Morgunblaðið - 20.12.2019, Blaðsíða 34
Ó
tvírætt er að á eyju í norð-
anverðu Atlantshafi sé
líklegt að verði vont veð-
ur og eru landsmenn
margir hverjir vanir
ýmsum uppákomum enda hefur oft
blásið rækilega hér á landi, jafnvel á
síðustu árum.
Þá er heldur algengt að ýmsir
bátar laskist í slæmu veðri þrátt fyr-
ir að lagt hafi verið kapp á að
tryggja landfestar og ganga frá öll-
um búnaði.
Mesta hættan er þó kannski ekki
af veðrinu sjálfu heldur því að fólk
verði værukært og búist við að
næsta óveður verði svipað og síðast
þegar allt gekk vel, tali veðrið jafn-
vel niður. Er þá hætta á því að ekki
verði gerðar viðhlítandi ráðstafanir
til þess að mæta veðurguðunum, en
eins og kom bersýnilega í ljós í síð-
ustu viku getur veðurofsinn jafnvel
komið gömlum jálkum á óvart.
Þykir líklegt að óveður færist aft-
ur yfir landið á einhverjum tíma-
punkti og sem betur fer eru veður-
athuganir nægilega nákvæmar til
þess að hægt sé að búa sig undir
slíkt með þokkalegum fyrirvara.
Íslensk veðrátta
ekki ný af nálinni
Ef stefnt er að því að forðast tjón vegna veðurs er
líklega best að gera ávallt ráð fyrir því versta.
Morgunblaðið/Golli
Togarinn Lómur II slitnaði frá bryggju í veðurofsa og strandaði í smábátahöfnini í Kópavogi 2008.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Maggi Jóns KE-77 strandaði í Sandgerðishöfn í hvassviðri 2004.
Morgunblaðið/Golli
Í óveðri árið 2015 sökk Sæmundur fróði, bátur Háskóla Íslands, í höfninni í Reykjavík.
Morgunblaðið/Eggert
Mikið tjón varð í Vestmannaeyjum þegar óveður skall á með miklum látum 2015.
Morgunblaðið/Kristinn Ben.
Í nóvember 2007 átti Björgunarfélag Hornafjarðar fullt í fangi með að festa smábáta sem losnuðu.
Morgunblaðið/RAX
Í fárviðrinu árið 1977 lentu skipi uppi í fjöru á Stokkseyri.
Morgunblaðið/Hafþór
Bátarnir í Húsavíkurhöfn velktust um í vonskuveðri í mars 2014 þegar óveður gekk yfir norðanvert landið.
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019