Fréttablaðið - 30.11.2002, Qupperneq 6
ÞJÓÐSKRÁ „Það var hringt í mig frá
Hagstofunni fyrir nokkrum árum
og ég spurð hvort þeir mættu stytta
millinafn mitt niður í einn staf. Ég
sagði nei en þeir styttu samt,“ segir
Hrafnhildur Hanna Þorgerðardóttir
bókasafnsfræðing-
ur um þá meðferð
sem nafn hennar
fékk í þjóðskrá.
Eins og Fréttablað-
ið greindi frá í gær
er þriggja ára
stúlka á Neskaup-
stað sem ekki fær inni í þjóðskrá
með nafn sitt af því að það er einu
stafabili lengra en kerfið samþykk-
ir. Stúlkan, sem heitir Sveinbjörg
Dione Steinþórsdóttir, er enn skráð
sem Stúlka Steinþórsdóttir vegna
þess að foreldrar hennar hafa neit-
að fallast á annað en að hún verði
skráð undir fullu nafni. Faðir Svein-
bjargar Dione, Steinþór Michelsen,
bakari á Neskaupstað, hefur í rúm
tvö ár barist fyrir því að þjóðskráin
tæki upp nafn dótturinnar en ekki
haft árangur sem erfiði vegna þess
að einu stafabili munar á því að
nafnið sleppi innan rammans.
Hrafnhildur Hanna segir að
bæði móðir hennar og amma hafi
lent í því sama. Móðir hennar heitir
Þorgerður Stefanía Guðmundsdótt-
ir, sem ekki sleppur inn í þann kvóta
stafabila sem þjóðskráin leyfir.
„Það var hringt í mömmu og hún
spurð hvort fella mætti niður milli-
nafnið og setja aðeins S í staðinn.
Mamma féllst á þetta en síðar kom í
ljós að þeir felldu nafnið alveg út en
settu ekki einu sinni skammstöfun-
ina. Hún fékk essið aftur eftir mik-
ið þras,“ segir Hrafnhildur Hanna.
En saga mæðgnanna er ekki öll
því amma Hrafnhildar Hönnu lenti í
því sama og kerfi Hagstofunnar
henti millinafni hennar sem hún
hafði notað sem aðalnafn. Amma
Hrafnhildar Hönnu heitir Þuríður
Ingibjörg Sigurðardóttir en einn
góðan veðurdag var hún einfaldlega
Þuríður Sigurðardóttir í þjóð-
skránni.
„Þegar amma fór á elliheimili
vakti það athygli mína að fólkið þar
kallaði hana Þuríði en ekki Ingu eins
og hún hafði ævinlega verið kölluð.
Við eftirgrennslan kom í ljós að
búið var að henda út Ingibjargar-
nafninu og í kerfinu hét amma að-
eins Þuríður og þannig var það í
hennar nýju heimkynnum. Ingi-
björg amma hét allt í einu Þuríður
á elliheimilinu,“ segir Hrafnhildur
Hanna.
Hún segist hafa barist fyrir því
að nafn hennar færi rétt í þjóð-
skrá en ekki haft erindi sem erf-
iði.
„Nafnið er mér heilagt og ég er
mjög ósátt við þessa meðferð. Ég
mun berjast fyrir því að halda báð-
um nöfnum inni,“ segir Hrafnhildur
Hanna Þorgerðardóttir, ein þeirra
sem eru með of langt nafn til að
þjóðskráin samþykki það.
rt@frettabladid.is
6 30. nóvember 2002 LAUGARDAGUR
LÖGREGLUFRÉTTIR
„Ingibjörg
amma hét allt
í einu Þuríður
á elliheimil-
inu.“
Skipulagsstofnun fellst á tvöföldun Reykjanesbrautar:
Þrenn mislæg gatnamót og fjórar akreinar
UMHVERFISMÁL Skipulagsstofnun
hefur fallist á fyrirhugaða tvö-
földun Reykjanesbrautar frá
Fífuhvammsvegi í Kópavogi að
Álftanesvegi í Garðabæ. Telur
stofnunin að framkvæmdin
muni ekki hafa í för með sér um-
talsverð umhverfisáhrif.
Reykjanesbrautin verður
breikkuð úr tveimur akreinum í
fjórar á þessum kafla og byggð
þrenn ný mislæg gatnamót.
Stefnt er að því að hefja fram-
kvæmdirnar á næsta ári og er
kostnaður áætlaður um 1,9
milljarðar króna.
Skipulagsstofnun telur að
helstu umhverfisáhrif fyrirhug-
aðra framkvæmda verði á hljóð-
vist í aðliggjandi íbúðahverfum.
Með mótvægisaðgerðum, þ.e.
gerð hljóðvarna, minnki hljóð-
stigið hins vegar og verði í sam-
ræmi við gildandi reglur. Stofn-
unin telur að framkvæmdin
muni hvorki hafa veruleg áhrif
á loftgæði né gróðurfar eða
fuglalíf. Sjónræn áhrif verði
hins vegar töluverð en draga
megi úr þeim með því að fella
mislæg gatnamót eins og kostur
er að landslagi.
Kæra má úrskurð Skipulags-
stofnunar til umhverfisráðherra
og er kærufrestur til 3. janúar á
næsta ári. ■
SKIPULAGSSTOFNUN
Helstu umhverfisáhrif fyrirhugaðra framkvæmda verða á hljóðvist
í aðliggjandi íbúðahverfum.
Hagstofan þurrkaði
út nöfn þriggja ættliða
Hagstofan spurði Hrafnhildi Hönnu Þorgerðardóttur hvort stytta mætti millinafn hennar.
Hún neitaði en samt var stytt.
HRAFNHILDUR HANNA ÞORGERÐARDÓTTIR
Berst fyrir því að fá bæði sín nöfn inn í þjóðskrá. Móðir hennar og amma hafa lent í því
sama og nöfn þeirra hafa týnst.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Efling upplýsingatækni á landsbyggðinni:
Samkeppni um
rafrænt samfélag
UPPLÝSINGASAMFÉLAGIÐ „Því miður
er það svo að upplýsingasamfé-
lagið hefur átt erfiðara uppdrátt-
ar úti á landi en í þéttbýlinu fyrir
sunnan og er brýnt að bregðast
við því. Ég hef því ákveðið að
hrinda í framkvæmd verkefni til
að rétta hlut landsbyggðarinnar
og verður reynsluverkefni er
nefnist „rafrænt samfélag“
hleypt af stokkunum innan fárra
vikna,“ sagði Valgerður Sverris-
dóttir iðnaðarráðherra í ávarpi
sínu á opnum fundi um orkumál
og iðnaðartækifæri á Húsavík.
Tvö byggðarlög á starfssvæði
Byggðastofnunar verða valin í
kjölfar samkeppni til að þróa og
prófa aðferðir sem aðrir geta tek-
ið sem fyrirmyndarlausnir við
eflingu atvinnulífsins, til að bæta
menntun og menningu og efla lýð-
ræðið. Áætlað er að 140 til 160
milljónum króna verði varið til
verkefnisins á næstu þremur til
fjórum árum. ■
Hæstiréttur Íslands:
Ábúendur
dæmdir
af jörð
DÓMSMÁL Ábúendum á Búrfelli í
Borgarfjarðarsveit ber að víkja af
jörð sinni og greiða sveitarfélaginu
2,7 milljónir króna vegna vangold-
innar húsaleigu, greiðslu lána og
opinberra gjalda. Hæstiréttur Ís-
lands staðfesti þar með dóm Hér-
aðsdóms Vesturlands frá því í febr-
úar. Jörðin var í eigu ábúenda þar
til 1993 er Stofnlánadeild landbún-
aðarins keypti hana á nauðungar-
sölu. Hálsahreppur, nú Borgar-
fjarðarsveit, keypti jörðina af
Stofnlánadeildinni. Hreppurinn
gerði ábúðarsamning við ábúend-
urna sem sagt var upp árið 1999,
þar sem ábúendurnir höfðu ekki
staðið við hann.
Ábúendurnir neituðu hins vegar
að víkja af jörðinni. Tvisvar var
reynt að ganga til samninga við
fjölskyldu ábúenda um kaup á jörð-
inni en í hvorugt skiptið var staðið
við gerðan kaupsamning. ■
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR
Efnir innan tíðar til samkeppni meðal sveitarfélaga á landsbyggðinni um þróunarverkefni í
upplýsingatækni.
VEISTU SVARIÐ?
Svörin eru á bls. 46
1.
2.
3.
Guðmundur Sesar Magnússon
hefur látið að sér kveða um
málefni ungra fíkniefnaneyt-
enda. Hann er frumkvöðull að
stofnun landssamtaka foreldra
barna og unglinga sem lent
hafa í klóm fíkniefna. Hvað
kallast þau?
Þetta bæjarfélag á Íslandi vildi
krókódíla og strúta en fékk
ekki. Núna vilja íbúar þess fá til
sín lamadýr. Hvað heitir bær-
inn?
Hver er aðalhöfundur bókar-
innar Ísland í aldanna rás?
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 86.04 -0.17%
Sterlingspund 133.44 -0.17%
Dönsk króna 11.51 -0.07%
Evra 85.44 -0.11%
Gengisvístala krónu 128,17 -0,02%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 369
Velta 8.095 m
ICEX-15 1.325 0,15%
Mestu viðskipti
Sæplast hf. 201.815.831
Eimskipafélag Íslands hf. 162.145.298
Pharmaco hf. 141.841.019
Mesta hækkun
Haraldur Böðvarsson hf. 7,32%
SÍF hf. 6,98%
SR-Mjöl hf. 6,45%
Mesta lækkun
Þormóður rammi-Sæberg hf. -9,09%
Fiskmarkaður Íslands hf. -2,86%
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. -2,21%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8921,1 -0,1%
Nsdaq*: 1484,5 -0,2%
FTSE: 4165,3 -0,5%
DAX: 3320,9 0,5%
Nikkei: 9215,6 0,4%
S&P*: 938,5 0,0%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
RÁÐIST Á KARLMANN Ráðist var
á karlmann fyrir utan veitinga-
stað í miðbæ Reykjavíkur í fyrri-
nótt. Hann segir árásarmennina
hafa vera tvo. Þeir lögðu á flótta
eftir árásina. Lögreglan flutti
manninn á slysadeild og fékk
hann að fara heim að skoðun lok-
inni. Fantarnir hafa ekki fundist.
HAUKARNIR SVEIMA Haukþing,
sem er eignarhaldsfélag í eigu
Skeljungs, Burðaráss og Sjóvár-
Almennra keypti í gær 6,28%
hlut í Sjóvá-Almennum. Þetta er
önnur stórfjárfesting Haukþings.
Fyrri fjárfesting félagsins var í
Skeljungi. Nokkur barátta hafði
verið um bréf Skeljungs eftir
töluverð kaup Kaupþings í félag-
inu.
VIÐSKIPTI