Morgunblaðið - 24.12.2019, Page 9
Miðasala í Hörpu
sinfonia.is
harpa.is
528 50 50 @icelandsymphony / #sinfó
Óperettutónlist og valsar eftir Johann Strauss
yngri, Franz Lehár, Pjotr Tsjajkovskíj, Mélanie Bonis,
Amy Beach og fleiri.
Í upphafi nýs árs er tilvalið að hlýða á glaðværa Vínartónlistá hátíðlegum nýárstónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands. Tónleikar hefjast ávallt á forleik Johanns Strauss að
Leðurblökunni og þeim lýkur á Dónarvalsinum fræga. Inn
á milli hljóma vinsælar óperettuaríur og dúettar sem koma
öllum í gott skap.
Jóna G. Kolbrúnardóttir hefur hlotið mikið lof fyrir söng
sinn en hún kemur nú í fyrsta sinn fram á Vínartónleikum
sveitarinnar. Garðar Thor Cortes hefur vakið mikla hrifningu
bæði hér heima og erlendis og söng nýverið aðalhlutverkið
í framhaldi Óperudraugsins eftir Andrew Lloyd Webber í
Evrópu og Bandaríkjunum. Dansarar stíga einnig á svið og ljá
tónleikunum einstakan hátíðarblæ.
Bjarni Frímann Bjarnason
hljómsveitarstjóri
Jóna G. Kolbrúnardóttir
einsöngvari
Garðar Thor Cortes
einsöngvari
FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 19:30
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 19:30
LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 16:00 & 19:30
JÓNA G. KOLBRÚNARDÓTTIR
OG GARÐAR THOR CORTES