Morgunblaðið - 24.12.2019, Síða 8

Morgunblaðið - 24.12.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2019 Góð heyrn glæðir samskipti ReSound LiNX Quattro eru framúrskarandi heyrnartæki Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Erum flutt í Hlíðasmára 19 Fagleg þjónusta hjá löggiltum heyrnarfræðingi Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna. Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru sérlega sparneytin. Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum. Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður. Hér var fyrir skömmu vitnað tilviðhorfa seðlabankastjóra til skattalækkunar á samdráttar- tímum og kom sjálfsagt engum að óvart að seðlabankastjóri hefði áhuga á hag- fræðilegu álitaefni af því tagi.    Seðlabankastjór-ar grúska þó sumir í fleiru en prósentuútreikn- ingum og vergum landsframleiðslum. Seðlabankastjórinn sem nú situr hefur til að mynda grúsk- að allnokkuð í flestu því sem við kemur Jóni Arasyni, sem bjó á Hólum, líkt og seðla- bankastjórinn gerði raunar á unga aldri.    En hann lét sér ekki nægja aðgrúska heldur ritstýrði fyrir nokkrum árum, og ritaði ásamt öðr- um, bókinni Jón Arason biskup – ljóðmæli. Sú bók er býsna áhuga- verð um sögu biskups og kveðskap, en einnig um átökin um siðaskiptin.    Þau átök voru vitaskuld trúar-legs eðlis og biskup virðist hafa verið heill í trú sinni, en hann virð- ist einnig hafa verið heill í afstöðu sinni til stöðu Íslands gagnvart hinu erlenda valdi. Þess vegna segir Ás- geir Jónsson að með falli biskups hafi Íslendingar fengið þjóðhetju.    Kraftarnir sem verkuðu á þessiátök eru fleiri og um þá fer hagfræðingurinn nokkrum orðum, en hann tengir þau við frelsi í versl- un og nefnir að eftir að konungi tókst að herða tökin á verslun hér með einokuninni hafi þjóðin orðið fátækari. Bókin um ljóðmæli Jóns varð því óvænt innlegg í umræður um mikilvægi frjálsra viðskipta. Jón Arason Óvænt innlegg um frjáls viðskipti STAKSTEINAR Ásgeir Jónsson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Bohuslav Woody Va- sulka eða Tímóteus Pétursson listamaður lést í Santa Fe í Nýju- Mexíkó í Bandaríkj- unum 20. desember sl. Hann fæddist í Brno í Tékkóslóvakíu 20. jan- úar 1937 og nam verk- fræði í Industrial Eng- ineering School of Brno áður en hann fór til náms í FAMU– kvikmyndaskólanum í Prag. Þar hitti hann fiðluleikarann Stein- unni Briem Bjarnadótt- ur, eða Steinu, árið 1959 og bað hann hennar í sömu andrá. Hann varð einn af tengdasonum Íslands eftir að þau giftust, fékk íslenskan ríkis- borgararétt og nafnið Tímóteus Pét- ursson. Sumarið 1964 vann Woody að tveimur kvikmyndum á Íslandi: Vel- rybarska Stanice um hvalstöðina í Hvalfirði og Sezona v Seydisfjordur – Vertíð á Seyðisfirði um síldarævin- týrið, báðar merkilegar heimildir um Ísland þess tíma. Saman fluttu Steina og Woody til Bandaríkjanna á sjöunda áratug síð- ustu aldar eftir stutta viðveru á Ís- landi. Þau settust að í New York þar sem þau kynntust vídeótækni. Saman notuðu þau þekkingu sína í tónlist og kvik- myndagerð sem und- irstöðu í nýrri túlkun í myndlist með hinni nýju vídeótækni. Fjöldamörg verk liggja eftir Woody bæði á filmu, vídeó og ljósmyndum. Einnig setti hann upp fjölda innsetninga og eru mörg verka hans í stærstu listastöfnum Bandaríkjanna og Evr- ópu. Steina og Woody stofnuðu The Kitchen í New York 1972 til þess að sýna verk sín og annarra sem störf- uðu í vídeó, tónlist og myndlist og starfar það enn í dag. Árið 2015 opn- aði Listasafn Íslands Vasulka stofu á safninu sem sýnir verk þeirra og varðveitir hluta af arfleifð þeirra. Vasulka tvíeykið: Steina og Woody er hluti af listamannahópi Berg Con- temporary og fyrr á árinu var frum- sýnd kvikmyndin Vasulka áhrifin – The Vasulka Effect á Skjaldborg og Bíó Paradís sem fjallar um líf og störf þeirra beggja. Síðan 1980 hafa þau búið í Santa Fe í Nýju-Mexíkó. Steina lifir mann sinn. Andlát Bohuslav Woody Vasulka Ný ríkisstofnun, Skatturinn, tekur til starfa um næstu áramót. Þá sameinast embætti tollstjóra og ríkisskattstjóra. Snorri Olsen ríkisskattstjóri mun stýra stofnuninni. Hinn 11. desember sl. var samþykkt á Alþingi að sameina embætti tollstjóra og ríkisskattstjóra með það að markmiði að bæta þjónustu og hafa að leiðarljósi sjálfvirknivæðingu og stafræna opinbera þjónustu í starfsemi skatt- og toll- yfirvalda, eins og það var orðað. Fram kemur í frétt á heimasíðu ríkisskatt- stjóra að fyrst um sinn verði engar breytingar. Afgreiðslur embættisins verða fyrst um sinn óbreyttar á Tryggvagötu 19 og Laugavegi 166. Þá verða símanúmer og net- föng óbreytt. Verið er að vinna að frekari samræmingu á starfsemi stofnananna, segir í fréttinni. Í ákvæði til bráðabirgða í lögunum segir að við gildis- töku þeirra verði embætti toll- stjóra lagt niður. Starfsmenn tollstjóra, sem eru í starfi þegar lögin öðlast gildi, verða starfsmenn hjá embætti ríkisskattstjóra og Toll- gæslu Íslands og fer um rétt starfsmanna til starfa hjá embætti ríkisskattstjóra eftir ákvæð- um laga um réttindi og skyldur starfsmanna rík- isins. Gert er ráð fyrir því að við embætti ríkisskatt- stjóra verði tollgæslustjóri sem ríkisskattstjóri skipar til fimm ára í senn til starfa hjá Tollgæslu Íslands. Hann skal fullnægja sömu hæfisskil- yrðum og héraðsdómarar til skipunar í embætti. Tollgæslustjóri skal, auk þeirra starfa sem hon- um eru sérstaklega falin samkvæmt tollalögum, eða af ríkisskattstjóra, fara með stjórn Tollgæslu Íslands undir yfirstjórn ríkisskattstjóra hvar- vetna á tollsvæði ríkisins, stjórn tollgæslumanna og hafa eftirlit með störfum þeirra og samræma þau. sisi@mbl.is Skatturinn tekur brátt til starfa Snorri Olsen

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.