Morgunblaðið - 20.12.2019, Page 25

Morgunblaðið - 20.12.2019, Page 25
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019 MORGUNBLAÐIÐ 25 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Þ etta var mjög stuttu eftir að Háskólinn á Akureyri var stofnaður og var hugsað frá stofnun skólans sem ein af aðalnámslínum skólans,“ svarar Hreiðar Þór Valtýsson, lektor við Há- skólann á Akureyri, spurður um upphaf sjávar- útvegsfræðikennslu skólans. Hann viðurkennir að vinsældir námsins hafi ekki verið áreiðanlegar. „Aðsóknin hefur væg- ast sagt verið sveiflukennd. Við höfum gengið í gegnum miklar sveiflur frá byrjun. Í upphafi var meðalárgangurinn um tíu manns og sveifl- aðist mikið. Svo lentum við í krísu fyrir 2008, það voru mjög fáir nemendur hérna. Eftir það hefur okkur gengið mjög vel. Núna erum við með 20 til 30 nemendur í árgangi, þetta eru 80 til 90 nemendur í allt.“ Fyrirtækin vilja starfsmenn með breiða menntun Hreiðar Þór segir enga staka skýringu að baki því að nemendum hafi fjölgað. Hann segir að upp úr 2000 hafi Háskólinn á Akureyri unnið að því að skapa fjölbreyttara námsframboð og við það hafi þróun í sjávarútvegsfræði orðið eftir. „Ég held að við höfum aðeins gleymt sjávarút- vegsfræðinni á tímabili. Svo bættist við að utan- aðkomandi skilyrði fyrir árið 2008 voru eigin- lega þannig að sjávarútvegurinn var talinn gamli tíminn. Við ætluðum allir að vera góðir í alþjóðlega bankakerfinu.“ Þá hafi efnahags- hrunið breytt sýn fólks á greininni og margir áttað sig á að sjávarútvegur væri nokkuð sem Íslendingar væru færir í og við það hafi nem- endum farið að fjölga, að sögn lektorsins. „En hluti er líka vegna þess að við tókum okkur til í andlitinu og fórum að bæta námið. Við fengum mjög góðan styrk frá menntamála- ráðuneytinu og LÍÚ, þeir styrktu okkur til þess að efla námið og þetta nýttist mjög vel. Árið 2010 vorum við síðan komin með mjög góðan fjölda nemenda,“ bætir Hreiðar Þór við. Ljóst er að margt í umgjörð sjávarútvegsins hefur breyst frá árinu 1990. Spurður hvort breytingar innan atvinnugreinarinnar hafi haft áhrif á vinsældir námsins svarar lektorinn: „Sjávarútvegsfræðin er mjög breið menntun, þetta eru þrjú ár, þriðjungur er viðskiptafræði, þriðjungur vísindi og þriðjungur eru sérgreinar sjávarútvegs. Gerð var könnun 2010 og vorum við að velta því fyrir okkur hvort það væri þörf á svona víðu námi, hvort fyrirtækin vildu frekar ráða lögfræðinga eða viðskiptafræðinga. Það reyndist ekki vera. Þau vildu fólk sem var með breiða menntun og því til stuðnings eru nú stærstu vinnuveitendur sjávarútvegsfræðinga stærstu sjávarútvegsfyrirtækin, eins og Sam- herji og Brim. Við lesum úr því að það sé þörf og áhugi fyrir þessu.“ Meistaranám Lektorinn segir ekki stefnt að mikilli breytingu á náminu enda virðist almennt vera mikil ánægja með það. Hins vegar verður á næsta ári boðið upp á meistaranám sem tengist sjávarút- vegsfræðináminu sem hefur verið kennt til þessa. „Það er í samstarfi við Háskóla Íslands. Þeir verða með meistaranám þar sem þeirra nemendur taka einhverja af okkar áföngum og á móti munu okkar nemendur taka einhverja af þeirra áföngum,“ útskýrir Hreiðar Þór og bend- ir á að Ísland sé lítið land og mikilvægt að há- skólastigið finni leiðir til þess að samnýta mann- auð og þekkingu frekar en að vera í samkeppni. Aðsóknin mikil í sjávarútvegsfræði í HA Við Háskólann á Akureyri hófst kennsla í grunnnáminu sjávarútvegsfræði árið 1990. Aðsókn í námið hefur verið sveiflukennd í gegn- um árin, en síðustu ár hafa verið með besta móti og stendur til að bjóða meistaranám á næsta ári í samstarfi við Háskóla Íslands. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Stærstu sjávarútvegs- fyrirtækin vilja sjávar- útvegsfræðinga, segir Hreiðar Þór Valtýsson. AFLHLUTIR EHF / DRANGAHRAUNI 14 / 220 HAFNARFJÖRÐUR / SÍMI 544 2045 / AFLHLUTIR@AFLHLUTIR.IS til hamingju með nýjan Bárð SH-81 Óskum útgerð og áhöfn Bárðar SH 81 til hamingju með nýtt og glæsilegt skip

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.