamat  Um 250 manns munu þiggja jólamat frá Hjálpræðishernum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gjafir Hjördís Kristinsdóttir afhenti gestum gjafapoka á fögnuðinum í fyrra. Eldur út frá rafmagni eða logandi kerti eru líklegar orsakir eldsvoða í sumarhúsi í Mýrarkotslandi við Kiðjabergsveg í Grímsnesi í fyrra- kvöld. Umráðamaður bústaðarins var handtekinn á vettvangi og var í haldi lögreglu til morguns, þá í ástandi til yfirheyrslu. Að henni lok- inni var manninum sleppt, enda gáfu rannsóknarhagmunir ekki ástæðu til annars, segir Elías Kjartansson, lög- reglufulltrúi hjá lögreglunni á Suð- urlandi. Bústaðurinn gjöreyðilagðist í eldsvoðanum. Vinnu lögreglu á staðnum lauk í gær og þá tók trygg- ingafélag við vettvangi. Rannsókn heldur áfram en Lögreglan á Suður- landi nýtur þar liðsinnis tæknideild- ar Lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu. sbs@mbl.is Sumarbú- staður brann  Rafmagn eða kerti Ljósmynd/Brunvarnir Árnesýslu Eldur Húsið gjörleyðilagðist.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.