Morgunblaðið - 24.12.2019, Síða 23

Morgunblaðið - 24.12.2019, Síða 23
Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2019 Við Kæja sem hefði orðið áttræð núna í desember áttum samleið frá því að ég man fyrst eftir mér í Hveragerði hjá ömmu og afa. Hún passaði mig og Ingu systur á okk- ar fyrstu árum í Hveragerði. Ásta móðir mín og Sigurjóna móðir Kæju voru systur. Kæju og mömmu kom alltaf mjög vel sam- an og voru miklar vinkonur. Þau hjónin Kæja og maður hennar Sævar komu oft í heimsókn á æskuheimilið mitt í Háagerði í Reykjavík og var ávallt glatt á hjalla þegar þau komu við. Þegar ég var 10 ára gamall var ég eitt Karitas Óskarsdóttir ✝ Karitas Ósk-arsdóttir fæddist 26. desem- ber 1939. Hún lést á 14. apríl 2018. Útför Karitasar fór fram 26. apríl 2018. sumar hjá þeim hjónum í Hveragerði og það sumar giftu þau Sævar sig og Ómar sonur þeirra var skírður. Ég hélt alltaf góðu sam- bandi við hana og Sævar sem voru mjög samrýnd hjón. Þau eignuðust fjögur heilbrigð börn þau Ómar, Reyni, Þór og Jónu Dís. Heimili þeirra var ávallt til fyr- irmyndar í alla staði og var alltaf gott að koma í heimsókn til þeirra. Þau lentu í þeim hörmungum að missa tvö af börnum sínum sem er trúlega það versta sem foreldrar þurfa að upplifa. Seinustu ár Kæju átti hún við mikil veikindi að stríða sem að lokum drógu hana til dauða. Að lokum langar mér að þakka Kæju fyrir samveruna og vinskapinn í gegnum árin. Megi minningin um þig lifa. Þinn frændi Svanur Marteinn Gestsson. ✝ Kristín Álf-heiður Jóns- dóttir (Lilla) fædd- ist á Seyðisfirði 7. október 1924. Hún lést á Grund 1. desember 2019. Foreldrar henn- ar voru Jón Finn- bogason, f. 12.3. 1884, d. 26.1. 1931, og Oddný Friðrika Jóhann- esdóttir, f. 5.6. 1896, d. 26.7. 1974. Systkini Álfheiðar: Guð- rún, f .26.5. 1918, d. 17.3. 1997; Ásgeir, f. 1923, d. 29.7. 1923. Hún giftist Vilhjálmi Ing- ólfssyni, f. 6.10. 1922, d. 1993, rika, f. 30.8. 1949. Eiginmaður hennar er Reynir Þór Frið- þjófsson, f. 21.5. 1949, börn þeirra eru Sólbjörg, Vignir Þór og Hulda Dagmar. 3) Ingi- björg, f. 26.9. 1953, d. 22.11. 2016. Börn hennar með fyrri eiginmanni, Guðbirni Haralds- syni, Ásta Kristín, Guðbjörn og Haraldur. Seinni maður hennar var Leifur Teitsson, f. 6.12. 1945, d. 4.10. 2014, og átti hann fjögur börn af fyrra hjónabandi. 4) Álfheiður, f. 15.5. 1955. Eiginmaður hennar er Gísli Ágúst Friðgeirsson, f. 2.11. 1947, börn þeirra Ing- ólfur og Friðgeir. 5) Ásgeir, f. 29.8. 1964. Eiginkona hans er Soffía Pálsdóttir, f. 28.4. 1958. Barn þeirra Andri Páll. Soffía átti af fyrra hjónabandi eitt barn, Jón Þorgilsson. Langömmubörnin eru 28 og langalangömmubörnin átta. Útför Álfheiðar fór fram í kyrrþey 13. desember 2019. 18.9. 1943 í Ólafs- firði. Faðir Vil- hjálms gaf þau saman. Foreldrar Vilhjálms voru Ingólfur Þorvalds- son, f. 20.7. 1896, d. 15.9. 1968, og Jórunn Anna Nor- dal Jóhann- esdóttir, f. 21.11. 1897, d. 4.1.1986. Börn Vilhjálms og Álfheiðar: 1) Jón, f. 17.7. 1944, d. 4.4. 2015. Eftirlifandi kona hans er Guðrún Jóna Þorbjarnardóttir, f. 4.2. 1948, börn þeirra eru Erla Þorbjörg, Vilhjálmur, María Rós og Jó- hannes Oddur. 2) Anna Frið- Elsku mamma. Jæja mamma, nú ert þú farin og við eigum eftir að sakna þín. Þú hefur lifað gef- andi og viðburðaríku lífi. Alltaf tilbúin ef einhver þurfti á þér að halda. Við rifjum upp smá frá síðustu árum eftir að þú misstir pabba. Það eru um 26 ár síðan pabbi fór. Hans var sárt saknað en lífið hélt áfram. Lengst af upp frá því bjóstu í Aðalstrætinu. Til að fylla tóma- rúmið fórstu að stunda tóm- stundir; gler, leir, perlur og mál- un. Við eigum falleg málverk og muni sem minna okkur alltaf á þig. Þú gladdist mjög að sjá alla þessa myndarlegu afkomendur þína, enda um stóran hóp að ræða; barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Fimm ættliðir með þér. Það var sárt og tók sinn toll hjá þér að bæði Jón og Ingibjörg færu á undan. Með þínum orðum sagðir þú: Það er kominn tími til að kveðja. Búin að læra nóg, ekki eft- ir neinu að bíða. Við eigum mjög góðar minn- ingar sem við varðveitum vel. Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð, leiddu mig, og lýstu mér um ævistig. (Pétur Þórarinsson) Englakveðjur elsku mamma. Anna Friðrika, Álfheiður og Ásgeir. Elsku langamma mín. Ég er svo þakklát fyrir allar þær minn- ingar sem ég á um þig. Man eftir ótal mörgum sum- arbústaðaferðum með þér, ömmu og afa þar sem við spiluðum mjög mikið saman, það var alltaf svo gott að vera í kringum þig, elsku langamma mín. Það var alltaf svo gaman að koma í heimsókn til þín og man eftir því hvað það var spennandi þegar ég var lítil að fá að velja nammi úr skálinni þinni með lok- inu. Maður vissi alltaf að jólin væru að nálgast þegar ég sá þig og ömmu á fullu inni í eldhúsi heima hjá ömmu að undirbúa og fletja út laufabrauð svo við gætum byrjað að skera það út. Mér leið alltaf svo vel að sjá þig og þitt hlýja bros. Þú varst svo klár í höndunum og alla fallegu hlutina sem ég hef fengið frá þér þykir mér svo vænt um. Ég get notað það núna til þess minnast þín, elsku langamma mín. Mér þykir svo vænt um hvað þú ljómaðir öll upp þegar þú sást börnin mín. Þú varst yndisleg langamma og langalangamma og ég mun halda fast í allar yndislegu minningar mínar með þér sem eru mér svo ofarlega í huga. Takk fyrir allt, elsku lang- amma mín. Kær kveðja, Hrafnhildur Anna Guðjónsdóttir. Álfheiður Jónsdóttir Mér fannst amma alltaf hafa meiri orku en aðrir í fjöl- skyldunni. Þegar við heimsóttum hana var hún ávallt önnum kafin við að baka köku, pönnukökur eða að henda í vöffl- ur. Hún vildi að öllum liði vel og fengju nóg að borða. Amma var sí- kvik, gekk strax í verkin og hljóp alltaf við fót. Á jólunum eldaði hún stórkost- legan veislumat, oftast hefðbundið steikt lambakjöt í ofni með öllu til- heyrandi; kartöflum, Orabaunum, heimalöguðu rauðkáli, heimatilbú- Ingibjörg Steindórsdóttir ✝ IngibjörgSteindórsdóttir fæddist 28. janúar 1923. Hún lést 14. desember 2019. Útför Ingibjarg- ar fór fram 19. des- ember 2019. inni rabarbarasultu úr rabarbarabeðinu hennar í garðinum og ljúffengustu brúnu sósu, sem ég hef nokkurn tíma bragðað. Á undan steikinni, að dönsk- um sið, því amma var af dönskum ætt- um, var hrísgrjóna- grautur með falinni möndlu. Við krakk- arnir kepptumst öll við að finna möndluna svo við gætum hreppt möndlugjöfina í vinning. Heima- lagaði rjómaísinn og súkku- laðikakan, sem komu á eftir voru partur af hefðinni. Undirbúningur veislunnar krafðist sjálfboðaliða og ég man að ég var alltaf mjög til í að skjótast niður í kjallara til að sækja meira appelsín og maltöl. Á sunnudögum vorum við ömmu- strákarnir oft heima hjá ömmu og fengum að drekka kók og spila á spil við kringlótta eldhúsborðið. Þetta voru kósí samverustundir og amma toppaði þær með því að gefa okkur nýbakaðar pönnukök- ur eða vöfflur. Hún sagði við okk- ur mörgum sinnum að við mætt- um ekki vera svangir. Enn í dag finnst mér að vöffl- urnar, pönnukökurnar og súkku- laðikakan hennar hafi verið í sér- flokki og maturinn óviðjafnan- legur. Amma var líka flink að spila á píanó og harmónikku og þegar hún spilaði á píanóið var hægt að skynja að í henni bjó lífskraftur. Hún var hrifin af rytmískum takti jasstónlistar, þeirrar gerðar, sem varð vinsæll á hennar yngri árum og mér fannst undravert hvernig hún gat látið líflaust hljóðfærið, sem var búið til úr viði og vírum, hljóma eins og hreina töfra. Stíll ömmu var fullur af lífi og hafði mikil áhrif á mig. Það var svo á pí- anó ömmu sem ég lærði sjálfur ungur að spila fyrsta alvörupíanó- lagið með báðum höndum. Ég reyndi eins og ég gat að herma eft- ir stílnum hennar, sem hljómaði skýrt í höfðinu á mér. Þegar amma var komin í íbúð eldri borgara og ég orðinn faðir tveggja drengja, heimsótti ég hana og fannst heiður að fá að spila á píanó fyrir hana í stíl sem minnti mjög á hennar eigin. Ég varð bæði glaður og feginn þeg- ar ömmu líkaði píanóleikurinn því hún var beinskeytt og lét alltaf vita ef henni líkaði eitt- hvað ekki nógu vel. Strákarnir mínir, þá eins árs og fimm ára, dönsuðu á gólfinu og átu brúnar hjartakökur. Nú vel ári síðar talar eldri sonur minn oft um þennan dag, en minnist aldrei einu orði á píanóleik minn fyrir ömmu. Hann man hins vegar alltaf með væntumþykju eftir því hve langamma hans var góð að gefa honum brúnar hjarta- kökur. Í dag baka ég oft eins og amma pönnukökur á sunnudög- um fyrir fjölskylduna og finnst gott að finna pönnukökuilm í húsinu þegar ég spila á píanóið mitt og fylli það af tónum, sem eru mínir eigin, en sem í anda eru líkir tónunum hennar ömmu. Blessuð sé minning hennar. Ari. Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Helga Guðmundsdóttir, umsjón útfara Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför HAFÞÓRS VIÐARS GUNNARSSONAR. Fyrir hönd aðstandenda, Anna Björk Ívarsdóttir Áskær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓNAS SIGURÐUR MAGNÚSSON rannsóknarlögreglumaður, Logafold 131, lést á Landspítalanum föstudaginn 20. desember. Nanna Ólafsdóttir Sigrún K. Jónasdóttir Eiríkur Ó. Jónsson Anna H. Jónasd. Njåstad Arnstein Njåstad Magnús Jónasson Þóra M. Guðmunds. Bech Helga Á. Jónasdóttir Hrafnkell Stefánsson og barnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRA BJÖRG OTTÓSDÓTTIR, Hornbrekku, Ólafsfirði, lést á heimili sínu Hornbrekku sunnudaginn 15. desember. Jarðarförin fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 28. desember klukkan 14. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Dvalarheimilið Hornbrekku, Ólafsfirði, eða björgunarsveitir. Hörður Sigurðsson Ottó J. Harðarson Birgitta H. Sæmundsdóttir Guðni K. Harðarson Aljon Paul Sabas Þóra Björg Ottósdóttir Inga H. Ottósdóttir Marín Líf, Andri Snær og Elín Rut Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐNÝ MAGNEA JÓNSDÓTTIR, Álandi 3, Reykjavík, lést fimmtudaginn 12. desember á Landspítalanum í Reykjavík. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Kærar þakkir til þeirra sem önnuðust hana í veikindum hennar. Bjarni S. Jónasson Jónas Bjarnason Una Björg Bjarnadóttir Haukur Pálsson Bjarni Þór Bjarnason María G. Ágústsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG HELGA JÚLÍUSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, lést fimmtudaginn 12. desember. Útförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn 3. janúar klukkan 11. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hjálparstarf kirkjunnar. Ólafur Helgi Samúelsson Elín Ragnhildur Jónsdóttir Þóra Guðrún Samúelsdóttir Stefán Jónsson Kolbrún Gyða Samúelsdóttir Hodge, Donald Eugene Hodge Samúel Jón Samúelsson Berglind Ýr Gylfadóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.