Morgunblaðið - 20.12.2019, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
S
myril Line, sem á og rekur
vöruflutningaferjuna Myk-
ines og farþega- og vöru-
flutningaferjuna Norrænu,
hefur fest kaup á nýrri
vöruflutningaferju sem mun hefja
áætlunarsiglingar um miðjan janúar
2020 milli Þorlákshafnar og Hirts-
hals í Danmörku með viðkomu í Fær-
eyjum. Ferjan, sem fær nafnið Akra-
nes, er 10.000 tonn og getur tekið 100
vöruflutningavagna í hverri ferð.
Mykines hefur siglt til Þorláks-
hafnar í um tvö og hálft ár og með
flutningsleiðinni hefur fyrirtækið
stytt flutningstímann til og frá Rott-
erdam töluvert, að sögn Lindu B.
Gunnlaugsdóttur, framkvæmda-
stjóra Smyril Lina á Íslandi. Þá sé
Þorlákshöfn mjög hentug staðsetn-
ing fyrir flutninga til og frá Evrópu
þar sem sparast um átta tímar með
því að þurfa að sigla ekki fyrir
Reykjanesið hvora leið. „Þetta mun-
ar miklu þegar hlutirnir þurfa að
ganga hratt. Þetta er tilvalin lausn
fyrir flutninga á ferskum fiski. Við
erum að fara á miðnætti á föstudög-
um og dreifum um alla Evrópu á
þriðjudagsmorgni.“
Auðveldari lestun og losun
Linda segir það hafa verið algjöra
nýjung að hefja siglingar frá landinu
mjög seint í vikunni. „Þetta er eitt-
hvað sem útflytjendur á fiskiafurðum
voru að kalla eftir og til baka er mik-
ill flutningur, í gegnum Holland kem-
ur mikið af innflutningi til Íslands og
þetta hefur gengið mjög vel. Við
fundum þörf fyrir það að búa til fljóta
lausn til og frá Skandinavíu.“
Smyril Line er eina skipafélagið
sem býður upp á ferjuskipaflutninga
á Norður-Atlantshafi, eða svokallaða
RO/RO (e. Roll On-Roll Off) vöru-
flutninga, þar sem varan er flutt í
tengivögnum sem keyrðir eru um
borð í skipin, útskýrir framkvæmda-
stjórinn. Hún segir aðferðina tryggja
bæði vandaða og örugga vörumeð-
höndlun, hvort sem um er að ræða
frysti- eða kælitengivagna eða flutn-
ing á öðrum varningi.
Með nýrri siglingaleið Akranes frá
Hirsthals til Þorlákshafnar styttist
flutningstími frá Skandinaviu til Ís-
lands. „Það sem okkur finnst spenn-
andi – og við höfum heyrt frá mark-
aðnum líka – er áhugi innflutnings-
aðila á stuttum flutningstíma því með
þvi minnkar lagerhald og fjárbind-
ing. Þannig verður hægt að skila
vöru til klukkan þrjú á föstudegi og
hún er komin á áfangastað síðdegis á
mánudegi. Í skipaflutningi þykir
þetta mjög hratt. Í útflutningi erum
við líka að bjóða nýja lausn. Þú getur
sent út á mánudagskvöldi og afurðin
er komin í dreyfingu aðfararnótt
föstudags um alla Evrópu. Þetta er
alveg nýtt á Íslandi og gerir það
mögulegt að koma beint inn á veit-
ingahúsamarkaði eða í vinnslu,“ seg-
ir Linda.
Hún útskýrir að fyrirtækinu sé
kleift að sinna flutningum með þess-
um hraða vegna þriggja samverk-
andi þátta. Það taki styttri tíma að
sigla til Þorlákshafnar, styttri tíma
að losa og lesta auk þess sem skipin
séu mjög hraðskreið, en þau sigla á
tuttugu mílna hraða.
Stærri markaður á Suð-Vesturlandi
Sem fyrr segir kemur Akranes í
fyrsta skipti til hafnar hér á landi í
janúar og með því er flutningsgeta
félagsins um Þorlákshöfn tvöfölduð.
Spurð hvort horft sé fram á áfram-
haldandi vöxt hjá Smyril Line, segir
Linda svo vera. „Já við gerum það.
Við teljum að þessi lausn muni henta
mjög vel og hefur hún hentað Fær-
eyjingum síðan 1982. Í rauninni hef-
ur Norræna verið að sigla til Íslands
frá 82 en var fyrstu árin einungis að
sigla á sumrin þannig að aðeins var
hægt að flytja á sumrin, en síðan
2011 hefur verið Norræna siglt allt
árið til og frá Íslandi.
Inn- og útflytjendur hafa alltaf
þekkt þessa leið [um Seyðisfjörð] en
stærsti innflutnigs markaðurinn er á
Suð-Vesturlandinu, þannig að við
höfum verið koma okkur fyrir þar
líka. Við sjáum fyrir okkur tækifæri
á Íslandi, við hlustum bara á mark-
aðinn, sjáum hvað honum vantar og
reynum að koma til móts við það,“
segir hún.
Mikilvægt að fjárfesta í höfninni
Framkvæmdastjórinn segir mikil-
vægt fyrir fyrirtækið að samgöngur
til og frá Þorlákshöfn á landi séu góð-
ar enda fara flutningar þess til og frá
höfuðborgarsvæðinu um Þrengslin.
Hún bendir hins vegar á að með stað-
setningunni sé einnig verið að sinna
talsverðum flutningum á Suðurlandi.
„Það skiptir líka miklu máli að það
verði áframhaldandi þróun á höfninni
í Þorlákshöfn. Það þarf að laga höfn-
ina, það þarf að stækka hana. Þessi
skip sem við erum að koma með eru
stærstu skipin sem komast í höfnina
og við vonum að þarna verði fjárfest í
að laga hafnarsvæðið. Þá gætum við
kannski einnig notað stærri skip.“
Tvöfalda flutningsgetu um Þorlákshöfn
Nýtt skip Smyril Line,
Akranes, kemur í fyrsta
sinn til hafnar í Þorláks-
höfn í næsta mánuði og
frá þeim tíma munu tvö
skip sigla þaðan til Dan-
merkur. Framkvæmda-
stjórinn segir fyrirtækið
bjóða íslenskum mark-
aði einstaka lausn í
hröðum siglingum.
Skipið Akranes mun hefja siglingar til
Þorlákshafnar í janúar. Fyrir siglir Mykines
til hafnarinnar og eru bæði skipin þannig
gerð að siglt er með vagna í stað gáma.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Linda B. Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri Smyril Line á Íslandi, segir tækifæri til frekari vaxtar.
Ljósmynd/Smyril Line
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma