Fréttablaðið - 30.11.2002, Síða 27
Fákafeni 11 • 108 Reykjavík
Sími 568 9120 • Fax 568 9117Fersk blóm, skreytingar og gjafavörur Opið mán.–mið. kl. 10–21, fim.–lau. kl. 10–22 og sun. kl. 11–21
Heitt
kakó
og
pipar
köku
r á
sunn
udag
inn
Aðventuskreytingar og jólastjörnur
í miklu úrvali.
Kíktu inn og þú kemst í jólaskap.
Aðventuhelgi
í Dalíu
LAUGARDAGUR 30. nóvember 2002
lenska partíinu. Var þarna rétt
áður en þeir slökktu ljósin.
Þannig gengur maður nafn-
laus um borgina. Kemur við á
Garði og þar er verið að gera við
allt. Verkamennirnir segja mér
að þeir viti allt um Ísland og
hverinn (eiga við Geysi) og lofts-
lagið og veðrið og Björk. Þeir
vita samt ekki hvaða þýðingu
Garður hefur fyrir okkur eða að
sívaliturninn sem sést frá lindi-
trénu í garðinum var byggður
fyrir íslenska peninga. Við ætt-
um að biðja um að fá hann hrein-
lega heim núna eftir að þeir hafa
loksins skilað handritunum. Fínt
útsýni úr honum og þeir vita ekki
einu sinni að við gáfum þeim
hann. Og ekki er hann merktur
okkur. Nei, Kristján tíundi er lof-
aður í hástert á platta á veggnum
en hvergi minnst á Ísland eða Ís-
lendinga.
„Þeir eru löngu dauðir“
Demant íslenskrar sögu í Kaup-
mannahöfn er auðvitað að finna á
Hvids Vinstue. Hér sátu allir
sem glasi gátu lyft og drukku í
sig andann. Eyddu heilu ævidög-
unum hérna og dóu svo á heim-
leiðinni. Þeir voru auðvitað
heilsudaprir og ég hef nú þá
kenningu að það hafi ekki endi-
lega verið ólifnaður. Rakt lofts-
lagið á auðvitað ekki við Íslend-
inga og ég er til dæmis með
eyrnabólgu hérna á haustin og
læknast yfirleitt ekki fyrr en ég
kem heim um jólin. Svo það er
ekki furða þótt óskabörn Íslands
hafi hrunið hér niður hægri vin-
stri út síðustu aldir.
„Ertu að koma til að skoða
myndina?“ spyrja barþjónarnir á
Hvids Vinstue, sem ekkert hefur
breyst síðan 1723, þegar ég segi
þeim að ég sé frá Íslandi og að
þessi krá hafi mikla þýðingu í
okkar sögu. Og ég svara því auð-
vitað játandi að hingað sé ég
kominn til þess eins að skoða ein-
hverja mynd.
„Við erum búnir að henda
henni. Þeir eru löngu dauðir, þú
veist það?“
Ha?
„Nei, hún er þarna inni í
horni.“ Barþjónarnir hlæja.
Myndin er teikning Örlygs
Sigurðssonar (teiknuð 1978) af
Jónasi Hallgrímssyni, Jóhanni
Sigurjónssyni, Árna Pálssyni
prófessor og Sverri Kristjáns-
syni sagnfræðingi. Ekki beint
samtímamenn eða félagar en
þeir sitja þarna á myndinni og
sulla í bjór úti í horni. Lítið borð
og tveir stólar fyrir þessa Íslend-
inga sem slysast hingað inn í leit
að eigin sögu, upphafinu. Enn ein
staðfestingin á því að ég er hund-
rað árum of seinn og á myndinni
stendur:
„Gleði sem löngu er liðin /
lifnar í sálu minni.“ ■
Hér sátu allir
sem glasi gátu
lyft og drukku í sig andann.
Eyddu heilu ævidögunum
hérna og dóu svo
á heimleiðinni.
,,